Morgunblaðið - 15.07.1978, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1978
17
CaHaghan
hélt velli
London — 14. júlí. Reuter
BIIEZKA verkamannaflokknum
tók.st á fimmtudag að halda
tveimur þingsætum í Manchester
ok Yorkshire í kosningum, sem
e.t.v. eru þær síðustu fyrir
væntanlegar þingkosningar í
haust.
Úrslitin sýndu að íhaldsflokkur-
inn hafði unnið fylgi af Verka-
mannaflokknum, en þó minna en
nýjustu skoðanakannanir höfðu
bent til. Hafa þau í engu breytt
þeirir skoðun manna að James
Callaghan muni efna til almennra
þingkosninga í október. Stjórn
Callaghans er nú í minnihluta í
neðri deild brezka þingsins þar eð
frjálslyndir hafa dregið í land með
stuðning sinn við hana.
Kosningarnar fóru fram í Moss
Side í Manchester þar sem Verka-
mannaflokkurinn tapaði 3.5 af
hundraði og í Penistone í York-
shire þar sem hann missti 8.8.
Þetta kom þó ekki að sök fyrir
Verkamannaflokkinn þar eð bæði
Georg Morton í Moss Side og Allan
McKay í Penistone héldu sætum
sínum.
Þetta gerðist
1974 — Grískir liðsforingjar
á Kýpur steypa Makariosi.
1972 -=■ Tíu þúsund konur og
börn flýja úr kaþólska hverfinu
í Belfast.
1971 — Nixon skýrir frá
fyrirhugaðri Kínaferð.
1%8 — Beint áætlunarflug
milli Sovétríkjanna og Banda-
ríkjanna hefst.
1965 — Konstantín Grikkja-
konungur rekur Papandreou
forsætisráðherra.
1%4 — Mikoyan tekur við af
Brezhnev sem forseti.
1%3 — Þríveldaviðræður í
Moskvu um tilraunabann.
1%0 — Gæzlulið SÞ kemur til
Kongó. Kennedy tilnefndur for-
setaefni.
1958 — Bandarískt herlið
sent til Líbanons.
1948 — Vopnahlé fyrirskipað
í Palestínu.
1936 — Þjóðabandalagið af-
léttir refsiaðgerðum gegn ítöl-
1895 — Stambulov forsætis-
ráðherra Búlgaríu myrtur.
1857 — Fjöldamorð á konum
og börnum í Cawnpore, Ind-
landi.
1822 — Innrás Tyrkja í
Grikkland hefst.
1685 — Monmouth háls-
höggvinn.
Afmæli dagsins: Rembrandt,
hollenzkur listniálari
(1606—1669).
Innlent:' Reglugerð um 200
mílna fiskveiðiiögsögu 1975 —
Fernt ferst í flugslysi í Snjó-
fjöllum 1973. - Yfir 100 grind-
hvalir drepnir í Njarðvíkum
1957. - „Vestu" sökkt 1917. -
D. Síra Einar Sigurðsson 1626.
— Síra Snorri Björnsson á
Húsafelli 1803. — F. Dr.
Alexander Jóhannesson 1888.
Orð dagsins: Ég er hræddur
við útskýringar sem eiga að
útskýra útskýringar —
Abraham Lincoln, forseti
Bandaríkjanna (1809—1865).
Tortosa, Spáni, 14. júlí, Reuter.
TUGIR ferðamanna létu lífið
þegar sprenging varð í gasflutn-
ingabíl á útivistarsvæði s.l.
þriðjudag og eru flest likanna
óþekkjanleg, að því er áreiðanleg-
ar heimildir herma.
Níutíu lík hafa verið kistulögð í
Tortosa og þess er beðið hvort
aðstandendur hinna látnu geti
borið kennsl á þau. Ef raunin
verður sú að enginn beri kennsl á
líkin verða þau jarðsett og síðar
grafin upp ef eitthvað annað
Fæðist til-
raunabarnið
um helgina?
London, 14. júlí — AP.
LÍKUR benda til að Lesley Brown
muni fæða tilrauna glas barn sitt
nú um helgina, en ekki var sú
fregn þó staðfest á föstudag.
Fregnir frá sjúkrahúsinu þar
seni hin 32 ára kona liggur. segja
að meðgöngutimi hennar sé brátt
á enda og að Patrick Steptoe
kvensjúkdómalæknirinn sem
framkvæmdi tilraunina taki enga
aðra sjúklinga til meðferðar í
næstu viku.
Eiginmaður hennar, John A.
Lesley, 38 ára gamall járn-
brautarstarfsmaður, hyggst
verða viðstaddur fa'ðinguna.
Fulltrúi heilbrigðisyfirvalda í
Oldham þar sem konan liggur
sagði fréttamönnum að barnið
væri ekki væntanlegt strax og
ekki hefði verið ákveðið hvenær
það yrði tekið með keisaraskurði.
kemur á daginn, að því er talsmað-
ur bæjarráðsins í Tortosa sagði
fréttamönnum. Aðeins hafa verið
borin kennsl á 51 lík.
