Morgunblaðið - 11.07.1978, Blaðsíða 40
Verzlið
í sérverzlun með
litasjónvörp og hljómtæki'
Al i;i.VSIN<i \SÍMINN KK:
22480
Skipholti 19,
sími 29800
146. tbl. 65. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1978
Könnunarviðræðum Alþýðubandalags og Alþýðuflokks lokið:
Enn ágreiningur
um samstarfsaðila
„STAÐAN ER nú sú að það hljóta að fara að hefjast formlcgar
stjórnarmyndunarviðræður í stað könnunarviðræðna og það hefur
komið skýrt fram að Framsóknarflokkurinn cr rciðubúinn til
tilraunar til myndunar ríkisstjórnar Alþýðuflokks, Alþýðuhandalaiís
<>K Framsóknarflokks. Sú óvissa cr að minnsta kosti ckki lengur fyrir
hcndi.“ sa«ði Lúðvík Jóscpsson formaður AlþýðuhandalaKsins í
samtali við Mbl. í særkvöldi. cn í gær lauk könnunarviðræðum
Alþýðubandalagsins <>k Alþýðuflokksins.
Þegar Mbl. spurði Lúðvík hvort
hann tcldi að með svari Fram-
sóknarflokksins væri kominn
grundvöllur fyrir myndun vinstri
stjórnar svaraði hann: „Það eitt
liggur nú fyrir að tveir flokkar
hafa lýst sig formlega reiðubúna
til stjórnarmyndunarviðræðna.
Við ræddum ýmis mál mjög
lauslega, en það kom fram hjá
framsóknarmönnunum, að þeir
vildu ekki ræða mál mjög efnis-
lega að svo stöddu."
„Afstaða okkar til væntanlegra
stjórnarmyndunar er óbreytt sú,
að þjóðinni sé nauðsyn að fá
Meira en helmings
hækkun á smjöri
SMJÖRÚTSÖLUNNI lauk um helg-
ina og frá og með gærdeginum
hækkaði hvert kílö af smjöri úr 880
kr, í 1781 kr. eða um 102%.
Smjörútsalan stóð frá 18. janúar s.l.
og alls seldust 819 lestir af smjöri
á þessu tfmabili, sem er 292 lestum
meira en seldist á sama tfmabili á
s.l. ári
Gunnar Guðbjartsson, formaður
Stéttarsambands bænda, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær, að
bændur hefðu ekki treyst sér til að
halda smjörútsölunni áfram frá 1.
júní hefðu þeir greitt 864 kr. með
hverju kílói og alls hefðu þeir þurft
að leggja tií 500 milljónir kr. með
smjörútsölunni, sem væri meira en
þeir gætu staðið undir til langframa.
meirihlutastjórn og það er okkar
skoðun að við núverandi aðstæður
sé bezt að mynduð verði ríkis-
stjórn með þátttöku Alþýðuflokks-
ins, Alþýðubandalagsins og Sjálf-
stæðisflokksins þar sem sú ríkis-
stjórn hefði bezta möguleika á að
ná fram raunhæfum kjarasátt-
mála,“ sagði Benedikt Gröndal
formaður Alþýðuflokksins í sam-
tali við Mbl. í gær.
Mbl. spurði Benedikt um óform-
leg samtöl milli forystumanna
Aiþýðuflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins og sagði hann að þar
hefði aðeins verið um almennar
viðræður að ræða. „Við höfum
látið í ljós ákaflega sterka von um
það að sjálfstæðismenn sjái að á
þeim hvílir mikil ábyrgð og bent
á það að Sjálfstæðisflokkurinn er
stærsti stjórnmálaflokkur lands-
ins,“ sagði Benedikt. Þegar Mbl.
spurði hvort hann gæti af þessum
samtölum dregið ályktanir um
viðhorf Sjálfstæðisflokksins til
nýsköpunarstjórnar svaraði Bene-
dikt: „Eg vil ekki leggja neinn dóm
á það atriði."
Lúðvík Jósepsson sagði, að fundi
Alþýðubandalagsins og Alþýðu-
flokksins í gær hefðu menn „haldið
áfram viðræðum og einnfig rætt
þessi nýju viðhorf" sem hefðu
orðið með fundi Alþýðubandalags-
ins og Framsóknarflokksins. „í
Framhald á bls. 26
Kvikuhlaup hafið
á Kröflusvæðinu
KVIKUIILAUP hófst á Kröflu-
sva'ði upp úr kl. 15 í gær og
jafnhliða byrjaði land að siga.
Land scig í gærkvöldi um rúm-
lcga 1 sm á klukkutíma, en það
er nokkru hraðar en gerðist í
umhrotunum i' janúar. en hægar
cn í september í fyrra. Um
miðnæturbil í gær virtist sem
kvikan sækti mest í norður og
síðan í vestur. Voru mestu skjalft-
arnir í Gæsadal og bendir það til
þess að kvikan sé mest á hreyf-
ingu norðan við Kröfluöskjuna.
Dr. Guðmundur Sigvaldason
jarðeðlisfræðingur og forstöðu-
maður Norrænu eldfjallastöðvar-
innar sagði í samtali við Mbl. seint
í gærkvöldi, að land hefði sigið
jafnt og þétt frá því kl. 17 í gær,
bæði til norðurs og vesturs. Sagði
Guðmundur, að lítið væri um
skjálfta á svæðinu, en þó hefðu
þeir orðið sterkari eftir því sem
liðið hefði á kvöldið, og sagði hann
að svo virtist sem umbrotin nú
ætluðu að taka líka stefnu og í
janúar s.l. en þar sem svo stutt
væri liðið frá því að umbrotin
byrjuðu í gær væri ekki hægt að
segja neitt með vissu hvað gerðist
á næstu dögum. Hann sagði að í
augnablikinu væri ekkert sem
benti til þess að eldgos væri alveg
í vændum.
