Morgunblaðið - 31.08.1978, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1978
33
fclk í
fréttum
+ Þegar leiðtogi Kínverja, félagi Hua Kuo-feng, heimsótti Rúmeniuforseta á
dögunum, tók Húa þátt í rúmenskum hringdansi og hafði lítt gefið þarlendum
eftir. Var þessi mynd tekin er dansinn dunaði og rúmensk snót og Hua héldust
í hendur í hringnum. — Á milli þeirra stendur gestgjafinn Sjóseskú, dálítið
spurull á svipinn, sýnist okkur?
+ Danski náttúrulæknirinn, sem heldur um hufuð mannsins á
myndinni. býr í bæ einum, Gershöj, 50 km fyrir vestan
Kaupmannahöfn. Náttúrulæknirinn segir sjálfur að hann geti
hjálpað fólki sem þjáist af ýmiskonar höfuðkvölum t.d. migreni,
með slíkri handayfiriagningu. Náttúrulæknirinn, sem heitir
Ilelmuth Sörensen, hefur mikinn „praksís“, eins og það heitir á
læknamáli. Hann segir frá því í blaðaviðtali að til hans leiti
500 — 600 manns á viku. í texta með myndinni hér að ofan er þess
getið að maðurinn, sem náttúrulæknirinn heldur um höfuðið á,
hafi leitað til hans eftir að hafa varið stórfé til að reyna að fá
bata, en árangurslaust.
Tilraunir
voru
stöðvaðar
+ Þessi kona hefði allt eins
getað verið móðir fyrsta glasa-
barnsins, en tilraunir lækna í
þessa veru fyrir nokkrum
árum vestur í New York voru
hreinlega stöðvaðar.
Konan. Doris Del Zio, og
maður hennar fóru í mál við
stofnun þá sem gerði þessar
tilraunir, en hún er í eigu hins
heimsfræga Columbia-háskóla.
Er nú genginn dómur í
málinu, en konan krafðist
skaðabóta. Voru henni
dæmdar ba-tur að upphæð
50.003 dollarar. eða um 13
milljónir ísl. kr. Þótti sannað
að hefðu tilraunirnar ekki
verið stöðvaðar. væri þessi
kona móðir fyrsta glasabarns-
ins í heiminum.
X
ffvriuT^ni puttpí
_
EFTl ;
D'
Þýzkur orgelleikari
með tónleika í Reykja
vík og á Akranesi
Akranesi. 29. ágúst.
I»ÝZKI orgelleikarinn dr. Ilubert
Meister er nú staddur hér á landi
og heldur hann tónleika hér á
Akranesi og í Reykjavík áður en
hann heldur af landi brott.
Dr. Meister er fæddur árið 1938.
Hann stundaði framhaldsnám við
tónlistarskólann í Míinchen hjá
Franz Lenndorfer í organleik og
Gunther Bialas í tónsmíði. Þá var
hann við frekara nám við tónlist-
arháskólann í Köln, þaðan sem
hann lauk doktorsprófi í tónvís-
indum. Eftir það hélt hann til
Rómar, þar sem hann stundaði um
tveggja ára skeið nám í tónsmíð-
um hjá Porra og í organleik hjá
orgelsnillingnum Ferrando Germ-
aní, sem íslendingum er að góðu
kunnur. Dr. Meister er nú kennari
við tónlistarháskólann í Köln.
Dr. Meister heldur tvenna tón-
ieika hér á landi, hina fvrri í
Akraneskirkju n.k. fimmtudags-
kvöld 31. ágúst kl. 20 og hina síðari
föstudagskvöldið I. september í
kirkju Fíladelfíusafnaðarins í
Reykjavík kl. 20.30.
A efnisskránni eru verk eftir dr.
Dopstekole, J.S. Bach, W.A. Moz-
art, auk improvísasjónar.
Júlíus.