Morgunblaðið - 15.08.1978, Blaðsíða 1
36 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
174. tbl. 65. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Kuo-feng
í utanferð
Peking, 14. ágúst. Reuter.
FORMAÐUR kínverska
kommúnistaflokksins. Hua
Kuo-feng. lagði í dag upp í
ferð til Rúmcníu. Júgóslavíu
og íran að sögn fréttastofunn-
ar Nýja Kína. Er þetta fyrsta
utanferð flokksformanns í
vesturátt síðan Mao formaður
fór til Moskvu á sjötta ára-
tugnum. Það kom á óvart að
Hua skyldi ráðgera ferð til
íran, en viðbúið var hins
vegar að hann vitjaði hinna
landanna beggja, sem kunn
eru af sjáifstæðri stefnu sinni
gagnvart Sovétríkjunum. Að-
stoðarutann'kisráðherra
landsins, Chi Teng kuei er
með í förinni.
Nobre da Costa (t.h.) ásamt Mario
Soares.
Da Costa segist
óháður Soares
Lissabon, 14. ágúst. Reuter.
AP.
IÐJUIIÖLDURINN Alfredo
Nohre da Costa. sem Eanes
Portúgalsforseti útnefndi til að
hafa forgöngu um myndun ríkis-
stjórnar. sagði í kvöld að hann
myndi ljúka a'tlunarverki sínu
með eða án þátttöku jafnaðar-
manna. Jafnaðarmannaflokkur
Búsetu
frestad
Jerúsalem, Kairó,
14. ágúst. AP. Reuter.
Soaresar hefur stjórnað landinu
síðastliðin tvö ár.
Da Costa lét orð þessi falla eftir
fund sinn með Eanes forseta.
Andstaða jafnaðarmanna, sem
þvertekið hafa fyrir aðild flokks-
ins að stjórn da Costas, hefur verið
talin helzta ljónið í vegi óflokks-
bundinnar stjórnar. Leiðtogi mið-
demókrata, do Amaral, sagðist í
dag ekki eygja neina nærtæka
lausn á stjórnarkreppunni. Jafn-
aðarmenn gerðu í dag út sendi-
nefnd á fund Nobre de Costas og
sagði Campinos forntaður hennar
eftir á að stuðningur jafnaðar-
manna væri háður málefnasamn-
ingi þeim, er stjórn da Costas
myndi leggja fyrir þingið síðar.
• •
Oryggisvörður
aukinn í Beirut
Iti irill. 11. áKÚst. l!(LUtiLr. Al’.
YFIRSTJÓRN hersvcita Palestínu-
manna herti stórlega öryggiseftir-
lit í Beirut daginn eftir að meira en
160 manns létu lífið f sprengingu til
höfuðs róttækum skæruliðahópi.
Sprengingin lagði átta hæða hús í
rúst, þar sem aðsetur hafði yfir-
stjórn Frelsishreyfingar Palestínu
(PLF). Hreyfing þessi er vinveitt
nágrannaríkinu írak og hefur átt í
hatrömmum deilum við liðsveitir
Yasser Arafats.
Hersveitir, vopnaðar rifflum af
Kalashnikovgerð, tóku sér stöðu við
allar skrifstofur yfirmanna Frelsis-
hreyfingarinnar. Persónuskilríkj a
var krafizt af ókunnugum og gæzlu-
sveitir sendar til hverfa Palestínu-
manna. Palestínsku frelsissamtökin
(PLO) settu í gær á stofn rannsókn-
arnefnd til að kanna upptök og
aðdraganda sprengingarinnar og er
talið að bið kunni að verða á
niðurstöðum.
Engin ein herdeild hefur til þessa
gengizt við verknaðinum, en Alþýðu-
fylkingin til frelsis Palestínu, (PFLP)
sem hlynnt er Sýrlendingum, hefur
eindregið neitað að hafa átt minnstu
aðild að. Talsmenn Frelsishreyfing-
arinnar tilkynntu í gær aö þeir
skelltu ekki skuldinni á neinn
einstakan hóp Palestínumanna en
efuðust ekki að um væri að ræða
óvildarmenn palestínsku byltingar-
innar. í viðtali, sem fréttastofan
Associated Press átti við yfirmann
herstjórnar Frelsishreyfingarinnar,
Abul Abbas á sunnudag, gaf foring-
inn hins vegar í skyn að Alþýðufylk-
ingin kynni að eiga hlut að máli.
Hann ítrekaði að hreyfing sín myndi
aldrei grípa til vopna gegn „pale-
stínskum bræðrum." „Við berjumst
aðeins í sjálfsvörn" sagði hann.
