Morgunblaðið - 23.05.1978, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 23.05.1978, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1978 vik> M0R<Sd(V' kafhnu ■'.y ■ '■•■A' ■ .Vv„ k ' >C GRANI göslari Helurðu gert þér grein fyrir því, hve mörgum kaffitímum við töpum verði vinnuvikan stytt niður í fimm daga? Hvern fj... ertu lika að gera hér á þessu horni, cinmitt núna! Tvöföld umferð í bikarkeppninni? BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Varla er hægt að álasa vestri fyrir að dobla lokasamninginn í spili dagsins. Það kom fyrir í Evrópukeppni, studdri af Philip- Morris fyrirtækinu, í London um páskana. Gjafari suður, allir utan hættu. Norður S. KDG4 H. 654 T. 5 L. K10983 Vestur S. 109832 H. ÁG72 T. D1064 L. - Austur S. 765 H. 9 T. K72 L. ÁDG765 Suður S. Á H. KD1083 T. ÁG983 L. 42 Suöur Vestur NorAur Austur 1 H pass 1 S 2 I, 2 T pass 2 H pass H pass 1 H pass pass rlohl allir pass (C'PIB cspinkmii 7S85 COSPER Mér finnst það vera tímabært fyrir okkur að gefa hvort öðru nytsamar afmælisgjafir í ár. t.d. pels og slifsi. „Ég hef mikinn áhuga að knatt- spyrnu og sumum öðrum íþrótta- greinum og vil ég þeim vel. Ástæðan fyrir þessum skrifum er fyrst og fremst sú, að ég hef orðið fyrir miklum vonbrigðum með stefnu stjórnar K.S.Í. í mörgum málum. Ég vil fyrst nefna, að það er ákaflega lítil reisn yfir bikar- keppni K.S.I. og undarlegt er það, að lið, sem sigrar í bikarkeppninni hverju sinni, þarf oftast nær að leika aðeins fjóra leiki til þess að ná þeim áfanga. Það má mikið vera ef það er ekki einsdæmi í heiminum. Það er mín skoðun að það þurfi að breyta bikarkeppn- inni á þann veg, að leiknar verði tvær umferðir, á heimavelli og útivelli, en með því fengist betri mælikvarði og réttlátari á getu liðanna og úrslitin einnig, enda leikirnir fleiri. Einnig mætti koma á fót deildarbikarkeppni hér á landi, það myndi lengja keppnis- tímabilið töluvert og væri það vel. Ég tel að stjórn K.S.Í. gæti alveg eyðilagt Litlu bikarkeppnina einn- ig með því að fækka þar leikjum þannig að nú er svo komið að engin reisn er yfir því móti miðað við það sem áður var að mínu áliti a.m.k. Einnig ætti stjórn K.S.Í. að verðlauna og heiðra þann knatt- spyrnumann sem að hennar áliti er talinn hafa staðið sig bezt á árinu, en slíkt er gert víða annars staðar og hefur þótt hinn mesti heiður fyrir leikmennina. • íþróttir fyrir þroskahefta Það er mín skoðun að það sé orðið mjög nauðsynlegt að koma af stað íþróttamótum fyrir þroska- heft fólk hér á landi, enda á það fólk sama rétt á því og aðrir þegnar í þessu landi. Ég skora á stjórn K.S.Í. að koma á fót sérstökum knattspyrnumótum fyrir vangefna unglinga og unga menn sem hafa áhuga á knatt- spyrnu og þetta þurfa aðrar stjórnir innan K.S.Í. að athuga og skipuleggja íþróttamót og leiki fyrir þroskaheft fólk. Þroskaheftir eru jafnan mun einangraðri en annað fólk, það er jafnvel Iokað inni á hælum og vistheimilum. Það þarf að koma þessu fólki út í það iðandi líf og ekkert er einmitt eins heilsusam- legt og gott og það að fá að taka þátt í heilbrigðum leikjum og mótum. E.K. 1730-6804.“ Ekki er nú Velvakandi viss um að stjórn K.S.