Morgunblaðið - 21.07.1978, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1978
Styrkir frá Vest-
firðingafélaginu
Eins og undanfarin ár verða í
byrjun ágúst veittir styrkir úr
„Menningarsjóði vestfirskrar
æsku“ til vestfirskra ungmenna til
5 nýir
læknar
HEILBRIGÐIS- og trygginga-
málaráðherra hefur nýlega skip-
að fimm nýja héraðslækna til
næstu fjögurra ára, en þeir eru
skipaðir samkvæmt lögum frá því
í vetur um hcilhrigðisþjónustuna.
Þessir menn voru skipaðir hér-
aðslæknar: Skúli Johnsen, borgar-
læknir, héraðslæknir í Reykjavík;
Friðrik J. Friðriksson, héraðs-
læknir í Norðurlandshéraði vestra;
Olafur H. Oddsson héraðslæknir í
Norðurlandshéraði eystra; Guð-
mundur Sigurðsson héraðsláeknir í
Austurlandshéraði og Isleifur
Halldórsson héraðslæknir í Suður-
landshéraði.
Landsmót AA
að Húsafelli
LANDSMÓT AA samtakanna
verður ahldið að Húsafclli um
helgina og hefst það f kvöld,
föstudag. Sætaferðir verða frá
AA húsinu kl. 18 í dag.
I fyrra var landsmótið haldið í
Eyjafirði, og var vel sótt. Jafnan
er mikið um að heilu fjölskyldurn-
ar sæki landsmótin og segir í
fréttatilkynningu frá samtökunum
að þess sé vænzt að svo verði
einnig nú.
Stærsti fiskfarm-
urinn frá Höfn
Höfn í Hornafirói 20. júlí.
í gær lestaði Jökulfell 19500
kassa af frystum fiskafurðum, sem
fara á Bandaríkjamarkað, en alls
eru þessir 19500 kassar um 500
tonn, og hefur lfklega aldrei verið
afskipað jafn miklu af fiski hér í
einu. Þá lestar Ljósafoss í dag 1000
kassa af heilfrystum fiski, sem fara
á til Portúgals.
Gunnar.
— Andófsmað-
ur fær dóm
Framhald af bls. 1
hlutaðist til um að þyrmt yrði lífi
sovézka skrifstofumannsins Ana-
toly Filato^ sem hefur verið
dæmdur til dauða fyrir njósnir í
þágu erlends ríkis.
Sakharov sagði fréttamönnum
að hann teldi að dauðadómar ættu
ekki rétt á sér á friðartímum þótt
það eina sem hann vissi um mál
Filatovs væri það sem hann hefði
lesið í blöðum.
Hann sagði í orðsendingunni til
Brezhnevs að hann vonaði að
Æðsta ráðið beitti rétti sínum til
náðunar svo að lífi Filatovs yrði
þyrmt.
framhaldsnáms, sem þau ekki geta
stundað í heimabyggð sinni.
Forgang um styrk úr sjóðnum
að öðru jöfnu hafa:
I. Ungmenni, sem misst hafa
fyrirvinnu sína, föður eða
móður, og einstæðar mæður.
II. Konur meðan ekki er fullt
jafnrétti launa.
III. Ef ekki berast umsóknir frá
Vestfjörðum, koma eftir sömu
reglum Vestfirðingar búsettir
annarsstaðar.
Félagssvæði Vestfirðingafélags-
ins er Isafjörður, ísafjarðarsýslur,
Strandasýsla og Barðastrandar-
sýsla (eða allir Vestfirðir.)
Umsóknir þurfa að berast fyrir
lok júlímánaðar og skulu með-
mæli fylgja umsókn frá viðkom-
andi skólastjóra eða öðrum, sem
þekkir umsækjanda, efni hans og
aðstæður.
Umsóknir skal senda til „Menn-
ingarsjóðs vestfirskrar æsku“ c/o
Sigríður Valdemarsdóttir, Birki-
mel 8 B, Reykjavík.
Á síðasta ári voru veittar úr
sjóðnum kr. 220 þúsund til 5
ungmenna, allra búsettra á Vest-
fjörðum.
Vegna veikinda formanns Vest-
firðingafélagsins, sem lá á sjúkra-
húsi fleiri mánuði, var lítið um
skemmtanir síðastliðinn vetur, en
vonast er til að úr því rætist með
haustinu.
Stjórnin.
(Fréttatilkynning)
Ný götunöfn:
Grandar
BYGGINGANEFND Reykjavíkur
samþykkti á fundi sínum nýlega
ný götunöfn við Eiðsgranda í stað
áður samþykktra nafna, sem
óánægja var með. Er það undan-
skilin Flyðrugrandi, sem heldur
sinu nafni.
Götunöfnin eru: Álagrandi,
Boðagrandi, Fjörugrandi, Grófar-
grandi, Hólmagrandi, Keilugrandi,
Klettagrandi, Rekagrandi, Seilu-
grandi, Skeljagrandi, Selagrandi,
Þaragrandi, Öldugrandi, Ægis-
grandi.
