Morgunblaðið - 08.09.1978, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1978
Engey stefnir
í nýtt sölumet
SKUTTOGARINN Ensey seldi í
gærmor>{un 107 tonn af ísuðum
fiski í Hull fyrir 62.464 pund og
er meðalverð á kíló rösklega 340
krónur, sem er geypihátt. Aðeins
helmingnum af afla Engeyjar var
landað í gær, og ef aflinn, sem
verður landað í dag, selzt á
jafnháu verði og í gær, má búast
við að Engey setji nýtt sölumet í
Bretlandi. Fyrra metið á Engey
einnig, rösklega 121 þús. pund.
sett fyrir röskum tveimur mánuð-
um.
Fiskurinn sem Engey seldi í
gær, þótti mjög góður, og má
nefna að hvert kit (62,5 kíló) af
þorski seldust á 38,14 pund og
hvert kit af ýsu á 42,73 pund. Af
því magni sem landað var í gær,
voru 3 tonn af karfa og 12 tonn
af ufsa, fiskur sem yfirleitt selzt
ekki á háu verði í Englandi.
Vísitöluþakið tek-
ið að síga í með-
förum stjórnvalda
Efnahagsráðstafanir ríkis-
stjórnarinnar, sem nú eru í
mótun og til umræðu í stjórnar-
ráðinu, gera m.a. ráð fyrir að
ríkissjóður greiði niður 4,9 vísi-
tölustig með aukinni niður-
greiðslu búvöru. Það sem á
vantar til þess að má út þá
kauphækkun, sem koma hcfði átt
vegna verðbótavísitölunnar, verð-
ur fengið með þvi að fella niður
söluskatt á matvöru. Þá eru
áform um að lögbinda grunnlaun
eins og þau eru 1. september,
þ.e.a.s. banna umsamdar áfanga-
hækkanir kjarasamninga út
samningstíma launþegafélag-
anna.
Eins og áður hefur komið fram
í fréttum var það hugmyndin að
sett yrði þak á vísitöluna við
ágústlaun, sem væru 233 þúsund
krónur á mánuði. Þeir, sem hefðu
laun umfram það áttu að fá sömu
krónutölu og leggjast myndu á þá
upphæð. Nú er ríkisstjórnin hætt
að ræða um 233 þúsund króna
ágústlaun, en talar hins vegar um
200 þúsund króna laun miðað við
1. desember 1977. Sú skýring er
gefin að þannig sé þakið skýrar
afmarkað og verði auðveldara við
Ölvaður mað-
ur hætt kom-
inn í Læragjá
ÖLVAÐUR maður var hætt
kominn í Læragjá í Naut-
hólsvík í gær. Þegar ungt fólk
kom þar að varð það þess
áskynja, að maður lá í
læknum ósjálfbjarga og hafði
sopið mikið vatn. Honum var
draslað upp úr læknum og
lögreglunni gert aðvart.
útreikning launa. En reikni menn
200 þúsund króna desemberlaun
fram til ágústlauna, kemur í ljós
að nokkur þúsund krónur vantar á
að um sé að ræða sama þakið. 200
þúsund króna laun hafa í för með
sér að þakið lækkar miðað við
ágústlaun 1978 um 3 til 4 þúsund
krónur og verður vísitöluskerðing-
in því meiri en ella.
Kristín H.
Pétursdótt-
ir bókafull-
trúi
KRISTÍN H. Pétursdóttir
M.L.S., yfirbókavörður við
Borgarspitalann í Reykjavík,
hefur verið sett til að gegna
starfi bókafulltrúa í mennta-
málaráðuneytinu um eins árs
skeið frá 1. september 1978 að
telja en Stefán Júlíusson, rithöf-
undur, sagði starfi bókafull-
trúa lausu frá 1. september
1977.
Þá hefur menntamálaráð-
herra ákveðið að nota sér þá
heimild laga um almennings-
bókasöfn að skipa sérstaka
ráðgjafarnefnd um málefni al-
menningsbókasafna og skipaði
ráðherra í nefndina þann 14. júlí
1978 til fjögurra ára, samkvæmt
tilnefnirigu Sambands ísl. sveit-
arfélaga, Jón Isberg, sýslumann,
Blönduósi, og Finn Sigurjónsson,
bókavörð í Bókasafni Seltjarnar-
ness, samkvæmt tilnefningu
Bókavarðafélags íslands.