Hópur sérfræðinga frá
Mainz-háskólanum í V-Þýzkalandi
kom til að reyna að bera kennsl á
líkin með fingrafararannsóknum
m.a. Sprengingin átti sér stað á
Los Alfaques útivistarsvæðinu
Framhald á bls. 23
Illa gengur að
þekkja líkin
Lillian Carter.
Bruggið
örvaði
móður-
brjóstin
Washington 14. júlí, AP
LILLIAN Carter, móðir
Carters Bandaríkjaforseta, sem
nú er 79 ára að aldri, hefur sagt
frá því að hún hafi vanalega
drukkið þrjár flöskur af heima-
bruggi á dag meðan hún var
með yngsta soninn, Billy, á
brjósti.
Móðirin lét orð þessi falla í
ávarpi sem hún flutti hópi
þingmanna úr bandarísku
fulltrúadeildinni, sem ræddi
hungur og fólksfjölgunar-
vandamál. Hún sagði m.a.: „Ég
ól þrjú börn og hafði þau öll á
brjósti, en þegar Billy kom í
heiminn gerðist það, að ég
mjólkaði ekki nóg. Faðir minn
og ég fundum þá lausnina:
heimabrugg, þar eð við gátum
ekki keypt bjór. Eftir það drakk
ég þrjár flöskur af bjór á dag
og hvort sem þið trúið því eða
ekki þá fékk Billy litli nóg eftir
það.“
I ellinni segist hún ekki þurfa
á neins konar líkn að halda og
ætli hún sér ekki að „fúna“ í
ruggustól.
ERLENT
„Youngáað
hlýða eða
segja af sér”
— segir Henry Kissinger
París, 14. júlí — Reuter.
ANDREW Young. sendiherra
Bandaríkjanna hjá Sameinuðu
þjóðunum. sagði í franska sjón-
varpiriu í dag að umsvif Kúbu-
manna og Rússa í Afríku væru
stórlega ýkt.
Andrew Young kom fram í
þætti í franska sjónvarpinu á
sama tíma og þær raddir gerðust
háværar í Bandaríkjunum að
svipta ætti hann störfum vegna
þeirra ummæla hans í viðtali við
franska blaðið Le Matin. að í
Bandaríkjunum væru hundruð ef
ekki þúsundir pólitískra fanga í
haldi.
Bandaríski utanríkisráðherrann
Cyrus Vance ávítaði Young fyrir
þessi ummæli og yfirlýsing hans í
franska sjónvarpinu er vís með að
vekja reiði Cartersstjórnarinnar
sem ítrekað hefur áhyggjur sínar
yfir auknum umsvifum Rússa og
Kúbumanna í Afríku.
I sjónvarpsþættinum sem birtist
á stöð 2 franska sjónvarpsins í
fyrradag sagði Andrew Young, að
kúbönsk og sovézk umsvif í Afríku
væru minni en umsvif Vesturveld-
anna þar.
„Áhrif Kúbu og Sovétríkjanna í
Afríku hafa verið stórlega ýkt,“
sagði hann. „Ég trúi því ekki, að
þau umsvif séu jöfn og umsvif
Frakklands, Bretlands og jafnvel
Bandaríkjanna. Mig hefur lengi
langað til að vara aila við hinu
ýkta viðhorfi, þar sem tilfinningar
ráða _ gagnvart kúbönskum og
rússneskum umsvifum í Afríku,"
sagði Young í franska sjónvarpinu.
Sagði Young ennfremur að hann
héldi ekki að Fidel Castro for-
sætisráðherra Kúbu stæði á nokk-
urn hátt að baki skipulagningu
innrásarinnar í Shabahéraðið í
Zaire sem gerð var af andstæðing-
um Zaire-stjórnar fyrir tveimur
mánuðum. Hins vegar héldi hann
að austur-þýzk stjórnvöld hefðu
átt sinn þátt þar í.
„Ef Fidel Castro vissi ekki hvað
átti sér stað,“ sagði Young, „tel ég
þó enga ástæðu til að ætla að
Austur-Þjóðverjar séu saklausir
af verknaðinum."
Aðspurður um það hvort hann
tryði yfirlýsingu Castros um að
hann hefði enga hugmynd haft um
innrásina i Zaire áður en hún var
gerð, svaraði Young að hann tryði
því en aðeins þeirri yfirlýsingu,
því umsvif Kúbana í Angóla sýndu
Draugaskip sendir
loftskeyti á höfunum
London, 14. júlí — Reuter.
Yfirloftskeytamaður á
brezka áætlanaskipinu „Queen
Elizabeth 11“ segist hafa heyrt
loftskeyti frá skipi, er síðast
lagði upp fyrir um tíu árum og
sást ekki meir.
Loftskeytamaðurinn. Alan
Ilolmes, segir að loftskeytið
hafi verið sent írá gömlu
„Queen Mary“ til skipaioft-
skeytastöðvar á Portishöfða.
„Queen Mary" hefur ekki sent
skeyti í meira en áratug, en
Ilolmes stendur á því fastar en
fótunum að hafa heyrt
„draugaskeytið" í febrúar á
þessu ári.
