Morgunblaðið - 15.07.1978, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.07.1978, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1978 Dr. Ágúst Valfells, verkfræðingur: Hvers virðier orkan? Inngangsorð í allmörg ár, ef ekki áratugi, hefur verið rætt um þau verðmæti, er íslendingar eiga í ónytjaðri orku, bæði fallvatna og hvera. Að vísu höfum við bætt lífskjör okkar í drjúgum mæli með hagnýtingu hluta þessarar orku til að veita landsmönnum ljós og hlýju í híbýlum, en sá tími er ekki löngu liðinn, að þessi lífsþægindi voru Ennfremur nýtum við orkuna í nokkrum mæli til iðnaðar, smáiðn- aðar í eigu landsmanna, svo og kísilgúrframleiðslu í samvinnu við erlenda aðila. Auk þessa er raforka seld til álframleiðslu er íslendingar starfa við. Þó er þessi nytjaða orka aðeins brot af þeim orkuforða, sem til er í landinu. Eins og allir vita, hefur auðlegð fiskimiðanna umhverfis landið verið burðarás góðra lífs- kjara hér á landi. En nú er tvísýnt um hvort fiskimiðin geta veitt meira en 220 þúsund manns þau lífskjör sem allir æskja. Þá er ekki í annað hús að venda en að snúa sér að því að nytja orkuna í fullri alvöru, því aðrar sambærilegar auðlindir fyrirfinnast ekki. Eink- um hefur verðhækkun á olíu gert fallvatnsorku og jarðhita hlut- fallslega verðmætari en áður var. Þar eð menn lifa ekki af ljósi og yl einum saman, verður orkan bezt hagnýtt í útflutningsiðnaði, sem skapar fólki atvinnu, auk þess sem orkan er seld til iðnaðarstarfsem- innar. Hvort tveggja gerir þjóð- inni kleift að flytja inn sinn nauðsynjavarning, sem til þessa hefur verið fluttur inn í skiptum fyrir fisk. - Val fram- leiðslugreina Eins og auðsætt er, kemur ekki allur efnaiðnaður til greina við hagnýtingu orkunnar. Suman efnaiðnað er einungis hægt að- hagnýta nálægt þeim stöðum þar sem hráefnin er að finna. Annar efnaiðnaður krefst lítillar orku eða þá orku við allmiklu hærra hita- stig en jarðgufan getur gefið. Fyrsta skilyrðið fyrir vali á framleiðslugrein í efnaiðnaði sem yrði hagkvæm hér á landi, er að orkuverð sé verulegur hluti af lokaverðmæti framleiddu vörunn- ar, þ.e.a.s. að framleiðslan noti mikinn hita eða raforku á hverja framleidda einingu. (Dæmi eru þungt vatn, ál, magnesíum o.fl.). Annað skilyrðið er, að annaðhvort séu hráefnin til framleiðslunnar innlend (t.d. vatn til þungavatns- framleiðslu, fiskiúrgangur til framleiðslu á ýmsum lífrænum efnum), eða þá að flutningskostn- aður á hráefni til landsins og fullunninni vöru frá landinu éti ekki upp þá hagkvæmni sem fæst vegna ódýrrar orku. (Dæmi er álframleiðsla). Þriðja skilyrðið og frumskilyrðið er að markaður sé fyrir hendi og verði í náinni framtíð fyrir framleiðsluna. Tafla 1 sýnir nokkrar iðngreinar er byggja á ódýrri orku. Sumar iðngreinarnar er hægt að reka sjálfstætt, aðrar einungis í sam- einingu við aðra framleiðslu. Fullnýting orkunnar Til þess að hagnýta orkuna sem best, þarf að gernýta hana sem mest