Morgunblaðið - 31.08.1978, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1978
19
Fréttirí
stuttn máíi
Nunnurnar
flýðu
klaustrið
London. 30. ítcúst. Reuter.
TUTTUGU nunnur urðu í skyndi
að yfirgefa klaustur sitt og sex
manns voru færðir til rannsóknar
á sjúkrahús eftir að 22 kg tunna
með blásýrusalti féll af vörubifreið
með þeim afleiðingum að innihald-
ið fór á dreif. Efni þetta er mjög
eitrað og hefði innihald tunnunnar
komizt í vatnsból hefði það nægt
til að granda þúsundum manna, að
því er yfirvöld hermdu.
35 slösuðust
í hvirfilbyl
Memphis, Tennessee, 30. ágúst, Reuter.
UM ÞAÐ bil 35 manns slösuðust,
þar af tveir alvarlega, þegar
hvirfilbylur gerði mikinn usla í
verzlunarmiðstöð í Memphis síð-
degis í gær. Nokkurt tjón varð og
á mannvirkjum.
Fundu 90
grafir frá
bronzöld
Padcrborn. 30. átíúst. Reuter.
Fornleifafræðingar fundu í dag
90 grafir frá bronzöld við stæði
nýs vegar sem verið er að byggja
í námunda við Paderborn í Vest-
ur-Þýzkalandi. Grafirnar eru um
3.000 ára gamlar.
Kreml bannar
reykingar í
kvikmyndum
Moskvu, 30. aprfl.
SOVÉZKIR kvikmyndaframieið-
endur eiga það á hættu að myndir
þeirra verði stýfðar ef aðalpersón-
urnar eru sýndar reykjandi, að því
er skýrt var frá í dag. Eru þetta
opinberar fyrirskipanir og því við
borið að reykingar kvikmynda-
hetjanna hvetji almenning til
vindlingareykinga.
Vöruskipti
óhagstæð
Dönum í júlí
Kaupmannahöfn, 30. ágúst, Reuter.
Vöruskiptajöfnuður Dana í júlí-
mánuði var óhagstæður um 1,4
milljarða danskra króna, eða tæpa
66 milljarða íslenzkra króna miðað
við síðustu gengisskráningu. I jijní
var vöruskiptajöfnuðurinn óhag-
stæður um 0,8 milljarða danskra
króna en um 1,5 milljarða í júlí
1977.
Samkvæmt upplýsingum dönsku
hagstofunnar var vöruskiptajöfn-
uður Danmerkur óhagstæður um
níu milljarða króna fyrstu sjö
mánuði 1977, en um 11 milljarða
á sama tíma árið áður.
Veður
víða um heim
Akureyrj 16 skýjaó
Amsterdam 16 skýjaö
Apena 32 skýjaó
Barcelona 31 léttskýjað
Berlín 16 skýjað
Brússel 18 skýjaó
Chicago 27 heiöskirt
Frankfurt 21 rigning
Gent 18 skýjaö
Helsinki 14 skýjaó
Jerúsalem 29 heiöskirt
Jóhannesarb. 22 skýjaó
Kaupmannah. 18 skýjað
Líssabon 26 heióskírt
London 19 heiðskírt
Los Angeles 30 heiðskirt
Madrid 33 heióskírt
Malaga 30 léttskýjað
Mallorka 28 léttskýjað
Miami 30 skýjaó
Moskva 14 heióskirt
New York 31 skýjað
Ósló 15 skýjaó
París 22 skýjaó
Reykjavík 9 alskýjað
Rio De
Janeiro 30 léttakýjað
Rómaborg 23 heióskirt
Stokkhólmur 15 skýjaó
Tel Aviv 29 heióskírt
Tókýó 33 heiöskírt
Vancouver 22 léttskýjaó
Vínarborg 18 skýjað
Camp David fundurinn:
Nýju Dehlí. 30. áRÚst. Reutcr.
ÖRUGGAR heimildir skýrðu frá
því í dag að Indlandsstjórn hygðist
á næstunni kaupa orrustuþotur að
verðmæti tveggja milljarða
Bandaríkjadala frá Vesturlöndum.
Einkum eru taldar koma til greina
ensk-frönsku Jagúar þoturnar,
Mirage F-1 þoturnar frönsku og
sænsku Viggen þoturnar. Hermdu
heimildirnar að Indverjar þyrftu
um 200 nýjar hljóöfráar orrustu-
þotur, en hver þeirra kostar um 10
milljónir dala og nemur því
heildarupphæðin í íslenzkum
krónum um 560 milljörðum.
YÍð SÍg
London. 30. ágúst. Reuter
BANDARÍKJADALUR féll enn á
gjaldeyrismörkuðum í Evrópu 'í
dag í kjölfar fréttanna af óhag-
stæðum vöruskiptajöfnuði
Bandaríkjanna í júlímánuði. Enn-
fremur féli dalurinn mjög á
gjaldeyrismörkuðum í Tókýó í dag
og er það talið í beinu framhaldi
af falli hans í Evrópu í gær.
Greinir á
Kínaleiðtoginn Hua Kuo-feng
hefur ekki sézt reykja á al-
mannafæri þar til í Júgóslavíu
á dögunum, að því er blaða-
menn, sem fylgjast með ferð
hans, herma. Aðstoðarmenn
leiðtogans segja að Hua hafi
vanið sig af reykingum fyrir
mörgum árum en byrjað á ný
í Rúmeníu í fyrri viku. Vindl-
ingareykurinn olli tárfelli hjá
Hua.
Varist frétta af
Tehcran. 30. ágúst,
AP—Reuter.
IIUA KUO-feng Kínaleiðtogi og
Mohammcd Reza Pahlavi Irans-
keisari ræddust í dag við í
sumarhöll keisarans og er talið
að leiðtogarnir hafi einkum rætt
alþjóðamál. þótt enn hafi ekkert
verið látið uppi um viðræðurnar.
