Morgunblaðið - 23.05.1978, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 23.05.1978, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1978 27 Erlendaríþróttafréttir Enn vinnur Stevenson KÚBUMAÐURINN Teofilo Stevenson sigraði með yfirburð- um í þungaviktarflokki í Heims- meistarakeppni áhugamanna á hnefaleikum, sem fram fór í Belgrad í Júgóslavíu. Stevenson sló Júgóslavann Vujkovic niður undir lok 1. lotu og þegar 2. lotan átti að hefjast tilkynnti Júgóslavinn að hann vaeri hættur. Kúbumenn höfðu mikla yfirburði á mótinu, unnu alls fimrri heimsmeistaratitla. Þetta, var annar heimsmeistaratitill Stevensons og hann hefur einnig tvívegis sigrað á Olympíuleik- um. Nú er reynt að koma á keppni milli hans og Muhamed Alis. Óskemmti- leg af- mælisgjöf NORSKA félagið Brann á 100 ára afmæli á þessu ári og í tilefni þess kom félagið á móti, þar sem hollenska liðið Ajax var meðal þátttakenda og einnig Manchester United. I fyrsta leiknum léku Ajax og Brann og er skemmst frá því að segja að Ajax vann 12:1 og skoraði hollenski landsliðsmaður- inn Rudi Geels 6 markanna, en hann lék sem gestur með liðinu, þar sem hann var nýlega seldur til Anderlecht. Þetta var stærsta tap Brann síðan 1954 og var því um heldur óskemmtilega afmælisgjöf að ræða. I gær lék Ajax við Manchester Utd. og vann 3:0. Rudi Geels skoraði öll mörk liðsins. Skírði soninn eftir leik- mönnum í Liv- erpoolliðinu Liverpool-aðdáandinn Michael Hayes, sem býr í Lincoln í Englandi, varð svo yfir sig ánægð- ur þegar Liverpool varð Evrópu- meistari í annað sinn á dögunum að hann skýrði son sinni uhgan í höfuðið á öllum leikmönnum liðs- ins og framkvæmdastjóra aö auki. Drengurinn heitir því eftirfarandi nafni. í sviga eru eftirnöfn viðkom- andi leikmanna: Thomas (Smith) James (Case) Emelyn (Hughes) David (Fairclough) Reymound (Kennedy) Terence (McDermott) Phillip (Neal) Kenneth (Dalglish) Stephen (Heighway) Alan (Hansen) Phillip (Thompson) Greame (Soun- ess) Raymound (Clemence) Robert (Paisley) Hayes. Wales vann 1:0 WALES sigraði Norður-írland 1:0 í Meistarakeppni brezku landsliðanna á föstudagskvöld en leikið var í Wrexham. Áhorf- endur voru með fæsta móti' éöa 9.077 og fengu þeir að sjá heldur slakan leik. Leikmenn Wales voru mun betri í leiknum og sérstaklega var Carl Harris hættulegur á vinstri kantinum. írski mark- vöröurinn Jim Platt varði tvisv- ar frábærlega vel frá Harris og Phil Dwyer og Dwyer átti auk þess skot í stöng. Sigurmarkið kom á 70. mínútu. Nick Deacy var brugðið innan vítateigs af Jimmy Nicholl og skoraði Deacy sjálfur úr vítaspyrnunni. Wales: Davies, Jones, Steven- son, Gareth,Davies, Roberts, _____ Stevensori geíur Tonv Tnhhs hnrkn ' -ihar heimmeistarakeppni áhugamanna. Yourath, Mahony, Flynn, Dwy- er, Deacy, Harris. N-írland: Platt, Hamilton, Scott, Chris Nicholl, Jimmy Nicholl, David, McCreery, Mcll- roy, 0‘Neill, Anderson, Arm- ■strong, McGrath. Lokastaðan Lokastaðan í Meistarakeppn- inni varð þessi: England 3 3 0 0 5:1 6 Wales 3 111 3:4 3 Skptland 3 0 2 1 2:3 2 N-írlands 3 0 12 1:3 1 Skotland átti leik- inn en Eng- land vann SKOTLAND varð að þola tap fyrir Englandi liO á Hampden Park í Glásgow á laugardaginn í síðasta leik liðsins fyrir Ileimsmeistarakeppnina f Argentínu, sem hefst eftir rúma viku. Leikurinn var liður í Meistarakeppni brezku iands- liöanna og með sigrinum yfir Skotum tryggðu Englendingar sér sigur í keppninni. Unnu þeir alla leiki sína. Sigurmark- ið gegn Skotum skoraði Steve Coppell sjö minútum fyrir leikslok. Eftir að hafa valdið vonbrigð- um gegn Norður-írum og Wales-mönnum en í þeim leikj- um