Morgunblaðið - 02.07.1978, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 1978 .
+
Útför fööur okkar,
Helga Geirsaonar,
kennara,
Laugarvatni,
er lést 27, júní verður gerö frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 4. júlí kl. 15.00
Börnin.
+
RANNVEIG ÞORSTEINSOÓTTIR
frá Kvígíndiafelli,
veröur jarösungin frá Dómkirkjunni þriöjudaginn 4. júlí kl. 13.30.
Rafn Franklín
Guöbjörg Sigvaldadóttir,
Ólafur bórarínaaon.
Eiginmaöur mlnn og faöir okkar,
BJARNf SIGMUNÐSSON
MMtéri,
andaöist á Hrafnistu 28. júní. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju
mánudaginn 3. júlí kl. 3. Guérún snorradóMir,
Inga Bjarnadóttir,
Snorri Bjarnason,
Björgvin Bjamaaon,
Boaai Bjarnaaon.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför eiginkonu,
móöur, tengdamóöur og ömmu,
SIGÞÓRU BJARGAR ÁSBJÖRNSDÓTTUR,
Hollubraut 1,
Hafnarfiröi.
Borgsteinn Sigurósson,
Ásbjörn Borgstoinsson,
Bryngeróur Bryngeirsdóttir,
Sigbóra B. Áabjörnsdóttir,
Bryngeir Ásbjðrnsson,
Bergsteinn Ásbjörnsson,
Lovísa Áabjörnsdóttir.
+ Þökkum Innllega auösýnda samúö og vlnarhug vlö andlát og jarðarför
eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og afa
JÓHAN RÓNNING
Svava Rönning,
Áata Sylvfa,
Níls H. Zlmsen,
og börn.
+
Viö þökkum innilega öllum þeim, sem auösýndu okkur samúö og hlýhug viö
andlát og útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa.
GÍSLA JÓNSSONAR,
frá Helgastöóum,
Sérstakar þakkir viljum viö færa öllum þeim, sem hjúkruöu honum í veikindum
hans.
Sólborg Sigmundsdóttir,
börn, tengdasynir og barnabörn
+
Viö færum þakkir öllum þeim sem heiöruöu minningu
MAGNUSAR MAGNÚSSONAR
ritstjóra.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Innilegar þakkir færum viö öllum þeim er sýndu okkur samúö og vinarhug
vegna andláts og jaröarfarar móöur okkar
ÁGÚSTU S. PÁLSDÓTTUR
Mávahlíð 37.
Fyrír okkar hönd og annarra vandamanna.
Guðrún Á Símonar,
Sigríóur Símonardóttir.
Ragnheiður Sturlaugs
dóttir — Minning
Ragnheiður Sturlaugsdóttir,
sem borin verður til grafar frá
dómkirkjunni í Reykjavík mánu-
daginn 3. júlí kl. 13.30, lézt á
heilsugæzlustöðinni á Egilsstöðum
25. júní síðastliðinn. Hún fæddist
í Ytri-Fagradal á Skarðsströnd 6.
júlí 1893, dóttir hjónanna Stur-
laugs Tómassonar bónda þar og
seinni konu hans, Herdísar
Kristínar Jónsdóttur frá Skarðs-
stöðum.
Ragnheiður var tveggja ára að
aldri, er hún fluttist með foreldr-
um sínum til Akureyja á Breiða-
firði og ólst þar upp. Fyrri kona
Sturlaugs var systir Herdísar, en
með henni átti hann átta börn,
sem öll eru látin. Þau Herdís og
Sturlaugur eignuðust 14 börn og
komust 10 þeirra til fullorðinsára,
en af þeim eru nú fjórar systur
eftir á lífi. Þær eru Sigurborg, í
Stykkishólmi, Júlíana, í Hreiður-
borg í Flóa, Asta, í Reykjavík og
Unnur, sú yngsta, sem býr í
Keflavík.
Ragnheiður dvaldi í heimahús-
um til 18 ára aidurs en þá fór hún
í vist til séra Ólafs í Hjarðarholti.
Tvítug fluttist hún til Reykjavíkur
og vann á ýmsum stöðum til ársins
1917, er hún réð sig sem innan-
búðarstúlka til Kristínar Jóns-
dóttur Hagbarð, sem rak matvöru-
verzlun á Laugavegi 26 og var hjá
henni fram til ársins 1942. Árið
1946 varð hún forstöðukona fyrir
þvottahúsinu Ægi og gegndi því
starfi í tíu ár.
