Morgunblaðið - 28.06.1978, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JÚNÍ 1978
23
Rætist langþráður draumur í kvöld?
ÍSLENDINGAR og
Danir leika landsleik
í knattspyrnu á Laug-
ardalsvellinum í
kvöld klukkan 20.00.
Dómari verður skozk-
ur en línuverðir ís-
lenskir. Landsleikur-
inn í kvöld verður
103. landsleikur ís-
lendinga og sá^l3. á
móti Dönum. íslend-
ingum hefur aldrei
tekist að sigra Dani í
landsleik í knatt-
spyrnu en tvívegis
gert jafntefli, 1 — 1 og
0—0. Af þessum 12
leikjum hafa 7 verið
leiknir á íslandi en 5
í Danmörku. Reynist
talan 13 happatala
fyrir okkur og rætist
sá langþráði draumur
okkar um að sigra
Dani? Úr því fáum við
skorið á Laugardals-
vellinum í kvöld. Síð-
asti landsleikur land-
anna fór fram í Ala-
borg 9. okt. 1974 og
þá höfðu Danir heppn-
ina með sér er þeim
tókst að sigra 2—1 í
jöfnum og spennandi
leik.
Fjórir nýliðar eru í íslenska
liðinu sem leikur í í kvöld og
verður fróðlegt að fylgjast með
þeim, jafnframt því sem þetta
er í fyrsta sinn sem landsliðið
leikur undir stjórn hins nýja
landsliðsþjálfara dr. Youry Ilit-
chev. Islenska landsliðið hefur
dvalið frá því á sunnudagskvöld
á Þingvöllum við æfingar en
kemur í bæinn í dag. Mbl. hefur
áður sagt frá hverjir leika í
kvöld en við birtum þau aftur
lesendum til glöggvunar.
Islenska landsliðið: Árni
Stefánsson Jönköping, Þor-
steinn Bjarnason ÍBK, Árni
Á LANDSLEIKNUM milli íslendinga
og Dana í kvöld mun sölufólk frá
FEF selja landsliöstreflana góöu.
Er ástaeða tll að benda fólki á aó
kaupa þá og hvetja með því
Sveinsson ÍA, Gísli Torfason
ÍBK, Jóhannes Eðvaldsson Cel-
tic, Jón Gunnalugsson í A, Janus
Guðlaugsson FH, Jón Pétursson
Jönköping, Dýri Guðmundsson
Val, Atli Eðvaldsson Val, Hörð-
ur Hilmarsson Val, Karl Þórð-
arson IA, Guðmundur Þor-
björnsson Val, Teitur Þórðarson
Öster, Pétur Pétursson ÍA og
Arnór Guðjohnsen Víkingi.
Danska landsliðið er skipað
eftirtöldum leikmönnum: Ole
Kjær Esbjerg, Heino Hansen
Munster, Per Poulsen B 1903,
Sören Lerby Ajax, Henning
Jensen Fredrikshavn, Per Rönt-
landsliöiö íslenzka en það hefur
sýnt sig að því fleiri treflar sem
sjást því hressilegri og jákvæöari
verður stemmningin og þar með
eykst baráttuandinn.
ved Werder Bremen, Jens Ber-
telsen Esbjerg, Niels Tune St.
Pouli, Peter Poulsen Köge,
Frank Arnesen Ajax, Preben
Elkjær Lokeren, Lars Lundkvist
Skovbakken, Benny Nielsen
Anderlecht, Henrik Agerbeck
KB. Sjö atvinnumenn eru í liði
Dana.
Vonandi rætist sá langþráði
draumur að sigra Dani í knatt-
spyrnulandsleik á Laugardals-
vellinum í kvöld. Áhorfendur
mega ekki láta sinn hlut eftir
liggja í að hvetja landann til
sigurs í leiknum.
Landsliöstreflar þessarar gerðar
voru fyrst prjónaðir í vetur fyrir
Heimsmeistarakeppnina í hand-
knattleik. Þeir eru í íslenzku
fánalitunum.
Landsliðstreflar til sölu 1 kvöld
Svipmyndir frá HM
• Mario Kentpes stekkur hér hátt í loft, og fagnar fyrsta marki
sínu í úrslitaleiknum. Fólkið á áhorfendapöllunum hyllir hann
lika ákaft.
Fögnuðurinn 1' Argentinu eftir að sigur vannst í heimsmeistarakeppninni var með ólikindum. Dansað
var á götum úti og fólkið blés í lúðra og barði bumbur. Myndin sýnir mannfjöldann sem safnaðist
saman fyrir framan Plaza-hótelið í Buenos Aires, en þar fór fram lokahóf keppninnar og
verðlaunapeningar afhentir með meiru. Lið Hollands mætti ekki í hófið að þeim sökum, að ekki var
hægt að tryggja öryggi leikmanna á þeirri stuttu leið sem bíllinn, sem átti að flytja liðið, átti að
fara.
Á myndinni eru þeir Kempes (t.h.) og markvörðurinn Fillol, sem fyrirliði þótti eiga
átti sinn stóra þátt í sigrinum með því að sýna snilldarmarkvörslu einna bestan leik allra
í öllum leikjum keppninnar og fá aðeins á sig 4 mörk. Hér fallast , ... > ..
þeir í faðma er sigurinn var í höfn. * UrSlltaleiKnum.