Morgunblaðið - 21.07.1978, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1978
MINNING — ARNI
ÓLAFVR PÁLSSON
Fa-ddur 12. nóvombcr 1898
Dáinn 14. júlí 1978
1>Ú hafúir öllum hreinni reikninxsskil.
í heimi þinum Kekk þér allt i vil.
I>ú hirtir lítt um höfðinKsnafn ag auð.
þvi hÓKværð þinni na vði dattleKt brauð.
<b.St.)
Árni Ólafur Pálsson var fæddur
12. nóvember 1898 hér í Reykjavík.
Foreldrar hans voru Guðlaug
Áiíústa Lúðvíksdóttir og Páll
Hafliðason skipstjóri frá Gufunesi
í Mosfellssveit. Árni ólst upp í
stórum og glaðværum systkina-
hópi við kjör aldamótanna. Nú eru
aðeins eftir á lífi tveir bræður
Árna, Hannes og Guðbjörn, ásamt
Ágústu Björnsdóttur, fóstursystur
þeirra systkina.
Árni varð því að byrja snemma
að vinna fyrir sér, sem var þörf á
þeim árum. Hann byrjaði snemma
að stunda sjó, fyrst á vélbáti og
síðan á togurum. Þá voru engin
vökulög, þá unnu menn meðan þeir
gátu staðið. Þá var unnið fyrir
kaupinu sínu, enda var Árni
verklaginn og fylginn sér að
hverju sem hann gekk.
Ekki varð sjómennskan samt
ævistarf hans. Hann gerðist
snemma bifreiðastjóri, fyrst á
vörubíl og síðan hjá Strætisvögn-
um Reykjavíkur um 12 ára skeið.
Mörgum kenndi hann að aka
bifreið, enda var hann með elstu
bifreiðastjórum þessa lands. Einn-
ig ók hann hjá Bifreiðastöð
Reykjavíkur á sínum eigin bíl um
áraraðir. Öll þessi störf vann Árni
með trúmennsku, glaðværð og
sérstakri lipurð. Þeir eru margir
farþegarnir, sem hann hefur flutt
á áfangastað og veit ég, að það eru
margir sem kannast við kallnúm-
erið 2 af stöðinni. Og veit ég að
margir minnast hans með þakk-
læti og hlýju fyrir hans gæfuríku
störf og þá lipurð sem var honum
svo meðfædd. Árni var mikill
gæfumaður, enda er hver sinnar
gæfu smiður.
1. september 1923 opinberuðu
trúlofun sína Árni og eftirlifandi
kona hans, Kristín Jóhannesdóttir
og giftu þau sig 26. júlí 1924. Lifðu
þau saman í því gæfuríkasta
hjónabandi sem ég hef nokkurn
tíma kynnst, bar þar eigi skugga
á. Það má segja að sambúð þeirra
hafi verið einn sólskinsdagur. Svo
samtaka voru þau að uppfylla
óskir hvors annars á öllum sviðum
að slíkt er alveg einsdæmi.
Kristín og Árni eignuðust þrjú
mannvænleg börn: Jóhannes, bú-
settan í Garðabæ; Maríu, búsetta
í Reykjavík, og Ólaf Helga, fæddan
17. október 1930. Hann lést 30.
október 1932, aðeins 2 ára að aldri.
Má nærri geta um þá sorg að verða
að sjá af svo gjörvilegum sveini
sem hann var. En þau báru þá sorg
saman, samtaka sem fyrr.
Það er táknrænt þegar Árni
hverfur yfir móðuna miklu, þá
hefur hann við brjóst sér lítinn
dreng og veit ég að það er honum
Ijúft því hann var mjög barngóður
maður. Kristín og Árni eiga 8
barnabörn og 10 barnabarnabörn.
Heimili þeirra hjóna hefur verið
rómað fyrir glæsibrag og dýrðleg-
ast af öllu var hvað þau voru
Eíginmaöur minn,
andaöist 19. júlf.
t
LUDVIG STORR
Aöalrœöitmaöur,
Svava Storr.
samtaka að taka vel á móti öllum
þeim mörgu, sem heimsóttu þau.
Enda lifði Árni fyrir heimili sitt
og fjölskyldu og lagði allt gott til
allra mála.
Fyrir 16 árum veiktist Árni af
hjartasjúkdómi og gekk þvi ekki
heill til skógar. Aldrei heyrði ég
hann þó kvarta, hann bar þau
veikindi alltaf sem heill væri, var
kátur og hress og tilbúinn að rétta
fjölskyldunni hjálparhönd hvenær
sem var.
