Morgunblaðið - 23.05.1978, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 23.05.1978, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1978 17 Tvær þjónustumiðstöðvar fyrir farþega SVR á árinu Tilboð í verzlunaraðstöðu í þjónustumiðstöð SVR á Hlemmi verða opnuð um næstu mánaða- mót, en reiknað er með að starfsemi hússins hefjist upp úr miðju sumri. Að sögn Eiríks Ásgeirssonar, forstjóra SVR, er byggingarkostnaður hússins tal- inn cerða 130—150 millj 'nir króna. Á Lækjartorgi er að rísa bygging með svipaðri aðstöðu fyrir farþega SVR og verður á Hlemmi og sagði Eiríkur að hann ætti von á því að aðstaðan á Lækjartorgi yrði tekin í notkun á þessu ári. Varðandi leiðakerfi SVR sagði Eiríkur að Byrjað með hraðferð í Seljahverfi í sumar ætlunin væri að gera í sumar tilraun með hraðferð í Selja- hverfi, fyrst einn vagn kvölds og morgna, og mun sá vagn aka um Breiðholt I líka, en leið 13, hraðferðin, sem nú er, fer þá Fálkabakkann í Breiðholt III. Nú er unnið að frágangi á lóð SVR á Kirkjusandi og sagðist Eiríkur vona að það tækist að loka svæðinu á þessu ári. Skrifstofur SVR hafa verið fluttar á efri hæð verkstæðis- hússins á Kirkjusandi og þar hefur einnig verið tekið í notkun mötuneyti. Umferðarstjórn og bækistöð vagnstjóra var flutt af Hlemmi að Hverfisgötu 115, þar sem skrifstofur SVR voru áður. Fimmtán nýir strætisvagnar hafa verið teknir í notkun á síðustu árum, en að sögn Eiríks kostar nýr strætisvagn nú um 25—30 milljónir króna. SVR á nú 62 vagna og er meðalaldur þeirra aðeins 5 ár, en talið er að stræ'tisvagn endist í minnst 12 ár. Sagði Eiríkur að vagnakost- ur SVR hefði aldrei verið betri en nú. Samgönguaukning síð- ustu ára hefur aðallega beinst að Breiðholti. Þá hafa verið byggð 45 bið- skýli á síðustu árum, en fyrir voru þau 70 og einnig hafa verið reist 7 söluskýli, sem eru í eigu einstaklinga. Síðustu 20 bi skýlin eru byggð úr steinsteyptum einingum og sagði Eirikur að hvert skýli kostaði nú um 400 þúsund krónur. Fjarskiptatækjum hefur verið kömið fyrir í strætisvögnunum til að auka öryggi og bæta þjónustuna og er kostnaðurinn við fjarskiptakerfið um 18 mill- jónir króna. Rekstur SVR á síðasta ári kostaði 830 milljónir króna og voru gjöld umfram tekjur 324 milljónir króna, sem borgar- sjóður greiddi. Sagði Eiríkur að með framlagi til fjárfestinga og reksturs fyrirtækisins lét% nærri að borgarsjóður greiddi eargjöld SVR niður um helming. Þjónustumiðstöðin á Hiemmi. Gangstéttir í kring verða upphitaðar og austan hússins verða vatnsþró og klukkuturn. Ljósm. MbL: Kristinn. Dr. Jón Gíslason: Eitt orð til tveggja Grein undirritaðs „Nýi sátt- máli“, sem birtist hérna í blaðinu 29. apríl s.l., virðist hafa komið talsverðu róti á hugi manna. En því miður kemur í ljós, að þeir, sem hafa látið til sín heyra um efni greinarinnar, hafa misst sjónar á merg málsins. Hann er í fæstum orðum þessi spurningi Er rétt- lætanlegt og eðlilegt að danska sé skyldunámsgrein í íslenzk- um skóium? Þó að þessari spurningu sé varpað fram, er út í hött að álykta, að sá, sem það gerir, sé Danahatari, mótfallinn nor- rænni samvinnu og þar að auki haldinn slíku mikilmennsku- brjálæði, að hann ætlist til að tvö hundruð þúsund hræður á þessu útskeri, segi fimmtán milljónum skandinavískra bræðra vorra fyrir verkum. í grein Stefáns Karlssonar, handritasérfræðings, í Mbl. 10. þ.m., segir m.a. orðrétt: „Áður hafa heyrzt raddir um að við sæktum of margt til frænda vorra á Norðurlöndum, ekki sízt þjóðfélagslega gagnrýni, (leturbr. mín), en mér er ekki kunnugt um að fyrr hafi verið stungið upp á jafnróttækri lausn þess vanda og hér er gert, nefnilega þeim að við töluðum helzt ekki við þessar þjóðir nema á ensku eða þýzku". Þó að ég verði að játa, að mér geðjist ekki að sumu af því, sem kallast „þjóðfélagsleg gagnrýni" á Norðurlöndum, þá er ég ekki svo slyngur og kænn í herstjórn- arlist og pólitík, að mér hafi komið til hugar að hefta skoð- anafrelsi manna á þennan hátt, enda yrði það skammgóður vermir. Auðvitað er eðlilegt og sjálfsagt að rækja mikil og góð samskipti við frændþjóðir vorar á Norðurlöndum. En það kemur harðla lítið við spurningunni um dönsku sem skyldugrein i ís- lenzkum skólum. Stefáni Karlssyni þykir hin mesta firra að nota ensku á samnorrænum ráðstefnum, þó að hann viðurkenni, að hér sé við málvandamál að glíma. Drepur hann aðeins á þá lausn, að fá hverjum ráðstefnugesti túlk, sem þess óskar. En mér er spurn: Á hvaða tungu ætti