Morgunblaðið - 23.05.1978, Blaðsíða 28
28
M0RGUNBLAÐIÐ. .ÞRIÍ5JUDAGUR 23. MAÍ 1978
FYLKIR SOTTI
2 STIG NORDUR
NÝLIÐARNIR í 2. dcild, Fylkir, sóttu óvænt tvö stig í greipar
Þórsara norður til Akureyrar á laugardag. Fylkir sigraði með
einu marki gegn engu og skoraði Hilmar Sighvatsson markið með
góðu skoti úr teig á 65. mínútu.
Leikurinn var leikinn við
fremur slæmar aðstæður, mikið
hvassviðri var, einkum í fyrri
hálfleik, en þá léku Þórsarar
undan rokinu. Það var því ekki
mikið um fínt spil sem gerir
knattspyrnuna svo skemmti-
lega. Hins vegar var baráttan í
lagi hjá báðum liðum, en upp-
skeran ekki mikil.
Þórsarar sóttu stíft í fyrri
hálfleiknum undan rokinu en
höfðu ekki árangur sem erfiði.
Þó skall eitt sinn hurð nærri
hælum við mark Fylkis, þegar
knötturinn small í slá Fylkis-
marksins, eftir gott skot
Halldórs Reimarssonar. Inn á
milli áttu Fylkismenn skyndi-
upphlaup og skapaðist á stund-
um hætta við mark Þórsara sem
þó var ávallt bægt frá. I síðari
hálfleiknum snerist dæmið
nokkuð við, en þá lék Fylkir
undan vindinum. Þó var sókn
Fylkis ekki mjög beitt, en
uppskeran eitt mark, sigur-
markið sem fyrr getur. Þórsarar
áttu þó nokkur færi í síðari
hálfleiknum, einkum síðustu
mínúturnar, en tókst ekki að
skora og í lokin var það Fylkir
sem hampaði sigrinum, lagði að
velli liðið sem féll niður úr
fyrstu deild fyrir ári.
Lið Fylkis er skipað ungum og
leiknum leikmönnum, sem berj-
ast mjög vel. Er ekki ástæða til
að ætla annað en Fylkir muni
standa sig vel í sumar og geti
orðið hvaða liði sem er skeinu-
hættur.
í þessum leik voru Þórsarar
lítt sannfærandi. Það sem eink-
um virðist að í þeim herbúðum
er að miðvallarspilara skortir og
rætist ekki úr þeim málum
verður vart mikils að vænta af
Þórsurum í sumar. Hitt er svo
aftur ljóst, að flestir leikmanna
Þórs hafa talsverða reynslu,
sem mun geta fleytt liðinu
nokkuð áfram í sumar. Það er
ekki gott að átta sig á liðinu enn
sem komið er, næstu leikir
liðsins munu skera úr um það.
Bestu menn Fylkis í þessum
leik voru þeir Baldur Rafnsson,
hættulegur framherji, Ögmund-
ur markvörður sýndi mikið
öryggi og Gunnar Gunnarsson
sívinnandi á miðjunni.
í Þórsliðinu voru það helst
Árni Stefánsson, ungur og
yfirvegaður varnarmaður,
Sigurður Lárusson, hinn sterki
varnarspilari, og Eiríkur mark-
vörður, sem sýndu eitthvað.
Ef til vill hefði jafntefli verið
eðlilegustu úrslit þessa leiks, en
þetta var einn þessara jöfnu
leikja þar sem eitt óvænt mark
skilur milli gráturs og gleði.
Vilhjálmur Vilhjálmsson
dæmdi leikinn og komst all vel
frá því hlutverki.
Gunnar
• Boltinn í markinu eítir þrumuskot Birgis Guðjónssonar og þriðja mark KR er staðreynd. KR-ingar
fagna en varnarmenn Völsungs og markvörður eru niðurlútir. Ljósm. Mbl. RAX.