Um leið og ég lýk þessum
fátæklegu línum mínum, þakka ég
Árna fyrir dýrðlegar samveru-
stundir og við vitum að einhvern
tíma verða endurfundir. Kristinu
og fjölskyldunni allri votta ég
mína fyllstu samúð.
Guð blessi ykkur öll.
Gunnar Bjarnason.
Frásagnir stjórnenda Hafsteins
miðils stefndu yfirleitt í þá átt, að
lífið að loknu þessu virtist fram-
liðnum mönnum furðu líkt lífinu
hér á jörðunni.
Mismunurinn er mikilvægur.
Líkaminn í öðru lífi er annars
eðlis en hinn jarðneski.
Þess vegna hefur hann aðrar
þarfir. Við þurfum ekki að hafa
sams konar áhyggjur af honum og
jarðneskum líkama.
En umhverfið er ákaflega líkt og
hér. Fegurðarmismunurinn meiri
en hér. Loft er þar, land og vötn.
Sálarlífið samskonar.
Þar er gleði og sorg, nautnir og
hrellingar. Nautnirnar ef til vill
göfugri, meðvitundin um kærleik-
ann í alheimi. Heimur framliðinna
er æðri en sá er við byggjum. En
þroskinn er líka mikilvægur,
undirbúningurinn undir vista-
skiptin er mikilvægur.
Sálarrannsóknafélag íslands
var stofnað 19. des. 1918, en á
undan hafði engill dauðans farið
um Reykjavíkurborg. Margir
höfðu lent í þungum hörmungum,
en sú allra þyngsta var að sjá á
eftir ástvinum sínum yfir á landið,
sem, nú sextíu árum síðar, margur
veit því miður of lítið um, enginn
auður er dýrmætari en vissan um
ósýnilegan heim og framhald
lífsins að loknu þessu.
Árni Ólafur Pálsson var fæddur
í Reykjavík 12. nóv. 1898 en var
skyndilega kallaður til þjónustu
annarrar veraldar 14. júlí s.l.
Árni var mjög minnugur á
viðburði er gerðust hér í borg allt
frá upphafi þessarar aldar, sagði
frá þeim viðburðum á mjög
sérstæðan og skemmtilegan hátt.
Fáir þekktu Reykjavík betur en
hann. Hann sá hana vaxa úr bæ
í borg. Hann mundi vel er byggðin
náði aðeins vestur að Ánanaust-
um, þó nokkra byggð í Holtunum,
Skuggahverfið, nokkurn hluta
Hverfisgötu inn að Vatnsstíg,
Laugaveginn inn að Barónsstíg og
Grettisgötuna. Hann mundi að
Verzlun Geirs Zoéga neðst í
Vesturgötunni var vestasta verzl-
unarhúsið í bænum, en Verzlun
Jóns Þórðarsonar hin eina austan
Lækjar.
Foreldrar Árna voru merkis-
hjónin Páll skipstjóri f. 1857, d.
1937. Hafliðasonar bónda í Gufu-
nesi Hannessonar og Guðlaug
Ágústa f. 1876, d. 1962. Lúðvíks-
sonar steinsmiðs í Reykjavík
Alexíussonar. Árni var vel ættað-
ur í báðar ættir, svo ekki er ástæða
til að rekja þær hér, enda
borgarbúum kunnar.
Hann ólst upp í foreldrahúsum
og hlaut ágætt uppeldi, vandist
ýmiss konar vinnu og naut þeirrar
menntunar sem kostur var.
Árið 1924 kvæntist Árni, gekk
að eiga Kristínu Jóhannesdóttur
trésmiðs ■ í Kvöldúlfi Jónssonar
bónda að Indriðastöðum í Skorra-
dal Jónssonar frá Deildartungu.
Áttu þau Árni sér hið fegursta
heimili að Hringbraut 39 og
eignuðust 3 börn, tvo sonu og eina
dóttur, annar sonurinn dó barn að
aldri, en hin eru merkir og nýtir
þjóðfélagsþegnar og eiga fjölda
afkomenda. Árni þakkaði það
mjög konu sinni, börnum og
barnabörnum hve vel honum
entist andlegur þróttur og bjart-
sýni til hins síðasta.
Foreldrar mínir, Hjördís og ég
sendum Kristínu föðursystur
minni, börnum, barnabörnum,
barnabarnabörnum, og tengda-
börnum okkar dýpstu samúðar-
kveðjur, og Árna biðjum við
blessunar í nýjum heimkynnum.
Helgi Vigfússon.