að þýða? Svíar vildu láta þýða á sænsku, Danir á dönsku, Norð- menn á norsku (hvort sem það ætti nú að vera landsmál eða ríkismál), Finnar á finnsku, Samar á lappnesku, Færeyingar á færeysku, Grænlendingar á grænlenzku og íslendingar á íslenzku o.s.frv. Þá höfnuðum við að lokum í hinu dýra fjöltúlkunarkerfi, sem mér skilst að notað sé á ýmsum alþjóðlegum ráðstefnum, t.a.m. Sameinuðu þjóðanna: Menn styðja á hnapp og út fossar t.a.m. franska, menn styðja á annan og út bunar þýzka o.s.frv. Jón Gíslason Að minni hyggju væri því enska sem ráðstefnumál á Norður- löndum ódýrasta og skynsam- legasta lausn vandans. Vandinn er mikill og meiri en vér Islendingar gerum oss grein fyrir. Mjög margir ráðstefnu- gestir, meira að segja frá Noregi og Svíþjóð, eiga oft og einatt mjög erfitt með að fylgjþast með því sem Danir segja. Veldur því framburðurinn. Þeim geng- ur jafnvel betur að skilja Islendinga, sem tala dönsku með íslenzkum framburði. Meira að segja innan sjálfra hinna ein- stöku landa eru málsamfélög, sem aðrir samlandar þeirra eiga erfitt með að skilja, t.a.m. skánska í Svíþjóð eða landsmál og ríkismál í Noregi. Mjösen nefnist vatn eitt mikið í Noregi, skammt frá Hamri. Mér var sagt á þeim slóðum, að fólk, sem byggi sinn hvorum megin vatns- ins skildi ekki hvert annað. Ef markmið ráðstefnuhalds er að koma öllum þátttakendum í skilning um þau mál, sem á dagskrá eru og gefa þeim kost á að koma skoðunum sínum á framfæri, þá virðist mér, enn sem fyrr, að enska leysti málvandann bezt. Yfir veizlu- borðum væri mönnum svo frjálst að mæla á þá tungu, er þá lysti, enda eru þá sjaldan svo mikilvæg mál á dagskrá, að miklu skipti, að hvert orð komist til skila. Um stöðu danskrar tungu sem valgreinar í skólum á landi hér leyfi ég mér að vísa til greinar minnar í Mbl. 13. maí: „Og þú líka“. Og auðvitað gæfist nemendum einnig kostur á að nema norsku eða sænsku í stað dönsku, enda er það einnig hægt nú, a.m.k. í orði kveðnu. Stefán Karlsson er vafalaust glöggskyggnari á handrit og æfðari að lesa máð letur á gulnuðum blöðum en að sál- greina menn. Ræð ég það af því, að hann ber mér á brýn tvenns konar andlega ókosti, sem ég vil engan veginn meðganga: Van- metakennd og þjóðrembu, sem á vist að mekja þjóðernisgorgeir. Það getur ekki flokkast undir minnimáttarkennd, þótt greint sé hreinskilnislega frá reynslu minni og annarra íslendinga, sem eru að gera ófullkomnar tilraunir til að mæla á danska tungu í Danmörku. Stefán var sjálfur dönskukennari og því vel mæltur á þá tungu. Markast reynsla hans að sjálfsögðu af því að einhverju leyti. Og þó að ég beri traust til íslenzku þjóðarinnar og virðingu fyrir íslenzkri tungu, væri mikið rangnefni að kenna slíkt við þjóðernisgorgeir. Ég þykist meira að segja vita, að Stefán sé með sama marki brenndur. Að öðrum kosti hefði hann ekki kjörið sér handrit vor að við- fangsefni. Að rifja upp sögulegar stað- reyndir, þegar þess er þörf, verður heldur ekki flokkað undir vanmetakennd. Dr. Hallgrímur Helgason rit- ar grein í Mbl. 13. maí s.l., sem hann nefnir „Norræna sam- vinnu og framtíð Islands". Sem vænta mátti, er þar margt vel og viturlega sagt, þó að ég geti ekki verið honum sammála um allt, t.a.m. um það, sem þar stendur um ensku sem ráðstefnumál á Norðurlöndum. Vísa ég um það efni til þess, sem ég er búinn að segja hér að framan. Því miður virðist dr. Hallgrímur haldinn þeim misskilningi, að norræn samvinna af hálfu vor Islend- inga væri í hættu, ef danska hætti að vera skyldugrein í íslenzkum skólum og að þeir, sem láti sér slíkt til hugar koma, séu andvígir norrænni sam- vinnu. Mér er nær að halda, að áhugi á skandínavískum málum færi vaxandi hérlendis, þegar einungis þeir, sem brennandi eru í andanum, næmu þær tungur í skóla. Tengslin við Norðurlönd standa þá ekki eins djúpum rótum á Islandi og ég hygg vera, ef svo mundi eigi verða. Því miður hygg ég, að sú vernd, sem dr. Hallgrímur telur, að Norðurlandaþjóðir geti oss í té látið, ef í harðbakkann slær, sé næsta haldlítil. Er hollt í því sambandi að minna á atburða- rás sögunnar á þessari öld. Menningarleg samskipti eru hinsvegar eðlileg og sjálfsögð. Get ég tekið undir flest af því, sem dr. Hallgrímur segir um það efni, þó að hann verði á köflum full ljóðrænn eða rómantískur, eins og t.a.m. þegar hann segir um Noreg: „Þar gróa sömu grös á jörðu, sömu fuglar fljúga utn geim og Framhaid á bls. 38

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.