Morgunblaðið - 31.08.1978, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 31.08.1978, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1978 23 Rauðakrossfundur höfuð- borga á Norðurlöndum HÖFUÐBORGARFUNDUR Rauða kross félaga á Norðurlönd- um verður haldinn í Reykjavík föstudaj; og laugardag n.k. í húsakynnum deildarinnar að Öldugötu 4. (1. og 2. sept.) bessir fundir eru haidnir reglu- lega. en þetta er í fyrsta skipti, sem hann er haldinn í Reykjavík. Aðalverkefni þessa fundar er félagsleg aðstoð við aldrað fólk. Yfirlitserindi um máiefni aldraðra mun Þór Halldórsson yfirlæknir flytja og mun sérstaklega fjalla um fyrirbyggjandi þætti varðandi aðstoð við aldrað fólk. I því sambandi má minna á, að stjórn Reykjavíkurdeildar R.K.Í varð fyrir nokkrum árum braut- ryðjandi á því sviði að gefa öldruðu fólki og öryrkjum kost á að fá heitar máltíðir sendar heim Afmæli 75 ÁRA er í dag Jón Björnsson húsgagnabólstrari, frá Karlsskála. Hann er að heiman í dag, en tekur á móti gestum sínum á heimili sonar síns að Kjalarlandi 11, Rvík, eftir kl. 3 ^ laugardaginn kemur 2. september. Krafla: Tveir Japanir við viðgerðir EINAR Tjörfi Elíasson, yfir- verkfræðingur við Kröfluvirkjun kom að máli við Morgunblaðið vegna fréttar þess efnis í Morgunblaðinu í gær að verið væri að setja niður seinni hluta vélasarnstæðu virkjunarinnar. — Einar kvað þessa frétt á misskilningi byggða, hér væru staddir tveir Japanir frá Mit- chubisifyrirtækinu japanska og væru að gera við smágalla sem fram hefðu komið í vélabúnaði virkjunarinnar. Að öðru leyti væri aðeins unnið við borfram- kvæmdir þar nyrðra. til sín. Þetta var tilraun að höfðu samráði við félgsmálastofnun Reykjavíkurborgar og var all takmörkuð, þar sem hún var aðeins bundin við nokkur fjölbýlis- hús, þar sem aldrað fólk og öryrkjar áttu heimili sín. Þessi þjónusta hefur legið niðri um nokkurt skeið af ýmsum ástæðum fjárhagslegum m.a., en nú er í ráði að hefja aftur innan skamms heimsendingu máltíða, en með nokkuð breyttu fyrirkomulagi á ýmsa lund þar sem öldruðum og öryrkjum víðsvegar um bæinn verður gefinn kostur á heimsend- ingu máltíða. Þjónusta sem þessi hefur hvar- vetna reynst stuðla að því, að aldrað fólk getur lengur dvalið í heimahúsum oft við betri heilsu en ella, ef hennar nyti ekki við. Þetta verður nánar kynnt. Auk þessara mála verða sömu- leiðis rædd æskulýðsmál, auk ýmis'sa annarra mála, sem sér- staklega varða fólk í þéttbýli. En það eru einmitt ýmis við- fangsefni, sem sérstaklega er þörf á að sinna í þéttbýli, sem er ástæða þess að R.K. félög í höfuðborgum Norðurlanda hafa séð ástæðu til að halda sérstaka fundi til að skiptast á skoðunum og miðla hvert öðru af reynslu sinni. C0 CATERPILLAR John Deere 400 A traktorsgrafa árgerö 1975 meö graftrararmi og vökvahöggbor. VELADEILD HEKLA HF. Laugavegi 170-172, - Simi 21240 Caterpillar, Cot, og CB eru skrósett vörumerki Tísku- sýning ★ Alla föstudaga kl. 12.30—13.30. Sýningin er haldin á vegum Rammageröarinnar, íslensks Heimilisiönaöar og Hótels Loftleiöa. Módelsamtökin sýna skartgripi og ýmsar geröir fatnaöar sem unninn er úr íslenskum ullar- og skinnavörum. Hinir vinsælu réttir kalda borösins á boðstólum. ★ Verið velkomin. HOTEL LOFTLEIÐIR Simi 22322 Lærið vélritun Ný námskeið hefjast 7. september. Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar, engin heimavinna. Innritun og upplýsingar í síma 41311 eftir kl. 13:00. Vélritunarskólinn Suðurlandsbraut 20 Menningarsjóður íslands og Finnlands Tilgangur sjóósins er að efla menningartengsl Finnlands og islands. í því skyni mun sjóðurinn árlega veita ferðastyrki og annan fjárhagsstuðning. Styrkir veröa öðru fremur veittir einstaklingum, en stuðningur við samtök og stofnanir kemur einnig tii greina ef sérstaklega stendur á. Umsóknir um styrk úr sjóðnum skulu sendar stjórn Menningarsjóðs íslands og Finnlands fyrir 30. september 1978. Áritun á islandi er: Menntamálaráðuneytið, Hverfisgötu 6, Reykjavík. Æskilegt er aö umsóknir séu ritaðar á sænsku, dönsku, finnsku eða norsku. Stjórn Menningarsjóós íslands og Finnlands, 28. ágúst 1978. Styrkur til háskóla- náms í Sviss Svissnesk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau bjóði fram í löndum sem aðild eiga að Evrópuráðinu sex styrki til háskólanáms í Sviss háskólaárið -1979—80. Ekki er vitað fyrirfram hvort einhver þessara styrkja muni koma í hlut íslendinga. Styrkir þessir eru eingöngu ætlaöir til framhaldsnáms við háskóla og eru veittir til tíu mánaða námsdvalar. Styrkfjárhæðin er 950 svissneskir frankar á mánuði og auk þess fá styrkþegar allt að 500 franka styrk til bókakaupa. — Þar sem kennsla í svissneskum háskólum fer fram annaðhvort á frönsku eða þýsku er nauösynlegt að umsækjendur hafi nægilega þekkingu á ööru hvoru þessara tungumála. Þurfa þeir að vera undir það búnir, að á það verði reynt með prófi. Umsækjendur skulu eigi vera eldri en 35 ára og skulu hafa lokið háskólaprófi áður en styrktímabil hefst. Umsóknir um styrki þessa skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir 1. nóvember n.k. á tilskildum eyðublöðum sem þar fást. Menntamálaráöuneytið 25. ágúst 1978. Styrkur til háskóla- náms í Sviss Svissnesk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslendingi til háskólanáms í Sviss skólaáriö 1979—80. Ætlast er til að umsækjendur hafi lokið kandídatsprófi eða séu komnir langt áleiðis í háskólanámi. Þeir sem þegar hafa verið mörg ár í starfi, eða eru eldri en 35 ára, koma að öðru jöfnu ekki til greina við styrkveitingu. Styrkfjárhæðin nemur 800 svissneskum frönkum á mánuði tyrir stúdenta, en allt að 950 frönkum fyrir kandídata. Auk þess hlýtur styrkþegi nokkra fjárhæð til bókakaupa og er undanþeginn kennslugjöldum. — Þar sem kennsla í svissneskum háskólum fer fram annaöhvort á frönsku eða þýsku, er nauðsynlegt að umsækjendur hafi nægilega kunnáttu í öðru hvoru þessara tungumála. Þurfa þeir að vera undir það búnir að á það verði reynt með prófi. Umsóknum um styrk þennan skal komið til menntamálaráðuneytis- ins, Hverfisgötu 6, Reykjavík, tyrir 1. nóvember n.k. Sérstök umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu. Menntamálaráóuneytió 25. ágúst 1978. Styrkur til háskóla- náms í Japan Japönsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslendingi til háskólanáms í Japan námsárið 1979—80 en til greina kemur að styrktímabil veröi framlengt til 1981. Ætlast er til að styrkþegi hafi lokið háskólaprófi eða sé kominn nokkuð áleiðis í háskólanámi. Þar sem kennsla við japanska háskóla fer fram á japönsku er til þess ætlast að styrkþegi leggi stund á japanska tungu um a.m.k. sex mánaöa skeið. Umsækjendur skulu ekki vera eldri en 35 ára. Styrkfjárhæðin er 146.000 yen á mánuði og styrkþegi er undanþeginn skólagjöldum. Auk þess fær styrkþegi 25.000 yen við upphaf styrktímabilsins og allt aö 42.000 yen til kaupa á námsgögnum. Þá er og veittur ferðastyrkur. Umsóknir um styrk þennan, ásamt staðfestum afritum prófskírteina, meðmælum og heilbrigðisvottorði, skulu sendar menntamálaráðu- neytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir 22. september n.k. Sérstök umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu. Menntamálaráöuneytiö 25. ágúst 1978.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.