Morgunblaðið - 08.09.1978, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 08.09.1978, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1978 25 félk í fréttum + Formaður Danska AlþýAusambandsins Thomas Nielsen og fleiri toppkratar gcrðu um daginn mjög harða aðför að forsætisráðherranum Anker Jörgensen (til v.) fyrir stjórnarmyndunina með Vinstriflokknum. Jörgensen stóð af sér þetta pólitíska áhlaup. + Þessi mynd var tekin fyrir skömmu er fram fór frumsýning á rokk-myndinni „Sgt. Pepper's Lonely Hearts Club Band.“ Það er sjálf rokkstjarnan Alice Cooper og kona hans Cheryl, sem leiðast þarna á leið til frumsýningarinnar. Cooper sagði að í kvikmyndaheiminum hefði hingað til verið litið niður á rokkara. Þessi mynd ætti að sannfæra fólk um að þeirra hlutur væri þess virði að eftir yrði tekið. + Þá er það orðin stað- reynd! Kona skipherra. Þetta gerðist í brezka flotanum fyrir skömmu. Þá varð þessi unga kona skipherra á tundurdufla- slæðara í brezka flotanum, sem heitir Portisham. Hún hafði farið létt með fyrir- skipanir til undirmann- anna er hún lagði frá landi í fyrsta skipti í flotastöð- inni í Portsmouth. Skip- herrann heitir Denise St. Aubyn Hubbard. Frá fundi Rauða kross deilda höfuðborga Norðurlanda. Rauðakrossdeildir ræða málefni aldraðra Fra fundi Rauða kross deilda höfuðborga Norðurlanda um síð- ustu helgi, sem Reykjavíkurdeild RKÍ stóð fyrir að þessu sinni. Aðalviðfangsefnið var málefni aldraðra, sérstaklega sú aðstoð, sem frjáls félagasamtök — eins og Rauði krossinn — geta veitt í þéttbýli höfuðborganna. Formaður Kaupmannahafnar- deildar Urben Hansen fv. yfir- borgarstjóri og Anders Norman yfirlæknir, formaður Stokkhólms- deildar, sátu fundinn; ennfremur Guri Landmark úr stjórn Óslóar- deildar og Erkki Tuormaa úr stjórn Helsinkideildar, en alls voru erlendir fulltrúar 8. Nokkrir fulltrúar Reykjavíkurdeildar sátu fundinn ásamt formanni deildar- innar, Ragnheiði Guðmundsdóttur lækni. Auk fundarstarfa var fulltrúum sýnd starfsemi Reykjalundar, en þeir höfðu sérstaklega óskað eftir því, enda Reykjalundur víðkunnur á Norðurlöndum. Elliheimilið Ás í Hveragerði og starfsemin þar var sömuleiðis kynnt fundargestum. Höfðingleg gjöf til Gaulverjabæjarkirkju ÁRLEGUR „Kirkjudagur" Gaul- verjabæjarkirkju var á sunnu- daginn var, 3. sept. Jafnframt var þá lokið að fullu og öllu umfangs- miklum lagfæringum og endur- bótum á kirkjunni og var þess minnst við guðsþjónustuna. Margt fólk var í kirkju. en vígslubiskupinn, séra Sigurður Pálsson á Selfossi, prédikaði, en sóknarpresturinn Valgeir Ást- ráðsson þjónaði fyrir altari. Við messuna var ungur sveinn færður til skírnar og hlaut hann nafnið Sturla, en hann er sonur hjónanna Guðrúnar Jóhannesdótt- ur safnaðarfulltrúa og Þormóðs Sturlusonar bónda að Fljótshól- um. Að lokinni guðsþjónustu flutti formaður sóknarnefndar Gaul- verjabæjarkirkju Gunnar Sigurðs- son í Seljatungu ávarp í kórdyrum kirkjunnar af því tilefni, að lokið er miklum endurbótum og lagfær- ingum á kirkjunni. í ávarpi sínu færði formaðurinn hinum mörgu aðilum, sem hlut eiga hér að máli, þakkir sóknarbarnanna. Færði hann Sveini Guðmundssyni for- stjóra í Héðni sérstakar þakkir fyrir stórhöfðinglega gjöf hans til kirkjunnar. Hafði Sveinn gefið til kirkjunnar stálið (litað Garðastál) til endurnýjunar á allri klæðningu kirkjunnar, sem nú var endurnýj- uð. Hafði Sveinn gefið þessa gjöf til minningar um fyrri eiginkonu sína, Helgu Markúsdóttur, sem orðið hefði sextug á þessu ári. Foreldrar hennar voru hjónin Kristín Andrésdóttir frá Vestri- Hellum og Markús Ivarsson frá Vorsabæjarhjáleigu. Markús var stofnandi og forstjóri Vélsmiðj- unnar Héðins um árabil. Bæði voru þau fermd í kirkjunni og létu sér alla tíð mjög annt um hana og viðgang hennar. Var Sveinn í Héðni viðstaddur guðsþjónustuna. — Þá færði sóknarnefndarformað- ur þakkir smiðum þeim, sem höfðu tekið að sér verkið við endurbæt- urnar, en það eru trésmiðirnir Ólafur Sigurjónsson, Kristján Gestsson, Albert Sigurjónsson og Ketill Sigurjónsson frá Forsæti. Var það samdóma álit kirkjugesta að handbragð þeirra væri til fyrirmyndar. Gaulverjarbæjar- kirkja var b.vggð árið 1909. i Að lokinni athöfn í kirkjunni hafði kvenfélagið kaffisölu í Fé- lagslundi. Voru þar fluttar ræður og einsöngur sunginn, Margrét Sighvatsdóttir frá Grindavík söng nokkur lög við undirleik Jónínu Gísladóttur. Kirkjugestir sátu í góðum fagnaði allgóða stund áður en haldið var aftur heim á leið. Arbók Nemendasambands Samvinnuskólans komin út FJÓRÐA bindi Árbókar Nemendasambands Samvinnu- skólans er ný komið út. í þessari bók er nemendatal þeirra sem útskrifuðust 1923, 1933, 1943, 1953, 1963 og 1973, eða alls sex árgangar. Er ætlunin að á þennan hátt verði búið að gefa út fullkomið nemcndatal í tfu bókum. Auk æviatriða og mynda af öllum nemendum þessara ára eru í bókinni grein eftir Guðmund Sveinsson, fyrrv. skólastjóra um tildrög að flutningi Samvinnu- skólans að Bifröst og fyrsta undirbúning. Einnig eru í bókinni kaflar úr fundargerðabókum skólafélagsins á hverjum tíma, og rifjast þá eflaust upp fyrir gömlum nemendum margar góðar stundir. Núverandi ritstjóri Árbókarinn- ar er Guðmundur R. Jóhannsson, en bókin er til sölu að Hamragörð- um, Hávallagötu 24.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.