Morgunblaðið - 12.07.1978, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 1978
11
Chon Gi Cap scndihcrra og túlkur hans.
/
Askorun frá N-Kóreu
Nýr sendiherra kynnti hana hér
al Ghasmi, höfðu einnig
reynt að samrýma sjónarmið
sín, en forsetinn lézt eins og
kunnugt er af völdum spreng-
ingar í tösku sérlegs sendi-
manns stjórnar Suð-
ur-Yemens, er gekk á fund
hans með áríðandi skilaboð.
Ali skellti skuldinni sam-
stundis á fjandmenn sína
innan flokksins, en Ismail
svaraði fyrir sig með því að
senda Kúbumenntað herlið
sitt gegn forsetanum. Kemur
fram í nýjasta tölublaði
Newsweek, að Sovétmönnum
hafi augsýnilega verið svo
mikið kappsmál að steypa Ali
að þeir hafi látið hernaðar-
sérfræðinga Austur-Þjóð-
verja skipuleggja aðförina.
Búist er við að Sovétmenn
hafi mjög styrkt stöðu sína á
Arabaskaga í kjölfar þessara
atburða. Fattah Ismail, sem
er 36 ára gamall fyrrverandi
skólakennari, hefur treyst sig
í sessi. Raddir eru þó uppi um
að enn örli á valdabaráttu
innan „Þjóðfrelsishreyfing-
arinnar“. í því sambandi
hefur arabískur diplómat
lýst arftaka Alis í forsetaem-
bætti, Hasani, sem „sérgóð-
um tækifærissinna".
En hvort sem um innanrík-
isbaráttu er hér að ræða eða
ekki er ljóst að atburðirnir
hafa afleiðingar, sem snerta
heiminn í kring. Að vísu er
þess ekki að vænta að Sovét-
menn sjái ástæðu til að koma
ár sinni miklu betur fyrir
borð í Suður-Yemen en þeir
hafa nú þegar gert. Þeir hafa
þegar hernaðaraðstöðu í
landinu og hefur Aden tekið
við sem helzta flotabækistöð
Ráðstjórnarríkjanna á þess-
um slóðum síðan þeir töpuðu
Berbera. Einnig er í landinu
að finna vopnabúr í jarð-
byrgjum rík af drápsvélum,
sem hægðarleikur er að flytja
yfir til Afríku ef þurfa þykir.
Það land, sem eflaust uggir
mest um rás atburða á horni
Arabaskaga, er Saudi-
Arabía, sem allt til þess að
kommúnistar losuðu sig við
Robay Ali, höfðu reynt að
kaupa sér áhrif í landinu.
Þannig höfðu Suður-Yemen-
ar bæði lofað Saudi-Aröbum
og þegið fjárstyrki fyrir að
hætta stuðningi við
Dhofari-uppreisnarmenn í
nágrannaríkinu Oman.
Osk Saudi-Araba um að
Suður-Yemenar bæru Marx
og verk hans út á hauga bar
hins vegar ekki árangur og
ótrúlegt að svo verði hér
eftir. I rauninni bendir margt
til að skorist geti í odda með
Yemen-þjóðunum tveimur á
næstunni. „Yemenar kunna
vel að verða vitni að blóðbaði,
sem gerir borgarastríðið í
Líbanon að smámunum í
samanburði við það,“ er haft
eftir diplómat í Beirút ný-
lega. Þessi vísbending hljóm-
ar alls ekki ólíklega, þegar
tekið er tillit til viðbragða,
sem fram komu á fundi
Arababandalagsþjóðanna í
Kairó, sem kallaður var
saman að kröfu Norður-Yem-
ena. Fréttir berast um vax-
andi viðbúnað við landamæri
Suður- og Norður-Yemen og
talið að Arababandalaginu sé
ósárt um þótt látið verði
sverfa til stáls gegn komm-
únistastjórninni í Aden.
