Morgunblaðið - 31.08.1978, Síða 27

Morgunblaðið - 31.08.1978, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1978 27 Söguskoðun og manndráp Hver sá, sem gluggar í menning- ar- og trúarsögu ísraelsþjóðarinn- ar, kemst fyrr eða síðar að raun um, að þar er um sérstæðan arf að ræða, sem ávallt blaktir líkt og logi á skari. Sú spurning hlýtur enda að vakna, hvað það sé, er raunverulega hélt lífi í eingyðistrú þjóðarinnar mitt á menningar- svæði fjölgyðistrúar. Við þetta vandamál fæst höfundur í köflun- um. „Harðsnúin prestastétt" (bls. 38) og „Enginn víki frá Jahve- trúnni" (bls. 44). Æði virðist sú söguskoðun, sem fram kemur í þessum köflum, lítt grunduð og ekki við hæfi í fræðiriti. Þar er því haldið fram, að með skefjalausum útrýmingum og manndrápum hafi leiðtoganum tekizt að halda trúar- arfinum við lýði. Því skal ekki neitað, að æði margt í hugsun og atferli manna á 13. öld f. Kr. er næsta harð- neskjulegt og lítið í ætt við mannúð, sé það dæmt á grundvelli þeirra hugsjóna, sem móta líf okkar á líðandi stundu. Á hinn bóginn hljómar það ekki sannfær- andi að blóðsúthellingar einar hafi nægt til að viðhalda trúnni á Drottin Guð Israels og leggja grunninn að trú á almáttugan Guð kærleika og friðar. Innihaldsleg greining af skornum skammti Þegar augum er rennt yfir þá hluta bókarinnar, sem helgaðir eru eingyðistrú Israelsmanna, vekur það athygli, hversu tak- markað er fjallað um innihald átrúnaðarins, sérstöðu hans gagn- vart trúarbrögðum nágrannaþjóð- anna annars vegar og sameiginleg einkenni hins vegar. Um sáttmála og útvalningu, sem óumdeilanlega eru meginhugtök Jahveismans, er fjallað á mjög ágripskenndan hátt og má í raun segja, að inniháld og merking nefndra hugtaka komi hvergi fram. Sama máli gegnir um mörg önnur höfuðatriði átrúnaðarins, sem þó eru gerð að umræðuefni. Undirrituðum virðist sem væntanlegum lesendum bókarinn- ar væri meiri greiði gerður með viðameiri, hlutlausri lýsingu á innihaldi og boðskap eingyðis- trúarinnar samkvæmt þeim heimildum, sem haldbeztar þykja, en mörgum þeim skýringartil- raunum og túlkunum, sem höfund- ur fellir inn í frásögu sína. Athugasemdir viö kristindómstúlkun í Hugmyndasögu þeirri, sem hér er um fjallað, er tiltölulega litlum hluta varið til umfjöllunar um kristna trú. Höfundur rökstyður þann hátt er hann hefur á og hlýtur efnismeðferð hans að dæmast á grundvelli þeirra orða. Hér skulu aðeins fáeinar athuga- semdir gerðar við þá kafla, sem hann ver til frásagnar af kristinni trú. í heild viröist höfundur gera ráð f.vrir, að innihald og boðskapur kristinnar trúar hafi verið næsta óljós og óráðin allan þann tíma, sem nefndur hefur verið postula- tíminn. Þetta fær vart staðizt því á þeim tíma verða flest ef ekki öll rit Nýja testamentisins til. Þetta mat höfundarins kemur mjög skýrt fram, qr hann fæst við guðfræðisögu eða uppruna ýmissa mikilvægra hugtaka kristinnar trúar. Til að mynda eignar hann Tertúllíanusi þrenningarlærdóm kirkjunnar, kenninguna um erfða- syndina og tvennskonar eðli Krists, kenninguna um friðþæg- inguna telur hann aftur að rekja megi til Anselms frá Kantaraborg og rits hans: Cur Deus homo? Hér virðist höfundur ekki gera nægilega skýran greinarmun á upphafi ýmissa kristinna trúar- atriða annars vegar og mótunar þeirra í það form, er hlaut almennar undirtektir og fékk staðizt um langan tíma. I þessu sambandi er vert að gefa gaum niðurstöðum þeim, sem Gustaf Aulén kemst að í bók sinni Christus Victor (kom fyrst út 1931), en þar fæst hann við sögu hinnar kristnu friðþægingar- kenningar. Hann bendir á, að til skamms tíma var talið, að Anselm hafi fyrstur manna sett fram grundvallaða kenningu um frið- ææginguna. í nefndri bók sýnir Aulén síðan framá með gildum rökum, að allt frá tímum Nýja testamentisins hafi verið til staðar önnur mynd friðþægingarkenning- ar, er