Morgunblaðið - 31.08.1978, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 31.08.1978, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1978 39 'jm HINGAÐ TIL ÞESS AÐ VINNA" Sagði Mennea frá Ítalíu eftir sigur sinn í 100 metra hlaupinu t>EGAR átta greinum er lokið á Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum hér í Prag hafa A Þjóðverjar þegar tekið forystuna í stinakeppni þjóðanna. Ilafa þeir hlotið þrenn gullverðlaun. en að auki 2 silfur ok 2 bronz. Sovétmenn eru þeim ekki langt að baki með 2 ííull, 2 silfur og fern bronzverðlaun. Þcgar er ljóst að stigakeppnin mun standa á milli þessara þjóða, en þjóðir V-Evrópu skjóta sér síðan á milli í gullstríði Rússa og A-Þjóðverja og hirða einn og einn gullpening. • Pietro Mcnnea og Eugen Ray í keppni. Mennea (401) varð Evrópumeistari í 100 m hlaupi í gær, en Ray (501) hlaut silfurverðlaunin. Þannig var það í gær, ítalinn Pietro Mennea sigraði glæsilega í 100 metra hlaupi karla og það þrátt fyrir að hann næði ekki sérlega góðu starti. Mennea sigr- aði í 200 metra hlaupinu í Róm 1974 á heimavelli sínum og nú vænta menn þess að hann sigri tvöfalt í spretthlaupunum. Hinn kraftalegi Ray frá A-Þýzkalandi varð í 2. sæti í keppninni, en fyrirfram var einmitt búizt við að keppnin stæði á milli þessara kappa. Sennilega hafa úrslitin í 100 metra hlaupinu í gær verið endalok ferils þess mikla sprett- hlaupara, hins 28 ára Valery Borzovs frá Sovétríkjunum, en hann varð síðastur í úrslitunum. Það vakti athygli að nýjasta uppgötvun Breta á hlaupabraut- inni, Allan Wells, náði aðeins sjötta sæti. Lands- leikir • BÚLGARÍA og A-Þýzkaland gerðu 2i2 jafntefli í knattspyrnu í Erfurt í Þýzkalandi í gærkvöldi. Georg Buschner, þjálfari þýzka liðsins. notaði þennan leik til að þreifa sig áfram fyrir Evrópuleik liðsins í haust. en fyrsti leikur A-Þjóðverja í keppninni er gegn Islandi 4. október í Magdburg. Það var nýliðinn Eigendorf frá Dynamo Berlin. sem skoraði Iweði mörk a þýzka liðsins, en á milli marka hans skoruðu Panov og Stankov fyrir Búlgaríu. 10 þús- und áhorfendur sáu lcikinn og voru þeir lítt ánægðir með heimaliðið. • AUSTURRÍKI vann góðan sig- ur á Noregi í fyrsta leik liðanna í Evrópukeppninni í knattspyrnu í Osló í gærkvöldi. Úrslitin urðu 2i0 og skoruðu þeir Pezzey og Krankl mörkin — bæði í fyrri hálflcik. Austurríkismennirnir höfðu nokkra yfirburði í fyrri hálfleiknum, en í þeim síðari var um jafnari viðureign að ræða. Þjóðirnar leika í 2. riðli keppn- innar ásamt Belgíu. Portúgal og Skotlandi. Ellert B. Schram, formaður KSÍ. var cftirlitsmaður á vegum UEFA á þessum leik. f Knatlspyrna 1 NOKKRIR leikir fóru fram í deildabikar keppninni i Englandi í Kærkviildi ug urðu úrslit þessi. Aaton Villa - Sheffield Wed. 1.0 Blackpool — Ipswich 2.0 Chester — Coventry 2.1 Crewe — Notts County 2.0 Oxford — Plymouth 1.1 ReadinK — Wolves 1.0 Stockport — Man. Utd. 2.3 (leikið var á Old Trafford) Sunderland — Stoke 