Morgunblaðið - 08.09.1978, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 08.09.1978, Blaðsíða 31
31 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1978 • íslensku keppendurnir á EM ásamt fararstjórum og aðstoðarmanni. Frá v« Elías, Sigurður, Örn, Vilmundur, Jón, Hreinn, Guðni og óskar. í fyrsta skipti í ár átti ísland 2 kepp- endur í úrslitum EM TJALDIÐ er fallið. stórkostlegu Evrópumeistaramóti í frjálsum íþróttum lauk í Prag síðastliðinn sunnudag. Alls sendu 32 Evrópuþjóðir þátttakendur til mótsins. Fjölmennastir voru V-Þjóðverjar. sendu 127 keppendur, þeim næstir komu Sovétmenn með 111 keppendur og því næst A-Þjóðverjar með 90 keppendur. Sovétríkin og Austur-Þýskaland voru stórveldin tvö á þessu Evrópumeistaramóti, hlutu þau flest verðlaun og höfðu alveg ótrúlega vel þjálfuðu iþróttafólki á að skipa. Sovétríkin hlutu 13 gull-, 12 silfur- og 12 bronsverðlaun á leikunum. Austur-Þýskaland hlaut 12 gull-, 9 silfur- og 11 bronsverðlaun. Það þótti orðið tíðindum sæta ef einhverjum íþróttamanni tókst að vinna sigur á hinu þrautþjálfaða íþróttafólki frá Austurblokkinni. Bretar, sem sendu 90 keppendur til mótsins og hafa mjög sterku frjálsíþróttafólki á að skipa, tókst aðeins að krækja sér í ein gullverðlaun á mótinu. Hlutur Norðurlandanna var ekki stór. Finnland með sitt mikla veldi í frjálsum íþróttum hlaut ein gull- verðlaun, tvö silfur og 3 brons. Sænsku stúikunni Haglund tókst að ná í silfur í 100 m hlaupinu og voru það einu verðlaun Svía. Þegar á þetta er litið geta Islendingar verið all ánægðir með sinn hlut í mótinu. I fyrsta skipti í 28 ár eða síðan í Brussel 1950 eigum við tvo menn í sjálfri úrslitakeppninni, þá Hrein í kúlu og Óskar í kringlu. Og í fyrsta skipti í 16 ár fáum við stig á Evrópumóti. Það má að sjálfsögðu alltaf deila um hversu stóran hóp keppenda á að senda á svona stórmót, en hins vegar er það enginn vafi á því að við eigum að vera með og land- kynningin sem þátttaka í svona móti veitir er mikil. íslensku keppendurnir á Evrópumeistaramótinu stóðu sig nokkuð misjafnlega. Hreinn Hall- dórsson var tvímælalaust mjög óheppinn að lenda í þeirri miklu töf, sem hlaust út af deilu breska kúluvarparans Capes og dómara, þar sem Hreinn átti að kasta fyrstur keppenda. Hefði árangur Hreins verið mun betri við eðlileg- ar aðstæður. Þrátt fyrir þetta nær Hreinn áttunda sæti í keppninni. Óskar Jakobsson er maður fram- tíðarinnar, það var mjög gott hjá honum að ná að komast í úrslita- keppnina þar sem þetta var hans fyrsta stórmót í kringlukasti. Er enginn vafi á að Óskar á eftir að láta mikið að sér kveða á stórmót- um í framtíðinni. Þátttaka Elíasar Sveinssonar í tugþrautinni vakti athygli og stóð hann vel fyrir sínu. Náði hann besta árangri íslend- ings í tugþraut sem náðst hefur við rafmagnstímatöku. í heila tvo daga var Elías í eldlínunni og skaut hann mörgum snjöllum tugþrautarkappanum ref fyrir rass í sumum greinum. Þeir Jón Diðriksson og Vilmundur Vil- hjálmsson voru nokkuð frá sínum besta árangri á mótinu, og virtust báðir vera frekar þungir. Báðir ættu samt að geta gert betur. Texti og mynds Þórarinn Ragnarsson Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru um árangur íslensku íþrótta- mannanna. Undirritaður telur að fæstir geri sér í hugarlund, hversu gífurlega miklum tíma og fjár- munum stórveldin fórna í íþrótta- menn sína til þess að árangur náist. Því var fleygt á mótinu af einum blaðamanni að þetta væru hreinir Austur-Evrópuleikar. Slíkt ofurkapp leggja þær þjóðir á árangur íþróttamanna sinna. Vilmundur Vilhjálmsson sagði við undirritaðan: „Heima á Islandi krefjast allir að góðum árangri sé náð en fæstir vilja eitthvað af mörkum leggja til að hjálpa íþróttafólkinu." Það eitt er víst, að nú orðið næst ekki frambærilegur árangur á svona stórmótum nema vísinda- lega sé æft og óhemju tíma fórnað í æfingar. Það vill of oft gleymast að íslenskir íþróttamenn vinna