Morgunblaðið - 08.09.1978, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 08.09.1978, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1978 Færeyingar vilja halda c-keppnina í handknattleik FÆREYINGAR háía'sótt um að hulda C-koppnina í hand- knattleik árið 1980 ok er umsókn þeirra meðal mála. sem af«reidd verða á IIIF-þinginu á Hótei Loftleið- um um helKÍna. Þinsið verður formlega sett á laugardags- morgun, en ýmsir nefnda- og svæðafundir standa yfir þessa dagana. Færeyintfar voru fyrst með í C-keppninni f handknattleik í PortÚBal 1976 og þeir vcrða meðal níu þjóða, sem keppa í Sviss í nóvembermánuði. Fær- eyingar sendu formlega um- s<)kn um C-keppnina 1980 til skrifstofu IIIF í maímánuði og verður málið afgreitt á þing- inu í Reykjavík. Norðurlanda- fulltrúarnir standa allir með Færeyingum og töluverðar líkur eru á að Færeyingar fái mótið. í Færeyjum er ágæt aðstaða til að halda slíkt mót og t.d. hafa þeir upp á góðar fþróttahallir að bjóða. Færeyingar undirbúa nú lið sitt af kappi fyrir C-keppnina í Sviss og yfirumsjón með þjáifuninni hefur Daninn Ilans Jensen. sem á sfnum tfma náði mjög góðum árangri með danska landsliðið. Fram að keppninni f Sviss hyggjast Færeyingar leika fjóra lands- leiki. þar á meðal fjóra gegn fslendingum. Leikið verður í Færeyjum 30. september og 1. október, en hérlendis 13. og 14. september. Að auki verður leikið á móti Englcndingum og b-liði Dana. - áij Sá pólski ókominn til FH! PÓLSKI handknattleiksþjálf- arinn sem FII hefur ráðið til starfa í vetur, er enn ókominn til landsins. Atti hann að vera kominn í byrjun þessarar viku. en samkvæmt heimildum sem Mbl. hefur aflað sér mun hann hafa tafist en er væntan- legur til landsins n.k. mánu- dag og mun þá þegar hefja störf hjá FIL Landsliðið í tugþraut til Parísar ÍSLENDINGAR heyja lands- keppni í tugþraut við Frakk- land. Brctland og Sviss helg- ina 16, —17. september og fer keppnin fram f Frakklandi. Frjálsfþróttásambandið hefur nú vaiið lið til keppninnar og skipa það þeir Elfas Sveinsson KR, Þráinn Hafsteinsson Á og Pétur Pétursson UÍA. Farar- stjóri verður Hreinn Erlends- son. Það vekur athygli að þjálf- ari er ekki sendur með liðinu til Parísar og á Evrópumótið í Prag á dögunum var ekki heldur sendur þjálfari. Að sjálfsögðu hefur FRÍ ekki úr miklu fé að spila. en er ekki æskilegast að árangur keppenda verði sem beztur og myndi ekki þjálfari til aðstoð- ar stuðia að því? — áij. • Hætta skapaðist nokkrum sinnum við mark Þróttar í leiknum, eins og í þetta skipti, þegar Rúnar markvörður missti knöttinn í gegn um klofið á sér, en Gunnar Blöndal fylgdi ekki nógu vel og Þróttarar hjörguðu málunum. Þróttur á lygnum s jó KA siglir haugasjó ÞRÓTTARAR tryggðu sæti sitt í fyrstu deild, er þeir sigruðu KA f hinum geysimikilvæga fallbar- áttuleik í gærkvöldi. Á sama tíma rýrnuðu vonir KA-manna til muna. Verða þeir nú að vona að UBK annað hvort nái jafntefli eða sigri FH á Kaplakrika um helgina. Jafntefli UBK og FH1 myndi þýða að leika yrði aukaleik um fallsætið. Þó að allt geti gerst, j eru ekki margir á því að Blikarn- ir geri stóra hluti gegn FH og cru þvf horfur á, að KA hrapi niður í 2. deild. Frá sjónarhóli KA- manna gat markið ekki komið á verra augnabliki, eða á 89. mfnútu, er Þorgeir Þorgeirsson skoraði af stuttu færi. Sigurinn var ekki sanngjarn, jafntefli hefði verið nær sanni. Þróttarar sóttu undan stífri golu í fyrri hálfleik og sóttu lengst af meira. Þorgeir átti skot strax í byrjun leiks, sem Þorbergur varði. Einnig áttu Þorvaldur og Halldór Arason góða skalla sem voru eigi fhrðttir Þróttur — KA 1—0 Texti oíí rnynd. Guðmundur Guðjðntwon allfjarri netamöskvunum. Besta færi Þróttar kom þó á 36. mínútu, er Sverrir Brynjólfsson skaut yfir, eftir að Þorbergur hafði misst frá sér fyrirgjöf. Það voru hins vegar leikmenn KA sem fengu bestu færin í fyrri hálfleik, einkum á 33. mínútu, þegar Elmar einlék