hann nefnir hina klassísku. Á hinn bóginn undirstrikar hann, að kenning þessi hafi ekki verið sett fram með eins samstæðilegum hætti og kenning Anselms, því hafi síðari tíma mönnum yfirsézt það samræmi, er gætir um frið- þægingarlærdóm innan Nýja testamentisins og í ritum postul- legu kirkjufeðranna. Sama máli virðist mér gegna um önnur atriði, er tekin eru fyrir í guðfræðisögulegu yfirliti Jóns Hnefils, kjarni eða innihald kenningarinnar er tíöum til staðar með mjög augljósum hætti í ritum Nýja testamentisins, þótt síðari tíma höfundar, mótaðir af sinni samtíð, hafi síðar felt hugsunina í þær skorður, sem kirkjan kaus að halda um aldir. Til að mynda eru kenningar Ágústínusar, sem reif- aðar eru á bls. 122 og áfram, ekki frumsamdar af honum sjálfum eins og höfundur lætur á sér skilja. Það er augljóst, að ytra svipmót kristinnar trúar breyttist mjög, er hún barst út úr gyðinglegu um- hverfi sínu og var boðuð á gríska og síðar rómverska menningar- svæðinu. Ymis miðlæg hugtök reyndust þá óskiljanleg og gripa þurfti til nýrra mynda og líkinga til að gefa boðskapnum merkingu. Þó virðist mér höfundur gera of mikið úr þessari mótun, er hann fjallar um vandamálið í köflunum „Kristur í hlutverki launhelga- guðsins" (bls. 117) og „Kristur í hlutverki keisara Rómaveldis" (bls. 117). Mat hans í þessu efni grundvallast í raun á því megin- sjónarmiði, að innihald kristinnar trúar hafi lengi framanaf verið næsta óráðið, svo sem að framan var bent á. Kristur var til að mynda ekki boðaður sem konung- ur og stjórnandi nema því aðeins, að þessi hugtök samræmdust þeirri Kristsmynd, sem fyrir var. Þá var dagur hins heiðna sólar- guðs ekki gerður að sunnudegi kristinna manna er trú þeirra barst til Rómaveldis eins og höfundur gerir ráð fyrir, heldur hættu kristnir menn að halda sjöunda daginn heilagan að gyðinglegum hætti og héldu hátíð fyrsta dag v.ikunnar til minningar um upprisu Krists (sjá bls. 118). Kvöldmáltíð og blótveizlur Loks vil ég drepa á eitt atriði enn, sem orkar mjög tvímælis í umfjöllun Jóns Hnefils Aðal- steinssonar um kristna trú. Er það sá ntikli skyldleiki, sem hann telur vera rnilli kristinnar trúar og átrúnaðar frumbyggja Grikk- lands. Unt þetta segir á bls. 117: Má raunar í kristninni sjá sama atferli í guðsdýrkunarsiðum og við höfum kynnst hjá frumbyggjum Grikklands og sem haldist hafði alla tíð, þrátt fyrir það að yfirvöld styddu. annan átrúnað lengstaf. Einnig skulu tilfærð ummæli af bls. 52—53: Höfðu mörg atriði í kenningum orfeinga bein áhrif á kristindóm- inn. Má þar, auk þess sem áður gat, nefna kenninguna um helvíti, hreinsunareld, um andstæður likama og sálar, kenninguna um guðssoninn, sem deyddur var og endurborinn og kenninguna um helga máltíð, þar sem menn neyttu líkama og blóðs guðsins til þess að öðlast hlutdeild í guðdómleika hans. Þessi úmmæli eru bæði mjög villandi og kemur þar einkum tvennt til. Annars vegar eru kristnar og grískar hugmyndir bornar saman, án þess að geta um þann djúpstæða mun á heims- mynd og tímaskilningi, sem liggur til grundvallar þessum trúar- brögðum, hins vegar eru kristnu hugmyndirnar settar í beint sam- band við hinar grísku, án þess að geta í nokkru um þann beina bakgrunn, sem þær fyrrnefndu eiga í trúarheimi Israelsþjóðar- innar. Þegar þess er gætt, að boðskapur kristinnar trúar um dauða og upprisu Jesú frá Nazaret byggir á ákveðnum sögulegum atburðum, sem vöru nýafstaðnir, er boðskapurinn var fyrst fluttur, en grísku hugmyndirnar um hinn deydda og endurborna guð eða guðsson eiga heima í hugárheimi goðsögunnar, sém byggir á þeim tímaskilningi, sem gerir ráð fyrir óaflátanlegri hringrás í stað stöðugrar, sögulegrar framvindu, má ljóst vera, að lítið fer fyrir skyldleika milli þessara hug- mynda. Þá virðist undirrituðum sem fræðilegu hlutleysi sé næsta mis- boðið, þegar kvöldmáltíð