Morgunblaðið - 24.08.1978, Qupperneq 1
36 SIÐUR
182. tbl. 65. árg.
FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Dollarinn
í hávegum
London, 23. ágúst — Reuter, AP.
FYRIRHEIT Saudi-Araba í þá átt að
styrkja dollarann ásamt þeirri
ákvörðun Bandarikjastjórnar að
selja þrjár milljónir gullúnsa varð
til þess bandaríski gjaldmiðillinn
stórhækkaði í verði gagnvart veiga-
mestu Evrópugjaldmiðlum á
mörkuðum í dag.
Sömu íréttir voru gullkaupmönn-
um ekki að sama skapi íagnaðar-
efni og féll verð gullúnsunnar niður
fyrir 200 dollara í fyrsta skipti
síðan 28. júlí.
Viðmiðun af dollar
Vitnað var í ummæli krónprins
Saudi-Araba, Fahd, í þá veru að land
hans, auðugasta olíuríkið í samtök-
um olíuútflytjenda, myndi ekki
fallast á að olía yrði verðlögð með
viðmiðun af öðrum gjaldmiðli en
dollar. Ótti manna við að Saudi-
Arabar settu traust sitt á aðra
gjaldmiðla hefur átt ríkan þátt í falli
hans að undanförnu. Hámarksskrán-
ing dollars á gjaldeyrismarkaði í
London í dag var hins vegar 2.025
vestur-þýzk mörk. í Tókýó skráðist
dollar á 192.05 yen við lokun.
Gulluppboð
Bandaríska stjórnin tilkynnti á
þriðjudag að hún hygðist halda
uppboð á hluta hins gífurlega
gullforða landsins. Kaupsýlsumenn
um heim allan hafa þó látið í ljós að
aukin gullsala Bandaríkjanna geti
ekki borgið dollar til lengdar, þar
sem hún sé engin lausn á viðskipta-
halla Bandarikjanna og öðrum
efnahagsvandamálum.
Bertoli
Baggio
Bertoli næst
eða Baggio?
Vatíkaninu, 23. ágúst, AP.
SAMKVÆMT „vinnuplaggi“
sem óvænt barst út fyrir veggi
Vatíkansins og sendiráð ítala
þar tók saman eru talsverðar
líkur á að næsti páfi verði
ítalskur og koma þar helzt til
greina kardínálarnir Paolo
Bertoli og Sebastiano Baggio.
Upplýsingarnar eru hafðar eftir
Rómardagblaðinu „La Repu-
blica“
Hin leynilegu gögn komust í
hendur óviðkomandi aðeins
tveimur dögum áður en 111
kardinálar koma saman til að
kjósa eftirmann Páls páfa VI.
Uppljóstrunin hefur valdið upp-
námi meðal embættismanna
Vatikansins og neitaði talsmaður
þeirra, Panciroli, að ræða hana.
Italski ambassadorinn, di
Montezemoli, er undirbjó áður-
nefnt „vinnuplagg" játti því að
það hefði verið tekið saman en að
það væri aðeins til afnota fyrir
sendiráðið og marklaust að öðru
leyti. Það kom fram í plagginu að
Sergio Pingedoli, sem fram til
þessa hefur verið álitinn líkleg-
astur eftirmaður páfa, skorti
fylgi innan páfahirðarinnar.
Nairobi, 23. ágúst — Reuter-AP.
LEIÐTOGAR Kenýa vottuðu í dag
Kenýatta forseta hinztu virðingu
með tárum, eftir að þeir höfðu ráðið
ráðum sínum um útför og högun
kosningar eftirmanns eins virtasta
stjórnarskörungs álfunnar.
Ráðherrar, þingmenn og sendi-
menn erlendra ríkja gengu einn af
öðrum framhjá jarðneskum leifum
forsetans, sem láu á viðhafnarbörum
klæddur röndóttum fötum með
galdrakeyrið — hefðbundið vands-
tákn sitt — sér við hlið. Bráða-
birgðaforseti landsins, Daniel Arap
Moi, sem heldur um stjórntaumana
unz nýr forseti hefur verið kosinn að
Fundarhöld
með Eanes
Lissabon, 23. ágúst — Reuter.
