Morgunblaðið - 23.05.1978, Qupperneq 21
21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ Í978 •'
• Skúli stekkur hæð sína í loft upp í öllum herklæðum eftir að hafa sett tvöfalt met. Eins og sjá
má er Skúli í nýju stálbuxunum sínum alveg níðþröngum. Ljósm. Mbl. RAX.
SÍÐASTA júdómótið á þessu keppnistímahili fór íram s.l. sunnudag.
Það var hin árlega Tropicana-keppni. A þessu móti keppa júdómenn
scm eru í þremur léttustu þyngdarflokkunum í júdó, þ.e. undir 71 kg,
og keppa þeir í einum opnum flokki. Þetta er eina mótið af þessu
tagi sem haldið er hér á landi.
Urslit urðu þau að Gunnar Guðmundsson UMFK sigraði.eftir jafna
keppni við félaga sinn ómar Sigurðsson. Þriðji varð Steinþór
Skúlason JFR sem er ungur og efnilegur júdómaður.
Þetta er í þriðja sinn sinn sem þetta mót er haldið. Halldór
Guðbjörnsson sigraði 1976, en hann var ekki meðal þátttakenda nú
vegna meiðsla og ekki heldur í fyrra. Gunnar sigraði einnig á
Tropicana-mótinu í fyrra.
Á þessu móti er keppt um Tropicana bikarinn sem Sól h.f. hefur
gefið til þessarar keppni.
• Sigurvegarinn, Gunnar Guðmundsson UMFK, í baráttu við einn
andstæðinga sinna. Ljósm. Mbl. RAX.
Landsliðin leika
saman f Keflavík
I KVÖLD kl. 20.00 fer fram í
Keflavík leikur milli tveggja
úrvalsliða, sem dr. Youri Ilitchev
landsliðsþjálfari hefur valið.
Annars vegar er það lið, sem
kemur til með að leika gegn
Stjörnuliði Bobby Charltons á
Laugardalsvellinum 29. maí n.k.,
og svo lið, sem skipað er leikmönn-
um 21 árs og yngri, en íslendingar
munu leika landsleik við Norð-
menn í Fredrikstad 30. maí.
Verður það í fyrsta skipti, sem
íslendingar leika landsleik í þeim
aldursflokki. Rétt er að geta þess,
að liðið er skipað leikmönnum,
sem fæddir eru eftir 1. ágúst 1957,
en auk þess má nota tvo eldri og
hafa þeir Valsmennirnir Atli
Eðvaldssón og Guðmundur Þor-
björnsson verið valdir í 21 árs
liðið.
í landsliöið undir 21 árs hafa rftirtaldir
Irikmenn vrriö vaidir,
Jón Þurbjdrnssun, ÍA. Guömundur Bald-
ursson, Fram, Börkur Innvarsson. KR.
Guðmundur Kjartansson, Val, Róbert
Agnarsson, Víkingi, Úlfar Hróarsson,
Þrótti, Rafn Rafnsson. Fram, Einar Ás-
bjiirn Ólafsson, ÍBK. Siguröur Björgvins-
ann ÍBK, Albe't Guðmvndsson, Vil,
Guðmundur Þorbjornsson, Val. Atli Eð-
valdsson, Val, Arnór Guðjohnsrn, Víkingi,
Pétur Pétursson. ÍA. Ingólfur Ingólfsson.
Stjörnunni. Pétur Ormslcv, Fram. -og
Bcnrdikt Guðmundsson, UBK.
Liðið gcgn Bobby Charlton.
Þorstcinn Bjarnason, ÍBK, Dirtrik Ólafs-
son, Vfkingi, Viðar Halldórsson, FH, Jón
Gunnlaugsson, ÍA. Gfsli Torfason, ÍBK.
Knattspyrnan
Þaö er ekki mikið skrifaö
um knattspyrnu hér á for-
síöu ípróttablaös Morgun-
blaösins en bess meira er
um hana skrifað inni í
blaöinu, sjá bls. 22,23,24,25,
26, 27 og 28!
Árni Sveinsson, ÍA, Sigurður Indriðason,
KR, Janus GuÓlauKsson, FH, Karl Þórðar
son ÍA, Injri Björn Albertsson, Val, Jóhann
Torfason, Vfkingi, Kristinn Björnsson, ÍA,
Einar Þórhallsson, UBK, Ásgeir Elfasson,
Fram, Hörður Hilmarsson, Val, og Þór
Ilreiðarsson, UBK. Guðni Kjartansson mun
stjórna þessu liði, en dr. Youri hinu yngra.
Norðurlandamet hjá Skúla
Kraftlyftingameistaramót íslands fór fram
síöastliðinn föstudag í anddyri Laugardals-
hallarinnar. Alls voru sett eitt Norðurlanda-
met og fjögur íslandsmet og var árangur
góður í öllum flokkum.
Maður mótsins var tvímæla-
laust Skúli Óskarsson, en hann
setti Norðurlandamet og þrí-
bætti Islandsmetið í hnébeygju-
lyftu. Þá var samanlagður
árangur hans einnig nýtt ís-
landsmet.
