Morgunblaðið - 02.07.1978, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 1978
ff
Ólafur V á Austurvelli með Ásgeiri Asgeirssyni, forseta, 1961.
Ólafur konungur á svölum Ráöherrabústaöarins í júní 1974, meö forseta /s-
lands Kristjáni Eldjárn.
Ólafur Noregskon-
ungur er 75 ára í dag.
Hann hefur verið
konungur í 21 ár, eða
frá 21. desember 1957,
er faðir hans Hákon VII
lézt. ólafur er fæddur í
Danmörku, 2. júlí 1903,
og var skírður Alexand-
er Játvarður Kristján
Friðrik. Faðir hans var
þá Karl, Danaprins, og
móðir Maud Breta-
prinsessa.
Þegar norska Stórþingið lýsti
því yfir 7. júní 1905 að sambandið
við Svíþjóð væri rofið var talið að
nauðsynlegt væri að hafa áfram
konung yfir landinu vegna utan-
ríkismála. Þá réðu konungsættir
ríkjum í Evrópu og þótti nauðsyn-
legt að halda góðu sambandi við
þær. Um þessar mundir var
Kristján IX kallaður „tengdafaðir
Evrópu" og var sonur hans Karl,
kjörinn konungur Noregs. Hann
tók kosningu 18. nóvember 1905 og
lýsti því þá yfir að hann tæki
nafnið Hákon VII og nefndi son
sinn Ólaf.
Ein meðmælin með frambjóð-
andanum til krúnunnar voru að
yrði hann kjörinn eignaðist
Noregur krónprins, sem var svo
ungur að hann myndi alast upp frá
blautu barnsbeini í sínu nýja
heimalandi. Fyrstu kynni Ólafs af
Noregi og norsku þjóðinni voru
þegar hann fylgdi foreldrum
sínum sem krónprins í langa ferð
til og frá krýningu í dómkirkjunni
í Þrándheimi þann 22. júní 1906.
Síðan hefur Ólafur ferðast
mikið um sitt eigið land og utan
þess. Sagt hefur verið, að saman-
borið við hann hafi norrænu
víkingarnir verið hinir mestu
landkrabbar. Ólafur hefur heim-
sótt flest öll lönd Vestur- og Suður
Evrópu, heimsótt Afríku og Asíu,
og ferðast víða í Suður og Norður
Ameríku.
Island hefur Ólafur heimsótt
þrisvar sinnum. Hann kom hér
fyrst sem krónprins árið 1947 og
var þá viðstaddur Reykholtshátíð.
Síðan kom hann árin 1961 og 1974
í opinbera heímsókn sem Noregs-
konungur. I júní 1974 sigldi hann
í höfn í Reykjavík á Konungs-
snekkjunni Norge. Veður var hið
bezta við konungskomuna og sólin
braut sér leið fram úr skýjunum
þegar konungur steig í land. Hann
ferðaðist til Þingvalla, Akureyrar
og á heimleið kom hann við í
Vestmannaeyjum. Þar tók báta-
floti Vestmannaeyja á móti
konungi og fylgdi honum síðar
sama dag til hafs.
Menntun
og áhugamál
Sem barn var Ólafur í einka-
kennslu, en gekk síðan í gagh-
fræða - og menntaskóla eins og
aðrir unglingar. Hann tók
Ólafur V
Noregs
konungur
er 75ára
í dag
stúdentspróf á vísindasviði árið
1921 og gegndi síðan herskyldu í
þrjú ár. Ólafur krónprins las
stjórnmálafræði og hagfræði við
Balliol College í Oxford, og lauk
þaðan prófi 1926. Hann hefur látið
þau orð falla að hann sé sérstak-
lega þakklátur foreldrum sínum
fyrir að skilja hversu mikilvægt
það var fyrir allan þroska hans að
vera leyft að ganga í sömu skóla
og njóta sömu kennslu, og aðrir
norskir drengir.
Helztu áhugamál Ólafs hafa
ávallt verið á sviði íþrótta. Vegna
íþróttaiðkana sinna hefur hann
kynnzt margvíslegu fólki. Hann
segir að þannig hafi hann kynnzt
Norðmönnum bezt og gert sér
bezta grein fyrir því að örlög hans
og framtíð eru þau sömu og hjá
löndum hans.