„Herra Hólmes er hálfgerður
smásmygill," sagði talsmaður
skipaeigendafélagsins, er rekur
„Queen Elizabeth“. „í hans
augum er það mikilvægasta
starf í veröldinni að senda og
taka við loftskeytum. Hann
myndi ekki flimta í kringum
slíkt,“ bætti hann við. Það kom
aftur á móti fram hjá talsmann-
inum, að vel kynni að vera að
einhver væri að draga dár að
Holmes sjálfum. Væri hér gam-
an á ferðum væri það þó einkar
vel útfært.
„Queen Elizabeth" var nærri
Tahiti er Holmes heyrði
kallmerki „Queen Mary“ en svo
vill til að „Queen Mary“ notaði
sama kallmerki og Queen Eliza-
beth. Einnig segir Holmes að
Queen Mary hafi notað gamla
kallmerkið fyrir Portishöfða.
Holmes sagði að skeytið hefði
verið sent samkvæmt úreltu
kerfi og með gömlu tæki, sem
ekki tíðkaðist nú lengur og
mætti sjá það af sendingunum.
Þegar Holmes var beðinn að
útskýra hvernig þetta kynni að
hafa átt sér stað var hann í
fyrstu dræmur til að svara en
sagði síöan: „Þegar skeyti hefur
einu sinni borist út í jónahvolfið
heldur það fyrirstöðulaust
áfram út í geiminn. Ef það hins
vegar rekst á hlut er hugsanlegt
að það endurvarpist aftur til
jarðarinnar.“ Fréttamaður
Reuters spurði ritstjóra tíma-
ritsins „Wireless World“, Ray
Ashmore, hvort möguleikinn
væri fyrir hendi. Hann svaraði
játandi en taldi hann hverfandi
lítinn; Þá upplýsti talsmaður
brezka útvarpsfélagsins að hann
hefði aldrei heyrt um slíkt
„langtafið endurvarp“ fyrr. Allt
er sem sagt enn á huldu um
upptök sendinga frá drauga-
skipinu „Queen Mary“.
fram á að þeir væru á einhvern
hátt ábyrgir fyrir því sem gerðist.
„Það er ekki nóg að þjálfa menn
Framhald á bls. 20.
Eyðilögðu
14 hús í
loftárás
Nairobi, 14. júlí — Reuter
EÞÍÓPÍSKAR orrustuflugvélar
réðust á þorpið Abdulkadir í
Norður-Sómalíu í gær og lögðu 14
hús í rúst. Einn maður særðist að
sögn útvarpsins í Mogadishu.
Samkvæmt frétt útvarpsins
munu sex þotur hafa komið við
sögu í árásinni, sem átti sér stað
um hádegisbilið. í útvarpinu var
vitnað í tilkynningu upplýsinga-
málaráðuneytisins, sem skýrði frá
því að „Sovétmenn og nótar þeirra
hefðu lagt á ráðin í árásinni".
Varaði ráðuneytið við frekari
árásum á þorp og borgir og sagði
slíkt myndi koma árásaraðilanum
illilega í koll. Þetta mun vera
önnur árásin á þorpið, en fjórir
menn féllu í loftárás, er gerð var
í júní.
Veður
víða um heim
Amsterdam 17 skýjað
Apana 37 heióskírt
Berlín 17 skýjaó
Brttssel 25 skýjaó
Chicago 30 heióskirt
Frankfurt 24 skýjaó
Genf 27 lóttskýjaó
Helsinki 16 skýjaó
Jóhannesarb. 16 heióakírt
Kaupmannah. 17 skýjaó
Lissabon . 28 léttskýjaó
London 22 léttskýjaó
Los Angeles 35 heióskírt
Madrid 35 léttskýjaó
Malaga 26 heióskírl
Miami 30 rigning
Moskva 20 rigning
New York 29 rigning
Ósló 16 skýjaö
Palma, Mallorca28 heíóskírt
París 25 léttskýjað
Róm 27 heióskirt
Stokkhólmur 18 skýjaö
Tel Aviv 36 léttskýjaó
Tokýó 31 rigning
Vancouver 27 léttskýjaó
Vínarborg 23 heióskirt
DeUur vegna
misskilnings
Bangkok, 14. júlí — AP.
Utanríkisráðherra Thailands,
Upadit Pachtiyangkul, lýsti því
yfir í dag, að hann hefði komizt að
samkomulagi við embættisbróður
sinn í Kambódíu um að landa-
mæraskærur landanna væru ekki
annað en „misskilningur“, sem
unnt væri að kveða niður. Sagði
talsmaður utanríkisráðuneytisins,
að utanríkisráðherra Kambódíu,
Ieng Sary, hefði brugðið sér yfir
landamærin til borgarinnar
Aranyaprathet og rætt þar við
tahilenzka ráðamenn. Munu
embættismenn þó vera hóflega
bjartsýnir á árangur eftir tíðar og
árangurslausar viðræður rikjanna
í tvö ár.