Morgunblaðið - 31.08.1978, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1978
7
„Eins og illa
tamin meri“
Málgagn Ólafs Jóhann-
essonar, Tíminn, gefur
eftirfarandi lýsingu á Al-
Þýðubandalaginu í for-
ystugrein í gær: „Fram-
sóknarmönnum kemur
Það ekki heldur á óvart,
aö AlÞýóubandalags-
menn eru ekki ábyrgari
en svo, að Þegar að Þeim
er komið um stjórnar-
Þátttöku, Þá setja Þeir
upp ógurlegan spakvitr-
ingssvip og byrja meö
einhvern stórvísindaleg-
an Þvætting, sem á að
afsaka Það athæfi Þeirra
að vinna eins og menn að
framförum í landinu. Þá
byrja Þeir meö alls kyns
útskýringar og hinar
flóknustu undanfærslur,
sem eru Þó ekkert annað
en hótanir um villta
kröfugerð og lymskuleg-
ar yfirlýsingar um, að Þeir
muni hlaupa út undan sér
eins og illa tamin meri,
hvenær, sem er.“ Þetta er
lýsing málgagns Ólafs
Jóhannessonar á einum
Þeirra flokka, sem hann
er að reyna að mynda
stjórn með.
„Eins og aldr-
aðar ]ómfrúr“
Lýsing Tímans á hinum
flokknum, sem Ólafur er
að reyna að mynda stjórn
með, er hins vegar svo-
felld: „Framsóknarmönn-
um kemur Það út af fyrir
sig ekki á óvart, aö
AlÞýðuflokksmenn slá úr
og í um öll atriði Þeirra
viðræðna, sem yfir hafa
staðið. Þeir tala í austur
og vestur á víxl og sé á
Þá gengið um afdráttar-
laus stefnumál verða Þeir
eins og aldraðar jómfrúr
í gömlum myndasögum
og fara að prjóna um
siðgæði og siðprútt líf-
erni.“
Vilja ein-
angra Al-
þýöuflokkinn
Einn af Þingmönnum
AlÞýðuflokksins, Árni
Gunnarsson, lýsir hins
vegar viöhorfi AlÞýðu-
flokksins til Þeirra flokka
sem vilja AlÞýðufiokkinn
með í vinstri stjórn:
„Höfundur Þessa pist-
ils er eindregið Þeirrar
skoðunar, aö Þegar eftir
kosningar hafi AlÞýðu-
bandalag og Framsókn-
arflokkur stefnt að Því aö
lífdagar hins nýja Þing-
flokks AlÞýöuflokksins
yrðu ekki langir. Það
mótaöi afstöðu Þessara
tveggja flokka til stjórn-
armyndunarviðræðnanna
og gerir ugglaust enn.
Eðlilega eru Framsóknar-
menn sárir vegna mikils
fylgishruns, og AlÞýöu-
bandalagsmenn eiga erf-
itt meö aö kyngja Því, að
AlÞýöuflokkurinn skuli
vera orðinn jafnstór Al-
Þýðubandalagínu.
Þeir höföu áður lýst yfir
Því, að eitt helzta hlut-
verk AIÞýðubandalagsins
í íslenzkum stjórnmálum
væri að Þurrka AlÞýðu-
flokkinn út.
AlÞýðubandalagið
stefndi aö Því leynt og
Ijóst, aö koma AlÞýöu-
flokki í eina sæng með
Sjálfstæðisflokki, svo að
endurtaka mætti „viö-
reisnarævintýrið". Það
uröu AlÞýðubandalags-
mönnum mikil vonbrigði
Þegar AIÞýðuflokkurinn
lýsti yfir Því, að sam-
stjórn Þessara flokka
væri óraunhæfur mögu-
leiki. Þá var nánast ekki
annað eftir en aö ein-
angra AlÞýðuflokkinn. Sú
stefna varð rauði Þráður-
inn í öllum stjórnarmynd-
unarviðræðunum.
