Morgunblaðið - 12.07.1978, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 12.07.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. JULÍ 1978 21 smáauglýsingar smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Munið sérverzlunina meö ódýran fatnaö. Verölistinn, Laugarnesvegi 82, S. 31330. Keflavík Til sölu mjög vel meö farin 4ra herb. íbúö. Sér inngangur og þvottahús. Skipti á 3ja herb. íbúð meö bílskúr koma til greina. Fasteignasalan Hafnargötu 27 Keflavík. Sími: 1420. Farfuglar 14. til 16. júlí. Ferö á Kötlu. Uppl. á skrifstofunni Laufásvegi' 41. Sími: 24950. Hörgshlíð Samkoma í kvöld, miövikudag kl. 8. UTIVISTARFERÐIR Föstudag 14.7 kl. 20 1. Þórsmörk Gist í tjöldum í friösælum og skjólgóöum Stór- enda. 2. Hvítárvatn — Hveravellir og víöar um Kjalaveg. Sumarleyfisferðir: 1. Hornstrandir 14.—23. júlí. Fararstj. Bjarni Veturliðason. Einnig einsdagsferöir meö Fagranesinu frá ísafiröi 14. og 22. júlí. 2. Hoffellsdalur 18.-23. júlí. Fararstj. Kristján M. Baidurs- son. 3. Kverkfjöll 21,—30. júlí. Flog- iö til og frá Húsavík. Farseölar á skrifst. Lækjarg. 6a sími 14606. Útivist. Miövikudagur 12. júlí kl. 8.00 Þórsmerkurferö kl. 20.00 Gönguferö aö Trölla- fossi. Létt og róleg ganga. Fararstjóri: Tómas Einarsson. Verö kr. 15o0, gr. v. bilinn. Föstudagur 14. júlí kl. 20.00 1) Þórsmörk Gist í húsi 2) Landmannalaugur Gist í húsi 3) Hveravellir-Kerlingarfjöll Gist í húsi 4) Hrafntinnusker Gengiö frá Landmannalaugum. Gist í húsi. Fararstjóri: Magnús Guömunds- son. Laugardagur 15. júlí kl. 13.00 Sigling meö Fagranesi frá isafirði til Hornavíkur. Til baka samdægurs. Komiö viö í Aöal- vík. Verö kr. 3500 gr. viö skipshliö Sumarleyfisferðir 15.-23. júlí Kverkfjöll — Hvannalindir — Sprengisandur Gist í húsum. Fararsjóri: Torfi Ágústsson 19.—25. júlí Sprengisandur-Arnarfell-Vonan Góö yfirlitsferð um miöhálendið. Ferjaö yfir Þjórsá og gengiö á Arnarfell hiö mikla. Gist í húsum. Fararstjóri: Árni Björns- son 25.—30. júlí Lakagígar — Landmannaleiö. Gist í tjöldum. 28.—6. ágúst. Gönguferð um Lónsöraafi. Gist í tjöldum. Nánari upplýsingar á skrifstof- unni. Feröafélag íslands. Krístniboðssambandið Samkoma veröur haldln í kristniboöshúsinu Betanía Lauf- ásvegi 13 í kvöld kl. 20.30. Björgvin Jörgensen, kennari talar. Allir eru velkomnir. Altil.YSIMiASlMINN Klt: Jf^22480 JHsrjjunblnPtti raðauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar Auglýsing um tímabundna umferðartakmörkun á Reykjanesbraut á Miðnesheiði Vegna lagningar hitaveituæöar yfir Miönes- heiöi mega vegfarendur búast viö umferö- artakmörkunum meöan á verkinu stendur. Lögreglustjórinn í Gullbringusýslu. til sölu Matvöruverzlun Til sölu matvöruverzlun í fullum rekstri á góöum staö. Góö velta. Tilboö sendist Mbl. fyrir næstu helgi merkt: „Alveg milljón — 3614“. Verðathugun Hitaveita Þorlákshafnar óskar eftir veröum í málmkápu á aðveituæð. Aöveita er 10800 m. Gögn eru afhent á Verkfræöistofu Guöm. G. Þórarinssonar Skipholti 1, Reykjavík. Skilafrestur er til 1. ágúst 1978. húsnæöi i boöi Iðnaðarhúsnæði til leigu í Hafnarfirði biartur vinnusalur. Góö skrifstofuaöstaöa. Stórar innkeyrsludyr. Laust frá 1. ágúst. Upplýsingar í síma 83971, á kvöldin, og 53674 á daginn. Skip til sölu 6 — 8 — 9 — 10 — 11 — 12 — 15 — 22 — 29 — 30 — 36 — 38 — 45 — 48 _51 _ 53 _ 54 _ 55 _ 59 _ 62 — 64 — 65 — 66 — 85 — 86 — 88 — 90 — 92 — 120 tn. Einnig opnir bátar af ýmsum stæröum. Aðalskipasalan. Vesturgötu 1 7 Simar 26560 og 28888 Heimasimi 51119 EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐENU AUGLÝSINGA- > SÍMINN ER: 22480 Athugasemd Samvinnu- bankans út í hött Svar Halldórs Halldórssonar við athugasemd bankaráðs Samvinnubankans