Morgunblaðið - 15.08.1978, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1978
25
smáauglýsingar — smáauglýslngar — smáauglýslngar — smáauglýsingar
Brotamálmur
Er flultur aö Ármúla, sími
37033. Kaupi allan brotamálm
langhæsta veröi. Staögreiösla.
Hilmar Foss
lögg. skjalaþýö. og dómt.
Hafnarstræti 11, sími 14824.
Freyjugötu 37, sími 12105.
Til sölu
dieselrafstöðvar 4—40 kílóvött.
Uppl. í síma 19842.
Muniö sérverzlunina
meö ódýran fatnaö.
Verölistinn, Laugarnesvegi 82,
S. 31330.
Brúðuvöggur
Margar stæröir og geröir.
Blindraiön,
Ingólfsstræti 16.
Framkvœmdastjóri
Fjalakötturinn, kvikmynda-
klúbbur framhaldsskólanna
óskar aö ráöa framkvæmda-
stjóra frá og meö 1. september
n.k. Umsóknarfrestur er til 25.
ágúst.
Umsóknir sendist í pósthólf
1347, 121 Reykjavík, eöa skrif-
stofu Stúdentaráös Háskóla
íslands, sem jafnframt veitir
upplýsingar um starfiö.
Skrifstofa S.H.Í. er opin milll kl.
13 og 16 alla virka daga sími
15959.
Atvinna óskast
24 ára gamall maöur, vanur
vélgæslu, góö enskukunnátta.
Upplýsingar í síma 73909. e.h.
Vélritun
Tökum aö okkur vélritun, höfum
IBM kúluvél. Upplýsingar í síma
40018 (María) eöa 42731 (Þuríð-
ur). Geymiö auglýsinguna.
RÓSARKROSSREGLAN
V ATLANTIS PRONAOS
Pósthólf 7072, 107 Reykjavík.
Föstudagur 18. ágúst kl.
20.00
1. Þórsmörk (gist í húsi)
2. Landmannalaugar — Eldgjá
(gist í húsi)
3. Fjallagrasaferð á Hveravelli
og í Þjófadali (gist í húsi)
Fararstjóri: Anna Guömunds-
dóttir.
4. Ferö á Einhyrningsflatir.
Gengiö aö gljúfrum v/Markar-
fljót, og á Þríhyrning o.fl. (gist í
tjöldum).
Fararstjóri: Tryggvi Halldórs-
son.
Feröafélag islands.
Fíladelfía
Almenn samkoma í kvöld kl.
20:30. Biblfuorö Guömundur
Markússon.
18—20 ágúst ferð í Hrafntinnu-
sker og Landmannalaugar.
Uppl. á skrifstofunni Laufásvegi
41, sími 24950.
' . SfMAR.
HRHSÍfUE
ÍSIANBS
OLOUGOTli 3
11798 dg 1953.1
Miövikudagur 16. ágúst.
Kl. 08. Þórsmörk. (Hægt aö
dvelja þar milli feröa).
Feröafélag íslands.
Kristniboðssambandið
Kveöjusamkoma fyrir kristni-
boöana Áslaugu Johnsen og
Jóhannes Ólafsson lækni, sem
eru á förum til Eþíópíu veröur
haldin í húsi KFUM og K viö
Holtaveg annað kvöld (miö-
vikud.) kl. 20.30. Tekið veröur á
móti gjöfum til kristniboösins.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
UTIVISTARFERÐfhi
Út í buskann, nýstárleg ferö um
nýtt svæöi. Fararstjórar Jón og
Einar. Farseölar á skrifstofu
Lækjarg. 61, sími 14606.
Útivist.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Tilkynning frá Stofn-
lánadeild landbúnaöarins
Umsóknir um lán vegna framkvæmda á árinu 1979 skulu hafa borist
Stofnlánadeild landbúnaöarins fyrir 15. september næstkomandi.
Umsókn skal fylgja teikning og nákvæm lýsing á framkvæmdinni, þar
sem meöai annars er tiigreind stærö og byggingarefni.
Ennfremur skal fylgja umsögn héraösráðunautar, skýrsla um
búrekstur og framkvæmdaþörf, svo og veöbókarvottorö.
Eldri umsóknir falla úr gildi 15. september næstkomandi, hafi
deildinni eigi borist skrifleg beiöni um endurnýjun.
Reykjavik, 14. ágúsl 1978
BÚNADARBANKI ÍSLANDS
Stofnlánadeild landbúnaóarins
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 65. 67. og 72. tbl.
Lögbirtingablaðsins 1977 á Byggöavegi
122, Akureyri, þinglýstri eign Hjörleifs
Hallgríms og Steinunnar Ingólfsdóttur, fer
fram á eigninni sjálfri miövikudaginn 23.
ágúst 1978 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri
Óskast til leigu
Óska eftir einbýlishúsi eöa raöhúsi til leigu í
eitt ár frá 1. október n.k. Tilboö leggist inn á
afgreiðslu Morgunblaösins fyrir 20. ágúst
merkt: „Íbúöarhús —7668“.
Lagerhúsnæði óskast
fyrir hreinlega iönaöarvöru frá og meö
næstu áramótum. Stærö 600—800 m2.
Tilboö sendist augl.d. Mbl. merkt: „Lager-
húsnæöi — 3890“.