AlÞýöubandalagið
eyðilagði tilraun Bene-
dikts Gröndals til mynd-
unar „vinstri stjórnar". Þá
sögðu AlÞýðubandalags-
menn, að gengisfelling
kæmi ekki til greina og
AlÞýðuflokksmenn fengu
ekki einusinni að ræða
við fulltrúa verkalýðs-
hreyfingarinnar um
kjarasáttmála og sam-
starf launÞegahreyfinga
og stjórnmálaflokka.
Þegar Lúðvík Jósefsson
tók við stjórnarmyndun
var Því ekkert til fyrir-
stöðu af hálfu AlÞýðu-
bandalagsins að sporð-
renna gengisfellingu og
viöræöur við launpega-
hreyfingarnar gátu hafist.
Hvers vegna?
Höfundur Þessa pistils
er staðfastlega Þeirrar
skoðunar, að pað sé enn
hugmynd Framsóknar og
AlÞýöubandalags að
kosningar fari fram aö
vori. Með Þingrofsvaldið í
höndum getur Framsókn
rofið Þing. Og Það ætti að
verða tiltölulega auðvelt,
ef ekki verður gengið frá
áætlun í efnahagsmálum
til langs tíma, sem vænt-
anleg vinstri stjórn á að
starfa samkvæmt. Á einu
Þingi munu AlÞýöu-
flokksmenn eiga lítla
möguleíka á að koma
áhugamálum sínum fram.
Málefnalega munu Þeir
Því standa uppi heldur
slippir og snauðir, pegar
gengið verður til kosn-
inga.
En í hugsanlegu sam-
starfi svonefndra vinstri
flokka mun AlÞýðuflokk-
urinn ekki liggja á liði
sinu. Það mun koma í
Ijós, aö Þeir menn, sem
segja að AlÞýðuflokkur-
inn hafi brugðist í stjórn-
armyndunarviöræðunum,
fara með rangt mál. Al-
Þýðuflokkurinn vildi, að
Þegar í stað eftir kosn-
ingar yrði ráðist gegn
efnahagsvandanum. En
flokkurinn fékk einfald-
lega ekki frið og mögu-
leika til góðra verka. í
Þeim efnum verður
ábyrgö lýst á hendur
AIÞýöubandalagi og
Framsókn.“
Þannig eru viðhorf
hvers til annars í Þeim
viöræðum, sem staðið
hafa yfir að undanförnu.
Hvers konar stjórn haida
menn að Þetta verði, ef
hún Þá kemst saman?
VANTAR ÞIG VINNU (n
VANTAR ÞIG FÓLK í
tD
ÞÚ AUGLÝSIR UM AI.LT
LAND ÞEGAR ÞÚ AUG-
LÝSIR í MORGUNBLAÐINL
SKYNDIMYNDIR
Vandaöar litmyndir
í öll skírteini.
bama&fjölsk/ldu-
Ijósmyndir
AUSTUR5TRO 6 SÍMI12644 -
Tvinninn
sem má treysta.
Hentar fyrir allar gerðir efna.
Sterkur — lipur.
Óvenju mikið litaúrval.
DRIMA — fyrir öll efni
Heildsölubirgðir:
Davíð S. Jónsson
&Coh.f.
OPNUM A MORGUN
í LAUGARDALSHÖLL
Tískusýningarnar á
FÖT '76 gjörbyltu
hugmyndum flestra
um innlenda fataframleidslu.
Hvaö verður nýtt
á FOT ‘78?
Sýningin hefst á morgun
kl 17 og stendur
til 10. september.
FOT/78
S
Barnabuxur
Kápur, dömustærðir
Dömubuxur úr sléttu flaueli
Drengjaskyrtur m/st. ermum
Verö kr.:
1.195-
7.995-
3.995-
599-
Bútar:
Flauels og denimbútar á hálfvirði.
Glös í gjafapakkningum. Mikiö úrval,
stórlækkaö verö.
Vekjum athygli á:
Sykur í 50 kg. sk. kr. 125.- pr. kg.
Gott saltkjöt á sérlega hagstæöu verði.
Opiö til 10
föstudagskvöld
HAGKAUP
SKEIFUNN115