Bankaráð Samvinnubankans hefur gert athugasemdir viö tvær greinar, sem birzt hafa eftir mig í Dagblaðinu um viöskipti Guöbjarts Pálssonar heitins og Samvinnubankans. Ég get því miður ekki gert fyrirfram ráð fyrir því, að lesendur þessa blaðs hafi lesiö þessar greinar, og því á ég erfitt um vik að draga fram allar þær firrur, sem bankaráöið fer með í athugasemd sinni. Kjarni greina minna, sem birtust 26. júní og 3. júli, er sá, að viðskipti Guöbjarts og bankans hafi veriö gruggug, svo vægt sé til orða tekiö. Þetta er alþjóð raunar kunnugt. í greinum mínum hef ég rennt óyggjandi stoðum undir grunsemdir manna um þessi viöskipti og niöurstað- an er sú, aö bankastjórar og bankaráö Samvinnubankans hafi algjörlega brugðizt hlutverki sínu og beint eða óbeint stuðlað að meintu fjármálamis- ferli. Ég hef varpað fram til bankans fjölda spurninga um petta mál, en i athugasemdinni er engri peirra svar- aó. Hins vegar er meö aumlegum hætti snúið út úr orðum mínum af lítilli list. En þrátt fyrir slappleikann neyðist ég til að svara þessum hópi manna, sem að athugasemdinni standa, en vísa aö öðru leyti til greina minna í Dagblaðinu. Þriðja greinin birtist s.l. mánudag, ítarlegt svar birtjst miövikudag 12. júlí og fleiri greinar eiga eftir aö fylgja í kjölfariö. Feilnótur og falskir hljómar 1. t fyrsta lið athugasemdar banka- ráösins er látið líta svo út, sem ég kunni ekki að gera greinarmun á víxli, sem tekinn er í fyrsta skipti og fram- lengingarvíxli. Til grundvallar þessari staðhaefingu er tekin setning í grein minni, þar sem ég segi aö samanlögö upphæö víxla Guðbjarts Pálssonar, sem féllu á Ólaf Finsen sem ábyrgðar- mann, hafi veriö röskar 320 milljónir króna. Bankinn tekur þessa tölu til marks um það að ég haldi því fram, að Guðbjartur hafi fengið með þessum föllnu víxlum 320 milljónir út úr bankanum, og séu þetta „vísvitandi falsanir." Bankaráöinu hefur því miður skotizt illa þarna, því í grein minni tek ég skýrt fram, að í þessari tölu séu bæði nýir víxlar og framlengingarvíxlar. í grein minni stóð skýrum stöfum: „Þess ber aö geta, aö meó eru i pessari tölu bæöi nýir vixlar og framlengingarvíxlar." Þetta vildi ég, að kæmi skýrt fram og þess vegna gerði ég fleiri fyrirvara urp þetta atriði. En þetta fór fram hjá bankaráðinu, hvort sem það hefur vérið vísvitandi eöa ekki. Út frá þessari feilnótu spilar svo ráöið í síöari hluta fyrsta liöar athugasemdar- innar og er hljómurinn í samræmi við. í annarri grein minni í Dagblaöinu fjallaöi ég um greinargerö, sem banka- ráð Samvinnubankans sendi Morgun- blaðinu í febrúar í fyrra og lýsti yfir því, að ráðið hefði farið þar með ýmsar lygar. Ein var sú, aö aðeins einn víxill Guðbjarts Pálssonar hefði fallið á Ólaf Finsen sem ábyrgðarmann. Ég sagöi, aó 15 víxlar Guöbjarts hefóu falliö á Ólaf sem ábyrgöarmann. Eins og ég hef bent á átti ég bæði við nýja víxlz og framlengingarvíxla. Fram hjá því starir bankaráðiö. I svari sínu er birt skrá um einhvern „umræddan" víxil og sagt að „„senni- lega" hafi hann verið afsagður 7 sinnum. Mikiö rétt. Hin vegar minnist bankaráóið ekki á hina átta. Þaö vill, nefnilega þannig til, aö einmitt peir víxlar eru ekki framlengingarvíxlar! Upphæð þeirra nemur um 90 milljónum króna á núgildi. Allir féllu þeir og allir voru þeir afsagðir. Þetta sýna bækur borgarfógeta. Bent á viöbótar- biekkingu Þá er vert að benda á tilraun bankaráösins til að slá ryki í augun á fólki. Á skránni um „umræddan" víxil, sem er sennilega sá víxill, sem Ólafur Finsen varð að greiða 556 þúsund krónur af, er látiö sýnast, að hann hafi í upphafi numiö 1 milljón 465 þúsund krónum eða 33 milljónum 695 þúsundum kr. á núgildi. Þetta er rangt. Víxillinn