Morgunblaðið - 15.07.1978, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 15.07.1978, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1978 35 SannköHuð draumamörk er KR sigraði Fylki ÞAÐ voru prjú sannkölluð draumamörk, sem lögðu grunninn að stórsigri KR á móti Fylki í 2. deild íslandsmótsins í knattspyrnu á Laugardalsvellin- um í gærkveldi. Fyrstu prjú mörk KR-inga voru hvert öðru fallegra og sjaldgæft að sjá svo mörg falleg mörk í einum leik. Fyrsta markið í leiknum skoraði er hann tók við góðri sendingu Hauks Birgir Guðjónsson á 6. mínútu leiksins. Birgir skaut hnitmiöuðu skoti sem hafnaði efst í horninu fjær. Skot þetta var af um 30 metra færi. Sennilega hefur Vilhem Frederiksen ætlað sér að gera enn betur er hann skorar á 27. mínútu leiksins, fast skot hans af 35 metra færi fór rakleiðis í samskeytin á markinu gott ef knötturinn snerti ekki bæði þverslána og stöngina samtímis er hann sigldi í netið. Draumamark hvers einasta leikmanns. Staðan í leikhléi var 2—0. Á 32. mínútu síðári hálfleiksins bætir Stefán Örn því þriðja við og ekki vantaði meistarataktana hjá honum Ottesens og afgreiddi hana með viðstöðulausu skoti, rétt utan víta- teigs í stöngina og inn. Síðasta markið skoraði Sigurður Indriðason, eftir að hinn ungi og efnilegi framherji Sæbjörn Guðmundsson hafði skotið föstu skoti sem Ögmundur markvörður Fylkis hélt ekki. Sigurður sem fylgdi vel, renndi knettinum í netiö. Þannig lauk leiknum með verðskulduðum sigri KR. Fylkismenn börðust vel í leiknum og áttu góð tækifæri, þar á meðal skot innan á stöngina og út, því í netið vildi knötturinn ekki að þessu sinni. Þf- JafntefG á Akureyri ÞÓR og Reynir gerðu jafntefli í 2. deildinni á Akureyrarvclli í særkvöldi, lil. Voru þetta sann- gjörn úrslit og ef citthvað var sýndu Sandgerðingarnir betri leik. Reynismenn komu á óvart með góðum samleik úti á vellinum en framlína þeirra var bitlaus. Þórs- arar byggðu spil sitt aftur á móti á langspyrnum og tengiliðir þeirra voru heldur slakir. Reynir varð fyrri til að skora. Var Hjörtur Jóhannsson þar að verki á 19. mínútu með þrumuskoti af 30 metra færi. Þór jafnaði svo á 25. mínútu. Knötturinn var gefinn á Óskar Gunnarsson sem lék á einn varnarmanna og síðan ísfirðingar unnu ÍSFIRÐINGAR sigruðu Völsunga í 2. deildinni á ísafirði í gær- kveldi 4—1. Staðan í leikhlé var 1-0. í fyrri hálfleiknum var um algera einstefnu á mark Völsungs að ræða og til dæmis um það fengu Isfirðingar 10 hornspyrnur og náðu 11 innköstum við endamörk Völsunga. Gunnar Pétursson skor- aði eina mark ÍBÍ í fyrri hálfleikn- um og kom það á 27 mínútu. í síðari hálfleiknum tókst Völsungum að jafna metin. En það stóð ekki lengi því að Gunnar skoraði aftur, og svo tókst Jóni Oddss„yni að brjótast í gegn um vörnina og bæta þriðja markinu við. í lok leiksins fá Isfirðingar vítaspyrnu sem Jón skoraði úr eftir að þurfa að tvítaka spyrnuna. Sanngjörn úrslit eftir gangi leiks- ins. - ÓS/ÞR. Fram-dagur- inn á morgun HINN árlegi Fram-dagur verður haldinn á