Utvarpsstöðin „Rödd Líbanons" end-
urtók í gær viðvörun Yasser Arafats
i þá veru að „sá suðandi rymtur, sem
á kreiki væri um sökudólgana, væri
til þess eins ætlaður að ala á
sundrungu meðal byltingarsveita
Palestínumanna."
Þrátt fyrir að sprengingin yrði
mörgum yfirmönnum Frelsishreyf-
ingarinnar að fjörtjóni, voru flest
fórnarlambanna óbreyttir borgarar,
þar á meðal 22 börn, að því er síðast
spurðist.
ÍSRAELSMENN ákváðu í dag
að fresta ráðagerð um fimm
nýja bústaði Gyðinga á her-
numdu svæði Jórdandals þar til
eftir næsta stórfund þeirra með
Sadat og Carter í Bandaríkjun-
um í næsta mánuði.
Ákvörðunin, sem snertir fimm
landskika á vesturbakka Jórdan-
ár, er ósigur fyrir Ariel Sharon,
landbúnaðarráðherra landsins.
Talið er að aðstoðarforsætisráð-
herrann, Yigael Yadin, hafi átt
verulegan þátt í hvernig fundi
ríkisstþórnarinnar lyktaði.
Símamynd AP
Frá útfararguðsþjónustu Páls páfa á laugardag. Fyrirsvarsmaður kardínála, Carlo Confalonieri flytur
ræðu yfir fábrotinni kistu páfa í basilíku Sankti Péturs. Sjá einnig bls. 34.
Stærsta yísindaafrek
mannkyns í burðarlið?
Princeton, Washington,
14. ágúst. AP. Reuter.
„ÞAÐ ERU ekki þáttaskil hcldur
aðeins mikilvægt skref, sem stað-
festir fyrri spár“ var haft eítir
talsmanni bandaríska orkumála-
ráðuneytisins. er spurðist að banda-
rískum vísindamönnum við Prince-
ton-háskóla hefði nýlega tekizt að
hita vetni í 26 milljón stig á
rannsóknastofu.
Að sögn fréttastofu Reuters tókst
vísindamönnunum að framleiða 60
milljón stiga hita, fjórfaldan þann
hita, sem talinn er vera í kjarna
sólar, en þetta hefur talsmaður
rannsóknastofunnar ekki viljað stað-
festa.
Vísindamenn hafa nú um áratuga
bil reynt að finna leið til að stjórna
kjarasamruna og leysa þannig úr
læðingi orku líkt og gerist í kjarna
sólar eða þegar sprengd er vetnis-
sprengja. Hefur löngum verið vitað
að með þessum hætti má framleiða
mun meiri orku en með kjarnaklofn-
un. Vandamálið hefur hins vegar
ætíð verið að finna leið til að hafa
hemil á samrunanum.
Stjórn kjarnasamruna
_________eftir áratug__________
Anthony Demeo, talsmaður rann-
sóknastofu í vökvaeðlisfræði við
Princeton-háskóla, skýrði frá því um
helgina að vísindamönnum þar hefði
tekizt að hita vetni eins og áður segir
um 26 milljón gráður sem hlýtur að
teljast meiri háttar framför með
tilliti til raforkuframleiðslu. Kom
fram hjá honum að búast mætti við
að vísindamönnum tækist að hafa
stjórn á kjarnasamruna eftir áratug
eða svo „vissulega við lok aldarinn-
ar“. E.t.v. sagði hann „yrði það
mesta vísindaafrek mannkyns, þar
sem það myndi opna okkuCötæman-
lega orkulind".
Efni breytt í orku
Við kjarnasamruna tengjast
kjarnar tveggja atóma og mynda
þriðja þyngra atóm. Atómin tvö eru
hituð við gífurlegt hitastig, þar til
árekstrar verða sem á endanum leiða
til þess að þau falla sundur. Losnar
við það hin mikla orka, sem áður hélt
atómunum saman við það að atóm-
efnið leysist upp í orku. Er það
einmitt þessi tegund orku, sem
vísindamenn hafa reynt að hafa
stjórn á.
Einkum eru það tveir þættir, sem
örðugt hefur verið að stjórna, en það
eru þéttleiki efnisins og tíminn, sem
samruninn tekur. Spáði Demeo að
vísindamönnum myndi takast að
fullkomna stjórn á samrunanum í
fulla sekúndu innan fjögurra ára í
krafti útbúnaðar, sem nú er verið að
framleiða.
Upphaflega mun hafa verið hug-
myndin að skýra frá niðurstöðunum
á miðvikudag, en upplýsingar láku út
um helgina, sem ollu því að starfs-
menn rannsóknastofunnar urðu að
leysa frá skjóðunni.