Morgunblaðið - 15.07.1978, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 15.07.1978, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1978 r Nei, nei, nei og aftur nei Eftir söguleg kosninga- úrslit bauö formaöur Framsóknarflokksins aö veita minnihlutastjórn Al- Þýöuflokks og Albýöu- bandalags hlutleysi og verja hana falli, ef Þessir flokkar kysu aö axla Þá ábyrgð, sem kjósenda- fylgi Þeirra gerir kröfu til. AlÞýöubandalagió taldi frekar efni til Þess að setja slíka stjórn á stofn án hlutleysis nokkurs flokks. Benedikt Gröndal, for- maður AlÞýóuflokks, sem tók að sér tilraun til myndunar meirihluta- stjórnar, bauó síöan AIÞýðubandalagi upp á viðræður um Þríflokka- stjórn svonefndra „nýsköpunarflokka". AlÞýðubandalagió neitaði á stundinni aö ræða Þann möguleika, hvaö Þá að ganga heilshugar til starfs. Boöa hlautur aö Benedikt Benedikt Gröndal sagöi í blaðaviðtali, eftir neitun AiÞýðubandalags, að Þaö hefði „eyðilagt Þá tilraun til stjórnarmynd- unar, sem flokksstjórn AlÞýöuflokksins taldi skynsamlegasta“. Sá möguleiki kann að vera fyrir hendi, að hann Þreifi fyrir sér um Þríflokka „vinstristjórn", enda hef- ur Framsóknarflokkurinn tjáð sig reiðubúinn til viðræðna Þar um, ef eftir yröi leitað af AlÞýðuflokki og AlÞýðubandalagi. En tmmm Uibto.9 HkJ*vlk RttsljöTn 86300 Auglysingar 1S300 A(|mt«U of Mnh 96300 KvOldalmar 80387 «. Sl Lúðvik vill verða forsætisráðherra MUI«fr». >9 áiopuiwttn um rtutrl it)6m Mta (t»7ini u njrniim bnuai. nftl Lilflk dals eru nánast hlægileg- ar og líklega mest til ad sýnast ..." (leturbr. Mbl.). Hér er enn settur upp sá hundshaus, sem Lúðvík. Þjóðviljinn hefur fyrir- fram svaraö pví, hvern veg Alpýðubandalagið muni taka eftirleitan Benedikts um vinstri stjórn, ef til kemur. Blað- ið birtir feitletraða klausu á forsíðu í gær, svohljóð- andi: „Hitt hljóta allir að viðurkenna að vinstri- stjórnarviðræður undir forystu Benedikts Grön- Benedikt. AlÞýðubandalaginu virð- ist tiltækastur Þessa dag- anal Lúövík talar viö Tímann Lúðvík Jósepsson, for- maður Alpýðubandalags- ins, segir í forsíðuviðtali við Tímann í gær: „Hins vegar höfum viö okkar álit á Því, að eðlilegra væri að Þeir hefðu for- ystu um Þá stjórnar- myndun (Þ.e. vinstri stjórn), sem áhuga virtust hafa á málinu." Hér er höggvið í sama knérunn og í forsíðu- klausu Þjóðviljans, sem fyrr var vitnað til. Tíminn, málgagn Framsóknar- flokksins, túlkar Þessi viðbrögð Lúövíks (og Þjóðviljans) á Þann veg sem sjá má á fyrirsögn Þeirri, sem blaöið velur viðtalinu við Lúðvík Jósepsson. Ekki Bene- dikt, heldur ég, Lúðvík Jósepsson, er skilningur Tímans á Þessum við- brögðum. Skítt með mál- efnin og úrræðin; flokkurinn og formaður- inn skuli blíva. Þá hefur AlÞýðubandalagið berað Það, sem að baki er hundshausnum, sem Það hefur sett upp gagnvart öðrum möguleikum til stjórnarmyndunar en Þeim, sem færa flokks- formanninum hefðartind- inn. En Þjóöin bíður og vandamál hennar. Er ekki mál aö leikara- skap Ijúki og alvara hversdagsins taki við? GUDSSPJALL DAGSINS: Um falsspámenn. Matt. 7 DÓMKIRKJAN Messa kl. 11 árdegis. Séra Þórir Stephensen. Organleikari: Ólafur Finnsson. BÚSTAÐAKIRKJA. Messa kl. 11 í umsjá séra Kristjáns Vals Ingólfssonar. Organisti Guðni Þ. Guðmunds- son. Safnaðarstjórn. FELLA- OG HÓLAPRESTA- KALL. Guðsþjónusta í safnaðarheimil- inu að Keilufelli 1 kl. 11 árd. Séra Hreinn Hjartarson. HÁTEIGSKIRKJA. Guðsþjónusta kl. 11 árd. Séra Tómas Sveinsson. HALLGRÍMSKIRKJA. Messa kl. 11. Lesmessa n.k. þriðjudag kl. 10.30 árd. Beðið fyrir sjúkum. Séra Karl Sigur- björnsson. LANDSPÍTALINN. Messa kl. 10 árd. Séra Karl Sigurbjörnsson. KÖPAVOGSKIRKJA. Guðsþjónusta kl. 11. Séra Þor- bergur Kristjánsson. NESKIRKJA. Guðsþjónusta kl. 11 árd. Séra Guðmundur Óskar Ólafsson. HJÁLPRÆÐISHERINN. Almenn samkoma kl. 20.30 sunnudag. Brigader Óskar Jóns- son og frú. KÁLFATJARNARKIRKJA. Guðsþjónusta kl. 11 árdegis. Sr. Bragi Friðriksson. NJARÐVÍKURPRESTAKALL. Fermingarguðsþjónusta i Innri-Njarðvíkurkirkju kl. 2 síðdegis. Fermd verður Þórdís Gunnarsdóttir frá Illinois í Bandaríkjunum. Kjartan Jóns- son guðfræðinemi predikar. Sr. Páll Þórðarson. STRANDAKIRKJA. Messa kl. 14. HEILSUHÆLI N.L.F.