Morgunblaðið - 31.08.1978, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 31.08.1978, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1978 eftir hugmyndaflugi hvers og eins, en vinsælt er að gera lampafætur, skartgripi, alls kyns bauka og ausur,“ sagði Sverrir ennfremur, en augljóst var að kennararnir höfðu svo sannarlega ekki verið aðgerðarlausir á námskeiðinu, því þarna mátti sjá fjöldann ailan af ails kyns munum úr málmi. Gróa Jakobsdóttir og líkanið af Grjótaborpinu margumtalaóa. Kennir föngum á Litla-Hrauni Á næsta borði við málmsmíðina mátti sjá mjög litskrúðuga hluti, og kenndi þar margra grasa. Þar voru skærgulir og rauðir spari- grísir og aðrar kynlegar verur. Gróa Jakobsdóttir var þar í óða 'önn við að útskýra fyrir fólki, hvernig þessir skrautlegu hlutir væru unnir. Sagði hún að spari- grísirnir, sem óneytanlega vöktu mesta athygli, væru þannig unnir að fyrst væri blásin upp blaðra og síðan væri borin á hana grænsápa og þar næst væri lagt til skiptis á blöðruna dagblöð og veggfóðurs- lím. Þegar nóg væri komið af því væri þetta þurrkað vel og því næst væri hægt að fara að móta eyru, trýni og lappir, en loks væri þetta alit saman málað í skrautlegum litum. Sagði Gróa að með þessari aðferð mætti móta alls kyns muni og sýndi hún okkur meðal annars alls kyns grímur, sem hún sagði að væru mjög vinsælar. Gróa sagðist kenna föngunum á Litla-Hrauni föndur og hefðu þeir mjög gaman af slíkri handavinnu. Sagði hún að fangarnir hefðu yfirleitt mikinn áhuga á að gera eitthvað í höndunum, og væri leirmótun þá ef til vill vinsælust og hefðu þeir unnið marga fallega hluti í leir, en margir fengjust líka við að sauma út og væri handbragð þeirra í flestum tilfellum mjög fallegt. „Það sem við erum með hérna er eiginlega alveg nýtt af nálinni og hef ég ekki verið áður með það á Litla-Hrauni, en hlakka til að fara og kenna föngunum þetta, því að þeir hafa ábyggilega mjög gaman af því,“ sagði Gróa og sneri sér því næst að borði, sem á var leirlíkan af Grjótaþorpinu margumtalaða. Sagði Gróa að þarna mætti sjá Grjótaþorpið, eins og hópurinn, sem á námskeiðinu var, helst kysi að hafa það, því þetta væri hópverkefni, sem hópurinn hefði unnið. Líkanið var ákaflega skemmtilega útfært og sýndi vel hve leirinn gefur fólki mikla sköpunarmöguleika, ef hugmynda- flugið er notað. Leggja áherslu á frjálsa myndsköpun Einn af leiðbeinendum á nám- skeiði í mynd- og handmennt fyrir 7 og 8 ára börn var Hjálmar Þorsteinsson frá Akranesi, en á Akranesi sagðist hann hafa kennt í mörg ár. Hjálmar sagði að hann teldi að gífurlegur aðstöðumunur væri í skólum úti á landi miðað við höfuðborgarskólana, og bitnaði það helst á handmennt. „Sem betur fer er nú að vakna skilningur meðal fólks á því að nauðsynlegt er að sinna þessum greinum eins og öði;um, þannig að ástandið fer nú batnandi,“ sagði Hjálmar. „Á námskeiðinu var lögð mest áhersla á það að koma inn frjálsri myndsköpun hjá börnum, þannig Áhugasamir kennarar skoóa sýninguna. Hluti at verkefnum peim sem ætluó voru 7 og 8 óra börnum. 200 kennarar á námskeid- um í mynd- og handmennt Litið við á sýningu, sem haldin var í lok námskeiðanna ÞAÐ var mikið um að vera í Æfingaskóla Kennara- háskóla íslands eftir hádegi síðastliðinn laugardag. Ástafðan var þó ekki sú að nemendur væru að taka til starfa aftur eftir sumarfrí, því enn eru nokkrir dagar áður en skólarnir byrja. Er blaðamenn Morgunblaðsins grennsluðust nánar fyrir um það hvað um væri að vera kom í ljós að þarna höfðu safnast saman kennarar víða að af landinu en þeir höfðu þá nýlokið námskeiðum í mynd- og handmennt og hugðust setja upp sýningu á munum þeim, er þeir höfðu unnið á námskeiðunum. Til þess að fá betri upplýsingar um það sem á námskeiðunum hefði farið fram tókum við nokkra kennara tali og lögðum fyrir nokkrar spurningar. Fjöldi fólks skoöaói sýninguna af mikilli athygli. málmsmíði sé almennt kennd í skólum,“ sagði Sverrir. — Ur hvaða efni vinnið þið aðallega? „Við smíðum mest úr áli, en einnig notum við mikið niðursuðu- dósir og tinum þá á þær með venjulegu lóðtini til skreytingar. Einnig má nota hóffjaðrir, sem þá eru tinkveiktar saman, og ýmsa aðra málma. Verkefnin í þessu sambandi eru óþrjótandi, og fara Hjálmar Þorsteinsson frá Akranesi. Margar hendur voru á lofti viö undirbúning sýningarinnar. Krakkarnír hafa mjög gaman af allri sköpun Sverrir V. Guðmundsson sagðist kenna í Lækjarskóla í Hafnarfirði og hefði hann fengist við kennsiu í um 20 ár og þá aðallega við handmennt. Sverri tókum við tali þar sem hann var að hagræða hlutum smíðuðum úr málmi. „Málmsmíðin, sem við lærum á námskeiðinu er aðalega miðuð við það að hægt sé að hagnýta hana til kennslu. Er þetta aðallega miðað við aldurinn 14 til 15 ára og kemur málmsmíðin þá inn í handavinnukennsluna. Eg held að mér sé alveg óhætt að fullyrða það að krakkar á þessum aldri hafi mjög gaman af þessu." — Er hér um að ræða einhverja nýjung? „Nei, ekki held ég að þetta sé alveg nýtt af nálinni, en hins vegar þori ég ekki að fullyrða hvort

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.