Morgunblaðið - 23.05.1978, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 23.05.1978, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUÐAGUR 23. MAÍ 1978 29 Fræðsluráð Reykja- víkur afhendir verð- laun f yrir barnabækur Fræðsluráð Reykjavíkur af- henti í gær verðlaun fyrir beztu barnabók ársins 1977 og beztu þýðingu á barnabók á liðnu ári og hlutu þau Ármann Kr. Einars- son fyrir beztu barnabókina og Silja Aðalsteinsdóttir og Heimir Pálsson skiptu með sér verðlaun- um fyrir þýðingar sínar á barna- bókum. Birgir ísl. Gunnarsson borgar- stjóri sagði í ávarpi að Fræðsluráð hefði í fimm ár veitt þessi verðlaun, en þau sem fjölluðu um málið væru Matthías Haraldsson, Jenna Jensdóttir og Teitur Þor- leifsson. Jenna Jensdóttir hafði orð fyrir nefndinni og fór nokkrum orðum um æviatriði verðlauna- hafa. Ármann Kr. Einarsson fékk verðlaun fyrir bók sína Ömmu- stelpu, en hann hefur um 40 ára skeið skrifað bækur fyrir börn. Hafa þær m.a. verið þýddar á Norðurlandamál. Silja Aðalsteins- dóttir hlaut verðlaun fyrir þýðingu sína á bókinni Sautjánda sumar Patriks eftir Payton, en Silja hefur þýtt margar barnabækur. Heimir Pálsson hefur einnig lagt stund á þýðingar og fékk hann verðlaunin fyrir þýðingu bókar- innar Elsku Míó minn eftir Astrid Lindgren. Að loknu ávarpi Jennu Jensdótt- ur afhenti borgarstjóri verðlaunin og síðan sagði Ármann Kr. Einars- son nokkur orð og mælti m.a. á þessa leið: „Haft hefur verið á orði að tilgangur þessara verðlaunaveit- inga væri sá, að skrifaðar séu betri barnabækur og vandað sé til þýðinga á erlendum barna- og unglingabókum. Það er vel. Það verður þó aldrei gefin formúla hvernig eigi að skrifa barnabækur. Hitt er annað mál að ábyrgð barnabókahöfunda er mikil. Framar öllu ber að forða æskunni frá hvers konar sora og ofbeldi, en gefa henni hlutdeild í fegurð, hamingju og frelsi. Að mínu rnati er aðalkosturinn við þessa verðlaunaveitingu sá, að vekja athygli á stöðu barnabókar- innar. í orði kveðnu njóta barna- bókahöfundar sama réttar og aðrir höfundar, — barnabækur sama réttar og aðrar bækur. En þegar til kastanna kemur er mikill misbrestur hér á. Greidd eru oft lægri laun fyrir efni ætlað börn- um. Hvenær hafa barnabækur verið lagðar fram til bókmennta- verðlauna Norðurlandaráðs? Hve- nær hefur barnabókahöfundur hlotið Nóbelsverðlaun? Mikið skortir á að barna- og unglinga- bækur hljóti sömu umfjöllun í fjölmiðlum og hinar svokölluðu fullorðinsbækur. Sum dagblöð birta aldrei gaghrýni um barna- bækur." Þá varpaði Ármann fram þeirri hugmynd að þessi verðlaunaveit- ing yrði bundin við ákveðinn dag og haldinn yrði eins konar barna- dagur. Að lokum þakkaði hann fræðsluráði og kvaðst vona að verðlaunaveitingarnar mættu verða til þess að auka veg barnabóka. Ljósm. Heimir Pálsson, Silja Aðalsteinsdóttir og Ármann Kr. Einarsson fengu verðlaun Fræðsluráðs fyrir beztu barnabók og beztu þýðingar barnabóka á liðnu ári. að þar höfðu orðið töluverð umbrot af völdum vatna. Senni- lega hefur orðið minniháttar hlaup undan jöklinum og var bíllinn horfinn. Hans var svo leitað af og til, en ekkert fannst af honum. Leið nú hálft annað ár eða þar til sl. fimmtudag að maður frá Orkustofnun, Guð- mundur Ingi Haraldsson, kom með svonefnt segulmótstöðu- mælitæki. Við leit í jöklinum kom