KR-ingar á toppinn eftir
stórsigur yfir Völsungi
KR-INGAR eru strax komnir á toppinn í 2. deild að loknum
tveimur umíerðum og margt bendir til þess að þeir sleppi ekki
toppsætinu í deildinni héðan af. KR-ingar léku við Völsung frá
Húsavík á Laugardalsveliinum á sunnudaginn og er skemmst frá
því að segja að ieikurinn var alger einstefna að marki Völsungs
og 4i0 sigur KR var sízt of stór miðað við gang leiksins og
tækifæri.
KR-ingar höfðu á móti vindi
að sækja í fyrri hálfleiknum en
þeir voru þrátt fyrir það miklu
meira með boltann. Skall oft
hurð nærri hælum við mark
Völsungs en aðeins einu sinni
tókst KR að koma boltanum í
markið. Það var á 8. mínútu
leiksins að vörn Völsungs urðu
á mistök er annar bakvörðurinn
skallaði ónákvæmt frá markinu
og boltinn barst fyrir fætur
Sigurðar Indriðasonar á víta-
teig. Sigurður var ekkert að hika
heldur skoraði örugglega fram-
hjá illa staðsettum markverðin-
um. Völsungar fengu tvö þokka-
leg tækifæri í f.h. en misnotuðu
þau bæði.
Með vindinn í bakið í s.h.
sóttu KR-ingar nær látlaust og
mark þeirra komst aldrei í
hættu allan hálfleikinn. Reynd-
ar skoraði Völsungur eitt mark,
en það var dæmt af vegna
rangstöðu. Á 5. mínútu s.h.
bjargaði Gísli Haraldsson á línu
og 10 mínútum síðar fengu
KR-ingar dæmda vítaspyrnu
þegar Stefáni Sigurðssyni var
brugðið innan vítateigs. Stefán
tók sjálfur spyrnuna en skaut
framhjá. En markvörðurinn
hafði hreyft sig og Stefán fékk
annað tækifæri en í þetta skipti
skaut hann í slá.
En á 62. mínútu leiksins
komst Sverrir Herbertsson inn
fyrir vörn Völsungs og skoraði
framhjá úthlaupandi markverð-
inum. Á 75. mínútu bætti KR við
2
Noröfiröingar urðu að lúta
haldi fyrir Ármanni
i
ARMENNINGAR íengu tvö
dýrmæt stig þegar þeir unnu
Þróttara frá Neskaupstað á
Laugardaisvellinum á laugar-
daginn 3>2. Hafa Ármenningar
nú unnið tvo fyrstu leiki sína
í 2. deild. fyrst Austra og síðan
Þrótt. hvorttveggja Austfjarða-
liðið.
Þróttarar voru betri til að
byrja með og það kom ekki á
óvart þegar þeir tóku forvstuna
á 16. mínútu. Aukaspyrna var
dæmd a Ármann rett utan
vítateigs. Helgi Rarnarsson
þjálfari og leikmaður Þróttar
tók spyrnuna og renndi boltan-
um út á Guðmund Yngvason,
fyrrum KR-leikmann, og hann
skoraði með lausu skoti alveg
úti við Stöng.
Við markið var eins og Ár-
menningarnir vöknuðu til lífsins
og þeir fóru að sækja meira. Á
30. mínútu var knötturinn send-
ur inn í vítateig Þróttar, þar
sem Þráinn Ásmundsson stóð
einn og óvaldaður og skoraði
með skalla. Var það létt verk,
þar sem markvörðurinn hafði
hlaupið vitlaust út úr markinu.
Á 32. mínútu urðu Þrótturum á
herfileg mistök í vörninni.
Guðmundur Yngvason ætlaði að
skalla boltann aftur fyrir sig til
markvarðar en of laust. Mark-
vörðurinn hefði hugsanlega get-
að náð knettinum en hann
hikaði og Smári Jósafatsson
náði knettinum og skoraði. Á 39.
