Morgunblaðið - 31.08.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1978
21
Þessa mynd tók Sigurgeir í Eyjum íyrir nokkrum dögum af
Eyjapeyjum að veiða murta og marhnút á syðri hafnargarðinum við
Víkina í Eyjum, en þar hefur margur Eyjaskipstjórinn fengið fyrsta
aflann sinn.
V egabr éf sárit-
un til Bandaríkj-
anna afnumin?
Þráttaðum
vamarmál
Formennska í sér-
stakri öryggis- og varn-
armálanefnd var eitt
þeirra mála, sem hátt bar
í stjórnarmyndunarvið-
ræðunum í gær vegna
kröfu Alþýðubandalags-
ins um að það fengi
formann nefndarinnar
og var Ólafur Ragnar
Grímsson nefndur í því
sambandi. Alþýðuflokk-
urinn neitaði algjörlega
að fallast á það að for-
maður nefndarinnar yrði
úr röðum Alþýðubanda-
lagsins og stóðu flokk-
arnir þannig járn í járn.
Alþýðubandalagsmenn
létu þá líklega yfir því að
þeir gætu hugsað sér að
framsóknarmaður yrði
formaður þessarar
nefndar og hjó Ólafur
Jóhannesson síðan á
þennan hnút með því að
formennskunni yrði
frestað, fram yfir stjórn-
armyndun, en samþykkt
að setja nefndina á fót
með fulltrúum allra
flokka.
Málsgreinarnar varðandi
varnarmálin í starfsyfirlýsingu
hugsanlegrar ríkisstjórnar voru
ekki síður viðkvæmt mál í gær.
Alþýðuflokksmenn lögðu
áherzlu á að í starfsyfirlýsing-
unni yrði kveðið á um óbre.vtta
stefnu í aðalatriðum varnarmál-
anna, en alþýðubandalagsmenn
vildu fá inn setningar þess efnis
að breytingar á varnarmálunum
og skipan mála innan vallar
yrðu ekki nema með samþykki
alira flokkanna. Síðast þegar af
þessu fréttist virtist starfsyfir-
lýsingin kveða á um að varnar-
málin skvldu verða óbreytt
Ölafur Ragnar Grímsson.
áfram í meginatriðum og að
engu þeirra mætti breyfa án
samþykkis allra flokkanna. Var
talið líklegt að Alþýðubandalag-
ið myndi gefa út sérstaka
yfirlýsingu vegna varnarmál-
anna og stefnu flokksins varð-
andi aðild íslands að NATO og
veru varnarliðsins hér á landi.
Þessi varnar- og öryggismála-
nefnd er hugsuð til þess að láta
framkvæma ítarlega og hlut-
lausa rannsókn á öryggis- og
varnarmálum og er ætlunin að
hún fái talsvert fé til starfa
sinna og mannahalds.
Ósló, 30. ágúst
frá Jan-Erik Lauré.
fréttaritara Morgunblaðsins.
BANDARÍSKI sendiherrann í
Osló. Louis A. Lerner. hefur sagt
að margt bendi til. að Norðmenn
sem fari til Bandaríkjanna og
Aningarstaður-
inn á Hlemmi
sýndur í dag
ÁNINGARSTAÐURINN á
Iliemmi verður opnaður al-
menningi 1. sept. n.k. kl. 7.00.
Verður hann opinn alla virka
daga frá kl. 7 að morgni til kl.
23.30. á sunnudögum frá kl.
10.00 að morgni.
I dag íer Iram formleg
afhending Aningarstaðarins.
Gefst borgarbúum tækifæri á
að skoða húsnæðið á milli kl.
17.00 og 19.00.
dvelji þar skemur en í 90 daga
þurfi ekki vegabréfsáritun í
framtíðinni. Segir hann. að
bandarisk stjórnvöld hafi nú
málið í athugun.
Lerner sendiherra segir, að
hann sé mjög meðmæltur að
vegabréfsáritun til skemmri dval-
ar í Bandaríkjunum en 90 daga
verði afnumin og að 20 bandarískir
sendiherrar í öðrum löndum hafi
einnig lagt það til.
Kringum 50.000 vegabréfsum-
sóknir koma til bandaríska sendi-
ráðsins í Noregi ár hvert og ca.
63% umsóknanna eru um skemmri
dvöl en 90 daga.
Morgunblaðið hafði samband
við bandaríska sendiráðið í
Re.vkjavík í gær og spurði hvort
Islendingar gætu átt von á breyt-
ingu svipaðri þessari vegna ferða
til Bandaríkjanna. Var blaðinu
tjáö að vegabréfamálin væru nú
öll í endurskoðun í Washington, en
engin ákvörðun hefði enn verið
tekin.