0.2 West Ham — Swindon 1.2 Leicester — Derby CELTIC vann Kóðan sÍKur & Dundee Utd. á útivelli í deildarbikarkeppninni f Skotlandi í Karkviildi. Urslitin urðu 3.2 og skoruðu þeir Lynch. McDonald ok Conroy mörk Celtic. Meðal annarra úrslita ( Skotlandi urðu þessi í Kærkvöldi. Ayr Utd. — Stranracr 1.0 Brechin — Hibernian 0.3 Clyde — Motherwell 3.0 East Fife — Arbroath 0.1 Hearts — Morton 1,3 Mcadowbank — Aberdeen 0.5 RanKers — Forfar 3.0 Prag ^ Þórarinn Ragnarsson skrifar frá EM í frjálsum íþróttum. — Eg var fullkomlega rólegur fyrir úrslitahlaupið og viss um að sigra sagði Mennea á fundi með blaðamönnum í gærkvöldi. Ég var hræddastur við A-Þjóðverjann Ray, en hann átti ekki möguleika að þessu sinni. Ég kom hingað til þess að sigra. Hin föngulega Marlies Gohr sannaði að hún er fótfráust evrópskra kvenna er hún sigraði í 100 metra hlaupinu á 11.27 sekúndum. Hún er heimsmethafi í greininni og sagði að keppninni lokinni að hún hefði verið viss um sigur sinn þegar 50 metrar voru eftir. Sænska stúlkan Linda Hag- lund varð í öðru sæti og var að vonum ánægð með árangurinn að keppninni lokinni. — Ég var heppin, þetta var minn dagur sagði Linda Haglund. — Ég hef aldrei verið eins taugaóstyrk fyrir keppni og hélt ekki að ég næði verðlaunum, en það tókst og finnski þjálfarinn minn á hálfan silfurpeninginn, sagði hún. Ilona Slupianek, sem nú hefur aftur hafið keppni eftir eins árs keppnisbann vegna neyzlu forboð- inna lyfja, sigraði í kúluvarpi kvenna. Hún sigraði heimsmethaf- ann Helenu Fibingerovu, helztu von tékknesku gestgjafanna um gullverðlaun á mótinu. Slupianek náði forystunni í þriðju umferð og í sjöttu umferð kastaði hún 21.41, sem er nýtt meistaramótsmet, og hálfum metra lengra en Fibingerova kastaði. Bardauskiene sigraði nokkuð örugglega í langstökkinu, áhorf- endum fannst að minnsta kosti ELÍAS Sveinsson var eini íslenzki keppandinn, sem var í cldlínunni á EM í gær, en þá var fyrri dagur tugþrautarinnar. Er hann í 21. sæti af 23 keppendum með 3681 stig. í efsta sæti er Bretinn Daley Thompson með 4459 stig og hefur hann töluverða yfirburði eftir fyrri dag keppninnar. V-Þjóðverj- inn Guido Kratshmcr var talinn sigurstranglegastur í þessari crfiðu grein, en hann á bezt 8498 stig, var svo óheppinn að togna er hann var að hita upp fyrir keppnina og varð að hætta við þátttöku. í 100 metra hlaupinu náði Elías sínum bezta árangri miðað við rafmagnstímatöku, 11.24 sek. Það var 14. bezti tíminn í keppninni, en beztur v^r Thompson á 10.69 sek. í langstökkinu gekk Elíasi mjög illa og fékk hann atrennuna illa til að passa. Hann stökk aðeins 6.17 m, en Thompson gerði sér lítið fyrir og vann þessa grein einnig með glæsilegu stökki, sem mældist 7.93 in. í kúluvarpinu kastaði Elías aldrei annað koma til greina eftir nýtt heimsmet hennar í fyrra- kvöld, 7.09. Henni tókst þó ekki eins vel upp í gær og sigurstökk hennar mældist 6.88. Olympíu- meistarinn Angela Voigt frá