Vegna endurnýjunar höfum viö
til sölu
Massey Ferguson 50 B traktorsgröfu árg.
‘74.
Bröyt X2B gröfu árg. 1970.
Báöar vélarnar í góöu ástandi.
Jaröorka s.f. S. 32480.
Síöumúla 25, s. 21080.
Utsala — útsala
Útsalan er hafin.
Sólarlandakjólar í fjölbreyttu úrvali.
Dalakofinn
Linnetstíg 1,
Hafnarfiröi.
Fulltrúaráð
Sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík
Stjórnmáfaviöhorfið
Á fundi fulltrúaráös Sjálfstæöisfélaganna í Reykjavík 16. ágúst mun
Geir Hallgrímsson formaöur Sjálfstæöisflokksins flytja framsögu-
ræöu um stjórnmálaviöhorfiö.
Fundurinn veröur haldinn í Valhöll, jaröhæð, Háaleitisbraut 1 og hefst
hann kl. 20.30.
Fulltrúar eru eindregiö hvattir til aö koma, kynna sér stjórrnmálavið-
horfiö og láta álit sitt í Ijós.
Vinsamlegast sýniö fulltrúaráösskírteini við innganginn.
Stjórn full.trúaráðsins.
Ferdamenn í júli:
Fækkun erlendra en
fjölgun íslenzkra
Bókin Viðskipti og
þjónusta komin út
NOKKRU íleiri íerðamenn komu
til landsins í júlímánuði s.l. en í
sama mánuði í fyrra eða 29.644 í
júlí í ár á móti 27.679 í fyrra.
Fjölgaði íslenzkum ferðamönnum
um 2.204 og voru alls f júlí 11.435
cn erlendum fækkaði um 239 og
voru 18.209. Alls hafa komið tii
landsins 87.919 ferðamenn frá
áramótum til 31. júlí, en í fyrra
var fjöldi þeirra 79.020 eða 8.899
færri.
Flestir ferðamenn í júlímánuði,
ef íslenzkir eru undanskildir,
komu frá Vestur-Þýzkalandi eða
4.059, næstflestir frá Bandaríkjun-
um, 3.768, í þriðja sæti er Dan-
mörk með 1.695 og Bretland í
fjórða með 1.429 ferðamenn. 1.393
komu frá Frakklandi, 1.224 frá
Svíþjóð og 1.160 frá Noregi. Frá
nokkrum löndum komu 2 ferða-
menn, t.d. Norður-Kóreu, Indlandi,
Máritaníu og Sómalíu og frá 12
löndum kom einn ferðamaður frá
hverju.
Júníhálfn-
aður að selja
Hafnarfjarðartogarinn Júní
seldi 155 lestir af isuðurn fiski í
Hull í gær fyrir 24 millj. kr.
Meðalverð á kíló var kr. 161. Þetta
var aðeins helmingur afla Júní, og
í dag lýkur togarinn við að selja og
selur þá líklega um 180 lestir. Sá
hluti aflans er nýrri og því búizt
við hærra meðalverði fyrir hann.
Árblik h.f. hefur sent frá sér
viðskiptabók, sem ber nafnið
„Viðskipti og þjónusta“i
Uppsláttarbók fyrir heimili,
fyrirtæki og stofnanir.
Bókin hefur að geyma upplýs-
ingar um nærri 10.000 fyrirtæki,
félög, stofanir og einkasamtök á
Islandi, en gatnakort gefa til
kynna hvar aðsetur þeirra er.
Einnig eru í bókinni starfsgreina-
skrá, skrá yfir útflytjendur og
innflytjendur, íslenzk sendiráð og
ræðismannsskrifstofur erlendis,
telexskrá, umboðaskrá, sem er sú
ítarlegasta hérlendis að því er
segir í fréttatilkynningu frá
Árbliki h.f., ennfremur fylgir
söluskattsnúmeraskrá ásarnt
nafnnúmerum.
Bókin Viðskipti og þjónusta er
hátt í 800 blaðsíður að stærð.
Ritstjóri bókarinnar er Jón Arnar
Pálmason.
Aflinn úr
Ólafi Bekk
í SAMTALI í Mbl. s.l. laugardag
við Svein Guðmundsson verk-
stjóra í frystihúsi Magnúsar
Gamalíelssonar á Ólafsfirði, var
sagt að 50 tonn af 190 tonna afla
togarans Ólafs Bekks hafi verið
sett í gúanó. Sú staðhæfing var
ekki frá Sveini komin, en rétt er
að 17 tonn af afla togarans voru
dæmd frá vinnslu í frystingu. í
umræddri frétt var fjallað um
nokkra togara sem lentu í
vandræðum með hlut af afla
sínum í aflahrotunni sem gekk
yfir í júlí og ágúst. Blaðið biður
viðkonjandi velvirðingar á mis-
sögninni.
Þess má loks geta að togarinn
Ólafur Bekkur hefur á undan-
förnum árum skilað einna bezt
frágengnu hráefni af togurum
landsins.
Jaröarför mannsins míns
INGIMARS KR. MAGNUSSONAR
húsasmíðameistara
fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 17. ágúst kl. 14.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Sjúkrahús Akraness.
Bóthildur Jónsdóttir.