Borgarstjórn:
Nefndar-
kjöri lokið
BORGARSTJÓRN hefur nú lokið
kjöri í þær trúnaðarstöður á
vegum borgarinnar, sem áður
hafði verið frestað.
Varamenn í skipulagsnefndi
Gunnar H. Gunn'arsson (Abl),
Finnur Birgisson (A), Helgi
Hjalmarsson (F), Ólafur B. Thors
(S) og Magnús Jensson (S).
Veiði- og fiskiræktarráði
Kristján Gíslason (Abl), Hákon
Aðalsteinsson (Abl), Eggert Þor-
steinsson (A) formaður, Garðar
Þorsteinsson (F), Haukur Pálma-
son (S), Davíð Oddsson (S) og
Ragnar Júlíusson (S).
Varamenn: Guðmundur Þ. Jónsson
(Abl), Álfheiður Ingadóttir (Abl),
Hörður Óskarsson (A), Ólafur
Karlsson (F), Guðni Jónsson (S),
Ingvi Hrafn Jónsson (S) og Ólafur
Jensson (S).
Sparisjóðurinn Pundið.
Stjórnarmaður: Guðmundur
Þorláksson (F).
Endurskoðendur: Þorsteinn
Sveinsson (A) og Magnús Hregg-
viðsson (S).
Varamenn í stjórn
Borgarbókasafnsi
Sigrún Klara Hannesdóttir
(Abl), Sigurður Helgason (A),
Áslaug Brynjólfsdóttir (F),
Haraldur Blöndal (S) og Linda Rós
Michaelsdóttir (S).
Nixon hcfur tekið gagnrýninni á bók sína með mestu rósemd og látið hana sem vind um eyrun þjóta.
„Kaupið ekki bæk-
ur eftir skúrka”
Endurminningar Nixons fá misjafnar viðtökur
í bókaverzlun einni í Santa
Cruz borg f Kaliforníu í Banda-
ríkjunum hangir skilti yfir
háum stafla af óseldum eintök-
um af bókinni „RN. Endur-
minningar Richard Nixons“. Á
skiltið er letrað „Verð nú
aðeins einn dollar og 69 sent
pundið“. Sé eigandi verzlunar-
innar spurður hvers vegna
hann sé að selja bók, sem
upphaflcga kostaði tæpa 20
dollara á útsöluverði, er hann
vís til að svara. „Þetta er verið
á nautakjöti þessa dagana. Ef
bækurnar fara ekki að seljast
er ég nauðbeygður til að lækka
verið í 69 sent pundið, eða sama
verð og er á kjúklingum.
í annarri bókaverzlun í Kali-
forníu, þar sem birgðirnar af
„RN“ eru engu minni, er skilti
sem á stendur: „Hér hvílir
Richard Nixon — Fæddur 1913
— Dáinn $19.95.“
I Los Angeles stendur tauga-
óstyrkur afgreiðslumaður vörð
um háa stafla af bók forsetans
fyrrverandi. „Sumir hafa skeytt
skapi sínu á bókunum," sagði
afgreiðslumaðurinn. „Einn við-
skiptavina okkar hljóp að
stafalanum og sparkaði af öllu
afli í hann. Hann sagðist vera
orðin þreyttur á að heyra um
„þekkt illmenni" sem græddu of
fjár á Watergate-málinu."
Já, enn á ný er það Nixon, sem
á undir högg að sækja. Útgef-
endur bókar Nixons, Grosset &
Dunlap, halda því fram að „RN“
seljist vel þegar á heildina sé
litið, en í Kaliforníu er almenn
óánægja ríkjandi yfir því að
útlaginn frá San Clemente skuli
græða jafn mikið á bókinni og
raun ber vitni. Nixon hefur
þegar fengið greidda 700,000
dali fyrir bókina (um 182
milljónir króna), en búizt er við
að gróði hans af bókinni verði
jafnvirði 520 milljóna króna,
þegar öll kurl verða. komin til
grafar.
Eins og fyrr sagöi eru ekki
allir jafnhrifnir af því að Nixon
skuli fá morð fjár fyrir skrif sín.
Tveir ungir Bandaríkjamenn,
Tom Flanigan og Bill Boleyn,
hafa þess vegna hafið herferð
gegn því að almer.ningur kaupi
„RN“. Þeir hafa með auglýsing-
um í dagblöðum, hvatt fólk til
að kaupa ekki bókina, auk þess
sem þeir hafa látið prenta
slagorð gegn „RN“ á boli og selt
slíka boli í þúsunda tali. Enn-
framur hafa tvímenningarnir
látið prenta veggspjöld og lím-
miða til að líma á bifreiðir og
getur á þessum miðum að líta
mörg mismunandi vígorð.
