Morgunblaðið - 08.09.1978, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 08.09.1978, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1978 29 TSSŒáU* ? '< í i l *■ \ VELVAKANDI SVARAR Í SÍMA 0100KL. 10— 11 FRÁ MÁNUDEGI HUL Jafnvel sjónvarpið er miklum mun fjarlægara enda þótt ágætar dýralífsmyndir megi sjó á skerm- inum í hverri viku. Margar eru þær skólaferðirnar sem farnar hafa verið til Kristjáns í íslenzka dýrasafnið. Margar eru þær sunnudagsferðirnar með pabba og mömmu sem endað hafa í dýrasafninu við Skólavörðustíg. Margur útlendi gesturinn hefur talið feng í því á stuttri viðdvöl að fara í stutta heimsókn í safninu til að sjá íslenzkt dýralíf. Að Stöng í Þjórsárdal var aí sínum tíma byggt yfir raunveru- legar rústir landnámsbæjar. Á þjóðhátíðarári reis nýr óreunveru- legur bær, þjóðveldisbær, fyrir atbeina alþingis við Búrfell með fróða og viðkunnanlegu starfs- fólki. Hins vegar stendur yfirbygg- ing fornminjanna að Stöng í umbúðarleysi fyrir veðri og vind- um án nokkurs sýnilegs gæslu- manns. Fínna, fínna, hrópaði kerlingin á verðbólguárinu mikla 1974 um leið og hún henti gömlu eldhúsinnrétt- ingunni út um gluggann og beið svo í eitt ár eftir að iðnaðarmenn- irnir gætu lokið við nýsmíðina. Hvað skyldi hún segja núna? Ef til vill þurfa fleiri ár að líða þar til menn koma auga á verðmæti sem Kristján hefur skapað með dýrasafninu. Vonandi tekst að forða því að dýrin hans lendi á flækingi og rykfalli á háaloftum engum til ánægju. Slík saga hefur of oft endurtekið sig. Sigurður Antonsson. Vegna mistaka skal bréf þetta sem birtist í Mbl. í gær birt aftur þar sem fyrirsögn þess féll niður. • Svar til borgara I Velvakanda miðvikudaginn 6. september s.l. er spurt um það hvort aka megi ökutækjum lög- reglunnar hraðar en á leyfðum hraða á hverjum stað, ef ekki er beitt hljóðmerkjum eða blikkandi rauðum ljósum. Þessu er því til svara, að þetta er óheimilt og brot á lögum og starfsreglum lögreglunnar. Á- bending borgara í þessu efni verður því tekin til aivarlegrar athugunar. í reglum sem allir lögreglumenn hafa undir höndum og gefnar eru út af lögreglustjóra segir: „Lög- reglubifreiðum skal aldrei ekið hraðar en almennar umferðarregl- ur gera ráð fyrir, nema brýna nauðsyn beri til vegna skyldu- SKAK Umsjón: Margeir Pétursson Á samsovézka úrtökumótinu í fyrra kom þessi staða upp í skák þeirra Lutikovs og Zingorns, sem hafði svart og átti leik: 26.... e3!!, 27. Dxgl(Eftir 27. Hd3 — e2, 28. Del — Bxd4, er staða svarts léttunnin) exd2, 28. Kh2 — Ilel. 29. Be5 - g5, 30. HxcG - dl=D, 31. Dxdl - Ilxdl og með hrók yfir í endatafli vann svartur auðveldan sigur. starfa. Ef vikið er frá almennum reglum skal eftirfarandi atriða gætt: 1. Forgangsréttur lögreglubifreiða samkvæmt umferðarlögum gildir aðeins: a) þegar ökumaður lögreglubif- reiðarinnar gefur hljóð- og ljós- merki. b) þegar sérstakrar varúðar er gætt við aksturinn og fullt tillit tekið til annarra vegfarenda. 2. Ökumaður skal ávallt fara eftir bendingum lögreglumanna, er stjórna umferð á leið hans. 3. Forgangsrétti er eingöngu heimilt að beita við akstur á afbrotavettvang eða slysstað, svo og við eftirför brotamanns ef nauðsyn krefur. 