Morgunblaðið - 02.07.1978, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 1978
31
Táp og fjör -
og
LAUGARÁSBÍÓ:
REYKUR OG BÓFI
(„Smokey and the
Bandit“)
ÁTJÁN hjóla Mack
tryllitæki — trukkarn-
ir sem setja talsverðan
svip á bandarískt þjóð-
líf og þeir harðsoðnu
ökuþórar sem geysast á
þeim um landið þvert
og endilangt. Farstöðv-
arnar (Citizens Band
talstöðvar), sem tengja
þá hver öðrum og gefa
þeim einnig oft ómet-
anlegar upplýsingar
um erkióvininn — lög-
regluna, frá almennum
borgurum. En þar
vestra eru þeir fjöl-
margir sem haldnir eru
hinu svokallaða „CB
æði“, og hér birtist á
gamansaman hátt.
Tónlistin — hið nýja
sveitarokk, sem á ein-
mitt upptök sín á sögu-
sviði myndarinnar. Hér
eru söngvarar eins og
Waylon Jennings og
Willie Nelson, kóngar í
ríki sínu. Þetta er bak-
grunnur einnar vinsæl-
ustu myndar síðari ára
og verður ekki annað
sagt en að hann falli
vel að þessari hröðu og
ærslafullu gaman-
mynd.
Söguþráðurinn er í
stuttu máli sá að suður
í Georgiu er næstum
þjóðsagnakenndum
trukkstjóra, „Bófa“
(Burt Reynolds), boðið
stórfé í verðlaun ef
honum tekst að sækja
trukkfylli af kjarn-
miklu Coors-öli vestur
til Texarkana (smá-
borgar á mörkum Ark-
ansas og Texas) og
flytja til baka á röskum
sólarhring. Það þarf
náttúrlega ekki að taka
það fram að slíkur
flutningur er einnig
ólöglegur. „Bófa“ tekst
með fagurgala að tæla
fyrrverandi félaga
sinn, Cledus (Jerry
Reed), til aðstoðar sem
bílstjóra á þeim 18
hjóla, en sjálfur ekur
hann glænýjum
Pontiac Trans Am.
Tryllitækið á að draga
að sér athygli laganna
varða og það tekst svo
sannarlega með aðstoð
ótrúlegrar hæfni bíls
og bílstjóra, ómissandi
kunnáttu á notagildi
CB-stöðvanna og ann-
arra ólíklegustu belli-
bragða.
Allt gengur vel á
vesturleiðinni og trukk-
urinn er hlaðinn af
guðaveigunum. Á baka-
leiðinni byrja vanda-
málin og birtast eink-
um í persónu einbeitts
og þvermóðskufulls
lögreglustjóra (Jackie
Gleason). Upphaflega
er hann, ásamt syni
sínum í leit að brúði
þess síðarnefnda — en
hún stakk af á kirkju-
gólfinu. Brúðurin
(Sally Field) fær að
sjálfsögðu far með
„Bófanum", og ekki líð-
ur á löngu uns Gleason
er kominn á SDorið oer
Stjörnur myndarinnar
CB-talstöðin ómissandi.
Burt
Reynolds
og
Country-tónlist, en hér
sýnir hann að hann
getur lifað á hvoru-
tveggja, Nashville og
gamanleik.
Leikstjórinn, Hal
Needham, hefur ekki
áður fengist við kvik-
myndaleikstjórn í aðal-
hlutverki, — en að baki
á hann langan feril sem
áðstoðar leikstj óri
„action" mynda eins og
FRENCH CON-
NECTION II. LITTLE
BIG MAN, THE
LONGEST YARD og
LUCKY LADY, og hef-
ur notið mikillar virð-
ingar sem slíkur. Enda
er það hápunktur
myndarinnar þegar
þessir hæfileikar njóta
sín.
Fleiri orð eru óþörf
um þessa bráð-
skemmtilegu mynd sem
ætti að geta kitlað
hláturtaugar allra ald-
ursflokka.
Leikstjórinn, Hal Needham, á tali við nokkra leikara myndarinnar.
Nu er sá tími gengmn í garð er kvikmyndahússtjórar fá gullvægt tækifæri til að endurheimta
áhuga almennings á söluvöru þeirra. Sjónvarpið er komið sumarfrí.
Þegar þessar línur eru skrifaðar bendir líka allt til þess að þeir ágætu menn ætli sér líka
að hafa uppá veislu að bjóða þennan mánuð — Nýja Bíó og Laugarásbíó ríða á vaðið. Hér er
Donald Sutherland í hlutverki Casanova í hinni umtöluðu mvnd meistara Fellini.
gamanleik. Myndin er
vel leikin í heild, eink-
um er þó Jackie Glea-
son óborganlegur í
hlutverki sínu sem
þverhausinn í lögreglu-
búningnum. Sally Field
er lítt kunn hérlendis,
en nýtur mikilla vin-
sælda víðast hvar ann-
ars staðar í heiminum
fyrir leik sinn í nokkr-
um vinsælum sjón-
varpsþáttum. Hún fer
hér laglega með sitt (og
rassinn er snotur).
Jerry Reed er hvað
kunnastur fyrir
Þannig gengur
myndin fyrir sig, grínið
situr í fyrirrúmi, alvar-
an víðsfjarri, og áhorf-
endum er vinsamlegast
ráðið frá því að ígrunda
efnisþráðinn nákvæm-
lega. Og útkoman verð-
ur óvenjulega hressileg
afþreyingarmynd, bæði
viðburðarík og fyndin.
Með aðalhlutverkið
fer hjartaknúsarinn
Burt Reynolds og er
það klæðskerasniðið
fyrir hæfileika hans;
karlmannsbrag og
næma tilfinningu fyrir
trukkstjórar