niður vinstri vænginn og gaf á Jóhann Jakobsson sem var í algjöru dauðafæri. En Jóhann skaut himinhátt yfir. Á síðustu mínút- unni átti síðan Eyjólfur Ágústsson þrumuskot eftir hornspyrnu, en Árni Valgeirsson bjargaði snar- lega af marklínu. í síðari hálfleik, voru það KA-menn sem sóttu allt hvað af tók og oft vantaði aðeins herslu- muninn að þeim tækist að brjóta sér leið í gegnum vörn Þróttar. Ármann Sverrisson, Jóhann Jakobsson og Gunnar Blöndal áttu allir færi á að skora, sem þeir misnotuðu, einfaldlega vegna þess að færin voru ekki nógu afgerandi. Hinum megin átti Páll gott færi sem einnig fór í vaskinn. Það var svo á 89. mínútu, að Þorgeir skoraði eina markið með skoti af stuttu færi, eftir fyrirgjöf frá vinstri og gleði Þróttar var mikil, enda sæti þeirra tryggt. íslendingar vöktu athygli á NM í golfi ÍSLENDINGAR urðu í 4. sæti á Norðurlandamótínu í golfi. sem lauk í Kalmar í Svíþjóð í gær- kvöldi. íslendingar báru sigurorð af Finnum með 19 höggum, en áður hafði landinn aðeins lagt Finna einu sinni að velli og þá með aðeins einu höggi og vegna þess, að einn þeirra lá fárveikur í bælinu. í gær léku flestir Islendinganna mun betur heldur en fyrri daginn, Ragnar lék á 76 (80) höggum, Björgvin á 78, (80), Sigurður Hafsteinsson á 79 (90) höggum, Geir á 80 (80) Óskar á 84 (78) og Hannes á 80 (86). íslendingar urðu því í fjórða sæti sem fyrr segir, með 799 högg. Efstir urðu Svíar með 749, Norðmenn urðu í öðru sæti með 783 högg og Danir komu þar á eftir með tveimur höggum betur. Finnar ráku lestina með 818 högg. Islendingar vöktu mikla og verðskuldaða athygli fyrir frammistöðuna og var það mál manna, að þá skorti aðeins meiri reynslu, en Islendingar hafa ávallt orðið langaftastir á þessum mót- um. gg. „Möguleik- ar okkar eru nánast engir“ ÞAÐ VÆRI rangt að segja, að það hafi verið gleði sem ríkti í búnings- klefa KA eftir leikinn, enda eru likurnar á að liðið tóri í fyrstu deild afar litlar, en þær byggjast á því að Breiðablik taki eitt eða fleiri stig af FH á laugardaginn. Jóhannes Atlason, þjálfari KA varð fyrstur fyrir svörum. — Möguleikar okkar eru nú engir, þessu er lokið í bili, FH fær sín stig og situr áfram. Annars var Þorgeir kolrangstæður þegar hann skoraði, það hlutu allir að sjá, — kolrang- stæður, hlutu allir að sjá — bergmálaði úr fleiri hornum bún- ingsklefans og andrúmsloftið var líkara því að í grafhýsi væri staðið. Þess má geta, að línuverðir þvertóku fyrir að um rangstöðu hefði verið að ræða, er blm. ræddi stuttlega við þá í leikslok. — gg. ísal-keppnin í Grafarholti 9. og 10. september fer fram hin árlega ÍSAL-keppni í golfi á Grafarholtsvelli. Keppt verður í m.fl., I. fl., II. fl. (af hvítum teigum) og III. fl. karla (af rauðum teigum) án forgjafar og einum flokki kvenna m/forgjöf. Keppt er um farandgripi gefnum af ISAL. Að þessu sinni hefur ÍSAL látið gera sérlega glæsileg eignarverðlaun sem eru handmálað postulín sem Kolfinna Ketilsdóttir, Reyðarfirði, hefur gert. Keppnin er 36 holur, leiknar verða 18 holu-r hvern dag. Ræst verður út kl. 10.00—14D0 laugardaginn 9. sept. Kappleikjanefnd G.R. hvetur sem flesta til að taka þátt í þessu síðasta stórmóti sumarsins á Grafarholtsvelli. III Bir, «■ M • Hinir glæsilegu verðlaunagripir sem ísal hefur gefið til keppninnar. Faralds- og f ót bo It afæt u r í Laugardalnum VALSMENN mæta A-þýzku meisturunum frá Magdeburg í Evrópukcppninni í knattspyrnu á Laugardalsvellinum á miðvikudag í næstu viku. Meira verður þó um dýrðir á Laugardalsvellinum á miðvikudag en snjallir knattspyrnumenn. Klukkustund fyrir leik munu hljómsveitin Brimkló Halli og Laddi hefja tónleika á Laugardalsvcllinum og lýkur þar landreisu þcirra, sem kölluð var „Faraldsfætur 1978“. í leikhléi verða faraldsfæturnir einnig í sviðsljósinu og sjá um að halda uppi stemmningu meðan knattspyrnufæturnir hvflast.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.