Konur í sveitum fá
sömu laun og bændur
Akureyri, 30. ágúst frá
Trvggva Gunnarssyni, blm.
Mbl.:
EKKI hefur enn verið lokið við
samninga um nýtt búvöruverð,
sem taka á gildi nú 1. scptember
samkvæmt lögum og verður því
nokkur seinkun á gildistöku nýs
verðs á mjólk og mjólkurvörum.
Ástæða þess, að ekki hefur verið
lokið frágangi nýja verðsins, er
sú óvissa, sem nú ríkir í kaup-
gjaldsmálum og hvaða kauptaxt-
ar komi til með að gilda eftir 1.
september. Þrátt fyrir þetta
hefur náðst samkomulag í sex-
Fundarhöld hjá laun-
þegasamtökunum í dag
ALÞYÐUSAMBAND Is-
lands heldur í dag sameigin-
legan {und miðstjórnar og
landssambanda um nánari
útfærslu á hugmyndum for-
ráðamanna þeirra flokka,
sem nú reyna myndun
stjórnar, varðandi fyrir-
Idur fyrir
eftírmál
sem greindi á ferðseðlinum, var
ekki ótvírætt talin taka til breyt-
inga á farmiðaverði af þeim
orsökum. Var maðurinn af þessari
ástæðu sýknaður af að greiða
upphæðina.
Er Mbl. hafði tal af starfsmönn-
um Flugleiða á Reykjavíkurflug-
velli í gærkvöldi, kváðust þeir enga
tilkynningu hafa fengið um það að
fólk, sem greitt hefði fyrir farmiða
að fullu áður en ráðstafanir
Seðiabankans voru gerðar opin-
berar, yrði krafið um fargjalds-
auka eftir á, og töldu ekki að það
yrði gert.
komulag kjaramála í því
efnahagsdæmi, sem þar er
til úrlausnar. Einnig hefur
BSRB boðað til formanna-
fundar í dag um sama efni,
en á fundi stjórnar BSRB í
fyrrakvöld var ekki tekin
formleg afstaða til hug-
mynda stjórnmálaflokk-
anna þriggja heidur ákveð-
ið að fá nánari skýringar á
ýmsum atriðum þar að
lútandi.
Enn eru ekki komnar fram
fastmótaðar hugmyndir um hvar
setja skuli tekjumark varðandi
vísitöluþak það, sem til umræðu
hefur verið en eins og áður hefur
verið skýrt frá er nú rætt um að
það verði á bilinu 220—40 þúsund
krónur en heyrzt hefur að óánægja
ríki meðal forsvarsmanna lág-
launafélaganna með það hversu há
þessi tekjumörk væru. Mbl. bar
þetta undir Guðmund J. Guð-
mundsson, formann Verkamanna-
sambands íslands, og svaraði hann
því til að því fjær sem þetta mark
væri frá tillögum Verkamanna-
sambandsins þeim mun lakar litist
honum á það. Hann sagði að enda
þótt sú tala, sem kæmi fram í
tillögum Verkamannasambands-
ins, væri ekki heilög, þá væri Ijóst
. að eftir því sem hún væri hærri,
því erfiðara yrði að bæta og
vernda kaupmátt hjá láglauna-
fólkinu.
mannancfndinni um ha kkanir á
ýmsum rekstrarvöruliðum og
fjármagnsliðum og lætur nærri
að við þær hækkanir hafi verð-
lagsgrundvöllur búvara hækkað
up tæplega 4.5% en þar við eiga
eins og áður sagði eftir að bætast
breytingar á launaliðum grund-
vallarins og þá er enn ósamið um
alla liði vinnslu- og dreifingar-
kostnaðar og engu hægt að spá
um hækkun búvaranna í smásölu.
Meðal þeirra atriða, sem náðst
hefur samkomulag um innan
sexmannanefndarinnar, er að
breyta útreikningi launagrunns
dagvinnu við búreksturinn þannig
að öll dagvinna verði reiknuð í
vikum á karlmannskaupi og hefur
þessi breyting í för með sér að
leiðréttur er sá munur, sem verið
hefur á launum bónda og hús-
freyju og fá þau nú bæði sömu
laun. Dagvinnuvikurnar verða 81
og kaupið miðað að 55/100 við
iðnaðarmannataxta en 45/100 við
3., 4., og 5. taxta Dagsbrúnar-
verkamanna. Eftir- og næturvinna
verður reiknuð með sama álagi á
dagvinnukaup eins og gildir á
almennum vinnumarkaði hverju
sinni. Þessi breyting felur í sér
ieiðréttingu á gildandi launa-
grunni um 403.130.00 krónur eða
8,3%.