„Bókinni lýkur hér“, segir eitt
slagorðið. Á einn mesta selda
bolinn er letrað „Þurrkið út
minningarnar". Boleyn og
Flanigan hafa auðvitað ekki
látið sitt eftir liggja í barátt-
unni gegn „RN“ og nýlega
mættu þeir á ársfund banda-
rískra bókaútgefenda, íklæddir
bolum, sem á stóð „Kaupið ekki
bækur eftir skúrka“, en undir
því slagorði hefur barátta þeirra
félaga verið háð.
„Við höfum svo sannarlega
engan áhuga á að græða fé á
þessu,“ sagði Flanigan. „Gróð-
anum, ef einhver verður, verður
öllum varið í baráttuna gegn
bók Nixons." Það er heldur ekki
markmið tvímenninganna að
banna almenningi að lesa „RN“,
heldur aðeins að fá fólk til að
kaupa ekki bókina. „Lesendur
geta fengið bókina lánaða á
bókasöfnun, eða beðið í nokkra
mánuði eftir því að bókin fari á
útsölur. Þetta er engin bóka-
brenna."
Harold Roth, forstjóri
Grosset & Dunlap, er ekki alveg
á sama máli og þeir Flanigan og
Boleyn. „Þetta er ritskoðun, eða
að minnsta kosti tilraun til
ritskoðunar. Sumt fólk svífst
einskis til að rægja Richard
Nixon." Roth sagði að rúmlega
150.000 eintök af bókinni hefðu
verið pöntuð, en hann vildi lítið
segja um hversu mörg eintök
yrðu pöntuð eftir það. Margar
verzlanir hafa tilkynnt að „RN“
hreyfist lítið sem ekkert úr stað,
og sums staðar hefur bókin
verið seld á hálfvirði.
Þeir sem líta svo á að „Nixon
sé smánarblettur á lýðræðinu"
urðu enn hatrammari í afstöðu
sinni gagnvart honum, er það
vitnaðist að mikill hluti bóka-
gróðans fer í að standa straum
af málaferlum Nixons. Málaferli 1
þessi eru við dagblöð og ýmiss
konar útgáfuaðila í Banda-
ríkjunum og eru til komin vegna
950 segulbandsspólna og skjala-
safns forsetans fyrrverandi.
Segulbandsspólurnar eru þær
hinar sömu og urðu Nixon að
falli, en efni þeirra fæstra hefur
enn komið fyrir sjónir almenn-
ings. Nú mun vera í bígerð að
gefa út úrval samtala Nixons við
aðra starfsmenn Hvíta hússins,
en talið er víst að á spólunum
komi fram að Nixon fari víða í
bók sinni með rangt mál. Það er
því mikils virði fyrir Nixon að
þetta úrval verði ekki gefið út
fyrr en vinsældir bókar hans eru
farnar að dala. I því skyni hefur
hann varið jafnvirði um 103
milljóna króna í málaferli sín,
enda er hann þess fullviss að
hann muni endurheimta það fé
í formi aukinnar sölu á „RN“.
Nixon sjálfur studdist ekki við
spólurnar 950 eða önnur gögn
frá forsetatíð sinni, er hann
samdi „RN“. Hann varð að
treysta minni sínu í einu og öllu,
en einnig var Henry Kissinger
honum mjög innan handar við
skrif bókarinnar.
Dómur gagnrýnenda um bók
Nixons virðist ekki angra hann
mikið. Víðast hvar hefur bókin
fengið slæma dóma, og sé vægt
tekið til orða er bókin, að mati
gagnrýnenda, „leiðinleg". Nixon
er farinn að sjást oftar en áður
opinberlega, en hann hefur
undanfarin fjögur ár haldið að
mestu kyrru fyrir í San
Clemente.
í veizlu, sem nýverið var
haldin Nixon til heiðurs, sagði
hann að hann vonaði „að bókin
félli almenningi vel í geð, hann
væri hvað sem öðru liði ánægður
með hana.“
— Skilaboð
Framhald aí bls. 1
jafntefli og egg geti merkt að
honum sé ráðlagt að leika
riddaranum strax á tiltekinn
reit og svo framvegis.
„Möguleikarnir eru endalaus-
ir,“ segir í bréfinu með mót-
mælunum sem
Korchnoi-nefndin sendi Schmid
yfirdómara.
Korchnoi-nefndin segir að
samkvæmt reglum Alþjóða-
skáksambandsins (FIDE) sé
bannað að senda keppendum
matvæli, föt eða aukabúnað
meðan á skák stendur og
slíkum alvarlegum brotum sé
reglum FIDE er mótmælt
harðlega.
Schmid er beðinn um að sjá
til þess að engin frekari brot af
þessu tagi eigi sér stað í
einvíginu. Bréfið undirritar
Petra Leeuwerick, formaður
Korchnoi-nefndarinnar. Afrit
af því var afhent Viktori
Vaturisky, formanni nefndar
Karpovs.