*» —
mínútu voru Ármenningar enn
á ferðinni. Einar Guðnason
sendi þá góða sendingu -inn í
vítateig Þróttar frá vinstri til
Þráins Ásmundssonar, sem drap
boltann niður með brjóstinu og
skoraði síðan með góðu skoti.
Þrjú mörk á níu mínútum og
• Þórhallur Jónasson efnaverkfræðingur í Neskaupstað á þarna
í harðri haráttu við tvo Ármenninga og virðist hafa betur.
Ljósm. Mbl. RAX.
Ármenningar voru komnir yfir
3:1,
I seinni hálfleik sóttu
Þróttarar mun meira og strax á
2. mínútu hálfleiksins skoraði
Sigurður Friðjónsson og breytti
stöðunni í 3:2. Á 20. mínútu s.h.
fékk Helgi Ragnarsson gullið
tækifæri til að jafna en Finn-
björn Hermannsson í marki
Ármanns varði mjög vel skot
hans. Tvisvar náðu Ármenning-
ar skyndisóknum og einu sinni
bjðrguðu Norðfirðir.gar a linu
skoti frá Viggó Sigurðssyni.
Ármenningar hafa byrjað vel
í 2. deildinni að þessu sinni og
gaman verður að fylgjast með
því hvernig þeim vegnar í sumar
en undanfarin ár hafa þeir
venjulega verið um miðja deild.
En nú eru komnir margir nýjir
menn í liðið, sem fróðlegt verður
að fylgjast með.
Norðfirðingarnir hafa á að
skipa frísku og skemmtilegu liði
og þeir voru að ýmsu leyti
óheppnir að ná ekki jafntefli að
þessu" sinni. En mistökin í
vörninni í fyrri hálfleik urðu
þeim dýrkeypt.
-SS.
þriðja markinu og var þar að
verki Birgir Guðjónsson með
skoti af 25 metra færi sem fór
í slá og inn. Stórglæsilegt mark.
Og á 81. mínútu innsiglaði
Stefán Sigurðsson sigur KR.
Hann fékk mjög góða stungu-
sendingu inn fyrir vörn Völs-
ungs frá Sæbirni Guðmundssyni
og skoraði örugglega framhjá
úthlaupandi markverðinum.
Mörg fleiri tækifæri fengu
KR-ingar í hálfleiknum, en þau
nýttust ekki.
KR-ingarnir léku oft á tíðum
skínandi knattspyrnu og þeir
virðast til alls líklegir í sumar.
Vörnin var traust með Ottó
Guðmundsson sem sterkasta
mann. KR-ingar réðu alveg yfir
miðju vallarins og í framlínunni
voru þeir sprækastir Sverrir
Herbertsson og Stefán Sigurðs-
son svo og Sæbjörn Guðmunds-
son eftir að hann kom inn á.
Völsungarnir voru mjög slak-
ir að þessu sinni en enginn vafi
er á því að þeir geta mun betur
en þetta. Þeir einu sem stóðu sig
vel voru miðverðirnir Gísli
Haraldsson og Guðmundur
Jónsson.
Baldur Scheving dæmdi leik-
inn og skilaði hann hlutverki
sínu prýðilega.
- SS.
STAÐAN
Staðan í 2. deild í knatt-
spyrnu er nú þessii
IV r» f» O A A O f\ 4
Ut L á* \i \J UlU
Ármann
ÍBÍ
Fylkir
Þór
Austri
Haukar
Reynir
Þróttur
Völsungar
Markhæstir í 2. deild:
Sverrir Herbertsson KR 2
Stefán Sigurðsson KR 2
Smári Jósafatsson Árm. 2
Sjá einnig um leiki 2.
deildar á bls. 27.
2 2 0 0 4.2 4
1 1 0 0 2.1 2
2 1 0 1 1.2 2
2 1 0 1 1.1 2
2 0 1 1 1.2 1
2 0 1 1 2.3 1
2 0 1 1 1.1 1
2 0 1 1 3.4 1
1 0 0 1 0.4 0