náði Skotland aðeins jafn- tefli vonuðust skozku landsliðs- mennirnir eftir þvi að geta sýnt góðan leik gegn Englendingum og unnið þá. En enda þótt Skotar væru betri tvo þriðju hluta leiksins máttu þeir þola tap. Englendingar skoruðu sitt eina mark sjö mínútum fyrir leikslok. Peter Barnes sendi þá knöttinn fyrir markið og Rough markvörður reyndi að slá bolt- ann frá en mistókst og Cóppell náði að sendá boltann í markið. I miðju vallarins réðu þeir Rioch, Masson og Hartford lögum og lofum lengst af en í seinni hálfleik fóru ensku tengi- liðirnir Currie og Wilkins loks að ná tökum á leiknum og voru þeir Cemmill og Souness þá settir inn fyrir Rioch og Masson. En þrátt fyrir að Skotarnir ættu meira í leiknum tókst þeim ekki að nýta tækifærin en næst því að skora var Hártford en hann skaut framhjá í dauðafæri. Skozku landsliðsmennirnir létu tapið ekki á sig fá og eftir leikinn hlupu þeir heiðurshring á Hampden og áhorfendur hróp- uðu „Við verðum heimsmeistar- ar“. Áhorfendur voru 88.000. Skotland: Rough, Kennedy, Burns, Forsyth, Donachie, Masson, Rioch, Hartford, Dalglish, Jordan, Johnston, Varamenn: Cemmill og Souness. England: Clemence, Neal, Watson, Hughes, Mills, Currie, Wilkins, Coppell, Mariener, Francis, Barnes. Varamenn: Greenhoff og Brokking. Þjóðverjar unnu Dani V-Þjóðverjar sigruðu Dani með 20 mörkum gegn 15 í landsleik í handknattleik í Hamborg um helgina. V-Þjóðverjar höfðu nokkra yfirburöi í leiknum og áttu Danir litla möguleika. Staðan f hálfteik var 13—6. Markhæstir Þjóðverja í leiknum voru þeir Kluspies með 7 mörk og Freisler með 5 mörk. Hjá Dönum skoruöu Erik Bue Petersen 4 og Morten Stig Christensen 3. Áhorfendur voru 4.000. • Mike Tully fagnar eftir metstökkið. Heimsmet í stangarstökki 21 ÁRS GAMALL Bandaríkja- maður Mike Tully frá UCLA háskólanum setti nýtt glæsilegt heimsmet í stangarstökki síðastliðinn föstudag. Stökk hann 5,71 metra, og hnekkti hann þar með tveggja ára gömlu meti. Tully fór yfir methæðina í fyrstu tilraun. Heimsmetið var sett á miklu frjálsíþróttamóti í Oregon. Holland vann AUSTURRÍKISMENN löpuðu sín- um fyrsta landsleik í knattspyrnu síöan 13. okt. 1976, er Holland sigraði þá í vináttulandsleik 1—0 í Vín á laugardag. Það var Arie Haan sem skoraði mark Hollands. Austurrfkismenn áttu ágæt tæki- færi í leiknum sem þeim tókst ekki að nýta. Hollenski landsliösþjálfar- inn Ernst Happei var að reyna ýmsar leikaðferðir og leikmenn í nýjum stööum í leiknum. Áhorfendur voru 65.000. Liö Hollands: Jongbloed, Suurbier, Krol, Rijsebergen-Poort- vliet, Neeskens, Jansen, van Hanegem, Kerkoff, Arie Haano, Rensenbrink. Austri krækti óvænt í stig í Sandgerði ^ Sandgerði 21. maí. Á LÁUGARDAGINN leiddu saman hesta sína á Sandgerðisvelli í 2. deild íslandsmótsins Reynir og Austri írá Eskifirði. Leiknum lauk með jafntefli 1*1 en í hálfleik var staðan OiO. Leikmenn Reynis léku á móti allsnörpum vindi í fyrri hálfleik en tóku eigi að síður leikinn fljótlega í sínar hendur og segja má að það hafi verið endurtekn- ing frá leiknum við Þór um síðustu helgí að þeir léku mun betur úti á vellinum og sýndu oft á tíðum mjög skemmtilega samleikskafla og sköpuðu sér mörg allgóð marktækifæri en mörkin létu á sér standa. Næst því að skora komust þeir strax á 5. mínútu leiksins þegar Þórður Marelsson skallaði hár- fínt framhjá. Lið Austra átti aftur á móti auðsjáanlega við ofurefli að etja og skapaði sér nánast engin marktækifæri í hálfleiknum. Á 32. mínútu var einum leikmanna þeirra, Hlöðver Rafnssyni, sýnt gula spjaldið fyrir hrindingu. I seinni hálfleik var sama sagan uppi á teningnum. Leik- menn