var hærri. Sá víxill, sem skráin hefst á, er framlengingarvíxill! Þá er einnig vert að benda á, að skránni lýkur, þar sem skuld Guðbjarts af þessum eina víxli nemur 875 þúsund krónum (20 milljónir 125 þúsund). Þar lætur bankaráðið staöar numið og getur að engu hvernig afgangurinn var greiddur né hvenær eða hvort yfirleitt er búiö aö greiöa þessa skutd. Rétt er að vekja athygli á enn öðru: i þeirri greinargerð, sem bankinn sendi Morgunblaðinu í fyrra, sagði, að skuld Guðbjarts viö Samvinnubankann vegna víxla, sem hann hefði samþykkt, heföi numiö í árslok 1964 380 þúsund krónum. Samkvæmt framlengingar- skárnni, sem birtist með athugasemd- inni, hefur þessi skuld numið 875 þúsundum króna — og þaö af þessum eina víxli einvörðungu. Þarna munar meira en helmingi eða 495 þúsund krónum. Með hálfkveðnum vísum gerir banka- ráðið Samvinnubankann tortryggilegan og vænti ég þess, að næst þegar þaö lætur fara frá sér upplýsingar um þessi mál, aö þá kynni það sér betur bókhald bankans. Þá kynni líka aö fara svo, að þessir merku menn yrðu mér sammála um, að ríkissaksóknari ætti að fara ofan í þetta mál og krefjast áframhaldandi rannsóknar. íslenzka og SÍSIenzka En þaö er fleira en bókhald, sem þessir heiöursmenn verða að hyggja að. íslenzk málnotkun virðist ekki vera þeirra sterka hliö. Bankaráö Sam- vinnubankans veit ekki hvaö paó pýðir að segja, aó víxill falli. Fall víxils þýðir, að hann hefur ekki verið greiddur á gjalddaga eöa á fyrstu tveimur virkum dögum eftir gjalddaga. í framhaldi af því er víxillinn venjulegast afsagður með úrskurði fógeta. Bankaráð Samvinnubankans virðist hins vegar halda, að fall víxils tákni, aö ábyrgðarmaður hans, þ.e. útgefandi, hafi þurft að greiða víxilinn. „Ólafur Finsen var útgefandi að einum víxli Guöbjarts. sem féll á Ólaf sem ábyrgðarmann", segir bankaráðið og útleggur i næstu setningu þannig: „þ.e.a.s. sem Ólafur varð aö greiöa." Þetta þarfnast ekki nánari skýringar. Þeir, sem tala íslenzku skila útúrsnún- ing bankans. Þeir, sem tala SlSlenzku kunna að vera á ööru máli. 2. Annar liður athugasemdarinnar fjallar um tvo reikninga Guðbjarts í Samvinnubankanum. i fyrrnefndri Morgunblaðsgreinargerð Samvinnu- bankaráðs í fyrra kom fram, aö Guöbjartur heföi haft hlaupareikninga 313 og 242 í Samvinnubankanum. Þar var hvergi minnzt á 3131 og 2429. Nú upplýsir bankaráðið, að vegna tækni- væðingar í bankanum 1967 hafi reikn- ingsnúmerum Guðbjarts veriö breytt og tölustöfunum 1 og 9 bætt aftan við gömlu reikningsnúmerin. Ég hef kallaó 3131 og 2429 felureikninga vegna pess, að bankaráðinu láðist að geta um pá í fyrra, 10 árum eftir breyting- una. Þeirra var ekki getió af ásettu ráði. Það er augljóst, að ég hef riðiö bankaráöinu hnút enda rekur sig eitt á annars horn í athugasemdinni. Einkaviðskipti Einars og Guðbjarts 3. Og er þá komið að þriðja lið athugasemdarinnar. í fyrstu Dagblaðs- grein minni staðhæfði ég, aö Guðbjart- ur Pálsson og Einar Ágústsson, utanrík- isráðherra, hefðu átt einkaviðskipti saman. Þessu til staöfestingar birti ég eiginhandarbréf Einars, þar sem hann viðurkennir persónulega að hafa mót- tekið úr hendi Guðbjarts skuldabréf að upphæð 500 þúsund eða 4''» milljón króna á núgildi. Bréfið var ritað á persónulegt bréfsefni einstaklingsins Einars Ágústssonar. Bankaráðið segir: „Það er rétt að kvittun Einars ber það ekki með sér að Einar hafi tekið við þessum skuldabréf- um fyrir hönd Samvinnubankans en hins vegar er það staöreynd að þannig var þaö í raun og veru “ Hér stendur staðhæfing gegn stað- hæfingu. Hins vegar ættu aö vera hæg heimatökin hjá bankaráðinu að sýna. Franthald á bls. 19

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.