Morgunblaðið - 15.07.1978, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 15.07.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1978 5 Sjö þúsund manns komnir á Skógarhólamótið í gær Eyjólfur ísólfsson á Hlyn frá Akureyri, sem stóð efstur af klárhestum með tölti á landsmótinu í gær. Skógarhólum, 14. júlí — frá Tryggva Gunnarssyni blaöamanni HELDUR viðraöi illa til métshalds í Skógarhólum í gær. Veöur var Þó að mestu burrt, en ekki naut sólar og blés heldur köldu. Forráða- menn mótsins sögðu í gærkvöldi að beir áætluðu, að nær 7 Þúsund manns væru komnir á mótssvæð- ið, en stöðugur straumur fólks var á mótið, Þegar Þetta er skrifað. í gær voru kynnt kynbótahross, sem sýnd veröa á mótinu. Alhliöa gæðingar voru dæmdir. Fram fór unglingakeppni 10 til 12 ára og undanrásir kappreiöa í 250 og 350 metra stökki og fyrri sprettur í 1.500 metra brokki. Þá var keppt í gæðingaskeiði og dagskrá mótsins í gær lauk meö kvöldvöku. Ekki lágu í gær fyrir úrslit í flokki alhliða gæöinga, en í B-flokki klárhesta meö tölti sigraði Hlynur frá Akureyri meö einkunnina 9,16. Eigandi Hlyns er Reynir Björgvins- son, Bringu, Eyjafiröi, en knapi á honum Eyjólfur ísólfsson. Næstur kom Brjánn frá Sleitustööum, eign Harðar G. Albertssonar, knapi Sigurbjörn Báröarson, með eink- unnina 8.98, og þriðji var Náttfari frá Fornustekkum, eign Guömundar Jónssonar, Höfn, knapi Reynir Aöalsteinsson, meö einkunnina 8.78. Mótsgestir biöu spenntir eftir að sjá hver yrðu úrslitin í undanrásum í 250 og 350 metra stökkinu, einkum hver af hlaupahryssunum kunnu yröu hlutskörpust í 350 metrunum. í 250 metrunum náði beztum tíma Kóngur úr Borgarfirði, 18,4 sek., og tveir hestar náöu sama tíma, Reykur úr Reykjavík og Stormur úr Hafnarfirði, 18,4 sek. Þá kom Sátur úr Garöabæ á 18,6 og þrír hestar voru meö tímann 18,86. Hlaupahryssurnar frægu í 350 metrunum mættust ekki í gær, heldur hlupu í sitt hvorum riðli, nema hvaö Nös frá Urriöavatni og Gjálp frá Laugarvatni hlupu í sama riðli. Beztum tíma í 350 metrunum náöi Nös, 24,56, Gjálp náði 24,76, Loka úr Reykjavík náöi 24,96, Glóa úr Reykjavík náöi 25,1 og Blesa frá Hvítárholti náði 25,36. Þær þrjár síöastnefndu voru í sérflokki í sínum riðlum, en þessar hryssur mætast allar f úrslitahlaupinu. í 1.500 metra brokkinu, sem var fyrri sprettur, setti Funi Marteins Valdimarssonar, Búöardal, nýtt íslandsmet, hljóp á 3.02.5, en eldra metið átti Funi einnig, sem var 3.08.5 mínútur. Næstbeztum tíma náði Blesi Valdimars K. Guðmunds- sonar, Reykjavík, 3.06,5 mín., og 3. varö Höttur Guöna í Skaröi á 3.13,2 mínútum. islandsmethafinn í 800 metra brokki, Faxi Eggerts Fanndal, hljóp upp. Úrslit í unglingakeppni 10 til 12 ára urðu þau aö Ester Harðardóttir, Fáki, sigraöi, í 2. sæti varð Guö- mundur Sigfússon, Smára, og 3. Styrmir Snorrason, Fáki. Mótinu verður fram haldiö í dag og klukkan 10 fyrir hádegi veröa hross á sölumarkaöi mótsins kynnt. Eftir hádegið verður m.a. dómum kynbótahrossa lýst og fram fara kappreiöar, svo sem fyrri sprettur í skeiði, þar sem mætast nær allir beztu skeiöhestar landsins og undanrásir í 800 metra stökki. í kvöld klukkan 21 veröur kvöldvaka. Á sunnudag hefst dagskrá mótsins klukkan 11 meö helgistund í Hvannagjá, þar sem herra Sigur- björn Einarsson biskup predikar, en eftir hádegi verða verðlaun í ein- stökum greinum afhent. Sörlasystkinin — Stóöhesturinn Sörli frá Sauðárkróki, lengst til vinstri, sem Sveinn Guðmundsson á Sauðárkróki situr, keppir á mótinu til heiðursverölauna sem stóðhestur með afkvæmum og vakti sýning hans veróskuldaða athygli á mótinu í gær. 250 metra stökk. Fremstur er Kóngur úr Borgarfirði, knapi Einar Karelsson og er hann lengst til hægri á myndinni. Ragnar Kjartansson for- maður skipulagsnefnd- ar Sjálfstæðisflokksins Á FUNDI miðstjórnar Sjálf- stæðisílokksins í fyrradag var Rajínar Kjartansson kjörinn for- maður skipulaKsnefndar Sjálf- stæðisflokksins í stað Baldvins TryKftvasonar sem baðst undan endurkjöri. Kosningu að öðru leyti var frestað. „Ég tilkynnti bæði formanni flokksins og framkvæmdastjóra í vetur að ég myndi ekki gefa kost á mér til endurkjörs í skipulags- nefnd en skipulagsnefnd á að kjósa að aíloknum þingkosningum", sagði Baldvin Tryggvason í sam- tali við Mbl. í gærkvöldi. „Ástæður þessa eru aðallega tvíþættar. I fyrsta lagi hef ég tekið að mér ýmis störf og vil því létta öðrum af mér og einnig þótti mér bæði heppilegt og eðlilegt að nýir menn tækju við en ég er búinn að vera í þessu í átta ár. Það var svo að minni tillögu að Ragnar Kjartansson var einróma kjörinn formaður skipulagsnefnd- ar“. Vitni vantar RANNSÓKNARDEILD lögregi- unnar hefur beðið Mbl. að auglýsa eftir vitnum að árekstri og ákeyrslu í Reykjavík. Á þriðjudaginn varð mjög harður árekstur á gatnamótum Suðurlands- brautar og Grensásvegar milli Volkswagenbifreiðar og Ladabifreið- ar. Ágreiningur er um stöðu um- ferðarljósa og eru vitni beðin að gefa •sig fram. Þá er óskað eftir vitnum að ákeyrslú við biðskýlið að Sogavegi 1. Þar var ekið utan í græna Volvo Amazon bifreið, óskráða, og vinstra frambretti hennar stórskemmt. Þetta gerðist á þriðjudagskvöld eða fyrri hluta miðvikudagsins. ÍBA-MBl Eigum nú fjölbreytt úrval af bílmotfttm! G|rófjmUhstraö$ir c fínmunstraöar, margar geröir. og Einnig sniömottur, sem auöveldlega ma sníöa í allar tegundir bíla. Bílmottur henta einnig sem venjulegar dyramottur. _____ Kynniö ykkur úrvaliö. Fást á bensínstöövum og fjölda verslana. #\\ Heildsolubirgöir: Smávörudeild, Laugavegi 180, sími 81722, Reykjavík Olíufélagiö Skeljungur hf i ISlgiÍ | — - m Bílmottur sem halda þurru og hreinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.