Morgunblaðið - 28.06.1978, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JÚNÍ 1978
5
Farnir
til kol-
munna-
veiða
BATARNIR tveir, sem sjávarút-
vegsráðuneytið hefur tekið á leigu
í sumar til kolmunnaveiða, áttu að
halda á miðin frá Reykjavík seint
í gærkvöldi, en bátarnir eru Örn
KE og Albert GK. Verða bátarnir
með svonefnda tveggja báta vörpu
og er danskur skipstjóri, vanur
slíku veiðarfæri, um borð í öðru'm
bátnum.
I fyrstu halda bátarnir til veiða
á Dohrnbanka, en ef ekki gengur
vel þar, er gert ráð fyrir að þeir
reyni fyrir sér úti fyrir Austur-
landi, en þar hefur Börkur NK
veitt vel af kolmunna undanfarin
tvö ár.
Myndina tók Ól.K.M. þegar verið var að ganga frá vírunum á
vörputromlunni um borð í Erni í gær.
Nýir læknakandi-
datar komnir í störf
nú — en vandamál
geta komið upp í haust
— ÞAÐ hefur alltaf verið
nokkurt vandamál að koma öllum
þessum fjölda nýútskrifaðra
lækna til starfa á spítölum
kandidatsti'mann, en því hefur að
mestu leyti verið bjargað nú.
Vera kann þó að einhver vanda-
mál rísi upp í haust þegar skipta
þarf um staði, en okkur er skyit
að vera ákveðinn tíma á hand-
læknisdeild og ákveðinn tíma á
lyflæknisdeild, sagði Benedikt
Sveinsson læknir á Húsavík, sem
er formaður Félags ungra lækna
í samtali við Mbl.
— Stundum getur komið fyrir að
læknakandídatar þurfi að bíða
eftir plássi á næstu deild, hélt
Benedikt áfram. Hann var að því
spurður hvort atvinnuhorfur hjá
læknum nú væru verri þegar svo
margir hafa útskrifast á síðustu
árum, þ.e. milli 60 og 70 fyrir
tveimur árum, 35 í fyrra og 47 nú.
— Um atvinnuhorfurnar er það
að segja að þessi fjöldi fær ekki
vinnu hérlendis nema vegna þess
að svo og svo mikill hluti lækna
fer til framhaldsnáms erlendis að
loknu kandídatstímabilinu eða
strax og lækningaleyfi er fengið,
en ég held þó að þetta verði ekki
til vandræða. A næstu árum munu
færri útskrifast úr læknadeild
vegna nokkurra takmarkana, sem
settar hafa veriö,o g verður það
áreiðanlega þannig að ekki verður
hægt að fá menn í allar stóður sem
fyrir eru á spítölum og við höfum
bent á að eitthvað þurfi að gera til
að sporna við þeirri þróun. Helzt
34 fulltrúar á
ráðstefnu um
NORRÆN stjórnvaldaráðstefna
um húsnæðismál hófst að Höfn á
Hornafirði í gærdag og lýkur
henni væntanlega á morgun.
Ráðstefna þessi er haldin árlega
til skiptis í löndunum fimm og er
þetta í fjórða skiptið. sem hún er
haldin hér á landi. Ráðstefnan er
sótt af um 34 fulltrúum húsna'ðis-
málastofnana og húsnæðisráðu-
neyta allra ianda, segir í frétt
Ilúsnæðismálastofnunar.
l>á scgir ennfremuri
Meðal viðfangsefna hennar að
þessu sinni er flutningur árs-
þyrfti að gefa læknum tækifæri til
að stunda framhaldsnám að
nokkru leyti hér heima og þá
myndu þessi vandamál minnka að
nokkru.
— Annars er eitt sem við erum
einna óánægðastir með, sagði
Benedikt, og það er að ekki skyldi
hafa verið haft samráð við okkar
félag þegar ákveðið var að lengja
kandídatstímann í héraði úr 3
mánuðum í sex og höfum við
nýlega mótmælt því.
Félag ungra lækna hefur m.a.
séð um ráðningarmál lækna á
kandídatstímanum og sagði Bene-
dikt að félagið væri tiltölulega
nýendurvakið. Auk þess að sinna
ráðningarmálum hefur það ýmis-
legt varðandi fræðslumál á sinni
könnu og sagði Benedikt að á
nýafstöðnum fundi allra slíkra
félaga á Norðurlöndum, sem var í
Reykjavík, hefði einmitt verið
fjallað um skipulag kandídats-
ársins og á fundi sem halda ætti
í Kaupmannahöfn í haust ætti að
ræða um störf lækna meðal
annarra stétta á sjúkrahúsum.
Að lokum sagði Benedikt að til
að kanna nánar um atvinnuhorfur
meðal lækna á íslandi á næstu
árum hefði verið samþykkt á
læknaþingi á Akureyri um síðustu
helgi að kannað yrði hversu
margir íslenzkir læknar væru í
námi og starfi á Norðurlöndunum,
hver þörfin væri hérlendis og
hvernig atvinnuhorfurnar væru í
hinum ýmsu sérgreinum hér á
landi.
Norrænni
húsnæðismál
skýrslna, umræður um íbúðafram-
leiðslu og þróunartilhneigingar
hennar í löndunum öllum á
árunum 1976—1985, stuðningur
hins opinbera við íbúðarhúsnæði á
Norðurlöndum. Einnig verður
fjallað um kostnað þann, sem
samfara er rekstri, viðhaldi og
upphitun íbúðarhúsnæðis, um hús-
næðisaðstæður sérhópanna og
leiðir til úrbóta fyrir þá, um
hlutfallið milli launatekna og
húsnæðiskostnaðar og, síðast en
ekki sízt um leiðir til endurnýjun-
ar eldri hverfa í borgum og
bæjum.
Verö 9.950 -
Stærðir 35—46
Litur Ijósbrúnn.
lunga mjúkt skinn
Barnaskór
stæröir verö fi
18—23 3.950,-
23—29 4.600,-
23—29 4.500.-
Barnaskór
stærðir verö frá
28—39 3.500 — 3.950
Austurstræti 10
sími: 27211
Rétt spor í rétta átt,
sporin íTorgiðt