morgun, sunnudaginn 16. júlí á svæði félagsins við Safamýri. Hátíðin hefst klukkan 13. Á dagskrá er keppni í knatt- spyrnu, handknattleik og körfu- knattleik. Hinir ýmsu aldursflokkar Fram í pessum ípróttagreinum keppa við önnur félög á Reykjavík- ursvæðinu og klukkan 17 keppa Fram og Víkingur í úrvalsdeildinni. Framkonur munu sjá um veiting- ar í félagsheimilinu frá klukkan 15. Er pað ósk Fram að allir velunnarar félagsins sjái sér fssrt að líta við á morgun. markvörðinn og skoraði örugglega. Leikið var á grasvellinum á Akureyri í bezta veðri. Dómari var Hjörvar Ó. Jensson frá Eskifirði og dæmdi hann prýðilega. -Sigb.G./SS. Egypta heimilað að leika í 3. deild STJÓRN KSÍ hefur heimilað egypzkum manni aö nafni Mo- hamed Mahmoud Emam Moham- ed Safan aö leika meö Stefni á Súgandafiröi í 3. deildinni. Maður þessi hefur starfaö nokkur undanfarin á á Súganda- firði og þykir liðtækur knatt- spyrnumaður enda mun hann hafa fyrr á árum leikið með félaginu Railway Club í Kaíró í Egyptalandi. Stefnismenn lögðu beiðni fyrir stjórn KSÍ í vor um að Mohamed fengi að leika með þeim en fengu synjum. Nokkrum vikum síðar lögðu Valsmenn fram sams konar beiðni fyrir Skotann James Bett en þá brá svo við að leyfið var veitt og Bett fékk að leika. Þá var jafnframt Stefni tilkynnt að Mo- hamed væri gjaldgengur meö félaginu. _ gs MIKIL þáttaka verður í Meistara- mótinu í frjálsum iþróttum sem fram fer á Laugardalsvellinum um helgina og hefst í dag kl.'14. Alls verða keppendur 137 frá 18 félögum og samböndum. Má búast_ við skemmtilegri keppni í mörgum greinum og sjálfsagt eiga mörg met eftir að falla þar sem frjálsíþróttafólkið er nú í mjög góðri æfingu. Fróðlegt verður að fylgjast með þeim Hreini og Óskari í kúluvarpskeppninni í dag, og eins mun hart verða barist í flestum hlaupagreinunum. Kringlukast karla fer fram á morgun, sunnudag, STAÐAN mm • Birgir Guðjónsson stekkur upp og skallar að marki Fylkis í leiknum í ga'rkvöldi. Birgir skoraði íyrsta mark KR í leiknum með þrumuskoti. Ljósm. Król. KK - Fylkir ÍBÍ — ViilsunKur l*ór — Koynir Klt bór Austri (safjörAur llaukar Fylkir bróttur Ármann Iteynir VölsunKur 10 7 10 1 9 4 9 1 9 3 10 4 2 1 2!>i3 3 3 9,9 2 3 7,fi 2 3 13,11 3 3 11,9 1 5 10,13 9 3 3 3 12.15 9 4 0 5 13,14 11 3 2 6 10,17 10 2 2 6 9,20 4,0 4.1 1.1 lfi 11 10 10 9 9 9 8 8 fi Jón nálœgt metinu í 1500 m hlaupi IIÓPUR íslenzkra frjálsíþrótta- manna dvelur nú við æfingar og keppni í V-Þýzkalandi. Það er íslandsvinur að nafni Ilanno Rheineck, sem hefur haft veg og vanda af dvöl hópsins. í íslcnzka hópnum eru þau Lára Sveinsdóttir. Lilja Guð- mundsdpttir, Jón Diðriksson, Agúst Ásgeirsson, Gunnar Páll Jóakimsson, Vilmundur Vil- hjálmsson. Friðrik Þór óskars- son. Þorvaldur Þórsson, Sigur- borg Guðmundsdóttir og Ása Ilalldórsdóttir. Nú nýverið keppti Jón Diðriks- son á stórmóti í Dússeldorf og var mjög nálægt íslenzka metinu í 1500 m hlaupi, hljóp á 3.46,7. Jón er í góðri æfingu um þessar mundir og aðeins tímaspursmál hvenær hann hnekkir metinu. Lára Sveinsdóttir keppti í 100 m og fékk tímann 12.66 sek. Vil- mundur hljóp á 10.93 sek. í 100 m á sama móti. Þá setti Gunnar Páll Jóakimsson persónulegt met í 400 m, hljóp á 50.2 sek. Allur hópurinn heldur tii Sví- þjóðar að loknum æfingum og tekur þátt í Kalott-keppninni þann 29.