Kári Elísson, Ármanni, setti
Islandsmet í hnébeygju í 67,5 kg
flokki, lyfti 180,5 kg, og Óskar
Sigurpálsson setti Islandsmet í
110 kg flokki í hnébeygjulyftu,
lyfti 292,5 kg.
Skúli Óskarsson virðist í góðri
æfingu um þessar mundir og
gerði hann sér lítið fyrir og
þríbætti metið í hnébeygjulyftu,
lyfti 277,5 kg, en það er nýtt
Norðurlandamet í þessum
flokki.
Þá setti Skúli ísl.met í rétt-
stöðulyftu, lyfti samanlagt 295
kg. Lofar þessi árangur Skúla
góðu fyrir haustið en þá fer
fram í Finnlandi Norðurlanda-
mót og Heimsmeistaramót í
kraftlyftingum.
- ÞR.
Úrslit í kraftlyftingameistara-
móti íslands 1978»
Flokkur 56 kg.
Kristján Kristjánsson, ÍBV
HB. BP. RL. Samanl.
100 kg 60 kg 125 kg 285 kg
Flokkur 67,5 kg
Kári Elísson, Ármanni
HB. BP. RL. Samanl.
172.5 kg 100 kg 182,5 kg 455 kg
Flokkur 75 kg.
Ólafur Emilsson, Ármanni
HB BP. RL. Samanl.
177.5 kg 140 kg 222,5 kg 552,5 kg
Flokkur 82,5 kg
Skúli Óskarsson, ÚÍA -
HB BP. RL. Samanl.
277.5 kg 100 kg 295 kg 672,5 kg
Nl. met ísl. met Isl. met
Flokkur 90 kg
Helgi Jónsson, KR
HB. BP. RL. Samanl.
210 kg 132,5 kg 210 kg 552,5 kg
Flokkur 110 kg
Óskar Sigurpálsson, ÍBV.
HB. BP. RL. Samani.
292.5 kg 150 kg 280 kg 722,5 kg
Yfirþungavigt
Arthur Bogason, ÍBA.
HB BP. RL. Samanl.
205 kg 120 kg 240 kg 565 kg
CHARLTON, MOORE, HURST OG
GREAVES Á LAUGARDALSVELLI
STJÖRNULIÐ Bobby
Charlton verður hér á
íerðinni um næstu
helgi og leikur einn
leik, gegn úrvalsliði
KSI mánudagskvöldið
29. maí. Svo sem menn
rekur eflaust minni
til var Charlton hér á
ferðinni í fyrra með
lið sitt og þá vann
íslenzka úrvalið 5«2 í
skemmtilegum leik.
Það er KRR sem stendur að
heimsókn stjörnuliðsins eins og
í fyrra. Liðið kemur hingað á
sunnudaginn, leikur gegn úrval-
inu á mánudag og fer utan aftur
á þriðjudag.
Eins og í fyrra eru margir
þekktir kappar í liði Bobby
Charlton og skal fyrst fræga
telja þrjá leikmenn, sem voru í
hinu fræga landsliði Englands,
sem varð heimsmeistari í knatt-
spyrnu árið 1966. Þeir eru Bobby
Charlton, Bobby Moore og Geoff
Hurst. Annar þekktur kappi frá
fyrri árum er í liðinu, Jimmy
Greaves, einn mesti markaskor-
ari ensku knattspyrnunnar fyrr
og síðar.
Greaves var í landsliðshópn-
um enska 1966 en lék ekki
síðustu leikina vegna meiðsla og
þar á meðal úrslitaleikinn, en
• Bobby Charltoii er enn ¥ fullu fjöri þótt kominn sé yfir fertugt.
Hann mun stjórna liði sínu á Laugardalsvellinum mánudaginn
29. maí gegn úrvalsliði KSÍ.
hann hafði verið fastamaður í
liðinu. • Stöðu hans tók Geoff
Hurst, sem skoraði þrjú mörk í
úrslitaleiknum gegn Þjóðverjum
eins og margir muna eflaust
eftir. Að leik loknum tók Bobby
Moore. við heimsbikarnum úr
hendi Elísabetar drottningar.
En lítum á stjörnuliðið eins og
K A L •• ««/»%.. X I 1« . M n X
lii.1 U1 VCl IU LUÍY^yUllL iltU^dU
til lands. Það er skipað eftirtöld-
um leikmönnum: Ray Wilkins,
Chelsea, Kenny Hibbitt, Wolves,
Graham Rix, Arsenal, Tony
Towers, Birmingham, Tony
Dunne, Bolton, Peter Lorimer,
Leeds, Alan Sunderland, Arsen-
al, Bobby Charlton, Geoff
Hurst, Francis Burns, Preston,
Jimmy Greaves, Joe Royle,
Bristol City, Mick Doyle, Man-
chester City, David Harvey,
Leeds og Bobby Moore.
Vera kann að einhverjar
smávægilegar breytingar verði
gerðar á hópnum og fleiri
leikmenn bætist við, en það
skýrist væntanlega um helgina.
Jtlox'jjimtilnðið
Gunnarsigur-
vegari á
asta júdómóti