fram greinileg svörun á tækinu á svæði um það bil um 180 metra frá núverandi jökul- brún. Sl. föstudag var svo hafizt handa að grafa á þessum stað með jarðýtu og stórri vélgröfu og kom grafan ofan á þak bílsins á um 2,7 metra dýpi. I gær tókst svo að ná bílnum upp og reyndist hann furðu lítið skemmdur miðað við aðstæður, eins og áður greinir. Björn hefur allt frá því að hann missti snjóbílinn haldið uppi ferðum á jökulinn með Vísil-bíl sínum. Auk þess er hér snjóbíllinn Kraki en á honum hafa verið farnar tvær ferðir í Esjufjöll í vor. Þá hafa einnig Hér er komið niður á snjóbílinn. menn frá Flugbjörgunarsveit- inni farið þarna inn úr á snjósleðum og í gær voru inni á jöklinum með Vísil fullhugar frá Hjálparsveitinni. — Elías Frá hátíðafundi Félags ísl. stórkaupmanna á sunnudag. Ljósm. J.L. Gunnar Fjölmenni sótti hátíðarfund F.Í.S. FÉLAG íslenzkra stórkaupmanna minntist um helgina 50 ára afmælis og var haldinn á sunnu- daginn hátíðafundur á Hótel Loftleiðum. Sóttu fundinn ýmsir gestir, um 120—130 manns. Að morgni sunnudagsins var móttaka og bárust þá félaginu ýmsar gjafir og kveðjur bæði frá innlendum og erlendum aðilum. Einnig var lagður blómsveigur að leiði Arents Claessen fyrsta for- manns F.Í.S. Á hátíðarfundinum sungu þau Sieglinde Kahman og Sigurður Björnsson, ávarp flutti Jón Magnússon formaður F.I.S. og Gunnar Tómasson hagfræðingur flutti ræðu sem hann nefndi Verðbólgan, einstaklingurinn og þjóðfélagið. Fundarstjóri var Þór- ir Einarsson prófessor. Um kvöld- ið var síðan afmælisfagnaður og flutti þar ræðu Geir Hallgrímsson forsætisráðherra. Gunnar Tómasson hagfræðingur flytur ræðu sína en hún fjallaði um verðbólguna, einstaklinginn og þjóðfélagið. — Sjálfstæðisflokkurinn: Þörf margra sjálf- boðahða á kjördag Sjálfstæðisflokkurinn mun á kjördag veita kjósendum þá þjónustu að aka þeim til kjörstaðar og frá og verða bílar til taks á fjórum stöðum í borginni. Stefán Stefánsson veitti Mbl. upplýsingar um hvernig starfi sjálfboðaliða yrði háttað á kjördagi — Við verðum með bflaþjón- ustu fyrir þá kjósendur sem þess óska á fjórum stöðum í borginnii Seljavegi 2, Reykja- nesbraut 12, Skeifunni 11 og Seljabraut 62. Til að annast þessa þjónustu vantar flokkinn marga sjálfboðaliða með bfla sína og hafa frambjóðendur hvatt stuðningsmenn flokksins til að láta skrá sig til starfa bæði í kjördeildum og á hverfa- skrifstofum, en þörf verður á fólki til margs konar starfa. Hægt er að láta skrá sig í símum 86216 og 82900. Það hefur oft verið þörf en nú er nauðsyn og við viljum hvetja alla til að láta ekki bensfnskort hamla öflugu starfi á kjördag. borgin okkar Gjallarhorn helgað borg- arstjómarkosningum KOMIÐ er út blaðið Gjallarhorn, sem Heimdallur, samtök ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, gefur út. Blaðið er að þessu sinni helgað komandi borgarstjórnarkosningum og er í því að finna viðtöl við þrjá frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins til borgarstjórnar, þau Davíð Oddsson, Bessí Jóhannsdóttur og Björgvin Björgvinsson én öll eru þau yngri en 35 ára. Þá er í blaðinu rabbað við Birgi ísleif Gunnarsson borgarstjóra. Blaðið hefur einnig að geyma kynningu á stefnu ungra sjálfstæðismanna í málefnum Reykjavíkurborgar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.