Þegar Morgunblaðið hafði sam-
band við skjálftavaktina í Reyni-
hlíð skömmu fyrir miðnætti höfðu
fáir skjálftar mælzt þar, en þó
hafði einn skjalfti komið fram,
sem mældist stærri en 3 stig á
Richter-kvarða. Þyrla Landhelgis-
gæzlunnar var þá komin að Kröflu
og fór hún í gærkvöldi með
vísindamenn og tækjabúnað inn í
Gjástykki sem átti að koma fyrir
þar.
Það cr oft scm það vcrða árckstrar í alþingishúsinu. cn það kcmur
líka fyrir að þcir vcrða utan dyra. Ilcr ra-ðir fólk um árckstur
tvcggja bíla fyrir framan húsið. Ljósm. ói. k.m.
Efnahagsúrræði Alþýðubandalags og Alþýðuflokks:
Hvorugur lagði fram
fastmótaðar tillögur
KÖNNUNARVTÐR.EÐUM Alþýðuhandalagsins og Alþýðuflokksins lauk í gær án þcss að flokkarnir lcgðu
fram fastmótaðar tillögur til lausnar cfnahagsvandanum. Alþýðubandalagið lagði á það áhcrzlu að það
vill fara niðurfærslu- og millifærslulcið cn lagði ckki fram fastmótaða áætlun um framkvæmd hcnnar.
Alþýðuflokkurinn vildi hins vcgar ckki hafna ncinni lcið fyrirfram hcldur skoða alla valkosti cn komst
ckki að niðurstöðu áður cn viðra*ðunum lauk.
„Það er ljóst að við leggjum
áherzlu á að fara verðlækkunar-
leið sem þýðir ákveðna milli-
Geir Hallgrímsson formaður Sjálfstæðisflokksins:
Annarra flokka frek-
ar að gera hreint
fyrir sínum dyrum
,.ÉG tcl nú út af fyrir sig að
þctta scu engin ný viðhorf
hcldur cinmitt það sem við
Sjálfstæðismenn bcntum á fyr-
ir kosningar. Ég tel rétt að það
komi betur í Ijós hvernig
línurnar liggja <>g að þá verði
cf til vill aðrir flokkar frekar
að gcra hreint fyrir sínum
dyrum cn Sjálfstæðisflokkur-
inn." sagði Gcir Ilallgrímsson
formaður Sjálfsta'ðisflokksins
cr Mhl. leitaði í gærkvöldi álits
hans á þeim viðhorfum sem þá
voru varðandi viðræður stjórn-
málaflokkanna.
Mbl. spurði Geir Hallgríms-
son um óformleg samtöl
forystumanna Alþýðuflókksins
og Sjálfstæðisflokksins og
svaraði hann, að af þeim væri
ekkert„sérstakt að segja“, „Við
höfum spjallað saman um
viðhorfin en það hafa aðeins
verið almennar viðræður“.
Akveðinn hefur verið sameig-
inlegur fundur miðstjórnar og
þingflokks Sjálfstæðisflokksins
á fimmtudaginn. „Við munum
annars vegar ræða viðhorfin í
sambandi við stjórnarmyndun
og hins vegar flokksstarfið“,
sagði Geir Hallgrímsson er Mbl.
spurði hann um efni fundarins.
færslu í sambandi við fjáröflun
og að við erum mjög andvígir
gengislækkun eða öðrum verð-
hækkunarleiðum," sagði Lúðvík
Jósepsson formaður Alþýðu-
bandalagsins þegar Mbl. spurði
hann um lausn Alþýðubanda-
lagsins á efnahagsvandanum.
Spurningu Mbl. um það, hvort
Alþýðubandalagið hefði í
könnunarviðræðunum við
Alþýðuflokkinn lagt fram tillög-
ur um það.hvernig þetta yrði
framkvæmt svaraði Lúðvík svo:
„Við höfum að sjálfsögðu gert
okkur grein fyrir því hvernig það
dæmi gæti litið út.
En þetta er mál sem semja
verður um þannig að við höfum
ekki talið rétt að setja fram
nákvæma útlistun í þessum
könnunarviðræðum."
„Við höfum aflað okkur ým-
issa gagna í sambandi við
efnahagsmálin og reynt að gera
okkur grein fyrir valkostunum,"
sagði Benedikt Gröndal formað-
ur Alþýðuflokksins er Mbl.
spurði hann um lausn Alþýðu-
flokksins á efnahagsmálunum.
Benedikt sagði að Alþýðuflokk-
urinn hefði ekki útilokað neinn
möguleika ennþá.
Kona ól
tvíbura
í flugvél
RÉTT fyrir kl. 18 í gærdag ól
kona tvíbura í Islandcrflugvél
ílugfélagsins Arna frá ísa-
firði, cn vélin var þá á lcið mcð
konuna frá Bolungarvik til
Rcykjavíkur. Tvíburarnir.
scm cru piltur og stúlka,
fæddust nokkru fyrir tímann.
Eru þcir nú á fæðingardcild
Landspi'talans ásamt móður
inni.
Hörður Guðmundsson, flug-
maður hjá Örnum, sagði í
samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi, að flytja hefði átt
konuna suður sökum þess, að
grtínur lék á, að ekki myndi allt
með felldu með heilsu hennar.
Kramhald á bls. 38