En slík samstaða meiri-
hluta Arabalanda lofar þó
litlu. Það er táknrænt fyrir
það tortryggnislega and-
rúmsloft, sem virðist ríkja í
Arabalöndunum, að í sömu
viku og hreinsanir áttu sér
stað í Yemen lýsti forsætis-
ráðherra írans því yfir, að
stjórn sín hefði gefizt upp á
öllum tilraunum til að mynda
varnarbandalag með ná-
grannaríkjum. Á meðan vold-
ugri Arabalönd bera meiri
kvíðboga fyrir hvoru öðru en
rauða járnhælnum skyldi
engan undra þótt áfram verði
bisað með hamri og sigð
undir heitri sól á hvítum
sandi.
(The Economist, Associat-
ed Press, Newsweek)
- gp
CIION Gi Cap. hinn nýi scndi-
hcrra Norður-Kórcu hcr á landi.
boóaói til blaóamannafundar í
fyrradaj;. Þar lýsti hann ána'Kju
sinni mcð að vcra kominn til
íslands. cn hann hcfur aðsctur í
Svíþjóð. Hann sajjði. að langt
væri á milli íslands og N-Kórcu
cn löndin ættu það samcijiinlcat
að vcra bæði lítil oj; friðclskandi.
Aðalerindi fundarins var að
kynna plafííí á ensku máli, sem
samið er í Norður-Kóreu og heitir:
„Áskorun til stjórnmálaflokka,
almennra samtaka og friðelskandi
fólks í öllum löndum heims. (I
tilefni mánaðarins, sem helgaður
er sameiginlegu átaki þeirra afla
sem andvíg eru Bandaríkjunum og
berjast fyrir burtför ameríska
hersins frá Suður-Kóreu).“ Mán-
uðuðurinn, sem nefndur er, stend-
ur frá 25. júní til 27. júlí. Túlkur
sendiherrans las plaggið upphátt
en það eru 9 síður. Þar er gerð
grein fyrir eflingu ameríska hers-
ins í Suður-Kóreu og vígbúnaði
Bandaríkjamanna þar. í plagginu
er skorað á alla að stuðla að
brottflutningi hersins og samein-
ingu klofinnar Kóreu.
Undir áskorunina skrifa: Verka-
mannaflokkur Kóreu, Kóreanski
lýðræðisflokkurinn, Chondoist
Chongu flokkurinn, Nefnd frið-
samlegrar sameiningar föður-
landsins, Félag landbúnaðarverka-
manna í Kóreu, Félag lýðræðis-
sinnaðra kvenna í Kóreu, Sam-
band bókmenntafélaga í Kóreu,
Kristilega sambandið, Budda-sam-
bandið, Blaðamannafélag Kóreu
og Félag lýðræðissinnaðra lög-
fræðinga í Kóreu.
Sendiherrann svaraði síðan
nokkrum fyrirspurnum blaða-
manna um afstöðu Norður-Kóreu
til Bandaríkjanna. Kom fram að
N-Kóreumenn hafa ekki yfir
atómsprengju að ráða en munu
ávallt leggja fullt kapp á að verja
land sitt.
5 skip með
1780 lestir
af kolmunna
TREG veiði hcfur verið hjá
kolmunnaskipunum að undan-
förnu. en í gærmorgun lönduðu
fimm þeirra samtals 1780 lestum.
Jón Kjartansson var með lang-
mestan afla. samtals 800 lestir. og
er þá húinn að fá rúmlega 1900
lestir í tveimur veiðiferðum.
í Neskaupstað lönduðu: Börkur
300 lestum, Sigurðuí 200 lestum og
tvílembingsbátarnir Örn og Albert
180 lestum-. Hafa tilraunir þeirra
með tvílembingsvörpuna gengið
mjög vel, og það eina sem á hefur
bjátað er að kolmunninn hefur
ekki verið í nógu þéttum torfum.
Á Eskifirði landaði Jón
Kjartansson 800 lestum og Grind-
víkingur 300 lestum.
Ismail ásamt núverandi forseta Suður-Yemens. Ali Nasser Mohammed
Iiasani.
RANDVER
Þaó stendur mikió tií
Plata sumarsins. 14 skínaná sólarlög.
RANDVER
Það stendurmHad til
slttinor S. 28155 og 19490.