Morgunblaðið - 31.08.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1978
3
„Þú færð ekki að lifa lengur”
Rætt við Eggert Lárusson
um skotárásina i Osló
Sjúkrabifreiðir og löjíregla úti fyrir húsi því sem árásin var gerð
í.
Osló 30. ágúst
frá Jan Erik-Lauré
fréttaritara Morgunblaðsins.
- ÉGSTÓÐ í ganginum
í íbúðinni. 'Maðurinn sat
í stofunni og var að fikta
við eitthvað. Skyndilega
stóð hann upp og gekk
hratt í áttina að mér. Og
síðan öskrar hann „þú
færð ekki að lifa lengur“
og dregur upp skamm-
byssu. Ég skildi það
strax að hann ætlaði að
skjóta mig og beygði mig
saman. Úr minna en eins
metra fjarlægð hleypti
hann skotinu af. Ég kast-
aðist þvert yfir ganginn
og upp að veggnum, en
skotið for í gegnum mig
og í vegginn. Andartak
lá ég á gólfinu og blóðið
streymdi úr mér og ég sá
manninn æða inn í her-
bergið, þar sem eigin-
kona hans og tvö stjúp-
börn héldu sig.
Rólegur og æðrulaus segir
íslenzki námsmaðurinn Egg-
ert Lárusson mér þessa sögu,
um hina blóðugu skotárás,
sem átti sér stað í Osló
Eggert Lárusson
laugardaginn 19. ágúst s.l.
Eggert virðist einstaklega vel
á sig kominn, eftir það sem
gerðist, en fyrir einni viku var
hann á milli heims og helju.
Skotið fór í gegnum magann,
lifrina og snerti lungun. —
Það eru ekki margir sem lifa
af slík skotsár hafa læknarnir
sagt Eggert.
Eggert hafði aðeins þekkt
konu skotmannsins í einn
dag, þegar skotárásin átti sér
stað. Þau hittust á veitinga-
stað á föstudagskvöld, en
Eggert var þar með vinkonu
konunnar, og fóru þau síðan
heim til vinkonunnar. Daginn
eftir var morgunverður
snæddur á sama veitinga-
staðnum og þar hitti Eggert
eiginmann konunnar. Eggert
bauð þá konunni að aka henni
heim í íbúðina, en hún sagðist
þurfa að ná í föt þangað og
sagðist hún vilja skilja við
eiginmanninn og ætla að
flytja í íbúðina til vinkonu
sinnar.
— Þegar við komum í íbúð
konunnar að Tonsenhagen
var maðurinn þegar kominn
þangað. Hann sat inni í stofu.
Konan ætlaði að ræða við
börnin sín, sem voru í öðru
herbergi og ég stóð í gangin-
um milli stofunnar og svefn-
herbergisins og maðurinn
skaut örugglega á mig, vegna
þess að ég stóð í vegi hans.
— Andartak lá ég á gólf-
inu, — var lamaður eftir
skotið. Eg veit ekki hvaðan ég
fékk krafta, en mér tókst að
standa upp og koma mér út úr
íbúðinni. A þeirri stundu, sem
ég var að komast út um
dyrnar heyrði ég þrjú skot.
Það voru skotin, sem drápu
konuna og særðu börnin.
Maðurinn elti mig síðan niður
ganginn og skaut einu skoti.
Sem betur fer hitti hann ekki
og ég komst út úr blokkinni
og inn í annan inngang, þar
sem ég lagðist niður.
Eggert segir, að hann hafi
verið með meðvitund allan
tímann. — Eg varð í raun
fokvondur, því það leið svo
löng stund, þar til ég fékk
einhverja hjálp, allir vildu
hjálpa mér, en allir virtust
svo taugaóstyrkir og að mínu
mati leið allt of langur tími,
þar til ég var kominn á
sjúkrahús.
Eggert hefur verið í Noregi
í 2V2 ár, unnið og gengið í
skóla, m.a. í Stavanger. Sam-
kvæmt öllu átti hann að byrja
nám við svæðisháskólann í
Lillehammer þann 29. ágúst
og leggja stund á ferðamála-
nám. Hann hefur verið í
sambandi við skólann og
hefur nú fengið skilaboð um,
að hann verði að byrja innan
mánaðar í skólanum, annars
verði hann að bíða í eitt ár.