kristinn- ar kirkju er sett í beint samband við grískar blótveizlur, án þess að geta í nokkru um þá beinu hliðstæðu, sem kvöldmáltíðin á í páskamáltíð Gyðinga. Heimildir? I formála að bók sinni gefur höfundur i skyn, að við samantekt og samningu bókarinnar hafi hann stuözt við mikinn fjölda heimilda-' rita. Hvergi gerir hann á hinn bóginn tilraun til að tilfæra heimildir fyrir fullyrðingum sín- um. Þá birtir hann hvorki heimildaskrá með riti sínu, né nafngreinir heimildamenn með öðru móti. Dregur þetta óneitan- lega mjög úr notagildi bókar hans. Fræðirit án skýrgreindra heimilda verðskuldar vart það traust, sem kennslubækur fyrir a>ðri skólastig verða að njóta. Betur má, ef duga skal Hér að framan var drepið á þá öskustó, sem hugmyndasaga hefur lengst af setið í innan íslenzka skólakerfisins og þann mikla skort, sem er á öllum kennslugögn- um í þeirri grein. Á það var líka drepið, að hugmyndasaga er við- kvæm grein. Um hana er torvelt að fjalla, án þess að einstaklings- bundin sjönarmið ráði ferðinni um of. Höfundum bóka á umræddu sviði hættir tíðum um of til að láta andúð sína eða samúð með stefn- um og straumum móta niðurstöð- ur og efnismeðferð með einum eða öðrum hætti. Svo sem fram hefur komið virðist mér „Hugmynda- saga — Frá sögnum til siðskipta" vera um of undir þessa sök seld, hvað varðar þá hluta bókarinnar, sem teknir voru til meðferðar í þessari umfjöllun. Orkar mjög tvímælis, hvort þeir eiga erindi til íslenzkra skólanemenda í óbreyttri mynd. Virðist mér sú tímabæra til- raun, sem Jón Hnefill Aðalsteins- son hefur gert til ritunar hug- myndasögu fyrir íslenzka skóla, ætti að verða mönnum hvatning til að fást við vandamál hugmynda- sögunnar og auka veg hennar á sviði hérlendrar mannkynssögu- kennslu. | raðauglýsingar —- raöauglýsingar — raöauglýsingar gil Frá fjölbrautadeildum 'V Ármúlaskóla og Laugalækjarskóla Kennarafundur veröur haldinn föstudaginn 1. september kl. 14. Nemendur mæti miövikudaginn 6. septem- ber sem hér segir: Nemendur 1. námsárs og í fornámi kl. 13. Nemendur 2. námsárs kl. 14. Nemendur 3. og 4. námsárs kl. 15. Ef nemendur geta ekki mætt er áríöandi aö þeir hafi samband viö viökomandi skóla. Fræöslustjóri. Frá grunnskóla Njarðvíkur Skólinn veröur settur meö kennarafundi föstudaginn 1. sept. kl. 13. Væntanlegir nemendur í 9. bekk komi í skólann mánudaginn 4. sept. kl. 10 og nýjar nemendur 7 ára og eldri komi á sama tíma til innritunar í skólann. Fimmtudaginn 7. sept. komi nemendur í skólann sem hér segir. Nemendur 1., 2., 3. og 4. bekkjar komi kl. 13. Nemendur 5., 6., 7., 8. og 9. bekkjar komi kl. 10. Forskólabörn (börn fædd ‘72) sem ekki voru búsett í Njarðvíkum 1. des. ‘77 komi til innritunar mánudaginn 4. sept. kl. 10. Forskólabörn veröa boðuö í skólann Tilkynning frá símleiöis síöar. Skólastjóri. Valhúsaskóla Valhúsaskóli á Seltjarnarnesi mun hefja starfsemi sína sem hér greinir. 1. september 1978 föstudagur kl. 9.00 kennarafundur. 4. og 5. september mánudagur, þriöjudagur undirbúningsstörf. 6. september miðvikudagur kl. 14, skóla- setning í Miögaröi. Skólastjóri. Hótel Stykkishólmur auglýsir vetrarverö frá 1. sept. Eins manns herb.: 5.000- 2ja manna herb.: 7.400- í veröinu er innifalinn morgunveröur. fundir — mannfagnaöir Félagið ísland — DDR Dr. Bruno Kress, prófessor viö Ernst-Mor- itz-Arndt-Universitát í Greifswald, heldur fyrirlestur og spjallar viö áheyrendur Um efnið. „íslensk tunga í Þýska alþýðulýöveldinu“ í Auditorium, Hótel Loftleiöum á morgun föstudaginn 1. sept. 1978, kl. 20.30. Prófessor Bruno Kress er vel kunnur fyrir þýöingar sínar á verkum Halldórs Laxness og vísindastörf í norrænum fræöum. Allir áhugamenn velkomnir. Stjórnin. EFÞAÐER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU AUGLYSINGA- SÍMINN ER: 22480

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.