A-Þýzkalandi náði silfurstökki í síðustu umferð er hún stökk 6.79 metra og skauzt framfyrir Nygronovu frá Tékkóslóvakíu. V-Þjóðverjinn Michael Wessing sigraði eins og við var búizt í spjótkasti karla, en hörð keppni var um annað sætið. Þar háðu A-Evrópumenn 'harða baráttu og hafði Grebnev frá Sovétríkjunum vinninginn, kastaði spjótinu 87.82, 16 cm lengra en Hanisch frá A-Þýzkalandi. Af sjö efstu í spjótkastinu voru fimm frá austurblokkinni og Nemeth frá Ungverjalandi mátti gera sér sjöunda sætið að góðu að þessu sinni. SPJÓTKAST KARLA, Michael WessinK, V I>ýzkal. 89.10 Nikolai Grebnev. Sovótr. 87.82 WolfKanK Hanisch. A-Þýzkal. 87.66 Detlef Michel, A-Þýzkal. 85.46 Björgvin og Sveinn í forystu BJÖRGVIN Þorsteinsson og Sveinn Sigurbergsson hafa ör- • Elías Sveinsson 14.17 m og er það þokkalegur árangur þó hann eigi betra. Sovétmaðurinn Grobenjuk varpaði kúlunni 15.93 metra og A-Evrópu- mennirnir voru fremstir í þessari grein. Er hástökkskeppnin hófst var farið að hellirigna og gerði það keppendum mjög erfitt fyrir. Elías náði þó að stökkva 1.95 m ög felldi naumlega 1.98 m, en 11 keppendur voru fyrir aftan hann í þessari grein. I 400 metra hlaupinu hljóp Vasili Jersov. Sovétr. 85.06 Ilelmut Schreiber. V-býzkai. 83.58 Miklos Nemeth. Unjfverjal. 83.58 SPJÓTKAST KVENNA, Ilona Slupianek. A býzkal. (EM-met) 21.41 Elena Fibingerova, Tékkósl. 20.86 Mar»(itta Droese, A-býzkal. 20.58 Svetlana Kracevskaya. Sovétr. 20.13 Elena Stojanova. BulKaríu 19.43 Eva Wilms, V-býzkal. 19.20 100 M HLAUP KVENNA. Marlies Göhr. A Þýzkal. 11.13 Linda Haglund. SvfþjóO 11.29 Ludmila Maslakova, Sovétr. 11.31 Monika Hamann, A-l>ýzkal. 11.33 Ludmila Storokykova, Sovétr. 11.33 Ludmila Kondrateva. Sovétr. 11.38 LANGSTÖKK KVENNA. Vilma Kardauskiene. Sovétr. 6.88 Angela Voigt, A-Þýzkal. 6.79 Jarmila Nygrynova, Tékkósl. 6.69 Brigitte Wujak. A Þýzkal. 6.60 Gina Panait. Rúmeniu 6.52 Susan Reeve, Bretlandi 6.48 Karin Hanel, V-Þýzkal. 6.48 100 METRA HLAUP KARLA, Pietro Mennea. Ítalíu 10.27 Eugen Ray, A-Þýzkal. 10.36 Vladimir Ignatenko, Sovétr. 10.37 Peter Petrov, Búlgarfu 10.41 Leszek Dunecki. Póllandi 10.43 Alan Wells, Bretlandi 10.45 Nikolai Kolesnikov, Sovétr. 10.46 Valeri Borzov. Sovétr. 10.55 ugga forystu eftir fyrri dag Glass Export golfkeppninnar á Nesvell- inum. Þeir léku báðir á 69 höggum í gær. en Páll Ketilsson var þriðji á 73 höggum. Magnús Halldórsson. GK. lék á 74 högg- um og Geir Svansson. GR. á 77 höggum. Kcppnin hcldur áfram í dag klukkan 15. en þátt f henni taka flestir beztu kylfingar lands- Elías í fyrsta riðli og byrjaði mjög geyst. Hann varð þó að gefa sig á síðustu 100 metrunum og fékk tímann 51.50, sem var lélegasti árangurinn í þeirri grein. Thomp- son náði beztum tíma, 47.59 sek. Að fyrri deginum loknum er staða efstu manna þessi: Thompson, Bretlandi 4459 Grebenjuk, Sovétríkjunum 4171 Pottel, A-Þýzkalandi Dietmar, A-Þýzkalandi 4150 Lahti, Finnlandi 4145 Elías Sveinsson