fullan starfsdag með íþróttaæfing- um sínum en hafa ekki þau miklu hlunnindi sem íþróttamenn erlendis njóta í svo ríkum mæli. Eitt af því sem deilt var á hér heima, var að þjálfari skyldi ekki fara með hópnum. Hreinn Hall- dórsson óskaði þess sérstaklega að hann fengi Guðna Halldórsson með sér sem aðstoðarmann og reyndist hann sannarlega starfi sínu vaxinn og aðstoðaði fleiri en Hrein af kostgæfni. Vissulega er æskilegt að þjálfari fari með íþróttahópi þegar haldið er á svona mót og reyndar er það nauðsynlegt, en þá er komið að hinum eilífu fjárhagsvandræðum sem íþróttahreyfingin á við að etja. Fararstjórar hópsins voru tveir, og höfðu þeir margvíslegum skyldum að gegna og í mörgu að snúast, því að mörgu er að hyggja. Tékkar lögðu sig greinilega alla fram við að mótið tækist vel, og ekki verður annað sagt en skipu- lagning mótsins hafi tekist eins og best verður á kosið. En ekki voru allir á eitt sáttir um aðbúnað keppenda, mat í keppnisbúðunum o.fl. Að lokum vill blaðamaður Mbl. færa fararstjórum íslenska flokks- ins þakkir fyrir margvíslega aðstoð og hjálp á meðan á mótinu stóð. þr. Knattspyrnumenn KK, sem sigruðu glæsilega í 2. deildinni í knattspyrnu í ár. Með leikmönnunum á myndinni eru Magnús Jónatansson, þjálfari. Sveinn Jónsson, formaður KR, og Kristinn Jónsson, formaður knattspyrnudeildarinnar. Myndin er tekin eftir leik KR og Austra og gáfu Austramenn KR-ingum blóm fyrir leikinn. í dag halda KR-ingar í sumar og sól á Spán að loknu vel heppnuðu keppnistímabili, en auk 2. deildarinnar vann KR Reykjavíkurmótið í vor. Ellert B. Schram, formaður KSÍ, afhenti KR-ingunum sigurlaunin í 2. deildinni á laugardag og hefur það sjálfsagt verið ljúft verk hjá formanninum. (Ljósm. Mbl.i Kristján). Start í forystu í Noregi NORSKA liðinu LiIIeström, sem í fyrra var í algjörum sérflokkí norskra liða, hefur alls ekki gengið eins vel í ár. Ilins vegar hefur Start sem lék á móti Fram í UEFA keppn- inni í fyrra, komið töluvert á óvart og Iiðið leiðir nú í 1. deiidinni í Norcgi. Liðið hefur hlotið 24 stig í 16 leikjum, en Lilleström fylgir fast á eftir með 23 stig. Jöfn í 3.-4. sæti eru síðan Viking og Bryne með 20 stig. Eins og kunnugt er þjálfar Joe Hooley lið Lille- ström, en Tony Knapp er með Víkingana. Á botninum er Molde með 5 stig, en Steinkjer hefur 9 stig og Bodö/GIimt og Lyn eru með 11 stig. - áij Standard með 3 stig að loknum 3 leikjum STANDARD Liege tapaði Oil á útivelli í íyrrakvöld fyrir Antwerpen í jöfnum leik. en heldur tilþrifalitlum. Markið kom í seinni hálfleik og var sjálfsmark eins varnarmanna Standard. Liðið hefur nú 3 stig úr jafn mörgum leikjum eftir sigur, jafntefli og tap. Sigur liðsins kom gegn belgísku meisturunum Brugge, 2.1, um síðustu helgi. Það var Ásgeir Sigurvinsson, sem skoraði sigurmark Standard og átti hann fráhæran leik. Belgísku blöðin hrósuðu honum óspart, hann var valinn í lið vikunnar og fékk 9 í einkunnagjöf hjá einu blaðanna. Ilæst er gefið 10 og náði pólski landsliðs- markvörðurinn Tomazewsky þcim árangri eftir Iciki síð- ustu helgar. FEKK ÞANN STÓRA í NOREGI NORÐMENN eignuðust nýjan miiljónamæring um síðustu helgi er Óslóarbúi nokkur varð 60 milljón krónum ríkari. Maðurinn hafði fyllt út seðil í norsku getraununum og hafði heilar tíu raðir eins. Tólf réttir voru í öllum þessum röðum og fyrir hverja röð fékk hann um 6 milljónir króna eða samtals um 1.1 milljón norskra króna. Þetta er stærsti vinningurinn. sem unnizt hefur í norsku getraun- unum. en fram að hclginni var metvinningurinn 860 þúsund norskar krónur. í fslenzku getraununum er töluverð þátttaka þó svo að aðeins hafi getraunaseðlar verið í gangi um tvær helgar. Um síðustu helgi auðgaðist Reykvíkingur um 539 þúsund krónur. Fyrir 11 rétta fékk hann 453 þúsund krónur, en hann var einnig með 4 með 10 rétta og íyrir hvern þeirra fékk hann 21.500 krónur. - áij.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.