Morgunblaðið - 23.05.1978, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 23.05.1978, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1978 Borgarfulltrúi Alþýðubanda- lagsins Þorbjörn Broddason lagði fram eftirfarandi tillögu á síðasta fundi borgarstjórnar: 1. Borgarstjórn Reykjavíkur þiggur vald sitt frá Reykvíkingum og starfar eingöngu í þágu borgar- búa. Til að tryggja þetta megin- sjónarmið er nauðsynlegt að borg- arstjórn starfi fyrir opnum tjöld- um. Þess vegna skulu fundir hennar, stjórna, nefnda og ráða borgarinnar og embættismanna hennar vera opnir almenningi og fjölmiðlum. 2. Fundi borgarstjórn- ar skal ávallt auglýsa rækilega með minnst tveggja daga fyrir- vara í fjölmiðlum þar með taldir ríkisfjölmiðlar. Almenningi skal gefinn kostur á áskrift af fundar- gerðum nefnda og ráða borgarinn- ar. 3. Ákvæði 2. mgr. 10. gr. Samþykktir um stjórn Reykja- víkurborgar skulu endurskoðuð með þeim hætti, að þar verði að finna tæmandi upptalningu. Skulu ákvæði greinarinnar einnig taka til kjörinna stjórna, nefnda og ráða borgarinnar eftir því sem við á. 4. Óheimilt skal að halda lokaða meirihlutafundi fulltrúa í borgar- stjórn eða kjörnum nefndum og ráðum borgarstjórnar, þar sem mál, er varða almenning, eru rædd og ákvarðanir kunna að vera teknar. 5. Allir fundir, sem haldnir eru brjóta í bága við 1,—4. lið þessarar samþykktar, skulu ómerkir og ógildir. 6. Borgarstjórn beinir þeim tilmælum til Alþingis að sveitarstjórnarlögum verði breytt til samræmis við samþykkt þessa og að tryggt verði, að almenningur geti leitað til dóm- stóla til að koma í veg fyrir leynd ef nauðsyn krefur. Þorbjörn Broddason sagði m.a. í framsöguræðu sinni, að það væri þrifnaðaratriði að halda opna meirihlutafundi og sjálfstæðis- mönnum væri það ósæmilegt að halda lokaða meirihlutafundi borgarstjórnarflokks Sjálfstæðis- flokksins. Ef tillaga þessi yrði felld bæri slíkt glöggt merki um pólitískan ofþroska. En Þorbjörn sagðist vona að tillagan fengi samþykki því að hún gæti byggt upp lýðræðisleg vinnubrögð hjá borginni. Davíð Oddsson (S) tók næst til máls og sagði: Borgarfulltrúi Þorbjörn Brodda- son gerir það ekki endasleppt við okkur borgarfulltrúana hér í borgarstjórn, því eins og menn vita, þá hefur því verið þannig komið fyrir hjá Alþýðubandalag- inu, að ekki eru líkindi til þess að hann sitji hér áfram í borgar- stjórn á næsta kjörtímabili. Eg hygg nú að hann hafi reyndar sjálfviljugur komið því þannig fyrir, en hann hafi ekki fallið í húsdýrabyltingunni miklu, sem nýverið hefur verið gerð í Alþýðu- bandalaginu. En um það verður ma,ður að láta sér nægja getgátur einar, vegna þess að framboðsmál í flokki þessa mikla lýðræðissinna eru öll ákveðin bak við tjöldin í löngum skuggalegum viðræðum, meira að segja svo skuggalegum, að fréttastjóri Þjóðviljans telur nauðsynlegt, sér sjálfum sem fréttamanni til varnaðar, að skýra frá því í pislum sínum, „klippt og skorið", að Þjóðviljinn sé svo Davíð % Oddsson: Þá veiða menn geitur og dá- dýr (í Hljómskálagarðinum) eins og fommenn í útlöndum furðulegt blað og flokkur hans, Alþýðubandalagið svo furðulegur flokkur, að jafnvel í flokksblaðinu megi ekki ræða framboðsmálin opinberlega fyrr en allt sé klappað lg klárt. Þannig er nú unnið fyrir opnum tjöldum í flokki lýðræðis- sinnans mikla, sem stóð hér í þessum virðulega ræðustól rétt áðan. Þess vegna fór vel á því að einmitt maður, sem nú er að hætta að vera borgarfulltrúi fyrir þenn- an lýðræðissinnaða flokk, senni- lega af eigin hvöt, en hefur ekki fallið í húsdýrabyltingunni miklu, byltingunni, sem á að vernda Hljómskálagarðinn, kannski til að koma þar upp geitum og