Í. sé að öllu leyti sammála þessu og nefna má einnig að til er íþróttafélag fatlaðra þannig að eitthvað er gert í málefnum þeirra sem minna mega sín, þó e.t.v. megi segja, að gera megi enn meira. En næst er horfið á vit stjarnanna og ritar bréfritari undir fyrirsögninni: Óþægilegt reyndist að eiga ekki spil í lit makkers. En vestur spilaði út spaðatíu. Suður tók slaginn og fór inn í blindan með því að trompa tígul. í spaðakóng og drottningu lét suður lauf. En spaðagosann trompaði austur þó betra hefði verið að láta tígul. Suður yfirtrompaði og trompaði aftur tígul í borði. Sagnhafi hafði þegar fengið sjö slagi og ballið var að byrja. Hann trompaði nú lauf með kóngnum. Vestur tók réttilega með ásnum og staðan var þessi. Norður S. - H. 6 T. - L. K1093 Vestur Austur S. 9 S. - H. G72 H. - T. D T. - L. - Suður S. - H. D83 T. G9 L. - L. ÁD765 Vestur reyndi hjartatvistinn, besta vörnin, en suður tók sexið með áttunni og spilaði tígli. Og þá fann vestur, að hann gat aðeins fengið einn af þremur síðustu slögunum. Slétt unnið. MAÐURINN A BEKKNUM Framhaldssaya eftir Georges Sunenon Jóhanna Kristjónsdóttir islenzkaói I 47 ekki hvað sízt uppi á fata- skápnum. Og enn beið Monique. öðru hverju sendi Maigret einhvern fram til að gá að henni. — Hvað ef hún að gera? — Ekkert. Sterkari persónuleikar en hún væru komnir í rusi eftir kiukkutíma í „húrinu“ svo að Maigret hristi höfuðið undrandi. Þegar kiukkuna vantaði kortér í eiiefu andvarpaði hann og sagðii — Jæja. látið hana þá koma! Hann bað hana margfald- legrar afsökunar þegar hún kom inn. — Þar sem ég vildi endilega fá að ræða almennilega við yður og gefa mér til þess góðan tíma varð ég að Ijúka ýmsum smámálum áður. — Það skil ég vel. — Gerið svo vei að fá yður sæti. Iiún gerði það og lagði veskið í kjöltu sér og renndi fingrunum iétt gegnum hárið. Hann settist hinum megin við skrifborðið. kvcikti á cldspýtu og sagði. — Eg vona yður sé sama þótt ég reyki. — Faðir minn reykti og það gera líka eiginmenn móður systra minna. Hún var ekki eins óstyrk og kviðafull og í fyrra skiptið. Það var milt í veðri og Maigret hafði opnað gluggann út að götunni. — Já, það er auðvitað faðir yðar sem ég ætlaði að tala um við yður. Hún kinkaði kolli. — Og um yður og ýmsa aðra. Hún veitti honum enga að- stoð, leit ekki undan. heldur beið átekta eins og hún vissi hvaða spurningar myndu koma. — Þykir yður vænt um móð- ur yðar, frökcn Monique? Það var a'tlun hans að vera vingjarnlegur við hana og fara að henni með Jagni svo að hún neyddist smátt og smátt til að vera hreinskiiin við hann. En svar hennar við þessari fyrstu spurningu kom honum í bohba. Rólega og eins og ekkert væri sjálfsagðara sagði hún nefnilega. - Nei. — Þér eigið við að ykkur semji ekki alls kostar? — Ég þoli hana ekki. — Leyfist mér að spyrja hvers vegna? Ilún yppti öxlum. — Þér hafið verið heima hjá okkur og hitt hana. — Og þér viljið ekki fara nánar út f þctta? — Mamma hugsar aðeins um sjálfa sig og þessa svoköll- uðu „sjálfsvirðingu“. Henni gremst að hún fékk ekki jafn gott gjaforð og systur hennar og langar óskaplega mikið til að ailir haldi að við höfum það jafn gott peningalega og þau hin. Hann varð að ga-ta þess að brosa ekki en sagði sfðan. — Þótti yður vænt um föður yðar? Hún svaraði ekki og hann endurtók spurninguna. — Ég er að hugsa um það. Ég veit það ekki almennilega. Mér finnst ekki þægilegt að viðurkenna það núna þegar hann er dáinn ... — Yður þótti scm sagt ekki heldur sérlega vænt um hann? — zE. hann var óttalegur væskill. — Ilvað eigið þér við með því? — Hann gerði aldrei neitt í málinu. — Ilvaða máli? - ÖIlu. Og af skyndilegri ákefð hélt hún áfram. — Þetta svokallaða líf sem við lifðum. Ég hcf fyrir löngu fengið mig fullsadda af því og ég hef aðeins eina hugsun í kollinum og það er að komast í burtu frá þessu. — Þér eigið við að gifta yður? — Hvort sem ég gifti mig eða ekki — bara að komast í burtu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.