Morgunblaðið - 15.07.1978, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1978
Alþýduflokksmenn ræda neitun Alþýðubandalagsins
FlokksstWn og þinKÍlokkur Alþýðuflokksins í upphafi fundar í gær, þar sem rætt var
um viðbrÖKð við ncitunarbréfi þingflokks Alþýðubandalagsins. Ljósm. Mbli ól.K.M.
Spariskirteini ríkissjóðs:
Prófmál um skattskyldu verð-
tryggingar hjá ríkisskattstjóra
KÆRUMÁL er nú til meðferð-
ar hjá ríkisskattstjóraembætt-
inu, þar sem ríkisskattstjóri
hefur lagt skatt á verðtrygg-
ingu spariskírteina ríkissjóðs.
Eftir að úrskurður hefur
verið felldur og skattþegn
sættir sig ekki við hann á
hann þess kost að áfrýja til
ríkisskattanefndar og enn til
dómstóla, falli honum ekki
niðurstaða ríkisskattanefnd-
ar. Mál þetta mun vera hið
fyrsta sinnar tegundar, þar eð
aðeins einu sinni áður hefur
komið upp slíkt mál, en
skattþegn skilaði ekki í því
tilfelli greinargerð og var
málinu því vísað frá.
í þessu tilfelli mun vera um
hlutafélag að ræða. Um skatt-
skyldu spariskírteinanna segir í
lögum að fara skuli með þau eins
og sparifé. Þá má eigandi spari-
Uppboð á
hrossum á
Landsmóti
KINN liður í dagskrá Landsmóts
fjárins ekkert skulda, nema fast-
eignaveðlán í hæsta lagi þá
hámarksfjárhæð, sem Húsnæðis-
málastofnun ríkisins lánar og var
það fjármagn 2,7 milljónir króna
við síðasta skattframtal. Sé um
hlutafélag að ræða er svo litið á,
að hlutafé fyrirtækisins sé skuld
þess við hluthafana og því getur
það upphafið skattfríðindi bréf-
anna. Hið sama er að segja um
stofnfjárupphæð í sameignar-
félögum.
Ævar Isberg, vararíkisskatt-
stjóri, sem nú gegnir störfum
ríkisskattstjóra kvað þessi mál
vera að skýrast um þessar mundir,
þar sem innlausn elztu spari-
skírteinanna er nú hafin. Þessi
Doremi-kór-
inn syngur
í Lindarbæ
DOREMI-kórinn frá Gautaborg
heldur síðustu söngskemmtun
sina hcr á landi í dag kl. 14 í
Lindarbæ. en kórinn kom hingað
til lands sl. laugardag og hefur
verið hér á söngferðalagi og m.a.
sungið á Akureyri og í
Stykkishólmi.
bréf voru ekki skráð á nafn og því
var í fyrstu erfitt að hafa upp á
eigendum þeirra. Hann kvað ýms-
um vandkvæðum bundið að úr-
skurða í þessum málum. Þar væri
í fyrsta lagi spurningin um það
hvort vísitölubæturnar væru
skattskyldar eða ekki á sama hátt
og eins og vextir og þá hvernig, því
að málin geta borið að með mjög
fjölbreyttum hætti.
Morgunblaðið spurði Ævar ís-
berg, hvort ekki mætti búast við
því að eftirspurn eftir þessum
bréfum minnkaði, eftir að ljóst
yrði að verðbætur bréfanna væru
skattskyldar. Hann kvað það ekki
sennilegt, en í sjálfu sér hafi
lagaákvæðin ávallt verið fyrir
hendi. Hitt væri svo annað mál, að
þegar Seðlabankinn hafi haft þessi
bréf til sölu, hafi auglýsingarnar
ekki verið alveg ljósar og jafnvel
ýtt undir þá trú manna að þau
væru skattfrjáls. Sagði Ævar að
ríkisskattstjóraembættið hefði
gert athugasemd við auglýsingu,
sem ekki hafi þótt nógu góð og
hefði orðalag auglýsinga eftir það
lagast.
Þessi misskilningur væri
þó mjög algengur bæði gagnvart
þessum bréfum og eins gagnvart
innstæðum í bönkum — að allt sé
skattfrjálst. Það geti verið það, en
þurfi það þó ekki endilega.
2 menn hætt
komnir er bát-
ur þeirra sökk
UM KL. fjögur aðfararnótt föstu-
dags sigldi mh. Rán frá Akranesi
fram á gúmbát með tveimur
mönnum. Mennirnir tveir í gúm-
bátnum voru áhöfn Gullfaxa SH
125 frá Grundaríirði.
Gullfaxi hafði látið úr höfn í
Hafnarfirði um ellefu leytið á
fimmtudagskvöldið og ætlaði til
Grundarfjarðar, en um hálf-
þrjúleytið um nóttina urðu báts-
verjar, bræðurnir Ólafur Arnberg
og Kristinn A. Sigurðsson, varir
við að báturinn var orðinn hálf-
fullur af sjó. Sjósettu þeir þá
gúmbátinn og 10 til 15 mínútum
síðar sökk Gullfaxi. Ólafur og
Kristinn reyndu að kalla á aðstoð
en náðu ekki sambandi, hvorki
með talstöð bátsins né neyðartal-
stöð.