Í. Messa kl. 11. Sóknarprestur. LITUR DAGSINS: Grænn. Litur vaxtar og Þroska. DÓMKIRKJA Krists konungs Landakoti. Lágmessa kl. 8:30 árdegis. Há- messa kl. 10:30 árdegis. Lág- messa kl. 2 siðdegis. Alla virka daga er lágmessa kl. 6 siðdegis nema á laugardögum kl. 2. KAPELLA St. Jósefs systra Garðabæ. Hámessa kl. 2 síðdegis. ELLIHEIMILIÐ GRUND. Messa kl. 14. Sr. Þórir Stephen- sen. FÍLADELFÍUKIRKJAN. Almenn guðsþjónusta kl. 20:00. Einar J. Gíslason. FRÍKIRKJAN Reykjavík. Messa kl. 11:00 árdegis, síðasta fyrir sumarleyfi. Séra Þorsteinn Björnsson. ÚTSKÁLAKIRKJA. Messa kl. 11 árdegis. Sóknar- prestur. SKÁLHOLTSKIRKJA. Messa kl. 17:00. Sóknarprestur.. HAFNARFJARÐARKIRKJA. Guðsþjónusta kl. 11 árdegis. Séra Gunnþór Ingason. íscargóvél í hjálpar- flutnlngum í Eþíópíu FLUGVÉL frá íscargó hefur nú byrjað hjálparflug með matvæli til nauöstaddra í Eþíópi'u á vegum heimssambands lúthersku kirkjunnar. Er flugvél félagsins af gerðinni DC-6 notuð til þessara flutninga. Að sögn Gísla Lárussonar, framkvæmdastjóra Iscargó, var það hjálparstofnun norsku kirkj- unnar sem hafði milligöngu um að íscargó tók að sér þessa flutninga fyrir heimssambandið en gert er ráð fyrir að þeir standi yfir um mánaðartíma. Fljúga á daglega frá Addis Abeba til Asmara og Assab í Eritreu en þar ríkir nú neyðarástand meðal íbúanna bæði af völdum stríðsreksturs undan- farinna ára og engisprettufarald- urs, sem þar gekk yfir. Flutningar þessir fara fram með fullu leyfi stjórnvalda i Eþíópíu og er gert ráð fyrir að flytja alls um 480 tonn af matvælum og hjálpargögnum. Meðan flugvél íscargó er upptekin í þessum flutningum, hefur félagið tekið á leigu vélar til að annast flutninga hingað til lands, og að sögn Gísla hefur tækifærið verið notað til að reyna nýjar gerðir af vélum en forráða- menn Iscargó hafa hug á að kaupa fljótlega vél í stað gömlu vélarinn- ar. Þannig var hér leiguvél af gerðinni Brittania á dögunum og von er á næstunni á vél af gerðinni Lockheed Electra. Blaðburðar- fólk óskast í Garðabæ Hraunsholt (Ásar). Uppl. í síma 44146. ilfacgtittltffiMfe Felagsmalastofnun Reykjavikurborgar Leiguíbúðir fyrir aldraða. Borgarráð Reykjavíkur hefur ákveðiö aö auglýsa eftir umsóknum um leiguíbúöir viö Lönguhlíö. íbúöir þessar eru 30 einstaklingsíbúöir, sérstaklega ætlaöar öldruöu fólki. Áætlaöur afhendingartími er í september n.k. Um úthlutun íbúða þessara gilda eftirtaldar reglur: 1. Þeir einir koma til greina, sem náö hafa ellilífeyrisaldri. 2. Leiguréttur er bundinn viö búsetu meö lögheimili í Reykjavík s.l. 7 ár. 3. íbúðareigendur koma því aðeins til greina, aö húsnæöiö sé óíbúöarhæft eöa þeir af heilsufars og félagslegum ástæöum geta ekki nýtt núverandi íbúö til dvalar. 4. Aö ööru leyti skal tekiö tillit til heilsufars umsækjenda, húsnæöisaöstööu, efnahags og annarra félagslegra aöstæöna. Umsóknir skulu hafi borist húsnæöisfulltrúa Félags- málastofnunar Reykjavíkurborgar á þar til geröu eyðublaði, eigi síöar en fimmtudaginn 10. ágúst n.k. T-Bleian er frá Mölnlycke Með T-bleiunni notist T-buxur, þar sem bleiurn- ar eru með plastundirlagi. T-buxur eru taubuxur, sem veita lofti í gegnum sig, sem plastbuxur gera ekki. Vellíðan barnsins eykst. Hestamót Faxa verður haldið að Faxaborg dagana 22. og 23. júlí. Laugardag 22. júlí kl. 16.00 veröa gæöingar í A og B flokki dæmdir og unglingakeppni fer fram. Kappreiðar hefjast sunnudag 23. júlí kl. 13.30. Keppt verður í eftirtöldum greinum: 250 m. stökk. 300 m. stökk. 800 m. stökk. 150 m. nýliöa skeiö. 250 m. skeiö. 800 m. brokk. Tekið er á móti skráningu hjá Jóhanni Odssyni, Steinum, sími um Borgarnes og Ólöfu Guöbrandsdóttur, Nýja-bæ, sími um Varmalæk. Skráningu skal lokiö fyrir miövikudagskvöld 19. júlí.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.