Ennfremur er gert ráð fyrir að
leiðtogarnir hafi rætt um vjðskipti
landanna, en Kínverjar kaupa
einkum olíu og döðlur af Iran í
skiptum fyrir ýmsar neyzluvörur.
Fyrst og fremst er þó litið á
ferðalag Hua til Iran sem tilraun
Herþotur
fyrir 560
milljarða?
af hálfu Kínverja til að auka
tengsl landanna tveggja. Ekki er
búizt við að neitt verði látið uppi
um viðræður Hua og keisarans
fyrr en Hua verður kominn heim
til Peking á föstudag.
Sovétmenn ásökuðu Hua í dag
fyrir að hafa ráðizt á Sovétríkin í
ræðu sem hann hélt við komuna til
Irans í gærkvöldi, viðbrögð Sovét-
manna voru þó ekki jafn hörð og
þegar Hua dvaldi í Rúmeníu og
Júgóslavíu fyrir skemmstu.
Dollarinn
samur
Reynt að fá
Maga heim?
Teheran, 30. ágúst, Reuter.
HINN nýi forsætisráðherra íran
sagði í dag að ekkert væri hæft í
hlaðafregnum að stjórn hans hefði
sent menn út af örkinni til að ræða
við trúarieiðtoga einn og andstæð-
ing keisarans, sem er í útlegð í
írak. Jaafar Sharif-Emami sagði
ennfremur að engir hcfðu vcrið
gerðir út í slíkum tilgangi hvorki
til íraks né í aðrar áttir.
Blöð í Iran birtu í gær í fyrsta sinn
frá 1963 myndir af Ruhollah Khom-
einy leiðtoga múhameðstrúarmanna,
en hann var rekinn úr landi eftir
blóðugar mótmælaaðgerðir gegn
stjórninni í Teheran 1963. Sögðu
blöðin að erindrekar Sharif-Emami
hefðu farið til íraks til viðræðna við
leiðtogann, og eitt blaðanna sagði að
stjórnvöld reyndu að fá Khomeiny til
að snúa heim og væru að semja við
hann í því tilefni. Forsætisráðherr-
ann sagði að ekkert væri hæft í
þessu, flugvél hefði farið til að ná í
Irana sem þar var í haldi eftir að
hafa viðurkennt að vera viðriðinn
eldsvoðann í kvikmyndahúsi í
Abadan sem varð 377 manns að
bana.
Sharif-Emami sagðist einbeita sér
að því nú og á næstu dögum að fá
andstæða trúar- og stjórnmálahópa
til að lifa í sátt og samlyndi, og hefur
þremur prestum múhameðstrúar-
safnaðar verið leyft að snúa til
heimabæja sinna af því tilefni.
Stjórnarandstæðingar segja að 50
slíkir prestar hafi verið gerðir
útlægir frá heimabæjum sínum fyrir
að andmæla stjórninni við messur.
Skaut manninn,
særði konuna
Bastia. Korsíku. 30. úkúsI. Reuter.
MAÐUR nokkur skaut í gærkvöldi
vestur-þýzkan ferðalang til bana,
særði eiginkonu hans alvarlega og
rændi loks tveimur börnum hjón-
anna sem vörðu sumarleyfi sínu á
Korsíku, að því er lögreglan
hermdi í dag. Þegar síðast fréttist
var ódæðismaðurinn ófundinn.
um nýtingu
hafsbotns
Manila. Filippseyjum.
30. ágúst. AP.
BANDARÍSKIR sérfræðingar í
hafréttarmálum eru í algerri
andstöðu við afstöðu Bandaríkja-
stjórnar til vinnslu málma og
auðæfa í og á hafsbotni. Kom
þetta í Ijós á ráðstefnu alþjóða
lögfræðifélagsins sem nú er haldin
á Filippseyjum, og tókst ekki í dag
að ná fram málamiðlun milli
sérfræðinganna og sendinefndar
Bandaríkjanna á Hafréttarráð-
stefnunni. Vilji stjórnarinnar í
Washington er aö frjáls aðgangur
skuli vera að auðæfum botns
úthafanna, en sérfræðingarnir
vilja hins vegar aö skýr og
skorinorö ákvæði skuli sett um
vinnsluna og að tryggð sé réttlát
hlutdeild þróunarríkjanna í auð-
æfunum. Undir núverandi kring-
umstæðum hafa Bandaríkjamenn
einir ta'kni til að vinna ákveðna
mikilvæga málma sem finnast á
botni úthafanna.
tillögum Carters
leggja til að komið yrði upp stöð
bandaríska flughersins á Sínaí-
skaga og að bandarískir hermenn
yrðu á vesturbakka Jódan, ef það
gæti leitt til þess að leysa hnút
þanh sem er á friðarviðræðum
Egypta og Israela.
Blaðafulltrúinn sagðist, sem
áður segir, ekkert vita um þetta,
en benti á að Bandaríkjamenn
hefðu áður boðið deiluaðilum að
hermenn yrðu á umdeildu svæðun-
um í þeim tilgangi að koma aðilum
að samningaborðinu á ný.
V arizt f rétta úr
keisarans höll
Jackson Hole, Wyoming,
30. ágúst, Reuter.
BLAÐAFULLTRÚI Hvíta húss-
ins sagðist í dag ekki hafa
hugmynd um hvaða tillögur
Bandaríkjastjórn legði fyrir þá
Menachem Begin forsætisráð-
herra ísraels og Anwar Sadat
forseta Egyptalands á fundinum
í Camp David í næstu viku.
Blaðið Washington Post skýrði
hinsvegar frá því í gær að á
fundinum mundi Carter forseti