er í 21. sæti með 3681 stig, Ludek Pernica frá Tékkóslóvakíu er með 3633 stig og lestina rekur Riggberger frá Sví- þjóð með 3624 stig. Elías Sveinsson sagðist vera sæmilega ánægður með árangur sinn fyrri dag keppninnar. — Ég vonast fastlega til að bæta ís- landsmetið í greininni og hefði þorað að lofa því ef langstökkið hefði ekki mistekizt hjá mér og sett strik í reikninginn. Keppnin í dag dróst á langinn vegna rigning- arinnar og var mjög erfið, sagði Elías Sveinsson. — ÞR íns. TVEIR FYRIR AFTAN ELÍAS í ÞRAUTINNI Þróttarar unnu Völs- unga 4 : 2 ÞRÓTTUR frá Neskaupstað gerði góða ferð til Ilúsavíkur í ga'rkviildi er liðið lék gegn Völsungi í 2. deildinni. Norð- firðingar unnu 4i2 í skemmti legum leik á köflum og var sigur Þróttara sanngjarn. Völsungar eiga sér ekki við- reisnar von í 2. deildinni og margir aðalleikmanna liðsins eru fyrir nokkru hættir. þann- ig að lið Völsungs nú er ungt að árum og reynslulítið. Þrótt- arar eiga hins vegar orðið góða möguleika á sæti í 1. deildinni og er árangur liðsins mjög góður að undanförnu. Ilefur liðið gjörbreytzt síðan landsliðsþjálfarinn Youri Ilytchev var á ferð í Neskaup- stað og hefur aðeins misst tvö stig til KR. Þróttarar gerðu út um leik- inn í gærkviildi í fyrri hálf- leiknum. Björgúlfur Ilalldórs- son skoraði strax á 11. minútu og síðan skoraði Helgi Bene- diktsson á 26. mínútu. 10 mínútum síðar var Helgi aítur á ferðinni og breytti stöðunni í 3:0. í hyrjun seinni hálfleiks- ins skoraði Guðmundur Ingva- son fyrir Þrótt. en Völsungar áttu tvö síðustu orðin. Magnús Hreiðarsson skoraði úr vfti á 65. mfnútu og Ásvaldur Þor móðsson á 89. mínútu. Beztu menn liðanna voru Sigurbjörn Viðarsson hjá Völs- ungi. en Njáll Eiðsson. Helgi Ragnarsson og Ilelgi Bene- diktsson hjá Þrótti. Sá síðast- nefndi meiddist í fyrri hálflcik og lék ekki seinni hálfleikinn. Þóroddur Hjaltalín dæmdi leikinn vel. - BA/ - áij. KR vann Reyni 1:0 KR vann Reyni naumlega í 2. dcildinni í knattspvrnu íSand- gerði í gærkviildi. Úrslitin urðu 1:0 og skoraði Sverrir Herliertsson eina mark leiks- ins á 43. mfnútu fyrri hálf- leiksins. Hvínandi rok var ér leikurinn hófst og erfitt að leika knattspyrnu. en vindur- inn gekk niður er leið á leikinn og um leið lagaðist knattspyrnan. Reynisliðið náði vel saman í þessum leik og hefði verðskuldað að skora mark undir lokin. en síðasta stundaríjórðung leiksins sóttu Rcynismenn ákaft. Þetta var síðasti leikur Rcynis í 2. deild og fékk liðið 18 stig úr jafn miirgum leikjum. KR á hins vegar eftir einn Icik. -JJ/-áij Þróttur jr mm m i Eyjum ÞRÓTTARAR geta bjargað sér frá falli niður í 2. deild með því að vinna Vestmanney- inga í Eyjum í 1. deildinni í kvöld. Leikur liðanna á að hcfjast klukkan 19.00. en úr því sem komið er skiptir hann ekki máli fyrir ÍBV að öðru lcyti en því að sigur ha'kkar liðiö á stigatöflunni og gæti gefið fjórða sætið í doildinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.