FORSETI Portúgals, Antonio
Ramalho Eanes, boðaði í dag til
blaðamannafundar á fimmtudag og
geta menn sér þess til að hann
hyggist formlega tilnefna iðjuhöld-
inn Nobre da Costa forsætisráð-
herra landsins.
Þetta er í fyrsta skipti sem Eanes
boðar til fundar með blaðamönnum
síðan. hann tók við embætti sínu
fyrir tveimur árum. Eanes hefur
sætt ákúrum frá jafnaðarmönnum
fyrir að víkja Soares úr forsætisráð-
herrastóli fyrir mánuði og mun hann
nú einnig hafa fullan hug á að gera
hreint fyrir dyrum sínum.
Somoza lokar
leggst
og
undir feld
Managua, 23. ágúst, AP, Reuter.
VINSTRISINNÁÐIR skæruliðar, vel vopnum búnir, þráuðust
enn við á miðvikudagskvöld í þinghúsi Nicaragua með gísla
sína 500, en í hópi þessum er að íinna margt fyrirmanna og
ættingja Somozas forseta. Skæruliðar krefjast þess að allir
pólitískir fangar landsins, um 150 að tölu, verði leystir úr haldi
og séð til þess að þeir fái að fara óáreittir til Panama,
Venezuela eða Mexíkó. Fjórtán manns létu lífið og u.þ.b. 15
særðust er skæruliðarnir tóku þinghúsið á þriðjudag.
Ríkisstjórn Nicaragua lokaði í dag öllum flugvöllum
landsins og landamærum. er snúa að Costa Rica, meðan lögð
voru á ráðin um hvernig snúast skyldi við kröfu skæruliðanna,
sem einnig hafa farið fram á 10 milljóna dollara lausnargjald
og flugvél til eigin afnota.
Skæruliðarnir, er tóku þinghús-
ið í djarflegri 10 mínútna skyndi-
árás síðdegis á þriðjudag meðan
þing var að störfum, létu 110
konur og börn laus á miðvikudags-
morgun. Einnig fengu 14 er særzt
Kenýaformgjar
gráta Kenýatta
90 daga fresti, var meðal fyrstu
syrgjenda á staðinn.
Ríkisstjórnin hefur enn ekki
greint frá hvenær útförin verður
gerð en líkur eru taldar á að það
verði á fimmtudag í næstu viku.
Fyrirskipuð hefur verið þjóðarsorg í
mánuð í landinu.
Sjá nánar bls. 16 — Lofsamleg-
um orðum farið um Kenýatta.
EBE elur á
drykkjusýki
Hellebæk, Danmörku,
23. ágúst — Reuter.
AÐILD að Efnahagsbandalag-
inu hefur orðið til þess að
margar Vestur-Evrópuþjóðir
neyta nú meira áfengis en
áður að sögn sérfræðings um
drykkjusýki og eiturlyf.
Forstöðumaður Alþjóða-
ráðsins um áfengis- og fíkni-
efnavandamál, Archer
Tongue, sagði að stefna Efna-
hagsbandalagsins gerði að
verkum að áfengi og bjórteg-
undir fara nú greiðlegar milli
landanna níu en áður.
„Þetta flutningafrelsi hefur
til dæmis orðið til þess að
Englendingar drekka meira létt
vín og Frakkar meira viský en
áður,“ sagði Tongue á
þrettánda Norðurlandafundin-
um um áfengisvandamál.
Einnig greindi hann frá að
íbúar bandalagslandanna
drykkju þó síður en svo minna
af eigin þjóðardrykkjum þótt
nýir kæmu til sögunnar.
„Drykkjusiðir hverfa ekki,“
sagði hann „aðeins nýir bætast
við.“
höfðu leyfi til að fara, en í hópi
þeirra voru þrír hermenn. Að sögn
sjónarvotta voru skæruliðar ekki
færri en eitt hundrað að tölu.
