Morgunblaðið - 28.06.1978, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
135. tbl. 65. árg. MIÐVIKUDAGUR 28. JÚNÍ 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Karólína Mónakóprinsessa
í heiUtgt hjónaband í dag
Karólína prinsessa af Mónakó
<)K unnustinn Philippe Junot
búast hér til að stí(?a inn í
bifreiö sína. Til hægri á mynd-
inni er systir Junot. bau voru
að koma úr samsæti scm haldiö
var í bústað brezka leikarans
I)avid Nivens skammt frá
Mónakó í gær.
I dag, miðvikudag, fer svo
brúðkaupið fram með pomp og
prakt og verður hátíðahöldun-
um, sem fyrirhuguð eru, helzt
líkt við það er Grace móðir
Karólínu og furstinn Rainer
gengu í það heilaga fyrir
tuttugu og tveimur árum.
Með því að ganga að eiga
mann sem ekki hefur blátt blóð
í æðum missir Karólína prins-
essutignina. Þau hjónaleysin
kynntust fyrir tveimur árum.
Philippa Junot er sautján árum
eldri en Karólína og haft er
fyrir satt að foreldrar prinsess-
unnar hafi ekki verið ýkja hrifin
af ráðahagnum, alténd ekki
framan af.
Berserkur drap
2 sænska ferða-
menn í Moskvu
Moskvu 27. júní AP.
IIÁLFÞRÍTUGUR sovézkur maður gekk skyndilega berserksgang og
réðst með öxi að þremur sænskum ferðamönnum fyrir utan
Intouristhótelið í miðborg Moskvu og varð hann tveimur að bana og
sá þriðji er alvarlega slasaður. Ferðamennirnir voru í hóp og stóð
hann fyrir utan gistihúsið við Gorkystræti, sem er rétt steinsnar frá
Kreml. Allt í einu kom hár og þéttvaxinn maður aðvífandi og réðst
á fólkið. Lögreglumaður og nokkrir aðvífandi leigubílstjórar brugðu
við og tókst að yfirbuga hann en þá lágu tveir látnir á gangstéttinni
og sá þriðji alvarlega slasaður sem fyrr segir.
Maður þessi sem heitir
Nazhinsky er næturvörður að
atvinnu. Starfsfólk á hótelinu
sagði fréttamönnum AP, að
maðurinn væri truflaður á geðs-
munum.
Svíarnir tveir, sem maðurinn
drap, voru rúmlega áttræður
karlmaður, Anderson að nafni, 67
ára gömul kona, Eve Helen
Johannesson, og Henry Johannes-
son eiginmaður hennar varð fyrir
miklum áverkum.
Bandarískur læknir sem vildi
ekki gefa upp nafn sitt sagði við
Reuterfréttastofuna að hann hefði
verið að koma frá Kreml þegar
hann sá tvennt liggja í blóði sínu
og þriðja manninn standa hálfbog-
inn yfir manneskju sem reyndist
vera Eve Johannesson. Sá féll
síðan niður og mæddi hann
blóðlát. Frásögn bandaríska
læknisins ber ekki saman við
frásögn fréttaritara AP og þeirra
sjónarvotta sem hann ræddi við
því að læknirinn gefur í skyn að
fólkið hafi verið látið liggja í blóði
sínu umhirðulaust í allt að tíu
mínútur.
Rússar
rískum
Moskvu 27. júní. Reuter.
SOVÉZK yfirvöld létu í dag
lausan bandari'ska kaupsýslu-
manninn Francis Jay Crawford
en skipuðu tveimur handarískum
hlaðamönnum að mæta fyrir rétt
tii að svara ákærum um rógskrif
og sú ráðstöfun á sér enga
hliðstæðu.
Crawford var látinn laus gegn
því að Bandarfkjamenn létu lausa
tvo sovézka starfsmenn Sam-
einuðu þjóðanna, Rudolf
Chernayev og Valdik Enger, sem
eru áka'rðir fyrir tilraunir til að
kaupa leynilegar upplýsingar um
hernað Bandaríkjamanna gegn
kafhátum og það var gert í gær.
Fangaskiptin miða greinilega að
því að draga úr spennunni í
í geimferð
með gítar
Varsjá, Moskvu 27. júní
AP — Reuter.
SKS RT var frá því í Sovétríkjun-
um í dag að skotið hefði verið á
loft mönnuðu geimfari, tveggja
manna Soyuzfari, og er ætlunin
að geimfararnir tengi það við
Salyut geimstöðina. Það þótti
tiðindum sæta að annar geimfar-
anna er Pólverji Miroslav
Yermashevsky og pólska útvarps-
stöðin rauf dagskrá til að greina
frá því með hinu mesta stolti.
Foringi í geimferðinni er Sovét-
maðurinn Pyotr Klimyk og var
fari þeirra félaga skotið upp frá
Bikonur geimrannsóknastöðinni
klukkan rúmlega 15.30 í dag. Gekk
Framhald á bls. 19
stefna banda-
fréttamönnum
sambúð risaveldanna en sú ráð-
stöfun að ákæra bandarísku blaða-
mennina Craig Whitney frá New
York Times og Harold Piper frá
Baltimore Sun hefur flækt málið
og talin bera vott um nýja og
harðari stefnu sovézkra yfirvalda
Israel:
Kollek hót-
ar Mondale
Jerúsalem, Beirut
27. júní Reuter
TEDDY KoIIek. borgarstjóri í
Jerúsalem hefur hótað því að
hann muni ekki eiga nein
kurteisisskipti við Walter
Mondale, varaforseta Banda-
ríkjanna. þegar Mondale kem-
ur til ísrael á föstudag, ef
hann tekur þá afstöðu að neita
að koma í hcimsókn í gamla
horgarhluta Jerúsalem.
