Morgunblaðið - 11.07.1978, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1978
Stúdentar frá
Skandinavíu á
íslenzku-námskeiði
AÐ undanfiirnu hafa tæpleua
þrjátíu stúdentar frá hinum
Nordurlöndunum verið hér á
námskeiði, sem stendur í mánað-
artíma. er liður í samstarfi
háskólanna á Norðurlöndum. en
samsvarandi námskeið eru haldin
á hinum Norðurlöndunum árlega.
Er þetta gert fyrir tilstyrk
framkvæmdancfndar Norræna
menninsarmálasjóðsins. Nám-
skeiðið skiptist þannij; að um
fimmtíu stundum er varið til
kennsiu íslensks nútímamáls, en
um þrjátíu stundum til umfjöll-
unar um íslenskar bókmenntir
síðari tíma.
Það er Jón Friðjónsson lektor
sem stjórnar námskeiðinu, en
aðrir aðalkennarar eru dr. Helgi
Guðmundsson, Eyvindur Eiríks-
son og prófessor Sveinn Skorri
Höskuldsson. Auk þeirra flytja
margir fræðimenn fyrirlestra á
námskeiðinu. Enn fremur gefst
þátttakendum kostur á kynnis-
ferðum á söguslóðir og til fleiri
staða, t.d. býður forseti íslands
þátttakendum að Bessastöðum.
Blm. Mbl. ræddi stuttlega við
fjóra þátttakendur á námskeiðinu
Gunnel Holm frá Svíþjóð sagðist
leggja stund á nám í norrænum
málum við háskólann í Lundi og
væri þetta því liður í námi hennar,
en hið sama gildir raunar um alla
þátttakendurna hvað það áhrærir.
Hún sagði að það væru ekki mjög
margir sem stunduðu þetta nám
og mjög fáir sem velja þá leið sem
krefst þess að þeir kynni sér
nútímaíslensku. Gunnel kvaðst
hafa komið einu sinni áður hingað
til lands árið 1975, .þegar hér var
haldið þjóðdansamót. Hún sagði
að námskeiðið væri allstrembið, en
hún nyti þess nú að hafa lært
dálítið í íslensku áður. Það væri
ekki mjög erfitt að lesa smásögur
o.þ.u.l., en nokkru erfiðara að lesa
ljóð.
Reidun Langvatn frá Noregi
sagðist stunda nám í Osló í norsku,
ensku og frönsku, en hún hefði
eins og aðrir menntaskólanemar í
Frá vinstrii Lisheth Worsoe Schmidt. Christel Petterson. Gunnel Ilolm og Rcidun Langvatn.
(Ljósm. Mbl. Emilía).
Noregi átt þess kost að læra
forníslensku. Hún sagði að hún
hefði aldrei komið hingað til lands
áður, en myndi ugglaust koma
hingað aftur síðar, enda hefði hún
mætt alveg sérstakri gestrisni hér.
Hún kvaðst hafa mestan áhuga á
að skoða ýmsa sögulega merka
staði og staði tengda íslendinga-
sögunum og sagðist sakna þess
nokkuð á námskeiðinu að lesa
ekkert af fornritum, en þau væru
það sem hún hefði mestan áhuga
á.
Christel Petterson frá Finn-
landi kvaðst leggja stund á nám í
norrænum bókmenntum í heima-
landi sínu. Sagði hún að það væru
Óvæntur
sigur
Ingvars
Dagana frá 30. júní til 4. júlí s.l.
var haldið í Fíladelfíu í Bandaríkj-
unum eitt af þessum vinsælu opnu
mótum sem Bandaríkjamenn
nefna „World Open“, þ.e. þátttak-
endum hvaðanæva að úr heimin-
um er heimiluð þátttaka og raðað
niður eftir styrkleika og Elo-stig-
um og verðlaun greidd í samræmi
við það. í opna flokknum voru
þátttakendur 450 talsins fyrir
utan keppendur í 6 öðrum flokkum
sem voru lægri á stigum eða höfðu
alls engin stig. Slík mót ryðja sér
æ meira til rúms og eiga auknum
vinsældum að fagna.
Nokkrir Islendingar hafa sótt
þessi mót á undanförnum árum, en
höfðu aldrei farið jafn fjölmennir
og nú eða alls 14 skákmenn. Þar
á meðal voru nokkrir sterkustu
skákmenn okkar eins og t.d. þeir
Helgi Ólafsson, Margeir Péturs-
son, Jón L. Arnason og fleiri.
Mesta athygli vakti þó þátttaka
Benónýs Benediktssonar, sem
tefldi nú í fyrsta skifti á erlendri
grund þó hann hafi um árabil
verið meðal fremstu skákmanna
þjóðarinnar. Allan heiður af þessu
framtaki á ritstjóri „Skákar“
Jóhann Þórir Jónsson en hann
skipulagði jafnframt þessa ferð.