Somoza hefur farið fram á sólar-
hrings umhugsunarfrest til að
íhuga úrkosti. Öruggt má telja að
þessi atlaga uppreisnarmanna úr
röðum Þjóðfrelsisfylkingar
Sandinista sé frakkasta tilræði
þeirra við hægrisinnaða einræðis-
stjórn forsetans til þessa.
Sendiherra Costa Rica, Virgilio
Chaverry og panamíski sendiherr-
ann Carlos Manuel, munu hafa
boðizt til að gerast milligöngu-
Þjóðarhöllin í Managua.
menn í viðskiptum við skærulið-
ana. Þrír biskupar rómversk-ka-
þólsku kirkjunnar héldu áfram
tilraunum sínum til að fá fleiri
gísla lausá og hafði þeim orðið
eilítið ágengt. Að sögn yfirvalda
munu nokkrir hafa komizt undan
gegnum glugga og loftræstikerfi.
Mun skæruliðunum einkum um-
hugað að halda þingmönnum,
blaðamönnum og fyrirfólki í kló
sinni. Meira en 130 manns hafa
látið lífið í tilraunum andstæðinga
til að steypa Somoza af stóli síðan
'í janúar.
Hua sakaður
um fleðuskap
Belgrad, 23. ágúst — AP—Reuter
KÍNALEIÐTOGINN Hua Kuo-
feng skoðaði á miðvikudag risabú
og vélamannvirki í Júgóslavíu og
auðsýndi þannig áhuga kín-
versku þjóðarinnar á íramförum
í atvinnulífi og marxískum fyrir-
tækjarekstri verkamanna í land-
inu. Einnig kom hann að máli við
sendimenn crlendra ríkja í Bel-
grað. Rússar hafa farið mjög
hörðum orðum um för forsætis-
ráðherrans og sakað Kínverja um
að hnýsast í málefni Balkan-
skaga, sem hefur verið friðheil-
agt áhrifasvæði Moskvuyfirvalda
til þessa.
Þúsundir verkamanna fögnuðu
Nýlátinn Kenýaforseti, Jomo Kenýatta, á viðhafnarbörum. Fjölskylda þjóðhöfðingjans fyrrverandi sést
í bakgrunni en opinberum sendimönnum var fyrst leyft að ganga hjá börunum.
Hua innilega, er hann vitjaði
vinnustaða í grennd við Belgrað á
þriðja degi heimsóknar sinnar í
Júgóslavíu. Að sögn opinberra
talsmanna var kommúnistafor-
manninum forkuður á að kynna
sér valddreifingu í júgóslavnesku
atvinnulífi, sveigjanlega rekstrar-
stjórn og afkastaörvandi fram-
leiðsluskipan. Einnig var haft eftir
opinberum starfsmönnum í Bel-
grað að Hua hefði hitt sendimenn
erlendra ríkja og meðal annars
tekizt í hendur við sendiherra
Sovétmanna og Bandaríkjanna.
Var greint svo frá að handtak
hans og albaníska sendiherrans
hefði verið „hvatvíslegt" og hefði
formaðurinn haskað sér að næsta
manni. Allt þar til mjög þrútnaði
um með þjóðunum nýlega var
Albanía eina bandalagsþjóð Kín-
verja í Evrópu. Að sögn embættis-
mannanna fór einkar vel á með Hua
og sendimönnum Belga og Frakka.
Sovézka fréttastofan „Tass“
hafði eftir vestrænum fréttaskýr-
endum í dag að Kínverjar reyndu
nú að gína yfir Balkanlöndum og
bætti við að fleðulæti Hua væru
slik að heita mætti að Kínverjar
væru nær orðnir „16. félagi
Norður-Atlantshafsbandalagsins".
Dauðageislinn
grandar skeyti
Washington, 23. ágúst — Reuter.
BANDARIKJAMÖNNUM hefur nú
tekizt að skjóta niður hraðfleyga
skriðdrekaeldflaug með lasergeisla
eða títtnefndum „dauðageisla“,
samanþjappaðri ljósorku. Sam-
kvæmt talsmönnum Pentagon
heppnaðist fyrsta tilraunin í
janúar. Nákvæmar upplýsingar um
beitingu vopnsins liggja ekki fyrir.