Steinunn Thorsteins-
son Ijósmyndari látin
Látin er í Reykjavík Steinunn
Thorsteinsson ljósmyndari. Stein-
unn var fædd í Reykjavík hinn
15. nóvember árið 1886. dóttir
Steingríms Thorsteinssonar
+
Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
ÁRNI ÓLAFUR PÁLSSON,
Hringbraut 39,
veröur jarösunginn í dag föstudaginn 21. júlí frá Dómkirkjunni.
Kriatín Jóhannesdóttir, Guðrún Sveínjóndóttir,
Jóhannes Árnason, Gunnar Bjarnason
María Árnadóttir,
og barnabörn.
+
Eiginmaöur minn, sonur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
JÓN TRAUSTI SIGURJÓNSSON,
Orafnargötu 17, Flateyri,
veröur jarösunginn í Grímseyjarkirkju mánudaginn 24. júlí kl. 4.
Sigríöur Sigursteinsdóttir,
Guórún Valdimarsdóttir,
Reynir Traustason, Halldóra Jónsdóttir
Halldór V. Traustason,
Þorsteínn Traustason,
Þórir Traustason,
og barnabörn.
skálds og Guðríðar
Thorsteinsson.
Steinunn Thorsteinsson lærði
Ijósmyndun hjá Pétri Brynjólfs-
syni og starfaði við ljósmyndun
allt til ársins 1955. Sigríður Zoéga,
sem einnig hafði lært hjá Pétri
+ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og vinarhug viö andlát og jarðarför fööur míns, KARLS Á. TORFASONAR, fyrrverandi aðalbókara, Einimel 19. Bjarnþór Karlsson. + STEINUNN THORSTEINSSON, Ijósmyndari, veröur jarösungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 21. júlí kl. 3 e.h. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Barnasþítalasjóö Hringsins. Þórunn Thostrup Axel Thorsteinsson Bryndís Jónsdóttir Snœbjörn Jónasson
+
Alúöarþakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu viö andlát og jaröarför
eiginmanns míns og föður,
TOBÍASAR TRYGGVASONAR,
Hafnargötu 48,
Keflavík.
Hafdís Svavarsdóttír,
Kolbrún Tobíasdóttir,
Magnús Tobiasacn.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför fööur míns,
tengdafööur, afa og langafa,
SIGURDAR GÍSLASONAR,
fyrrverandi skipstjóra.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu fyrir góöa umönnun.
Edda Sigurðardóttir, Grétar Strange,
barnabörn og barnabarnabarn.
Brynjólfssyni, keypti af honum
stofuna er hann hætti rekstri
hennar og rak hana undir nafninu
Sigríður Zoéga og Co eftir að
Steinunn Thorsteinsson keypti
hlut í stofunni árið 1915 og ráku
þær hana saman upp frá því.
Störfuðu þær við ljósmyndun til
ársins 1955 en fóru þá að starfa við
Ijósprentun á teikningum o.fl.
Steinunn Thorsteinsson var ógift.
Útför Steinunnar Thorsteinsson
verður gerð frá Dómkirkjunni í
dag, föstudag, kl. 15.
+
Minningarathöfn um elsku drengina okkar,
STEFÁN ÆGISSON,
SÍMON HILMARSSON,
EGIL ANTONSSON,
GUNNARJÓNSSON,
sem fórusf 17. júní sl. fer fram í Dalvíkurkirkju, sunnudaginn 23. júlí kl. 2
e.h.
Blóm og kransar afbeönir en þeim, sem vilja minnast hinna látnu, er bent
á Björgunarsveit Slysavarnadeildanna á Dalvík. ✓
Alma Stefánsdóttir,
Guðrún Benediktsdóttir,
Halla Jónaadóttir,
Hekla Tryggvadóttir,
Ægir Þorvaldason,
Stefén ArnÞórsson,
Anton Angantýsson,
Jón Jónsson.
+ Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför móöur okkar.
tengdamóður og ömmu,
ÖNNU TEITSDÓTTUR,
Bakka í Víðidal.
Sérstakar þakkir færum viö laeknum og hjúkrunarliöi Sjúkrahússins á
Hvammstanga, fyrir ágæta hjúkrun.
Ingibjörg Gunnlaugadóttir, Árni Helgason,
Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Reynir ívarsson,
Björn T. Gunnlaugsson, Helga Ágústsdóttir,
Jóhannes Gunnlaugsson, Aðalheiður Gunnleugsdóttir,
Elisabet Gunnlaugsdóttir, Egill Guðmundsson,
Egill Gunnlaugsson, Erla Vignisdóttir,
Ragnar Gunnlaugaaon, Sigurlaug Ingvarsdóttir
og barnabörn.