Þegar þeir höfðu verið í gúm-
bátnum í u.þ.b. eina og hálfa
klukkustund sigldi Rán fram á þá
og flutti þá til Reykjavíkur.
Gullfaxi var 36 lesta eikarbátur,
smíðaður í Innri-Njarðvík árið
1946.
Kristinn A. Sigurðsson og Ólafur Arnberg í Grindavfk í gær.
Ný ljóðabók eftir
Hannes Sierfússon
MÁL OG menning hefur
gefið út nýja IjóÖabók eftir
Hannes Sigfússon, og nefn-
ist hún Örvamælir.
Fyrsta bók Hannesar, Dymbil-
vika, kom út árið 1949. Hún var
mikið notuð bæði til sóknar og
varnar í deilum um nýja ljóðlist,
svonefndan atómskáldskap. Síðan
hefur Hannes bætt við þremur
ljóðabókum, hin síðasta þeirra,
Jarteikn, kom út 1966. Hannes
hefur einnig samið eina skáldsögu
og gefið út mikið safn þýðinga á
norrænum ljóðum.
Örvamælir er 80 blaðsíður,
prentuð í Prentsmiðjunni Hólum
hf.
hestamanna. sem nú fer fram í
Skógarhólum í Þingvallasveit. er
söluupphoð á hrossum. Verða
hrossin boðin upp kl. 18 í dag.
laugardag. en kl. 10 fyrir hádegi
í dag verða hrossin kynnt.
- Að sögn Gunnars Bjarnasonar,
sem stjórnar markaði mótsins,
verða þarna boðin upp milli 40 og
50 hross og er búið að ákveða
tiltekið lágmarksverð á hvert
hross. Með Gunnari stjórna þess-
um hrossamarkaði þeir Gunnar
Tryggvason, Eyjólfur Isólfsson,
Sigurður Sæmundsson og Maja
Loebell.
Doremi-kórinn er blandaður
kór, sem hefur starfað í þrjátíu ár
og stendur framarlega í sænsku
tónlistarlífi. Kórinn starfar á
vegum Menningar- og fræðslu-
sambands alþýðu í Svíþjóð.
Stjórnandi kórsins er Stig Ring og
hefur hann verið stjórnandi hans
um tíu ára skeið.
Efnisskrá kórsins er fjölbreytt
og er þar m.a. að finna sænsk lög,
flest þjóðlög, ýmis lög frá fimm-
tándu og sextándu öld, eitt lag frá
Haiti og nokkur íslensk lög, sem
kórinn fiytur á íslensku.
Síðasta loðnumjölið
flutt frá Siglufirði
Siglufirði, 14. júlí
DANSKT flutningaskip er nú hér
í dag að lesta 1,600 lestir af
loðnumjöli, sem fara á til
Mið-Austurlanda. Eru þetta síð-
ustu mjölbirgðirnar, sem hér
hafa verið og er þá allt klárt fyrir
nýja loðnuveiði.
Sigluvík landaði hér í fyrradag
115 lestum. Hér er nú vestankaldi
fyrir utan og hefur það haft það
í för með sér, að kapparnir í
sjóralli Dagblaðsins komu hingað
inn og eru hér nú.
Dalborg hefur fengið 70 tonn af
mjög góðri rækju, sem skipið
hefur fengið djúpt úti. Er rkjan
falleg og góð og mun ætlunin að
skipið sigli frá Dalvík eftir nokkra
daga. Þá hafa skip fengið góðan
afla í flotvörpu hér fyrir norðan,
allt upp í 30 tonn í hali. — m.j.
Þjóðviljinn:
Vinstristjórnarviðræður
undir forystu Benedikts
Gröndals nánast hlægilegar
ÞJÓÐVILJINN gerir í gær að
u talsefni likurnar á því hvað
gerist þegar að því verður
komið að reyna myndun vinstri
stjórnar í ljósi þess að forseti
hefur falið Benedikt Gröndal
að freista þess að ná saman
meirihlutastjórn og Alþýðu-
bandalagið hefur hafnað fyrsta
valkosti Benedikts.
„Á Benedikt Gröndal að
stjórna slíkum viðræðum og
hafa forystu um myndun vinstri
stjórnar?" spyr Þjóðviljinn á
forsíðu. „Hver trúir á slík
vinnubrögð þar sem fyrir liggur,
að hann og Alþýðuflokkurinn
eru á móti slíkri stjórn, eða telja
hana neyðarkost."
Síðan segir Þjóðviljijn: „Hitt
hljóta allir að viðurkenna að
vinstristjórnarviðræður undir
forustu Benedikts Gröndals eru
nánast hælgilegar og líklega
mest til að sýnast. Viðræður um
mynun vinstri stjórnar vérða að
eiga sér stað af fullum heilind-
um.“
LitnilÍ6UaÍÍif»» viftur-l
J vinstristj6rnarv.6ræ»ur
lorvstu Benedikts Grondalsl
inast hlæg‘i*gar 1Ik,e8al
tU ah sýn.st. Vihræftur J
l«n vinstri stjörnar verha ah