Mótið fór fram í Sheraton hóteli
sem væntanlega hefur lagt fram
verðlaunin í auglýsingaskyni en
þau námu alls 40 þúsund dollurum
og hafa sennilega aldrei verið svo
há verðlaun í boði í almennu
skákmóti. Munu þessi háu verð-
laun ekki sízt hafa dregið þátttak-
endur að mótinu. Þó voru ekki
margir mjög þekktir atvinnuskák-
menn í þessu móti en eflaust mjög
margir miðlungssterkir.
Þáttur Ingvars Asmundssonar
var glæsilegastur í þessu móti en
hann varð efstur ásamt 6 öðrum,
þar á meðal jafnþekktum mönnum
eins og Gheorgiu frá Rúmeníu og
Westerinen frá Finnlandi sem
báðir hafa teflt hér á landi. Hlaut
a Ingvar 7,5 vinning, tapaði í 2.
umferð en gerði stutt jafntefli í
síðustu umferð við Biyasis sem
einnig er talsvert þekktur skák-
maður.
Við höfum undir höndum þrjár
af skákum Ingvars sem hann teflir
allar af miklum þrótti. Því miður
höfum við ekki upplýsingar um
þjóðerni þessara andstæðinga
Ingvars en hann teflir við þá í 6.,
7. og 8. umferð og höfðu þeir því
átt svipaðri velgengni að fagna í
mótinu og hann.
6. umferð
Ilvítt. Ingvar
Svart. Costigan
Sikileyjarvörn
I. e4 - c5. 2. Rf3 - RcG, 3. Bb5
(Ingvar hefur mikið dálæti á
þessum leik síðan hann hlustaði á
Friðrik Ólafsson halda kennslu-
fvrirlestur um þetta afbrigði fyrir
nokkrum árum, en þá voru þrædd
öll smáatriði afbrigðisiijs!)
3. - RíG. 4. De2 - gG (Ef 4. -
d6, 5. e5! og hvítur stendur vel að
vígi).
5. c3 - Bg7. G. 0-0 - 0-0. 7. d l
— cxd4, 8. cxd l — d5. 9. e5 —
Re4. 10. Rc3 - Rxc3. 11. bxc3
(Staðan er nokkurn veginn í
jafnvægi, því þótt hvítur hafi
myndað sér fallegan framvörð með
peðinu á e5, er viss veikleiki í
peðinu á c3 en svarta staðan hefur
hinsvegar enga teljandi veikleika).
II. — Ra5, 12. Ba3 (Biskupapar
hvíts virðist í fljótu bragði njóta
sín vel á skálínunum, en svörtum
tekst að reka þá báða í burtu).
12. - aG. 13. Bd3 - Bgl. 14. h3
- Bxf3, 15. Dxf3 - IIc8
(Svörtum hefur tekizt að mynda
sér mótspil á c-línunni en hann
hefur á móti misst annan biskup-
inn sinn fyrir riddara hvíts og
gefið þannig biskupapari hvíts
aukna möguleika sem Ingvar nýtir
til hins ítrasta).
1G. Hfhl - Dd7 (Eftir 16. -
Hxc3, 17. Bb4 — Hc6, 18. Bxa5 og
síðan Hxb7 og hvítur stendur mjög
vel).
17. Bcl (Eins og fyrr segir nýtir
Ingvar sér biskupaparið mjög vel.
Hérna er c-peðið eitrað vegna 17.
— Hxc3, 18. Bd2 og svartur missir
mann eða skiptamun).
17. - IIc6, 18. De2 - IIfc8. 19.
Bd2 — Bf8, 20. £4 (Hvítum hefur
ekkert orðið ágengt drottningar-
megin og snýr sér því að kóngs-
vængnum. Svartur hefur í skjóli
yfirráða sinna á c-línunni fest sig
í sessi en biskup svarts er þó
heldur atkvæðalítill).
20. - eG, 21. Ilfl - Rc4, 22. Bel
— IlbG? (Hér verður svörtum á í
messunni. Svartur átti að koma
biskup sínum í spilið með 22. —
Be7, og undirbúa för hans til a5
þar sem hann ógnar hinu veika
peði hvíts á c3).
23. Hbl - Hxbl, 24. Bxbl - IIc6,
25. Bd3 — RbG(?) (Misheppnuð
tilraun svarts til þess að koma
svarta riddaranum á a4 þar sem
hann að sjálfsögðu stæði mjög
ógnandi).
26. Bc2 — Hc7, (Svartur hefur nú
misst þráðinn og teflir án skipu-
lags).
27. III3 - Ra4, 28. g4 - Db5, 29.
Df2 (Hvítur telur hag sínum
réttilega betur borgið með drottn-
ingar á borðinu, því eftir uppskipti
á svartur greiðari aðgang að
c-peðinu).
29. — Rc5! (Svartur reynir nú að
tæla hvítan með sýndarfórn).
30. He3! (Ingvar er ekki ginn-
keyptur fyrir þessum riddara, því
eftir 30. dxc5 — Bxc5, 31. He3 —
Db2, vinnur svartur lið til baka).
30. — Db2 (Svartur virðist býsna
ógnandi en Ingvar teflir vörnina
skínandi vel).