Yfir 15 þúsund manns höfðu í gærkvöldi séð sýninguna íslensk föt 1978 í Laugardalshöllinni en
að sögn forsvarsmanna sýningarinnar var mjög góð aðsókn að sýningunni í gær. Sýningunni lýkur
á sunnudagskvöld, en í dag, föstudag, verða tískusýningar kl. 18 og 21 og laugardag og sunnudag
verða tiskusýningar kl. 15, 18 og 21 en á undan þcim eru sýningar á hárgreiðslu og snyrtingu.
Myndina tók Kristján á tiskusýningu í Laugardalshöllinni.
Tekinn í landhelgi 35 mílum
innan við 12 mílna mörkin
VÉLBÁTURINN Faldur
VE, sem gerður er út frá
Hofsósi, var staðinn að
ólöglegum veiðum 35 mflur
innan við 12 mflna fisk-
veiðimörkin innarlega á
Skagafirði, á þriðjudags-
morgun. Réttarhöldum
yfir skipverjum bátsins er
lokið, en dómur hefur ekki
verið kveðinn upp enn af
margvíslegum orsökum.
Það var Arvakur sem kom að
Faldi, þegar skipverjar voru ný-
búnir að innbyrða vörpuna austar-
lega í Skagafirði innan við Hofsós
á þriðjudagsmorgun. Var farið
með bátinn til Sauðárkróks, þar
sem réttarhöld í máli skipstjórans
hófust strax. Við yfirheyrslu
játuðu allir skipverjar nema skip-
stjórinn, að báturinn hefði verið
að ólöglegum botnvörpuveiðum og
hefur skipstjóri ekki játað enn. Þá
kom í ljós við réttarhöldin, að
enginn mannanna hafði verið
skráður á bátinn, ennfremur var
skipstjóri kærður fyrir að vera
með ólöglega merkt þorskanet, en
í ljós kom að báturinn var bæði á
þorskanetum og með botnvörpu og
notaði skipstjórinn þorskanetin
sem skálkaskjól.
Samkvæmt landhelgislögum eru
fiskveiðar í botnvörpu bannaðar 12
mílur út frá yztu annnesjum
Skagafjarðar, og frá þeim stað,
sem báturinn var tekinn eru um
það bil 35 sjómílur að 12 mílna
fiskveiðimörkunum.
Portisch í efsta sæti
á Interpolismótinu
Frá Friðriki Ólafssyni
á Interpolisskákmótinu.
SJÖTTA umferð Interpolisskák-
mótsins var tefld í dag og urðu
úrslit sem hér segin Portisch
vann Browne, biðskák varð hjá
Miles og Sosonko, Hort og
Hiibner gerðu jafntefli, ennfrem-
ur Timman og Dzindzichavsvili,
Steypubílar Breið-
holts fara á uppboð
biðskák varð hjá Larsen og
Ljubojevic og Spasský og Ribli
gerðu jafntefli.
Staðan eftir sex umferðir er sú,
að Portisch er efstur með 4'/2
vinning, 2. Timman með 4 vinn-
inga, 3. Miles með 3 V2 vinning og
biðskák, 4. Larsen með 3 vinninga
og biðskák, 5.-6. Dzindzichashvili
og Hort með 3 vinninga, 7.
Sosonko 2 lA vinning og biðskák,
8.-9. Spasský og Ribli með 2'/2
vinning, 10.—11. Húbner og
Browne með 2 vinninga og 12. er
Ljubojevic með 1V2 vinning og
biðskák.
NÆSTKOMANDI laugardag er
fyrirhugað að bjóða upp á vegum
borgarfógetaembættisins 1
Reykjavík nokkra bíla í eigu
Breiðholts h.f. en Gjaldheimtan í
Reykjavík er með lögtak í flestum
bílunum. A uppboðið að fara
Flugfréttir — kynningarriti
Flugleiða dreift með Mbl.
f’LUGFRÉTTIR nefnist kynn-
ingarblað frá Flugleiðúm, sem
dreift er me.ð Morgunblaðinu í
dag. Að sögn Harðar Sigur-
gestssonar framkvæmdastjóra
hjá f’Iugleiðum er tilefni þessa
auglýsingablaðs tvíþætt —
annars vegar kynning á starf-
semi félagsins vegna 5 ára
afmæiis Flugleiða og hins
vegar er tilefnið að félagið er
um þessar mundir að bjóða út
á almennum markaði viðbótar-
hlutafé í samræmi við sam-
þykkt aðalfundar félagsins.
