Morgunblaðið - 31.08.1978, Síða 1
40 SÍÐUR
188. tbl. 65. árg.
FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Ný ríkisstjórn í Danmörku — Leiðtogar nýju dönsku ríkisstjórnarinnar á fyrsta blaðamánnafundi
sínum eftir að stjórnin var mynduð. Lengst til vinstri er Anker Jörgensen forsætisráðherra, þá Henning
Christophersen utanríkisráðherra, Per Hækkerup ráðherra án ráðuneytis og Anders Andersen
efnahagsmálaráðherra. símamymi Nordfoto
Vestur-Þýzkaland:
Undirmaður Bahrs
liggur undir grun
Bonn. 30. ágúst. Reutor. AI'.
EGON Bahr aðalritari v-þýzka Jafnaðarmannaflokksins
og einn mesti áhrifamaður um utanríkisstefnu V-Þýzka-
lands um langt skeið bar í dag til baka sögusagnir um að
aðstoðarmaður hans, Joachim Broudre-Gröger, væri
njósnari sá, sem sagt er að rúmenskur flóttamaður hafi
skýrt frá. Bahr sagði á blaðamannafundi í dag að
aðstoðarmaður hans hefði þegar gefið sig fram við yfirvöld
til að hreinsa af sér allan grun og myndu þeir báðir hafa
full samráð við lögregluna um að upplýsa mál þetta.
Vestur-þýzk yfirvöld hafa ekk- | hvort fréttir Bild-blaðsins hetðu
ert viljað láta uppi um það hvort
fréttir blaðsins Bild um að rúm-
enski stjórnarerindrekinn lon
Pacepa hefði veitt upplýsingar um
að njósnari kommúnistalandanna
léki lausum hala í forystu v-þýzka
Jafnaðarmannaflokksins. Sak-
sóknarinn í Karlsruhe, Kurt
Rebmann, hefur sagzt ætla að
rannsaka mál þetta til botns, en
Kristilegi demókrataflokkurinn í
landinu krafðist þess í dag að
opinber rannsókn færi fram á því
við rök að styðjast.
Anker Jörgensen um nýju stjórnina í Danmörku:
„Veitir færi á bættri
hagstjórn í lengri tíma”
Kaupmannahöfn. 30. ágúst.
Frá fréttaritara Mbl. Erik Larsen.
HIN NÝJA samsteypustjórn jafnaðarmanna og Vinstri flokksins tók formlega við
völdum í Danmörku í dag og lagði fram stjórnaryfirlýsingu sína sem tekin verður
fyrir í þinginu á morgun, fimmtudag. Anker Jörgensen forsætisráðherra sagði í dag
að þessir tveir fornu fjendur í dönskum stjórnmálum hefðu nú slíðrað sverðin í því
skyni að koma á betra jafnvægi í stjórnmálunum í landinu sem gæfi færi á bættri
hagstjórn til lengri tíma.
Verkalýðshreyfingin í Dan-
mörkli hefur lýst yfir megnri
óánægju með stjórnina og 1100
verkamenn í skipasmíðastöðvum á
Norður-Jótlandi lögðu í dag niður
vinnu til að mótmæla valdatöku
nýju stjórnarinnar. Er verkfall
þetta tekið sem vísbending um það
hvað í vændum sé á dönskum
vinnumarkaði náist ekki betri
samstaða milli ríkisstjórnarinnar
og aðila vinnumarkaðarins.
Thomas Nielsen forseti danska
alþýðusambandsins sagði í dag að
hann teldi stjórnina ekki myndu
verða við völd nema í sex mánuði.
í efnahagsmálatillögum stjórn-
arinnar er gert ráð fyrir því að
virðisaukaskatturinn verði hækk-
aður úr 18 í 20% og tímabundinni
verðstöðvun verði komið á. Mark-
miðið með tillögunum er að
minnka greiðsluhalla Dana við
útlönd í 6,5 milljarða danskra
króna úr þeim 9 milljörðum sem
fyrirsjáanlegir voru, minnka verð-
bólguna og auka atvinnu og
framleiðslu. Gert er ráð fyrir að
samráð verði haft við aðila vinnu-
markaðarins um að tryggja
óbreyttan kaupmátt launa næstu
tvö árin.