dádýrum svo menn geti veitt í matinn svona eins og fornmenn í útlöndum — þá myndu þeir geta hjólað heim þegar með feng sinn þegar húsdýrabylt- ingin hefur bannað bílinn. En það var einmitt virkilega ánægjulegt að jafn dásamleg tillaga eins og þessi skyldi koma hér frá jafn dásamlega lýðræðislegum flokki eins og flokki þessa borgarfull- trúa. En svo maður hætti þessari alvöru og snúi sér að gríninu, sem er tillaga borgarfulltrúans, þá verð ég að gera athugasemdir við nokkuð, sem kom fram í máli hans hér áðan. Hann taldi að það fyrirkomulag sem hér er haft á hjá bæði meirihluta og minnihluta, hann gleymdi reyndar minnihlut- anum, að halda undirbúningsfundi fyrir borgarstjórnarfundina, væri gert til að afskræma lýðræði hér. Það væri afleiðing af hinni ára- löngu setu sjálfstæðismanna í meirihluta borgarstjórnar. Auð- vitað veit borgarfulltrúinn ef hann vill vita, að þetta sama fyrirkomu- lag er hjá öllum sveitarstjórnum á landinu. Allir meirihlutar og allir minnihlutar, hvar sem er á land- inu, hverjir sem þar sitja í stjórn, halda slíka undirbúningsfundi, og slíkir undirbúningsfundir eru af hinu góða. Menn koma þá betur upplýstir á borgarstjórnarfundina og minni tíma þarf að eyða í það að fræða kollegana um einstök framkvæmdaatriði, sem átt hafa sér stað í hinum fjölmörgu nefnd- um. I sjónvarpinu í gærkvöldi ljóstr- aði borgarfulltrúi Þorbjörn Broddason á síðustu stundum sínum í borgarstjórn upp þeirri miklu leynd, að borgarstjórnar- flokkur Sjálfstæðismanna héldi hinn óhugnanlega fund á miðviku- dögum klukkan 3.00. Þar væri ráðum ráðið. Það er klíkufundur segir borgarfulltrúinn. Fundurinn, sem minnihlutinn heldur á mánudögum í hádeginu, það er ekki klíkufundur! Fundirnir þeir eru sjálfsagt opnir almenningi og sjálfsagt stöðugur straumur fólks! Fundirnir sem haldnir eru í kaffi heima hjá Öddu Báru hálfsmánað- arlega að sögn Guðrúnar Helga- dóttur, það eru ekki klíkufundir. Þangað flykkist múgur og marg- menni, almenningur, nýkominn af að veiða dádýr í Hljómskálagarð- inum eða fisk í Tjörninni, mætir þar á hjólunum sínum til að fjalla um borgarmálin. Þaðan berast þó ekki margar fréttir. Fyrstu frétt- irnar sem venjulegur almenningur fréttir af þessum fundum eru upplýsingar Guðrúnar Helgadótt- ur. Eg að vísu fyrir mína parta sé ekkert á móti því að fólk hittist heima í kaffi hjá Öddu Báru. Reyndar er ég fyrir mitt leyti sannfærður um að hún geri mjög gott kaffi og þarna fari fram oft hinar hugguleg ustu umræður, þó að niðurstöður þeirra séu nú kannske ekki á þann veg, sem við hinir frjálslyndari borgarfulltrúar hér í borgarstjórn Reykjavíkur helzt hefðum kosið. Borgarfulltrú- inn sagði, að þetta fyrirkomulag hefði orðið til þess að Reykvíking- ar væru orðnir afvanir því að fylgjast með borgarmálefnum. Sannleikurinn er auðvitað sá, að með málum engrar sveitarstjórnar á Islandi er fylgzt eins vel og málum borgarstjórnar Reykjavík- ur. Þar eiga auðvitað þakkir þeir fjölmiðlar, sem hingað senda reglulega blaöamenn. Borgin send- ir út tilkynningar um dagskrá funda til fjölmiðla, fundargerðir borgarstjórnar og ráða og nefnda eru aðgengilegri heldur en fundar- gerðir flestra annarra ráða og nefnda hér hjá sveitarstjórnum í landinu. Þetta er auðvitað allt af hinu góða. Borgarfulltrúinn vill láta taka það fram, að borgar- stjórn þiggi vald sitt frá Reykvík- ingum og starfar eingöngu í þágu borgarbúa. Þetta er náttúrlega það sem hefur legið fyrir, sennilega siðan sveitarstjórnir komu til og sveitarstjórnir eru nú elzta stjórn- formið hér á landi. Það hefur nú tekið borgarfulltrúann fjögur ár að komast að þeirri niðurstöðu, að borgarstjórn þiggi vald