Eins og af framangreindu má
ráða einkenndist líf Regnheiðar
tengdamóður minnar ekki af
stórviðburðum. Hún yfirgaf á
unga aldri heimabyggð sína og
fluttist til borgarinnar eins og
fjöldi ungmenna, sem uppalinn var
í sveit. En Ragnheiður kunni frá
mörgu að segja. Hún var ættræk-
in, mannblendin og vinföst og hélt
sambandi við fjölda ættingja og
kunningja. Akureyjar og allt
breiðfirskt var Ragnheiði alla tíð
hugleikið. Þar hafði hún alizt upp
á góðu heimili og þótt börnin væru
mörg var aldrei þröngt í búi.
Eyjarnar voru gjöfular og faðir
hennar dugandi bóndi og frá
æskuárum átti hún góðar endur-
minningar. Hún var fróð um
breiðfirskar ættir og átti margar
sögur i handraðanum af gömlum
breiðfirskum sjósóknurum og lífi
þar.
Eitt mesta happ Ragnheiðar í
lífinu var án efa, er hún réð sig til
Kristínar Hagbarð. Kristín var
merkiskona, sem á unga aldri
sigldi til Kaupmannahafnar til að
afla sér menntunar. Hún rak lengi
matvöruverzlun á Laugavegi 26
með myndarbrag og mun hún m.a.
hafa verið fyrsti matvörukaup-
maður í Reykjavík, sem seldi
heitan mat í búð sinni. Þær
Kristín og Ragnheiður bjuggu í
sama húsi og verzlunin var í og var
heimilið gestkvæmt. Þar kom
fjöldi fólks, utanbæjarmenn og
Reykvíkingar, og sagði Ragnheið-
ur oft frá ýmsu, er fyrir bar á
þessum árum.
Það var skemmtilegt að hlusta á
frásagnir Ragnheiðar af fólkinu,
sem kom á Laugaveginn. Höfðingj-
ar jafnt sem nauðþurftamenn voru
þar á ferð, menntamenn, lista-
menn og kynlegir kvistir; sem sagt
gamla góða Reykjavík, sem nú er
horfin og við þekkjum einungis í
bókum eða af afspurn.
Kristín og Ragnheiður tóku tvö
börn í fóstur, Sigurð, sem dó úr
barnaveiki tveggja ára að aldri, og
Jóhann Bernharð, sem þær ólu upp
og komu til mennta. Jóhann var
þekktur íþróttamaður og braut-
ryðjandi í íþróttablaðamennsku í
höfuðborginni. Hann var kvæntur
Svövu Þorbjarnardóttur og áttu
þau þrjár dætur. Jóhann lézt árið
1963 aðeins 44 ára að aldri.
Ragnheiður giftist ekki en eignað-
ist eina dóttur, nöfnu hennar
Jónsdóttur, sem gift er undirrituð-
um.
Ragnheiður Sturlaugsdóttir var
orðinn fullorðin, er leiðir okkar
lágu saman. Hún var enn fríð kona
og virðuleg, en af myndum af
henni ungri má sjá að hún var
bæði fögur og tíguleg. Hún hafði
ákveðnar skoðanir og var óhrædd
að halda þeim fram og hún var
hrókur alls fagnaðar í góðra vina
hópi. Ragnheiður hlýtur að hafa
verið góður stjórnandi. Fjöldi
stúlkna vann undir hennar stjórn
á þeim árum, sem hún vann úti og
héldu þær flestar tryggð við hana
og heimsóttu oft þótt langt væri
um liðið síðan þær störfuðu hjá
henni. Síðast í fyrra komu tvær
frúr, sem verið höfðu vinkonur hjá
Kristínu Hagbarð þegar þær voru
Framhald á bls. 27
VATNSNUDDTÆKIÐ
FRÁ GROHE
ER BYLTING
Það er eins og að hafa sérstakan nuddara i baðherberginu heima hjá sér,
slík eru áhrif vatnsnuddtækisins frá Grohe.
Frábær uppfinning sem er orðin geysivinsæl erlendis.
Tilvalið fyrir þá sem þjást af vöðvabólgu, gigt og þess háttar. Hægt er að mýkja
og herða bununa aö vild, nuddtækið gefur 19-24 lítra með 8.500 slögum á mínútu.
Já, þaö er ekkert jafn ferskt og gott vatnsnudd.
En munið að það er betra að hafa „orginal" og það er GROHE.
Grohe er brautryðjandi og leiðandi fyrirtæki, á sviði blöndunartækja.
RR BYGGINGAVÖRUR HE
SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331. (H. BEN. HÚSIÐ)