Morgunblaðið - 15.08.1978, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1978
15
Gylfi Kristinsson (4. fr. hægri) og Hannes Eyvindsson við hlið spranga um
Hólmsvöll á Leiru á laugardaginn. Rigningin angrar þá ekki hót, enda eru þeir
varðir af regnhlífum. Aðstoðarmenn þeirra gætu verið að biðja um að fá að stinga
sér undir regnhlífarnar, enda virðast þeir vera orðnir nokkuð votir. Sjá nánar um
golfmótið og óvæntan sigur Hannesar í opnu blaðsins. (Ljósm. Friðþjófur)
ÞANNIG ER
KNATTSPYRNAN
LIÐUM FYRSTU deildar gengur misjafnlega sem endranær, hjá sumum gengur
ekkert upp en hjá öðrum gengur allt, þó að þau eigi kannske ekki öll stigin skilin sem
þau hala inn.
FH-ingar voru í markastuöi
gegn Fram um helgina og skoruðu
fjögur mörk, en fram að því hafði
liðið tapað 4 leikjum í röð án þess
að skora eitt einasta mark.
Þróttarar eru nú í bráðri
fallhættu, þó að sæmilega hafi
gengið framan af, en liðið hefur nú
tapað 5 leikjum í röð og önnur
deildin blasir við verði ekki
breyting á. Næstu helgina leika
þeir gegn FH í Kaplakrikavelli og
er þar auðvitað um hálfgerðan
úrslitaleik að ræða þó að enn geti
margt gerst. Það er athyglisvert
að fjórir af fimm tapleikjum
Þróttar hafa tapast með aðeins
einu marki.
Þessu er þveröfugt farið með
ÍBK, sem hefur nú unnið 3 leiki í
röð eftir að hafa gengið afleitlega í
byrjun keppnistímabilsins.
Akurnesingar hafa nú leikið 5
leiki í röð án þess að fá á sig mark.
Þeir hafa á hinn bóginn skorað 17
mörk, þar af Pétur Pétursson 8
stk. og hann hefur nú jafnað
markamet Hermanns Gunnars-
sonar eins og fram hefur komið.
Lið KA er hreinlega sér kapituli.
Úrslit í síðustu 6 leikjum þeirra
hafa litið þannig út: 0—3, 1—0,
0—5, 3-0, 0—1, 0—5! -gg.
PÉTUR
JAFNAÐI
METHER-
MANNS
PÉTUR Pétursson, sá skemmti-
legi knattspyrnumaður frá
Akranesi, skoraði tvö mörk í
leik ÍA og Víkings á laugardag-
inn. Þar með hefur Pétur
skorað 17 mörk í 1. deildinni og
ekkert virðist geta komið í veg
fyrir að hann verði marka-
kóngur 1. dcildar í ár eins og í
fyrra. Með síðara marki sínu í
ieiknum við Víking jafnaði
Pétur markamet Hermanns
Gunnarssonar fréttamanns, cn
það met setti Hermann árið
1973. Þess má geta að Ingvar
Elíasson átti metið áður en
Hermann sló honum við, en það
hefur verið nokkuð á reiki hve
mörg mörk Ingvar skoraði
mest á einu keppnistímabili.
Ingvar er íöðurbróðir Péturs
Péturssonar, þannig að það
virðist liggja í ættinni að vera
snjall við þessa iðju. — áij.
LOKSINS
KOMÞAÐ!
LOKSINS kom að því, að
Sigurður Haraidsson Vals-
markvörður fcngi á sig mark.
Þessi fátíði atburður átti sér
stað. er Valsmenn og Þróttarar
léku í fyrstu deildinni um
__________
helgina.Og á 78 mín. skoraði
miðvörður Þróttar, Jóhann
Hreiðarsson eina mark Þróttar
í lciknum sem þeir töpuðu
1 — 3. Þá hafði Sigurður
Haraldsson staðið í markinu f 8
deildaleiki plús 20 mínútur,
auk þriggja bikarleikja án þess
að fá á sig mark, eða samtals
1095 mínútur sem er afrek sem
fáir markverðir hafa leikið og
munu varla leika oft í fram-
tiðinni. — gg.
KVADDI
HVORKI
KÓNG NÉ
KLERK
VÍKINGAR standa nú uppi
þjálfaralausir. Billy Haydock,
sem verið hefur með Víkingslið-
ið þrjú undanfarin ár, hélt af
Iandi brott á föstudagsmorgun
án þess að kveðja kóng eða
klerk. í leik Víkings og ÍA á
laugardaginn stjórnuðu þeir
Pétur Bjarnason og Hafsteinn
Tómasson Víkingsliðinu, en
óvíst er hver verður með liðið
það sem eftir er keppnistíma-
bilsins. Að öllum líkindum
munu Víkingar fá einhvern
innanfélagsmann til að sjá um
þjálfun liðsins fram á haustið.
Víkingsliðið kom saman til
fundar á föstudagskvöldið til
að leggja síðustu hönd á
undirbúning leiksins við Akra-
nes. Er leikmenn höfðu beðið í
góða stund án þess að þjálfar-
inn birtist fóru þeir heim til
hans til að athuga hvað dveldi.
