Morgunblaðið - 31.08.1978, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1978
Áætlað að halda á
miðin við Jan Mayen
Lodnan þar allt ad 28% feit
Þrír bændur med
nær 3000 ærgildi
RúmlegaVs bænda með stærri bú en 400 ærgildi
MORGUNBLAÐINU er
kunnugt um að nú er í
bígerð að einhver íslenzk
loðnuskip haldi til loðnu-
miðanna við Jan Mayen og
athugi frekar með veiði
þar. í gær bárust engar
fréttir af veiðum norsku
skipanna frá þessum slóð-
um, en þær fréttir hafa nú
Hrossauppboð
á Blönduósi
SÖLUFÉLAG Áustur-Húnvetn-
infta hefur ákveðið að gangast
fyrir opinberu hrossauppboði á
Blönduósi n.k. laugardag. Var í
gær búizt við að þarna yrðu boðin
upp 15—20 hross og eru þau
eingöngu tamin og sumt ágætis
reiðhestar að sögn Árna Jóhanns-
sonar kaupfélagsstjóra á Blöndu-
ósi. Hefst uppboðið laust eftir
hádegið og verður það haldið við
tamningastöðina á Blönduósi. —
Þetta er tilraun hjá okkur og við
erum fyrst og fremst að kanna
með þessu hvort menn hefa áhuga
á að selja hross með þessum hætti
og hvort einhverjir kaupendur
koma, sagði Árni.
borizt frá Noregi að loðnan
á þessum slóðum sé allt að
28% feit, eða tvöfalt feitari
en loðnan, sem íslenzku
skipin hafa verið að ».fá
siðustu vikurnar. Ef satt
reynist að loðnan sé allt að
28% feit, þá fást yfir 20 kr.
fyrir hvert kfló af henni.
Tíu skip tilkynntu Loðnu-
nefnd afla frá því kl. 17.00
í fyrradag fram til kl. 16.00
í gær og eru þau þessi:
Hilmir SU 520 lestir,
Magnús NK 470, Örn KE
550, Stapavík SI 470,
Sigurður RE 1350, Sandafell
GK 100, Börkur NK 1050,
Þórshamar GK 450, Víkur-
berg GK 250 og Hákon ÞH
600 lestir.
Aflasumri lokid
í Miðfjardará
Staðarbakka, 30. ágúst.
VEIÐI lauk í Miðfjarðará í dag, en
alls veiddust 2354 laxar og er það
svipuð tala og síðasta ár, en það
var algjört metár. Mest veiði í þrjá
daga á 10 stengur voru 380 laxar.
— Benedikt.
Akureyri 30. ágúst.
Frá Tryggva Gunnarssyni
blm. Mbl.
AF ÞEIM 4473 bændum sem nú
er í landinu voru 2716 með
bústofn innan við 400 ærgildi um
áramótin 76—77 og var ærgilda-
fjöidi þeirra alls 651190. en
heiidarærgildafjöldi í eigu bænda
var 1710490. Eins og komið hefur
fram í fréttum blaðsins er kveðið
svo á í tillögudrögum hinnar svo
nefndu 7 mannanefndar að hcim-
ilt verði að setja kvóta á fram-
leiðslu sauðfjár- og nautgripa
bænda og hefur nefndin sett fram
þær hugmyndir um skerðingar-
mörkin að á fyrsta ári verði allir
bændur að taka á sig 2% skerð-
ingu af grundvallarverðinu og
þegar bændur eru með 401—600
ærgildi verði skcrðingin 4% við
viðbótina umfram 400 ærgildi.
Fyrir þá sem hafa 601—800
ærgildi verði skerðingin 8% af
verðinu og hjá þeim sem cru mcð
801 ærgildi og þar yfir verði
skerðingin 8% og hjá þéttbýlis-
húum og ríkisbúum verði skerð-
ingin 10%.
Gerð hefur verið könnun á því
hvernig búin í landinu skiptast
niður eftir ærgildafjölda og reyn-
ast 233 bændur vera með 100
ærgildi eða minna, 734 bændur
með 101—200 ærgildi, 897 bændur
með 201—300 ærgildi, 852 bændur
með 301—400 ærgildi, 669 bændur
með 401—500 ærgildi, 414 með
501—600 ærgildi, 269 með
601—700 ærgildi, 172 bændur með
701—800 ærgildi, 108 bændur með
801—900 ærgildi, 66 bændur með
901—1000 ærgildi, 32 bændur með
1001—1100 ærgildi, 16 bændur
með 1101—1300 ærgildi, 6 bændur
með 1301—1500 ærgildi, 4 bændur
með 1501 — 1700 ærgildi og 3
bændur með 2100—3000 ærgildi.