má. Greinarhöfundur, sem kennir við fylkisháskólann í Iowa, lét nemendur sína vinna að verkefni viðvíkjandi gernýtingu hita og raforku frá stóru kjarn- orkuveri. Kom þá í ljós að hagkvæmast var að láta kjarn- orkuverið framleiða 750 MW (megavött) af rafmagni og 2250 MW af gufuvarma að auki. Þessi orka gat staðið undir efnaiðnaði er framleiddi brúttóverðmæti fyrir meira en 300 milljónir dollara og veitti 7000 manns atvinnu. Fyrir hvern einstakling, sem starfar að grundvallar framleiðslustörfum, myndast önnur störf (rakarar, bakarar, ráðherrar o.s.frv.). Að meðtöldum mökum og börnum allra aðila myndar grundvallar- starfið lífsafkomu fyrir sex ein- staklinga. Þannig verður endanleg tala þeirra, sém af iðnaðinum lifa, sjöföld tala þeirra sem við hann Dr. Ágúst Valfells. starfa, að þeim meðtöldum. Efna- iðnaður sem veitir 7000 manns atvinnu stendur þannig undir tæplega 50.000 manna byggð. Kjarnorkuverið, sem veitti orku uppsetningu verksmiðjanna. Ork- an, sem um ræðir, myndi duga til að reka 15 stórar efnaverksmiðjur. Heildarkostnaður efnaverksmiðj- anna yrði nálægt 2.500 milljónum dollara. Líklegt er, að vinnumark- aðurinn leyfi ekki meira en að tvær verksmiðjur séu samtímis í smíðum, og ef til vill aðeins ein í einu. Þar sem það tekur 3 ár að reisa efnaverksmiðju, tæki 45 ár að byggja þær allar ,15 með því móti. Sé hinsvegar hægt að reisa tvær samtímis, gæti smíðinni verið lokið um næstu aldamót. Á Mynd 1 er sýnd í grófum dráttum afstaða orkuvera, iðnaðar og byggðar. Mengun og náttúruvernd Þar sem ekki er hægt að leiða gufu langar leiðir yrðu þær verksmiðjur sem notuðu mikla gufu að vera á háhitasvæðunum. Þær verksmiðjur sem fyrst og fremst notuðu rafmagn, gætu verið hvar sem væri, þar sem Tramleiðsla Gróðurhúsa- afuröir Hugsanlegt kerfi til gernýtingar á vatnsorku og jarðvarma. Tafla 1. Nokkrar hagkvæmar iðngreinar til hagnýtingu á ódýrri orku. Góð lífskjör (þ.e.a.s. háar raun- tekjur) byggjast á því, að sem mest verðmæti séu framleidd á hvern einstakling. Stóriðja á sviði efnaiðnaðar er sú starfsemi sem bezt hentar til þessa. (Að vísu gildir það sama um ýmsan háþró- aðan tækniiðnað, en þar gefur ódýr orka ekkert forskot). Tafla 2. Yfirlit yfir niðurstööur. Framleiðsla Þungt vatn Á1 Kísilgúr Magnesium C-vítamín Frostlögur Mjólkursykur Lithium-7 Natríum (ásamt klór og olíuhreinsun) Klór (ásamt olíuhreinsun) Plast (ásamt olíuhreinsun og klórframleiðslu) Eldsneyti á kjarnaofna Vetni Hráefni Vatn Súrál (innflutt) Botnfall, Mývatn Sjór Glúkósi (innflutt) Olía (innflutt) Mysa Jarðsjór frá sjóefnaverksmiðju Salt Salt Olía (innflutt) Uran (innflutt) Vatn Liður Virkjuð orka Virkjuð orka 1500 MW rafmagn + 4500 MW hiti 3000 MW rafmagn + 4500 MW hiti Fjöldi stórra verk- smiðja 15 22 Heildar kostn- $ aður 2500 3600 Bygg- ingar- tími Ein verksmiðja í smíöum .