Hann hefur mikinn áhuga á
skíðaíþróttinni, og stundar hana
enn. Fagnaðarlátunum ætlaði
aldrei að linna, þegar hann tók í
fyrsta sinn þátt í Holmenkoll-
en-skíðastökksmótinu og sveif
glæsilega yfir brekkunni í fallegu
og stílhreinu stökki.
Síðar urðu kappsiglingar eftir-
lætis íþrótt hans og voru afrek
hans ekki síðri á því sviði. Hann
hefur unnið mörg verðlaun í
hinum ýmsu keppnum, m.a. á
ólympíuleikum og í heimsmeist-
arakeppnum. Verðlaunasægurinn
er aðeins ein hlið á „Siglinga-
konunginum". Hann er mjög vel að
sér um allt sem viðkemur keppnis-
reglum og skipulagningum móta.
Hann hefur verið dómari á sumar-
ólympíuleikum og formaður
29555
Viö Asparfeli 2ja herbergja á 7. hæð í fjölbýlishúsi. Góöar suður svalir. Góð teppi, góðir skápar. í húsinu er leikskóli og dagheimili. Verð 8—9 m.
Útb. 6—7 m.
Við Bólstaðarhlið 5 herbergja 2. hæð í fjölbýlishúsi. Góö teppi aö hluta. Ágæt innrétting í stofu, Góðir skápar. Bílskúr. Verð 16,5—17 m. Útb. 12,5—13
m.
Við Leífsgötu 4—5 herbergja 2. hæð. Góðar suður svalir. Góö teppi. Góðir skápar. Búr inn af eldhúsi. Rúmgott eldhús. Bílskúr. Verð 16—18 m. Útb.
11 — 12 m.
Við Miklubraut 4 herbergja 1. hæö. Suöur svalir. Rúmgott eldhús. Góöir skápar. Geymsla í kjallara. Útborgun mætti dreifast á allt aö 2 ár. Verö tilboö.
Við Baldursgötu 3ja herbergja jarðhæð. Góð teppi. Rúmgott eldhús, góðir skápar. Þetta er ca. 90 fermetra hæð, eignarlóö. Verð 8—9 m. Útb. 5,5—6
m.
Við Flúðasel 4 herbergi + 1 í kjallara. 1. hæö í nýju húsi. Sameiginleg snyrting í kjallara fylgir. Bílskúrsréttur. Útborgun má dreifast á 1,5 til 2 ár með
löngum afhendingartíma. Verð tilboð.
Við Mávahliö 4 herbergi á 2. hæð í fjórbýlishúsi. Ný teppi. Borðkrókur í eldhúsi. Upphitaður rúmgóður bílskúr með heitu og köldu vatni. Geymsla í
kjallara. Selst í skiptum fyrir einbýli, helzt í Smáíbúöahverfi, Garðabæ o.fl. staöir koma til greina.
Við Hamraborg ca. 65 fm. 2 herbergi í fjölbýlishúsi, gott eldhús, hnota í huröum, góð teppi í stofu og holi. Mjög snotur íbúð. Bílskýli fylgir. Verð 9,5—10
m. Útb. 6,5—7 m.
Við Reynimel 2ja herbergja 70 fm. jarðhæð í þríbýli, ný íbúð, selst í skiptum fyrir 3ja herbergja á hæð á Melunum eða í nágrenni. Verð tilboð.
3ja herbergja 90 fm fokheldar íbúðir á góöum staö á Seltjarnarnesi.
Bílskúr getur fylgt. Góð greiðslukjör.
Allar upplýsingar og teikningar á skrifstofunni.
EIGNANAUST
LAUGAVEGI 96 JL
(o^St^TccÍÓ) Vu\ Sölum- ln9Ólfur Skúlason
SIMI 29555 H og Lárus Helgason,
27750
v r-i
N
Ingólfsstræti 18 s. 27150
Viö Dvergabakka
4ra herb. íbúð 2. hæð
Laus.
Grímsnes — Rauöavatn
Höfum kaupanda að I
sumarhúsi.
Snotur 2ja herb.
kj. íbúð v/Háagerði. V. 5,5 |
m.
Viö Asparfell
4ra herb. íbúð á 3. hæð.
Einbýlish. m/bílskúr
góð hús í Hafnarfiröi.
Raöhús v. Háageröi
ca. 140 fm. 4 svefnherb.
Séreign v. Akurgeröi
ca. 120 fm á tveim hæöum.
4 svefnh. Bílskúrsréttur.
Benedikt Halldórsson sölustj.
Hjalti Steinþórsson hdl.
Gústaf Þór Tryggvason hdl.