—30. júlí n.k. þr Meistaramót klúbbanna NÚ STENDUR yfir meistarakeppni golfklúbbanna víðsvegar um landið og er hún komin á lokastig víðast hvar. Á Akranesi er staðan þessi eftir 54 holur, að George Kirby er efstur með 232 högg. í Borgarnesi er efstur eftir 18 holur Sigurður Gestsson. Æ „Islendingarnir eru svo stórir og sterkiK' — var afsökun Dananna fyrir jafnteflinu DÖNSKU blöðin gripu til gam- alkunnra ráða þegar þau þurftu að lýsa þeirri „hneisu“ að danska unglingalandsliðið skyldi ekki ná nema jafntefli gegn íslendingum á Norður- landamótinu á dögunum. „ís- lenzkir kraftakarlar höfðu næstum sparkað dönsku drengjunum út af vellinum,“ segir BT í fjögurra dálka fyrirsögn á miðvikudaginn. Og svo hefst frásögnin af leiknum. Danirnir ollu að sjálfsögðu vonbrigðum. Þeir geta auðvitað leikið miklu betur en það gengur ekki vel að leika fótbolta þegar andstæð- ingarnir eru minnst 10 senti- metrum hærri og kraftalegir eftir því. En blaðamaðurinn tekur fram, að miðað við gang leiksins hafi Islendingarnir átt að vinna. Danski unglingaþjálfarinn tekur í sama streng í viðtali við blaðið. Hann segir að Danir hafi verið heppnir að ná jafntefli því í seinni hálfleik leiksins hafi íslendingarnir sýnt þá kraftaknattspyrnu. sem enginn geti leikið nema þeir. Þá vakti það athygli hlaðamannsins að aðeins örfáir leikmanna íslenzka liðsins not- uðu legghlífar. Þóttu það mikil tíðindi og enn ein sönnun þess að íslendingar láta sér ekki allt fyrir brjósti brenna á íþrótta- vellinum. Hjá Golfklúbbi Suðurnesja var Þorbjörn Kjærbo efstur meö 156 högg eftir 36 holur. Hjá Keili í Hafnarfirði var Magnús Birgisson í forystu með 150 högg eftir 36 holur. Á Nesvellinum var búið að leika 36 holur og Jón H. Guðlaugsson var efstur með 154 högg. í Vestmannaeyjum var Haraldur Júlíusson efstur með 150 högg eftir 36 holur. Hjá Golfklúbbi Akureyrar var Björgvin Þorsteinsson efstur með 152 högg er 18 holur höfðu verið leiknar. Og hjá Golfklúbbi Reykjavíkur voru þeir jafnir í fyrsta sæti Geir Svansson og Eiríkur Þ. Jónsson með 156 högg eftir 36 holur. hr. Jöfn keppni á Opna breska meistaramótinu UTLIT er fyrir gífurlega skemmtilega og spennandi keppni í síðustu umferð „British open“ golfmótsins í dag, en mótið stendur nú yfir í St. Aiidrews í Skotlandi. Fyrir síðustu umferð- ina er staðan þessii hÖKK Peter Oosterhuis. Bretl. 72—70—69 211 Tom Watson. Bandar. 73 —68— 70 211 Isao Aoki. Japan 68—71—73 212 Ben Crenshaw. Bandar. 70—69 — 73 212 Jack Nicklaus, Bandar. 71—72—69 212 Sam Owen. Nýja-Sjál. 70-75-67 212 AArlr, Tom Weiskopf. Bandar. 69 - 72- 72 213 Severiano Ballesteros. Spáni 69-70-76 215 Hubert Green. Bandar. 78 — 70—67 215 Gary Gullen. Bandar 73-67-79

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.