Þar var gert ráð fyrir að
boðin yrðu út ný hlutabréf að
andvirði um 370 milljónir
króna, en Hörður sagði, að nú
þegar væri búið að selja starfs-
mönnum og nokkrum öðrum
aðilum hlutabréf af þessu tagi,
svo að nú væru eftir um 300
milljónir króna, sem forráða-
menn félagsins vonuðust til að
almenningur keypti. Ilörður
sagði. að það væri mjög óvenju-
legt hér á landi að hlutafé væri
boðið út á opnum markaði og
þess vegna hefði þótt ástæða til
að kynna starfsemi félagsins
ítarlega í von um að almenn-
ingur kynni að meta það
tækifæri, sem þarna gæfist.
Auk þess sem Flugfréttum
verður dreift með Morgunblað-
inu, er það prentað f 35 þúsund
eintökum aukalega, sem verður
dreift á hinum ýmsu afgreiðslu-
stöðum Flugleiða og um borð 1
flugvélum félagsins.
fram í Vökuportinu og hefst kl.
13.30 og á þar að bjóða upp 5
steypubíla, einn steypudælubfl,
einn vörubíl og eina gröfu frá
Breiðholti h.f.
Þá var fyrirhugað að halda um
miðjan þennan mánuð uppboð á
húseigninni Háaleitisbraut 68,
sem er eign Rafha, að kröfu
Sementsverksmiðju ríkisins vegna
veðbanda sem stofnað var til í
viðskiptum verksmiðjunnar við
Breiðholt h.f. Er hér um að ræða
kröfu að upphæð 13,5 milljónir
króna auk vaxta og kostnaðar og
var stofnað til veðs í húseigninni
meðan Breiðholt h.f. áíti hana og
áður en Rafha keypti hana. Hefur
Rafha nú ákveðið að greiða þessar
13,5 milljónir auk vaxtanna og
verður því ekki af þessu uppboði.
Sementsverksmiðjan telur sig
einnig eiga veð 1 húseigninni
Háaleitisbraut 68 fyrir 37,5 millj-
ón krónum vegna sementskaupa
Breiðholts hf. en Rafha telur að
þessi veðsetning hafi átt sér stað
eftir að Rafha keypti húseignina
af Breiðholti h f. og hafi Sements-
verksmðjunni verið tilkynnt um
eigendaskiptin og þar með hafi
verksmiðjunni verið óheimilt að
taka veð í viðskipta við Breiðholt
h.f. Er nú til meðferðar í borgar-
dómi Reykjavíkur mál vegna
þessarar deilu Rafha og Sements-
verksmiðjunnar út af þessari 37,5
milljón króna kröfu.
Margeir 10.
til 14. af 47
keppendum
MARGEIR Pétursson vann í gær
skák sína við Bottó frá Weles á
heimsmeistaramóti unglinga í
skák 20 ára og yngri í Graz í
Austurríki. Er Margeir því með 3
vinninga og er í 10. til 14. sæti en
keppendur á mótinu eru 47.
Nokkur breyting varð á röð efstu
manna á mótinu í gær en þá vann
rússneski skákmaðurinn Dolmatov
Frakkann Franconi og er því
efstur á mótinu með 4 V2 vinning.
Þá gerði fyrrverandi heimsmeist-
ari, Jusupov, jafntefli við Jo Fries
Nielssen, sem áður var efstur á
mótinu og eru þeir nú í öðru til
þriðja sæti með 4 vinninga.
Fundir i
yfirnefnd
FUNDIR voru í gær haldnir í
yfirnefnd verðlagsráðs sjávarút-
vegsins, en yfirnefndin fjallar nú
um nýtt síldar- og loðnuverð.
Ekki náðist samkomulag á fund-
unum um hið nýja verð.