Þá hefur náðst samkomulag um
breytingar á nokkrum fjármagns-
liðum grundvallarins og þannig
verða vextir og verðbótaálag
fastra lána við Stofnlánadeild
landbúnaðarins 204.810.00 krónur í
stað 116.156 í gildandi grundvelli
og er hækkunin 76,23%. Sam-
komulag er um að hækka lausa-
skuldir úr 507 þúsundum í 720
Nánast ófært um Mývatnsöræfi
Björk, Mývatnssveit, 30. ágúst.
VEGFARENDUR, sem leið eiga
um Mývatnsöræfi milli Mývatns-
sveitar og Hólsf jalla, kvarta mjög
yfir því hve vegurinn er slæmur
og tclja hann jafnvel nánast
ófæran sökum þess að hann hefur
ekki verið heflaður lcngi. Þá er
einnig bent á að ailt slitlag
vegarins á stórum köflum er
horfið. Brýnt er að nú þegar verði
hafizt handa um cndurbætur á
þessum kafla hringvegarins m.a.
með því að byggja hann upp á
þeim stiiðum sem snjó leggur
fyrst á. íhúar Ilólsfjalla ciga það
sannarlega skilið að betur sé
staðið að samgönguhótum á
Mývatnsöræfum en verið hcfur.
Vegurinn þar cr það scm þeir
treysta á vegna samgangna við
Mývatnssveit yfir vetrarmánuð-
ina. Þess vegna má ekki dregast
lengur að gera þessa leið sem
þúsund og hækka vextir þeirra úr
120.455.00 kr. í gildandi grundvelli
í 171 þúsund kr. eða um 41,9% .
Einnig er samkomulag um að
hækka fyrningarstofn útihúsa úr
2.5 millj. í 3,5 millj. og er það 40'í
hækkun eða áþekk hækkun bygg-
ingarvísitölu milli áranna og þá
hefur orðið samkomulag um að
hækka afskriftarstofn véla úr kr.
1.7 millj. í 3 millj og er það 69%
hækkun. Sagði Gunnar Guðbjarts-
son formaður Stéttarsambands
bænda í ræðu á aðalfundi sam-
bandsins að með þessum breyting-
um á fjármagnsliðunum hefði
þokast verulega í átt til þeirra
krafna, sem bændur hefðti sett
fram við haustverðiagningu 1977
en var þá hafnað af yfirnefnd.
öruggasta ef byggð á að haldast
áfram á þessum stað.
Þess skal getið að í frétt í
blaðinu s.l. þriðjudag var sagt að
tveir Japanir væru byrjaðir að
vinna við uppsetningu túrbínu nr.
2 í Kröfluvirkjun, en það rétta er
að þeir eru að vinna við túrbínu nr.
1.
— Kristján.
„íslenzk föt
78” hefst
á morgun
SÝNINGIN .íslenzk föt ‘78-
hefst á morgun. föstudag. með
opnunarathöfn í Laugardalshöll
kl. 16. Á þcssari sýningu sýna 23
fyrirta'ki f fataiðnaði og auk
þess verða umfangsmiklar tízku
sýningar. Á .Islenzk föt '78"
verður vetrartízka kynnt. baði
kven-. karla- og harnafatnaður.
Tízkusýningar verða kl. 18.00 og
21.00 daglcga og ennfremur kl.
15.30 um helgar.
Sýningar á hárgreiðslu og
sn.vrtingu verða á hverjum degi,
kl. 17.30 og 20.30 og ennfremur kl.
15.(K) um helgar.
Á sýningunni verður fatamark-
aður, þar sem fvrirt.ekin hafa á
boðstólum sýnishorn af fram-
leiðslu sinni, eina til tva>r teg-
undir frá hverju fyrirtæki.
Sýningin verður opin fyrir
almenning frá kl. 17.00 til 22.00
virka daga en frá kl. 14.00 um
helgar. Aðgangseyrir á sýning-
una er kr. 700 fyrir fullorðna og
kr. 3(K) fyrir börn.
A mánudag, þriðjudag og mið-
vikudag þ.e. 4.-6. september
veröur sérstök kaupstefna frá kl.
10.00 til kl. 10.(K) og er þá
eingöngu opið fyrir kaupmenn og
innkaupastjóra.