í einu Tvær í smíðum Ein verksmiðja í smíðum í einu Tvær í smíöum 45 ar 2 2 ár 66 ár 3 3 ár Heildar nettó tek jur t/á ári Án íslenzlcrcir eignaraðildar Með 20% eignaraðild Án íslenzlcrar eignaraðildar Með 20% eignaraðild 122 222 179 32 5 til þessa iðnaðar, sá jafnframt þessum mannfjölda fyrir rafmagni og hita. Þar sem efnaiðnaðurinn notaði gufu en einungis heitt vatn þarf til húshitunar, var varminn, sem fæst við þéttingu gufunnar, fyrst notaður í efnaverksmiðjum og síðan var heita vatnið, er við það fékkst, notað í hitaveitu handa 50.000 manna byggð. Úr bænum kom vatnið 40OC heitt og var þá notað til gróðurhúsahitunar og kælt niður í 150C og að lokum notað til fiskiræktar. Vissulega þurfum við íslending- ar ekki á kjarnorku að halda þar sem við eigum ódýrari orku í fallvötnum og jarðvarma. I þeirri myné munum við eiga nálægt 3000 MW í óvirkjaðri vatnsorku og 9000 MW í jarðhita. Það hittist þannig á að hlutföllin í raf- og hitaorku eru nokkurn veginn þau sömu og hagkvæmustu hlutföllin hjá kjarnorkuveri. Má því segja að þjóðin eigi orkulindir sem sam- svari þremur stórum kjarnorku- verum. Til þess að forðast of mikla bjartsýni, skulum við gera ráð fyrir, að einungis sé hagkvæmt að nýta helming þessarar orku, þ.e. 1500 MW af rafmagni og 4500 MW af jarðvarma. Ef hún yrði nýtt á svipaðan hátt og orkan frá kjarn- orkuverinu, sem áður greinir frá, myndi brúttóverðmæti framleiðsl- unnar vera um það bil 400—500 milljónir dollara, og tíu þúsund og fimm hundruð manns starfa við framleiðsluna. Framleiðslan myndi þá standa undir lífsafkomu u.þ.b. 70.000 manns. Ótalinn er sá fjöldi manna er starfa myndi við önnur skilyrði væru uppfyllt. Athuga ber að efnaiðnaður þarf flutningsaðstöðu (hafnir eða vegi) og kælivatn, auk orku. Þessar kvaðir takmarka nokkuð staðarval efnaverksmiðja. Því myndu þær efnaverksmiðjur, sem þurfa gufu, ekki vera jafnt dreifðar á háhita- svæðin og öll hitaorkan ekki nýtanleg af þeim sökum. Háhita- svæðin þekja 150 km2 í 100.000 kmz landi. Jafnvel þótt verksmiðjurnar 15 yrðu aðeins byggðar á hluta háhitasvæðanna yrðu víðast hvar fleiri ferkílómetrar á hverja verk- smiðju. Á stöðum þar sem verk- smiðjur þættu spilla náttúrufegr urð yrði að sjálfsögðu að vega og meta kosti og galla við staðarvalið. Yfirleitt má segja að vel hönnuð efnaverksmiðja og snyrtileg þurfi ekki að lýta eða menga umhverfi (nema í augum þeirra sem hafa innbyggða óbeit á tækni og iðnaði sem slíkum), en margar verk- smiðjur á litlu svæði gera það. Allténd ætti landrými að vera nóg til þess að taka tillit til náttúru- verndarsjónarmiða. Auk þess er tiltölulega auðvelt að forðast mengun frá verksmiðjum þegar tekið er tillit til þess þegar í upphafi. Við getum því forðazt vandamál ýmissa eldri iðnaðar- ríkja þar sem efnaiðnaður var byggður upp án nokkurs tillits til mengunar, unz menn vöknuðu upp við vondan draum og sáu að böggull fylgdi skammrifi. Andvirði orkunnar. I sérhverju tilfelli myndi það söluverð, er fengist fyrir raf- eða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.