Reynis óðu í marktæki- færum ef svo má segja, sem ekki nýttust og ef litið er á minnis- blaðið eru þessi einna opnust. Á 6. mínútu átti Ari Arason skalla rétt utan við stöng. Á 13. mínútu átti Pétur Sveinsson hörkuskot, sem markvörður varði naum- lega í stöng og síðan í horn, og á 20. mínútu -var Sigurður Guðnason í dauðafæri en skot hans fór yfir. Á 37. mínútu s.h. kom loks markið langþráða hjá heima- mönnum er Sigurður Guðnason skoraði með skalla eftir góða fyrirgjöf frá Jóni Ólafssyni. En Reynismenn voru ekki lengi í Paradís, því þeir voru ekki meira en svo búnir að fagna markinu þegar Austramenn höfðu jafnað metin með marki, sem hinn eldsnöggi miðherji þeirra, Björn Kristjánsson, skoraði er honum tókst að slíta sig úr gæzlunni og komast einn inn fyrir og í markið rúllaði laust skot hans framhjá út- hlaupandi markverði. Var þetta í þriðja skiptið, sem Björn lék þennan leik, en í hin skiptin tvö hafði markverði Reynis, Jóni Örvari, tekizt að bjarga með úthlaupi. Voru þetta einu mark- tækifæri Austramanna í s.h. Þær mínútur, sem eftir voru leiksins, sóttu Reynismenn ákaft en tókst ekki að knýja fram sigur. Um liðin vil ég fátt eitt segja nema hvað mér fannst Björn Kristjánsson miðherji Austra mjög laginn og snöggur leik- maður og markvörður þeirra stóð sig einnig með prýði. Leikmenn Reynis virka mjög léttleikandi og nokkuð jafnir og vörnin er þeirra sterkari hlið, a.m.k. þangað til framlínumenn- irnir finna leiðina í mark andstæðinganna því enginn leikur vinnst án markskorunar. — Jón. ísfirðingar byrja vel ÍSFIRÐINGAR byrjuðu baráttu sína í annarri deild með því að gera sér lítið fyrir og sigra Ilauka á heimavelli þeirra í Hafnarfirði á laugardag, 2>1. ÍBÍ var vel að sigrinum komið og voru úrslit leiksins sanngjörn, lék lið þeirra bráðvel og oft brá fyrir stórgóðum samleiksköflum, auk þess sem barátta var góð. Gangur leiksins var sá að í á markteigshornið kom Axel byrjun var leikurinn í jafnvægi, markvörður á móti og reyndi að bæði liðin sóttu til skiptis. Haukarnir urðu fyrri til að skora og var þar að verki Lárus Jónsson sem fékk góða skalla- sendingu frá Elíasi Jónassyni inn í vítateig og sendi hann knöttinn beint í netið. Þannig var staðan í leikhléi. ísfirðingar komu ákveðnir til leiks og með baráttuvilja og ljómandi sam- leik tókst þeim að ná tökum á miðju vallarins óg sækja stíft. Á 17. mínútu síðari hálfleiks fengu Isfirðingar innkast við enda- mörk, og eftir iangt innkast fyrir markið tókst Gunnar Péturssyni að renna sér á knöttinn og skora framhjá Axei markverði Hauka. Var sem Haukarnir misstu baráttuviljann er líða tók á leikinn, jafnframt J)ví sem ÍBÍ sótti í sig veðrið. Á 30. mínútu í seinni hálfleik braust Jón Oddsson skemmtilega í gegnum vörnina og er hann var kominn loka markinu en Jón sá við honum og skaut á stöngina nær og skoraði. Þannig urðu úrslit leiksins óg þrátt fyrir að bæði liðin fengju tækifæri tókst þeim ekki að skora fleiri mörk. Þó skall hurð nærri hælum alveg í lok leiksins er Jón Oddsson lék laglega í gegn og plataði mark- manninn líka en skaut yfir autt markið. Ekki verður annað sagt en Isfirðingar byrji dável og er óhætt að reikna með þeim í toppbaráttunni í 2. deild í sumar leiki þeir eins vel og þeir gerðu í Hafnarfirði. Jón Oddsson var besti maður liðsins, er hann sókndjarfur og hefur dágóða knattmeðferð. Haukaliðið var frekar slakt og var enginn einn öðrum betri. Leikmenn sýndu ekki nægilega baráttu þegar mest á reyndi, en væntanlega á liðið eftir að ná sér betur á strik er á líður mótið. - ÞR.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.