í hinni nýju ríkisstjórn er 21
ráðherra, þar af 14 jafnaðarmenn,
en 7 frá vinstri flokknum. Athygli
vekur að Poul Sögaard (J) verður
áfram varnarmálaráðherra, en
Erling Jensen (J), sem talið var að
yrði varnarmálaráðherra, verður
félagsmálaráðherra. Sjávarút-
vegsráðherra verður Svend Jakob-
sen (J), Knud Enggaard (V) verður
innanríkisráðherra, en Arne
Christiansen (V) viðskiptaráð-
herra. Knud Heinesen (J) verður
áfram fjármálaráðherra, en leið-
togi vinstri flokksins, Henning
Christophersen verður utanríkis-
ráðherra.
Sovézk
ögrun á
Svalbarða
Osló. 30. ágúst.
Frá fróttaritara Mbl..
Jan Erik Lauré.
SOVÉTRÍKIN hafa á ný brotið
norsk lög á Svalbarða og sett
upp radarstöð í nágrenni Long-
yearbæjar á eyjunni. Ráðuneyt-
isstjóri dómsmálaráðuneytisins.
Hans Olav Östgaard. staðfesti í
dag að þessi aðgerð væri hrein
lögleysa að dómi Norðmanna og
mætti búast við að formleg
mótmæli Norðmanna yrðu lögð
fram á viðræðufundi þjóðanna í
Barentsburg á föstudag í næstu
viku.
Það var dagblaðið Norðurljós í
Tromsö sem kom upp um radar-
stöðina með því að birta af henni
myndir, en norskum yfirvöldum í
Osló var að sögn ekki kunnugt um
að henni hefði verið komið fvrir
fyrr en blaðið birti frásögn sína.
Líklegt er talið að stöðinni hafi
verið komið fyrir í byrjun ágúst.
Sérfræðingar telja aA radar-
búnaðurinn sé nægilega fullkom-
inn til þess að Sovétmenn geti
með honum fylgzt alveg með allri
umferð flugvéla í nágrenni Long-
yearbæjar enda sé hann mun
öflugri en nauðsynlegt væri
vegna þyrluflugvallar Sovét-
manna sem ekki er þarna fjarri.
Pólskri flugvél rænt og snúið til V-Berlínar:
7 A-Þjóðverjar not-
uðu tækifærið og flúðu
Korchnoi hótar að hætta
Korchnoi, áskorandinn í heimsmeistaraeinvíginu í skák, hélt í gær
blaðamannafund í Manila og sakaði skipuleggjendur einvígisins um
að vera handbendi Sovétmanna. Hótaði Korchnoi að hætta keppninni
ef ekki yrði orðið við óskum hans um breytt fyrirkomulag í
keppnissalnum. Keene aðstoðarmaður hans dró þessa hótun til baka
tveimur tímum síðar. Óvíst er hvort Korchnoi mætir til leiks í 18.
skákinni í dag en skipuleggjendur mótsins hafa ekki ákveðið neinar
breytingar í salnum. A myndinni með Korchnoi er Petra Leewerick
sem verið hefur fulltrúi hans gagnvart skipuleggjendum og dómnefnd
einvígisins. Sjá bls. 18. (Símamynd AP).
Berlín, 30. ágúst. Reuter, AP.
PÓLSKRI farþegaflugvél á leið
frá Varsjá til AusturBerlínar
var í dag rænt og snúið til
Vestur-Berlínar. Flugræninginn,
kona sem var með honum og barn
hennar urðu þar eftir en einnig
7 aðrir Austur-Þjóðverjar sem
ákváðu að biðjast hælis sem
pólitískir flóttamenn á Vcstur-
löndum. Með vélinni voru 63
farþegar og 8 manna áhöfn og
héldu aðrir farþegar og áhöfnin
til Aiistur-Berlínar þegar spurn-
ingum v-þýzkra yfirvalda hafði
verið svarað, utan einn farþeg-
anna sem var frá VesturBerlín.
Ilann hélt til síns heima.
Pólska fréttastofan Pap sagði í
kvöld að flugræninginn hefði verið
erlendur ferðamaður í landinu og
var staðfest i V-Berlín að hann
væri Austur-Þjóðverji.
Yfirvöld í
A-Þýzkalandi hafa þegar krafizt
þess að hann og aðrir A-Þjóðverj-
ar, sem úr vélinni fóru vestan
megin, verði þegar framseldir, en
málið mun nú í höndum fulltrúa
Bretlands, Prakklands og Banda-
ríkjanna, sem enn ráða Berlín að
formi til.