31. IIo2 - Dcl, 32. Kg2 - Rd7.
33. Bd3 — BhG? (Hér verða
svörtum á afdrifarík mistök í
viðkvæmri stöðu og ætlar sér of
mikið. Bezt var sennilega einfald-
ur leikur eins og t.d. 33. — Be7).
34. Bd2 - Da3.
35. Dh4! (Eins og þruma úr
heiðskíru lofti! Hvítur hótar nú
bæði Dxh6 og Dd8 með hróksvinn-
ingi).
35. - Bf8. 36. Dd8 - Hxc3
(Svartur tekur þann kost að láta
skiptamun af hendi og þar með
hrynur svarta taflið í rústir í
örfáum leikjum. Ef svartur valdar
hrók sinn á c7 með 36. — Da5,
svarar hvítur með 37. c4 — Db6,
38. c5 — Dc6, 39. f5 og hefur
yfirburðatafl).
37. Bxc3 - Dxc3. 38. Bc2 - DcG,
39. Í5 - exf5, 40. gxf5 - Db5. 41.
IIÍ2 - DcG, 42. e6 - fxc6, 43.
fxgG — hxgG. 44. Bxg6 — Dcl.
15. Dxd7 og svartur gafst upp.
Sjöundu umferð tefla keppendur
seinna sama daginn og þá 6. og
hefur það eflaust verið mikil
þrekraun. I eftirfarandi skák eru
engin þreytumerki á taflmennsku
Ingvars en hið sama verður varla
sagt um andstæðing hans sem
teflir seinni hluta þessarar skákar
bæði veikt og án nokkurs skipu-
lags.
7. umferð
Hvítti Katlein
Svarti Ingvar
Enski leikurinn
1. c4 - RfG. 2. Rc3 - gG, 3. Rf3
- Bg7, 4. g3 - 0-0. 5. Bg2 - d5,
G. cxd5 - Rxd5, 7. 0-0 - c5, 8.
Rxd5? (Fyrstu mistökin. Með
þessum léik missir hvítur allt
frumkvæði í skákinni. Mun kröft-
ugri leikur er t.d. 8. d4 og staðan
er í jafnvægi).
8. - Dxd5, 9. d3 - RcG, 10. Rd2
— Dd7, 11. Rc4 — b6, (Þó hvítur
hafi opnað skáklínu hvíta biskups-
ins á g2 er það svörtum algerlega
að meinalausu. Hinsvegar hgfur
svartur tögl og hagldir á reitnum
d4 sem verður ákjósanlegur stökk-
pallur fyrir svörtu mennina).
12. Bd2 - Bb7, 13. Bc3 - Rd4!
(Þessi staða gæti sómt sér í
kennslubókum til þess að sýna í
hverju stöðuyfirburðir svarts eru
fólgnir og hvernig þeir eru nýttir.
Ingvari tekst, með aðstoð and-
stæðingsins að sjálfsögðu, að nýta
Skák
eftir GUNNAR
GUNNARSSON
þessa yfirburði á óaðfinnanlegan
hátt. Með leiknum skiptir svartur
jafnframt biskupum og fær þannig
einn sterkasta varnarmann hvíts.
Svarti riddarinn verður ekki
hrakinn með e3 því þá hefur
myndazt alvarleg veiking, peðið á
d3, sem nýtur þá ekki lengur
völdunar peðsins).
14. Bxb7 - Dxb7, 15. Bxd4 -
Bxd4, (Hvítur tekur það ráð að
drepa hinn ógnandi riddara á d4
í trausti þess að einföldun og
uppskipti auðveldi honum taflið,
en hann teflir framhaldið heldur
laklega og verður því ekki að ósk
sinni).
1G. a4 - Had8. 17. Dc2 - Hfe8,
18. a5 (Staða hvíts er aumkunar-
verð og fátt um fína drætti, en
hvítur hyggst á þennan hátt skapa
sér mótspil á a-línunni).
18. — h5, (Svartur blæs hinsvegar
til atlögu á kóngsvæng þar sem
hvítur er harla varnarlítill).
19. axbG — axb6. 20. h4 (Slík
peðaframrás veikir að mun peða-
stöðuna kringum hvíta kónginn,
en svartur hótaði að leika sjálfur
h4).
20. — Dc7, (Hótar peðinu á g3).
21. Kg2 - DcG, 22. Kh2 - Ha8,
23. e3 (Hvítum er nú farið að
leiðast þófið og afræður að reka
svarta biskupinn af höndum sér,
en eins og áður sagði verður peðið
á d3 þá veikt).
23. — Bg7, 24. f4? (Með þessum
leik auðveldar hvítur framhaldið
fyrir svartan. Reyna mátti þess í
stað t.d. 24. Db3).
24. - b5. 25, Rd2 - Ilxal, 2G.
Ilxal — e5, (Á þennan hátt tætir
svartur peðakeðju hvíts).
27. Re4 — exf4, 28. exf4 — c4, 29.
Hdl - Dd5. 30. Dg2 - Dd4, 31.
Ilel — Kf8. (Hvítur lagði litla
gildru fyrir svartan og hótaði Rf6
sem vinnur skiptamun, en svartur