Morgunblaðið - 08.09.1978, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1978
19
Ný reglugerð um möskva-
stærð flot- og botnvörpu
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
gefið út reglugerð um möskva-
stærðir botnvörpu og flotvörpu
og er reglugerð þessi að mestu
sama efnis og gildandi reglugerð,
en ýmis ákvæði hafa verið gerð
ítarlegri og öðrum breytt li'tillega
í samræmi við fengna reynslu af
gildandi reglugcrð, að því er
segir í fréttatilkynningu frá
sjávarútvegsráðuneytinu. Hin
nýja reglugerð tekur gildi 20.
september og eru helztu ákvæði
hennar þessii
1. Lágmarksstærð möskva í
a.m.k. 8 öftustu metrum botnvörpu
og flotvörpu verður áfram 155 mm.
2. Heimilt verður áfram að
stunda karfaveiðar á sömu svæð-
um og verið hefur með 135 mm
lágmarksmöskvastærð í poka.
3. Lágmarksmöskvastærð hum-
arvörpu verður óbreytt eða 80 mm.
4. Lágmarksmöskvastærðið
rækjuvarpna verða:
a. í tveggja byrða vörpum, 55
mm í vængjum og miðneti en 36
mm í öðrum hlutum vörpunnar.
b. í vörpum, sem hafa fjögur
eða fleiri byrði, 45 mm í
vængjum aftur að fremsta horni
efra byrðis en 36 mm í öðrum
hlutum vörpunnar.
Síldarsöltun
hafin á Höfn
SÍLDARSÖLTUN hófst á
Ilöfn í Hornafirði á mið-
vikudagskvöld, en þá voru
saltaðar nokkrar tunnur
hjá söltunarstöðinni
Stemmu. Var sfldin söltuð
sérstaklega vegna sfldar-
matsnámskeiðs sem nú er
haldið á Höfn.
Afli reknetabáta frá Höfn
hefur verið tregur síðustu
daga. í gær kom hins vegar
Votaberg frá Eskifirði með
150 tunnur af síld til Hafn-
ar, en síldina fékk báturinn
í Reyðarfirði. Þegar fréttist
af síldinni í Reyðarfirði,
fóru margir Hornafjarðar-
bátanna þangað og er því
búizt við að síldaraflinn
verði meiri næstu daga, þar
sem frétzt hefur af þó
nokkru síldarmagni í
Reyðarfirði.
Óskar kom með
130 lestir
Akrnes, 7. sept.
TOGARINN Óskar Magnússon AK
177 kom hingað til hafnar í dag
eftir sex sólarhringa veiði.ferð og
er afli hans rúmlega 130 lestir,
mest stór ufsi. Vinna í frystihús-
unum hefur verið samfelld og í
flestum tilfellum hefur verið unnið
til kl. 7 á kvöldin.
— Júlíus.
Leiðrétting
MJÖG slæm prentvilla varð í
blaðinu í gær. Misritaðist þá
föðurnafn Þórunnar Pétursdóttur
sjúkraþjálfa í fyrirsögn, en þar
stóð Pálsdóttur. Er beðist afsök-
unar á þessum mistökum.
5. Lágmarksstærð möskva í
vörpum, sem notaðar eru til
spærlings-, kolmunna og loðnu-
veiða, er 16 mm.
6. Um klæðningar varpna gilda
þessar reglur:
a. Heimilt er að festa undir
öftustu 18 metra bornvörpu net
eða annað "efni til að draga úr
sliti. Slitvarar þessir skulu
aðeins festir að framan og á
hliðunum við vörpuna. Athygli
er vakin á því að þetta tekur
aðeins til votnvarpna.
b Heimilt er að festa styrktar-
net úr sama efni og varpan er
gerð úr við öftustu 8 metra efra
byrðis botnvörpu og efra og
neðra byrðis flotvörpu. Möskva-
stærð styrktarnetsins skal rúm-
lega tvöfalt stærri en möskva-
stærð vörpunnar þar sem
styrktarnetið er fest við, og skal
styrkarnetið fest þannig, að hver
möskvi þess falli saman við fjóra
möskva vörpunnar. Hér er um
svonefnda „pólska klæðningu"
að ræða og má aðeins nota hana
á efra byrði botnvarpna en
hinsvegar á allan poka flot-
varpna.
7. Nýtt ákvæði er um fjölda og
lengd þenslugjarða. Samkvæmt
því, er heimilt að nota þenslu-
gjarðir á öftustu 9 metra botn-
vörpu og öftustu 18 metra flot-
vörpu. Bil milli gjarða má minnst
vera 1,80 metri og skulu gjarðirnar
eigi styttri en helmingur af
strengdri lengd netsins á þeim
stað er gjörðin er.
8. Þær sérreglur gilda um veið-
ar með rækjuvörpu og vörpum sem
notaðar eru til spærlings-, kol-
munna- og loðnuveiða, að heimilt
er að nota styrktarpoka utan um
poka vörpunnar en lágmarksstærð
slíks styrktarpoka er 80 mm.
9. Við mælingar á möskvastærð
skal þeirri aðferð beitt að möskvi
skal teygður horna á skal teygður
horna á milli eftir lengd netsins og
skal þá flöt mælistika, jafnbreið
leyfilegri möskvastærð og 2 mm
þykk komast auðveldlega í gegnum
möskvann. Netið skal mælt vott.
Sjávarútvegsráðuneytið,
7. september 1978.
Karlmannaföt, rifflaö flauel (blússukakki og buxur) kr. 6975
settiö.
Terylenebuxur, margar geröir, verö frá kr. 3.500.-
Gallabuxur, kr. 2.975,- og kr. 3.975,-
Nylonúlpur, margar gerðir, hagstætt verö. Skyrtur, nærföt,
sokkar o.fl. ódýrt.
Opiö föstudaga til kl. 7 og laugardaga til kl. 12.
Andrés Skólavörðustíg 22.
EFÞAÐERFRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Arið 1956
var Volvo nr. 22
r ■■ Tjt ■ ■
I rooinm . . . af skráðum bílum á
íslandi. Volvo var þá með sama markaðs-
hluta og Fiat, 1,4%
Áriö 1956 var aö mörgu leyti gott Volvo ár, en við
vorum sannfærðir um að gæði Volvobílanna myndu
hækka okkur í sessi áður en langt um liói.
Árið 1966 sýndi að vió höfðum rétt fyrir okkur.
Volvo var þá nr. 9 í röðinni með 3,1% markaðs-
hluta.
Áriö 1976 bættum við um betur og náðum 5. sæti
með 4,8% markaðshluta. Volvo var mest seldi
bíllinn í sínum verðflokki, og lang mest seldi bíllinn í
sínum stærðarflokki.
í dag nálgumst við 4. sætið óðfluga, enda h«fur
Volvo aldrei boðió jafn trausta og glæsilegabíla og
fjölbreytt úrval. Nú má jafnvel Fiat fara að vara sig!
Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200