Morgunblaðið - 15.08.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1978
vel á móti Kekkonen
Norrænt vinabæja-
mót í Keflavík
V eðurguðirnir tóku
í DAG hefst í Keflavík norrænt
vinabæjamót og lýkur því á
miðvikudag. Komu gestir mótsins
til landsins síðdegis í gær, en þeir
eru samtals 61 og var þeim komið
fyrir til gistingar í heimahúsum.
Jóhann Einvarðsson bæjarstjóri
sagði í samtali við Mbl. að þetta
væri í annað sinn sem slíkt
vinabæjamót væri haldið í Kefla-
vík, hið fyrra hefði verið fyrir 10
árum, en jafnan væru mót þessi
haldin á tveggja ára fresti, til
skiptis á Norðurlöndunum. Vina-
bæirnir eru: Terava í Finnlandi,
Trollháttan í Svíþjóð, Kristian-
sand í Noregi og Hjörring í
Danmörku.
Á dagskrá í dag er Keflavíkur-
mynd, mynd sem gerð var í tilefni
20 ára afmælis kaupstaðarins fyrir
tveimur árum. Síðan verður farin
skoðunarferð um bæinn. Eftir
hádegi verður haldið um Reykja-
nes og m.a. skoðaðar hitaveitu-
framkvæmdir við Svartsengi. Á
miðvikudaginn verður haldið að
Skálholti, Gullfossi og Geysi og
síðan til Þingvalla þar sem nor-
ræna félagið í Keflavík býður til
kvöldverðar. Sr. Eiríkur J. Eiríks-
son kynnir staðinn fyrir gestum. Á
dagskrá norræna vinabæjamóts-
ins á fimmtudag verður ferð til
Vestmannaeyja, en flogið verður
með vélum Flugleiða í tveimur
hópum frá Keflavíkurflugvelli.
Sagði Jóhann Einvarðsson að bæir
þessir hefðu á sínum tíma gefið til
Vestmannaeyjasöfnunarinnar og
því vildu fulltrúar þeirra gjarna
komast þangaö og að lokinni þeirri
ferð verður lokahóf mótsins haldið
í Keflavík. Á föstudag fara flestir
fulltrúarnir á vinabæjamótinu
heimleiðis nema Finnar, sem
dvelja í nokkra daga í Reykjavík
áður en þeir halda heim. Jóhann
Einvarðsson sagði að 8 fulltrúar
frá hverjum vinabæ sæktu mót
þetta þar af 5 borgarfulltrúar, 1
embættismaður viðkomandi borg-
ar og -2 fulltrúar frá norrænu
félögunum, ásamt mökum.
Jóhann Einvarðsson tekur á móti gestum á Keflavíkurflugveili.
Átta skrýddir hemp-
um á Hólahátíð
Bæ, 14. ágúst.
AÐ VENJU var Hólahátíð haldin
í dásamlegu veðri 13. ágúst. Man
ég ekki eftir að veðurblíða hafi
brugðizt á Hólahátíð. 8 skrýddir
prestar gengu í kirkju með vígslu-
biskupi og fór athöfnin fram eftir
áður auglýstri dagskrá. Hóladóm-
kirkja var í þetta skipti fullskipuð
kirkjugestum. Bæn í kórdyrum
flutti séra Ágúst Sigurðsson á
Mælifelli. Prófastur Skagfirðinga,
séra Gunnar Gíslason, flutti að
venju ágæta ræðu og var grunn-
tónn þar kraftaverk og bróðurhug-
ur.
Kom hann einnig inn á ríkjandi
vandamál þjóðarinnar. Kirkjukór
Sauðárkróks annaðist söng með
ágætum undir stjórn Jóns Björns-
sonar tónskálds. Kom þá bezt í ljós
í síðari dagskrá Hólahátíðar hve
við Skagfirðingar eigum marga
góða söngfugla. Listafólkið frá
Akureyri, Iða, Hjálmar, Sveinn og
Rún vöktu óskipta athygli með
hljóðfæraleik að ógleymdum
Kristjáni frá Djúpalæk, sem hélt
athyglisverða og snjalla ræðu.
Þessi Hólahátíð var mér ógleym-
anleg eins og alltaf áður, en áður
en hún hófst var aðalfundur
Hólafélagsins haldinn. Skipa þar
nú stjórn séra Árni Sigurðsson á
Blönduósi formaður, Margrét
Árnason Hólum, séra Sigfús
Árnason Sauðárkróki, séra Sig-
hvatur Emilsson á Hólum og séra
Gunnar Gíslason í Glaumbæ.
í Lýðháskólanefnd Hóla voru
kjörnir séra Árni, séra Gunnar og
Jóhann Salberg sýslumaður á
Sauðárkróki. I byrjun Hólafélags-
fundar var Snorra heitins Sigfús-
sonar minnzt sem eins mesta
unnanda Hólastaðar. Hátíð þessi
bar sem áður vott um að Hólar og
helgi staðarins eru ennþá grópaðir
í huga fólksins.
— Björn í Bæ.
Um ellefuleytið á sunnudag
lenti einkaílugvél Kekkoncns
Finnlandsforseta á Reykjavík-
urflugvelli í blíðskaparveðri,
cn Kckkoncn er kominn hingað
til laxveiða og mun dveljast
ásamt fylgdarmönnum sfnum
við veiðar f Víðidalsá næstu
vikuna.
Einar Ágústsson utanríkis-
ráðherra tók á móti Kekkonen
og föruneyti á Reykjavíkurflug-
velli og eftir að skipzt hafði
verið á kveðjum héldu þeir til
Bessastaða, þar sem snæddur
var hádegisverður í boði forseta
íslands, en Kekkonen hélt strax
til veiða að honum loknum.
I fylgd með Kekkonen eru
ýmsir embættismenn finnskir
og þeirra á meðal má nefna
Erkki Huurtamo lands-
höfðingja, þingmennina Kauko
Rastas og Uhro Ruola og Pentti
Halonen prófessor.
Meðfylgjandi myndir sem
ljósmyndari Mbl. Ól. K. M. tók,
sýna þá Einar Ágústsson og
Kekkonen á Reykjavíkurflug-
velli, og Kekkonen ásamt for-
setahjónunum fyrir utan
forsetabústaðinn á Bessastöð-
F / A T
sýningarsalur
Sérstakt bílatilboð
Mikiö úrval
af notuöum
nýlegum
bílum.
au<;lysin<;asiminn er:
22480
DAVH) SIGURÐSSON H.F
Síðumúla 35.
Sýningarsalur, sími 85571