4. Við annan akstur lögreglubif- reiða skal farið eftir almennum reglum og er þá óheimilt að nota hin sérstöku hljóð- og ljósmerki nema með leyfi varðstjóra hverju sinni. 5. Við hraðan akstur, svo og ef forgangsrétti er beitt, skal gæta fyllstu varúðar. Þar sem um- ferðarljós bjóða almenna stöðvunarskyldu, skal hægja sér- staklega á ferð og nema staðar, ef þörf krefur.“ Þessar reglur voru gefnar út 6. desember 1965. Borgari skrifar einnig um hraðamælingar lögreglunnar. Þeim skrifum ber að mótmæla harðlega. Það er fyllsta ástæða fyrir lögregluna að beina athygli sinni að ökuhraða í borginni. Slysatölur í ár sýna að aðeins einn flokkur slysa í umferðinni fer hækkandi, en það eru slys á ökumönnum og farþegum. Lang tíðasta orsök þeirra slysa er of hraður akstur. Ber lögreglunni því sérstök skylda til að kæra þá ökumenn sem láta hjá líða að hlýða reglum um ökuhraða. Bréfritari nefnir sérstaklega hraðamælingar lögreglunnar á Kleppsvegi, sem hann segir að sé mjög góð umferðargata. A Klepps- vegi hafa á fyrstu sjö mánuðum þessa árs orðið 28 umferðaróhöpp, þ.m. slys á fólki og eitt dauðaslys í næsta nágrenni götunnar eða annað þeirra tveggja dauðaslysa, sem hafa orðið í umferðinni í borginni í ár. Kleppsvegi í núverandi mynd, er ætlað samkvæmt skipulagi, að verða húsagata fyrir íbúa, en er nú notaður sem eina akstursleiðin til austurs. Þar er því mjög mikil umferð, sem liggur alveg við húsagaflana hjá íbúunum. Til þess að Kleppsvegur verði sú gata sem hún á að verða þarf að fullgera nyrðri akbraut Elliðavogs. Sú gata verður þá með tveimur akbraut- um. Eg vil nota það tækifæri, er borgari býður upp á með skrifum sínum til þess að minna alla vegfarandur á árstímann sem nú er framundan. Við skulum ekki gleyma því, að þúsundir skóla- barna hefja nú skólagöngu og verða því á ferðinni um götur borgarinnar á öllum tímum dags- ins. Við skulum taka höndum saman um að vernda þessi börn svo og aðra vegfarendur. Lögregl- an mun gera sitt til þess m.a. með auknum hraðamælingum á sem flestum stöðum í borginni, ekki til að veiða menn eins og borgari nefnir svo ósmekklega, heldur til þess að aðstoða borgarana unga og aldna. Reykjavík. 6/9 1978 Óskar ólason, yíirlögregluþj. • Hvað með gamalmenni? Er nauðsynlegt að skattleggja fólk sem komið er yfir áttrætt þó að það vinni Vi dag við útflutn- ingsverðmæti lands vors. Spyr sá sem ekki veit. HÖGNI HREKKVÍSI a.n © IW8 “ MeNaugbt Synd., Inc. „Ég held að þetta sé einhverskonar bragð hjá honum?!“ SIGGA V/öGA £ ‘itLVtVAU M/'N. VA9 AA9<AKAVly/V9 ,AV Það er oftast keppni um það hver á pysjuna sem lengst getur flogið til hafs. Ljósmyndir Mbl. Sigurgeir. Lundapysju- tíminn í Eyjum Pysjan hituð upp. LUNDAPYSJAN í Eyjum hefur verið óvenju seint á ferðinni að þessu sinni, eða 2—3 vikum seinna en venjulega og krakkar í Eyjum hafa því haft nóg að gera að undanförnu við að safna pyjsum sem fljúga á ljósin í bænum að nætur- lagi. I morgunsárið fara krakkarnir af stað og bjarga pysjunum úr húsa- görðum, af götunni og úr kartöflugörðum og síðan er farið með pysjurnar út að sjó og þeim komið á flug til hafs. Þó verður að sæta lagi að sleppa því skúmurinn á sér veiðivon í þessu sam- bandi. <33*4? «> 7?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.