sitt frá Reykvíkingum. Það eru sennilega kosningarnar sem hafa komið honum í skilning um þetta. Hann hefur haldið að borgarstjórn fengi vald sitt frá einhverjum öðrum. Hann nefnir hér í tillögunni að menn verði að starfa fyrir opnum tjöldum, og menn verði líka að íhuga sín mál fyrir opnum tjöld- um! Það er anzi hart, ef menn mega ekki prívat og persónulega íhuga sín mál annars staðar heldur en fyrir opnum tjöldum, helzt þar sem múgur og marg- menni og blaðamenn eru viðstadd- ir, en þeir hefðu væntanlega tiltölulega lítið gagn af slíku. Varðandi 2. gr. þessarar tillögu, þá vita menn það, að borgarstjórn eða borgarstjóri sendir dagskrár borg- arstjórnarfunda til fjölmiðla og borgarstjórnarfundir hafa verið haldnir fyrsta og þriðja virkan fimmtudag í mánuði í áratugi, þannig að mönnum þarf ekkert að koma á óvart fundartími borgar- stjórnarinnar. En við skulum bara gera okkur grein fyrir því og ekki fara að blekkja okkur með því, að ástæðan fyrir því að pallarnir hér eru nær tómir fund eftir fund sé sú að fundirnir séu illa auglýstir. Fólk hefur bara ekki meiri áhuga en þetta og koma og hlusta á okkur. Við sem höfum starfað til að mynda sem þingfréttaritarar Alþingis, við vitum það vel, að á þingfundi Alþingis koma sárafáir menn og oftast þeir sömu. Auðvit- að vita allir hvar Alþingi er og flestir vita hvenær þingfundir eru haldnir. I 3. lið er talað um, að 1. mgr. 10. gr. verði breytt svo, að þar verði tæmandi talið hvenær megi loka fundum borgarstjórnar. Eg skil ekki alveg hvers vegna borgar- fulltrúinn rýkur til og kemur með þessa tillögu nú. Ef eitthvað hefði borið við, að lokun borgarstjórnar- funda hefði verið misnotuð, hefði verið sjálfsagt og eðlilegt að borgarfulltrúanum hefði ofboðið og komið með slíka tillögu. Fund- um hefur sára sjaldan verið lokað á þessu kjörtímabili, og hafi það verið, þá hefur ekki verið um það mikill ágreiningur. Það er alveg rétt, að tilefni til þess að loka borgarstjórnarfundum eru ekki tæmandi talin í samþykktinni og reyndar er það svo, að það er óskaplega erfitt að koma við tæmandi talningu. í þeim sveitar- stjórnarlögum, sem ný hafa verið endurskoðuð og næst okkur liggja, til að mynda sveitarstjórnarlögin í Danmörku, er fjallað um þetta atriði. Þar hafði komið ábending frá þingnefnd um það, hvort rétt væri að reyna að telja þetta tæmandi talningu. , Niðurstaðan var su, að það væri bæði illgerlegt, og tiltölulega þýðingarlítið. Niðurstaðan varð að samhljóða var samþykkt, að telja þetta ekki tæmandi talningu heldur hafa um þetta leiðbeininga- reglur. Þessi lög eru aðeins 8 ára, þannig að við sjáum hvað sam- þykkt okkar hefur verið framsýn að þessu ieyti .jtil. Auðvitað er þetta smá mál, því um þetta atriði hefpr ekki Vjesið ágreiningur og er ekki líklegt að verði ágreiningur. Síðan kemur þessi dásamlega grein um að óheimilt sé að halda lokaða meirihlutafundi. Hann vill áfram fá að halda opnum fundun- um hjá Öddu Báru og fundunum minnihlutans á mánudögum, en það eru bara meirihlutafundirnir sem á að banna. Þessi hugmynd er vægast sagt mjög frumleg. En ætli það yrði ekki líklegt, að þegar Alþingi fengi beiðni frá borgar- stjórn, um að setja í lög ákvæði sem banni fundi meirihlutans í Reykjavík, að þingmenn færu nú að hugsa um flokksfundina í Hvers eiga þœr að gjalda? „Fundirnir, sem haldnir eru í kaffi heima hjá Öddu Báru hálfsmánaðarlega að sögn Guðrúnar Helgadóttur, það eru ekki klíkufundir. Þangað flykkist múgur og margmenni, nýkominn af að veiða dádýr í Hljómskálagarðinum eða fisk í Tjörninni, mætir þar á hjólunum sínum til að fjalla um borgarmálin.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.