Þar komu þeir að tómum
kofanum í þess orðs fyllstu
merkingu. Er síðan var haft
samband við Flugleiðir kom í
ljós að Haydock hafði farið til
Glasgow þá um morguninn og
haft allar sínar pjönkur með.
- áij
Leikið
í Eyjum í
vikunni
Keflvíkingar halda til
Eyja í kvöld og leika
gegn heimamönnum í
fyrstu deild íslandsmóts-
ins í knattspyrnu. Leik
þessum var frestað fyrr í
sumar vegna veðurs. A
fimmtudaginn skjótast
síðan Þróttarar til Eyja
og ljúka af sínum frest-
aða leik. Báðir leikirnir
hef jast klukkan 19.00.
Eyjamenn gegn Glen-
toran 5. september
NÚ HEFUR verið gengið frá því, að Vestmanneyingar
leika heimaleik sinn gegn Glentoran á Kópavogsvellinum
þann 5. september.Eyjamen ætluðu sér að reyna að fá
leikinn út í Eyjar, en aðstæður þar féllu ekki
UEFA-mönnum í geð og urðu Eyjantenn því að sætta sig
við Kópavogsvöllinn. Leikur IBV og Glentoran frá
Norður írlandi, sem hefst klukkan 18.00, er fyrsti
Evrópuleikurinn sem fram fer á grasvellinum í
Kópavogi. Síðari leikur liðanna verður í Belfast
fimmtudaginn 14. sept.
„HÖFUM STEFNT
AÐ ÞESSU MARKI
ÍALLT SUMAR"
Sjá bls. 20 og 21.
•--------------------------•
AÐ LOKNUM úrslitaleiknum í
5. flokki hittum við að máli
fyrirliða Vals, Atla Björn
Bragason. og spjölluðum stutt-
lega við hann. Atli Björn var
þreyttur en mjög ánægður með
meistaratitilinn og sigurinn
yfir Keflvíkingum. „Við höfum
stefnt að þessu marki í allt
sumar og vorum staðráðnir í
því að hefna ófara okkar frá
því í úrslitaleikjunum í fyrra
þcgar við töpuðum fyrir Akra-
nesi eftir fjóra úrslitaleiki. Við
erum því himinlifandi ánægðir
með sigurinn í dag. Okkur
hefur gengið mjög vel í mótinu
í sumar. unnum alla leikina í
riðlinum og unnum svo alla
leiki okkar hér í úrslitakeppn-
inni. Keflavík er erfiðasti
mótherjinn sem við höfum
fengið í sumar en KRingar
voru erfiðir í riðlinum.
Atli Björn sagðist hafa byrj-
að að æfa með Val þegar hann
var 9 ára gamall og sagðist
ákveðinn í því að halda áfram í
knattspyrnunni hjá Val. Spurn-
ingunni um það, hverju hann
þakkaði góðan árangur liðsins
í sumar svaraði fyrirliðinni
„Við höfum haft mjög góðan
þjálfara. Inga Björn Alberts-
son, æfingarnar hjá honum
hafa bæði verið góðar og
skemmtilegar. Þá hefur verið
mjög góðu félagsandi hjá
strákunum í liðinu**.
Atli Björn spáði því aðspurð-
ur að Valur myndi sigra hæði í
íslandsmótinu í Bikarkeppn-
inni í ár. Uppáhaldsleikmenn
Atla eru Ingi Björn Albertsson
hér heima og Jóhannes
Eðvaldsson á erlendri grund.
Atli Björn sagðist fylgjast
mjög náið með ensku knatt-
spyrnunni og uppáhaldslið sitt
væri Liverpool.
„Ég vil svo þakka Vestmann-
eyingum fyrir góða fram-
kvæmd á þessari úrslitakeppni.
þetta var mjög gott mót að vel
staðið að öllu“, sagði hinn
viðkunnanlegi fyrirliði Vals,
Atli Björn Bragason. að lokum.
— hkj.
• Atli Björn Bragason fyrir-
liði Vals hampar bikarnum
eftir að Valsmenn höfðu tryggt
sér sigur í úrslitakeppni 5.
flokks.
(Ljósm. Guðlaugur Sigurgeirs-
s.)
• Einar Einarsson fyrirliði Víkinga tekur við íslandsmeistara-
bikarnum úr hendi Jens Sumarliðasonar, að loknum leik Víkings
og KR. (Ljósm. gg.)
„Auðvitað er ég
himinlifandi"
„MÉR FANNST þetta nokkuð jafn leikur. en við áttum sigurinn
skilið og ég er auðvitað himinlifandi með hann“. sagði Einar
Einarsson fyrirliði Víkinga, nýbakaðra íslandsmeistara í 4.
flokki, í stuttu spjalli við Mbl. eftir leikinn á sunnudaginn. Einar,
sem auk þess að vera stórefnilegur fótboltamaður, er með þeim
efnilegri í borðtennis og hefur unnið til verðlauna í
unglingaflokkunum. tjáði Mbl. að æfingasókn hefði verið mjög
góð í sumar hjá Víkingi og töluverður fjöídi frambærilegra stráka
sótt æfingar reglulega. Að lokum viðurkenndi Einar þó. að
leikurinn við KR hefði verið erfiðasti leikurinn sem Víkingar léku
í keppninni. — gg.