— En ég stefni að því að
losna af sjúkrahúsinu og
byrja í skólanum innan eins
mánaðar, segir Eggert Lárus-
son brosandi.
Miklir rekstrarerf-
iðleikar hiá BIJR
BÆJARÚTGERÐ Reykja-
víkur á við mikil fjárhags-
vandamál að stríða eins og
flest önnur fiskvinnslufyr-
irtæki í landinu og í gær
var rætt um stöðu fyrir-
tækisins á útgerðarráðs-
fundi, en heyrzt hefur að
Loftur Guð-
mundsson
látinn
LOFTUR Guðmundsson rithöfund-
ur og hlaðamaður andaðist 1
Reykjavík 29. ágúst s.l. Loftur
ritaði fjölda bóka, skáldverk.
gamanþaúti fyrir útvarp og svið,
kvikmyndahandrit, viðtalsbækur.
leikrit. ljóð og dægurlagatexta og
barnabækur. Loftur var kennari
að mennt og kenndi hann lengst í
Vestmannaeyjum.
Loftur þýddi einnig margar
bækur úr erlendum málum á
íslenzku. Loftur fæddist áriö 1906 í
Kjósarsýslu. Eftirlifandi kona hans
er Tala Klemensdóttir.
lausaskuldir fyrirtækisins
nemi nú kringum 160 millj.
kr.
í samtali við Morgunblaðið í
gær sagði Björgvin Guðmundsson
formaður útgerðarráðs BÚR, að
fyrirtækið væri statt eins og önnur
frystihús og ætti við mikil rekstr-
arvandamál að stríða. Á sínum
tíma hefði verið ákveðið að BÚR
tæki ekki þátt í þeirri ákvörðun
annarra frystihúsa um að stöðva
rekstur 1. september, en það hefði
verið skoðun borgarstjórnar og
borgarráðs að reyna að halda
rekstri frystihússins áfram eins
lengi og frekast væri kostur, þar
sem hér væri um opinbert fyrir-
tæki að ræða. Þá tryðu menn ekki
öðru en að núverandi eða væntan-
leg ríkisstjórn gerðu ráðstafanir
til þess að rekstur frystihúsanna
yrði viðunandi á ný.
Björgvin sagði að ein af ástæð-
unum fyrir rekstrarvanda BÚR
væri, að undanfarið hefði fyrir-
tækið staðjð í mikilli fjárfestingu.
Breytingar hefðu verið gerðar á
fiskiðjuverinu, bæði til að auka
hagkvæmni og eins til að bæta
aðstöðu starfsfólksins. Ennfremur
hefðu verið gerðar breytingar á
Bakkaskemmu til að ganga frá
fullkominni löndunaraðstöðu þar
og á sama tíma hefðu togarar BÚR
verið búnir kössum. Nokkuð fé
heföi verið tekið úr rekstri fyrir-
tækisins til þessara framkvæmda.
Dagný seldi fyr-
ir 37.4 millj. kr.
SKUTTOG ARINN Dagný frá
Siglufirði lauk við að selja 141 lest
af ísúðum fiski í Hull í gær.
Togarinn fékk samtals 37.4 millj.
kr. fyrir aflann og var meðalverð
á kíló kr. 265, miðað við síðasta
skráða gengi.
Þá seldi vélbáturinn Hamar SH
92.4 lestir í Cuxhaven í Þýzkalandi
fyrir 23.7 millj. kr. og var meðal-
verð á kíló kr. 257.
0
II
LOFTRÆSTIVIFTUR
Á undanfömum tveimur áratugum höfum við byggt upp stcerztu og reyndustu sér- I
verzlun landsins með loftrcestiviftur í híbýli, skrifstofur, skóla, samkomuhús,
verksmiðjur, vörugeymslur, gripahús og aðra þá staði þar sem loftrcestingar er þörf.
Veitum tceknilega ráðgjöf vio val á loftrcestiviftum.
Pekking
feynsla
Þjónust,
Fálkinn
póstsendir
allar nánari
upplýsingar,
sé þess óskað.
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670