Fram til þessa hafa opinberir
bandarískir sendiboðar og
embættismenn neitað að fara í
þann borgarhluta vegna þess að
Bandaríkjanienn viðurkenna
ekki yfirráð ísraels yfir austur-
hluta borgarinnar sem var
tekinn af Jórdaníu í sex daga
stríðinu. Bendir yfirlýsing
Kolleks, sem er þekktur fyrir
að fara sínar eigin götur, til
þess að heimsókn Mondale
muni ekki verða til að liðka
stirðleg samskipti Bandaríkj-
anna og Israels.
Begin forsætisráðherra lýsti
þeirri skoðun sinni í dag að
Framhald á bls. 19
gegn Bandaríkjamönnum búsett-
um í Moskvu.
I Washington er sagt að Cyrus
Vance utanríkisráðherra muni
krefja sendiherra Sovétríkjanna
Anatoly Dobrynin um skýringu á
þeirrj einstæðu ráðstöfun að skipa
bandarísku fréttamönnunum að
svara ásökunum um rógsskrif. Á
það er bent að þeim er skipað að
mæta fyrir rétti á sama tíma sem
báðir aðilar hafi reynt að draga úr
spennunni í sambúð landanna.
Whitney og Piper eru fyrstu
vestrænu fréttamennirnir sem
mál hefur verið höfðað gegn í
Sovétríkjunum. Sovézk yfirvöld
neita að skýra þeim frá efni
ákærunnar en þeir telja hana
standa í sambandi við nýlega ferð
þeirra til Grúsíu og frétt sem þeir
sendu þaðan um dóma yfir tveim-
ur starfsmönnum Helsinki-nefnd-
arinnar. í fréttinni höfðu þeir eftir
eiginkonu annars sakborningsins,
Zviad Gamsakhurdia, að KGB
hefði falsað játningu sem hann
kom fram með í sjónvarpi.
Sumir vestrænir fréttamenn í
Moskvu óttast að aðgerðirnar gegn
Whitney og Piper geti verið
undanfari óbeinnar ritskoðunar.
Formleg ritskoðun skeyta erlendra
Framhald á bls. 19
Sala eykst á
bók Nixons
New York
27. júní Reuter
SALA hefur
mjög aukist á
endurminninga
bók Nixons.
fyrrverandi
Bandaríkja-
forseta. allra
síðustu daga
og er hún kom-
in allhressi-
lega á metsölubókalistann í
Bandarikjunum. Þó hefur bók-
in verið gagnrýnd mjög og
menn lattir til að kaupa hana
með slagorðinu „Don’t buy
books by crooks“ Bókin mun
nú hafa selzt í um það bil 260
þúsund eintökum og er nú í 5.
sæti á metsölubókalista.
Þegar bókin kom út fékk hún
afar slæmar viðtökur flestra
gagnrýnenda, þótti lítið merk
heimild þar sem Nixon hallaði
mjög réttu máli eins og fyrri
daginn og væri þar af leiðandi
lítið á henni að græða og aukin
heldur væri hún illa skrifuð.
Harðir bardagar milli
Kambódíuitianna og
Víetnama um helgina
Hong Kong 27. júní. Reuter.
VÍETNAMSKAR hersveitir hafa
þurrkað út tvö kambódisk her-
fylgi og gert meiri háttar usla í
einu til viðbótar í bardögum rétt
innan við landama'ri Víetnam nú
um helgina. að því er sagði í
fréttum frá Ilanoi í dag. Það var
fréttastofan VNA sem frá þessu
skýrði og var ekki fjallað mjög
nákvæmlega um málið en tekið
fram að þetta hefði gerzt nú um
helgina. Þetta var í fyrsta skipti
í nokkrar vikur, að Víetnamar
greina frá meiriháttar bardögum
á landamærunum við Kambódíu
en þeir tóku að blossa upp á
síðasta ári.
Hanoi fréttastofan sagði aö
kambódískir hermenn hefðu komið
inn í Giang héraðið þann 16. júní,
en þar hefði framsókn þeirra verið
stöðvuð og Víetnamar hefðu drep-
ið eða sært 35 innrásarmenn og
náð öðrum á sitt vald. í Tay Nonh
héraði þurrkuðu víetnamskir her-
menn svo algerlega út tvö herfylki
Kambódíumanna, og tóku þar
bæði fanga og voþn. Var sagt að
um 160 Kambódíumenn hefðu
verið felldir í þessum bardögum.
í frásögn Hanoi fréttastofunnar
var farið háðugiegum orðum um
Kambódíuhermenn og sagt að sú
fullyrðing sé fráleit að Kambódíu-
menn hafi komið upp um tilraun
Víetnama til að bylta forystu-
mönnum Kambódíu úr sessi, en
frá þessu sagði í fréttatilkynningu
frá Phnom Penh fyrir fáeinum
dögum.