Ærgildi nautgripa og sauðfjár í
landinu eru nú talin 1779412 og
eins og áður sagði eiga bændur þar
af 1710490 ærgildi, en afganginn
eiga m.a. þéttbýlisbúar sem eiga
33995 ærgildi og þá eingöngu
sauðfé, tilraunabú hins opinbera
eiga 15513 ærgildi og af því eru
4045 ærgildi í sauðfé og þá er
einnig töluvert af sauðfé í eigu
manna sem hafa lögb&li til um-
ráða, en stunda aðra aðalatvinnu
en landbúnað. Ærgildi er eins og
nafnið bendir til notað um eina ær
og jafngildir ein mjólkurkú 20
ærgildum og geldneyti 8 ærgild-
um.
5 millj. kr.
smyglgóss
í olíutank
ER M.S. Bifröst kom til Njarðvík-
ur að utan s.l. mánudag, fundu
tollverðir eftirtalinn smyglvarn-
ing í skipinut
305 flöskur af vodka, 119000 stk.
af vindlingum, eða um 600 karton,
12 ks. af áfengum bjór, 2 ks. af
cocktailblöndu, 2 stk. talstöðvar.
Eigendur smyglvarningsins
voru sex skipverjar. Varningurinn
fannst aðallega í olíutank og í lest
skipsins, en hann er um 5 millj. kr.
virði á útsöluverði hérhndis.
Níu nýir ráðherrar:
Ólaf ur, Steingrímur, Tómas -
Benedikt, Kjartan, Magnús-
Ragnar, Hjörleifur, Svavar
FRAMSÓKNARMENN
og alþýðuflokksmenn
gengu að mestu leyti frá
ráðherraefnum sínum á
þingflokksfundum síð-
degis í gær en meiri
óvissa ríkti um ráðherra-
efni Alþýðubandalagsins
allt fram undir það er
þingflokksfundur hófst i
gærkvöldi.
í ráðuneyti Ólafs Jóhannes-
sonar er gert ráð fyrir að verði
9 ráðherrar, ef af stjórnarmynd-
un verður. Á þingflokksfundi
Framsóknarflokksins í gær voru
þeir Ólafur, Steingrímur Her-
mannsson og Tómas Árnason
kosnir ráðherraefni flokksins og
fengu þeir öll atkvæði nema
þrjú sem skiptust á Einar
Ágústsson, Vilhjálm Hjálmars-
son og Jón Helgason.
Frá upphafi má segja að ljóst
hafi verið að þeir Benedikt
Gröndal formaður Alþýðu-
flokksins og Kjartan Jóhanns-
son varaformaður hans yrðu
ráðherraefni Alþýðuflokksins
en eftir þingflokksfundinn í gær
voru mestar líkur á því að
Magnús H. Magnússon fyrrum
bæjarstjóri í Eyjum yrði þriðji
ráðherra flokksins, þó að það
væri talið ráðast nokkuð af þeim
ráðuneytum sem kæmu í hlut
flokksins.
Innan Alþýðubandalagsins
var aðeins eitt ráðherraefni
flokksins öruggt fyrir þing-
flokksfundinn, sem halda átti í
gærkvöldi, en það var Ragnar
Arnalds. Itrekað hefur verið
Ragnar
Hjörleifur
Svavar
reynt að fá Lúðvík Jósepsson og
Geir Gunnarsson til að gefa kost
á sér í ráðherrastóla en þeir
höfðu til þessa algjörlega neitað
því. Að þeim frátöldum voru
einkum nefndir til Hjörleifur
Guttormsson og Svavar Gests-
son.
Um kvöldverðarleytið í gær-
kvöldi virtist einsýnt að auk
forsætisráðuneytis fengi Fram-
sóknarflokkurinn í sinn hlut
fjármálaráðuneytið, landbúnað-
arráðuneytið og dóms- og
kirkjumálaráðuneytið, og var
líklegast talið að Steingrímur
tæki fjármálaráðuneytið og
Tómas Árnasoa dóms- og
kirkjumálaráðuneytið og einnig
landbúnaðarráðuneytið. Ljóst er
að Benedikt Gröndal verður
utanríkisráðherra, ef þessi
stjórnarmyndun tekst, og Kjart-
an Jóhannsson verður sjávarút-
vegsráðherra. í hlut Magnúsar
kemur heilbrigðis- og trygg-
ingaráðuneytið, og/eða sam-
gönguráðumeytið og/eða félags-
málaráðuneytið en ekki mun
fyllilega gengið frá skiptingu
þessara ráðuneyta milli Alþýðu-
flokks og Alþýðubandalags.
Vegna þess hversu óljóst er
um ráðherraefni Alþýðubanda-
lagsins er erfiöara að fá upplýs-
ingar um skiptingu ráðuneyta
þar á milli manna. Rætt hefur
verið um að Hjörleifur Gutt-
ormsson taki iðnaðar- og orku-
málin en Ragnar Arnalds mun
einnig hafa áhuga á þeim
málaflokki. Þá er einnig ljóst að
viðskiptaráðuneytíð kemur í
hlut Alþýðubandalagsins og
einnig hefur því verið boðið
menntamálaráðuneytið. Horfur
voru á þvi í gærkvöldi að reynt
yrði enn að fara á fjörurnar við
Geir Gunnarsson um að taka við
því ráðuneyti úr því að hann
hefur algjörlega hafnað fjár-
málaráðuneytinu.