Morgunblaðið - 08.09.1978, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDÁGUR 8. SEPTEMBER 1978
Tónlistarfélagið:
Tónleikar með sam-
leik á selló og píanó
Á FYSTU tónleikum Tónlistar-
félagsins í Reykjavík, sem
verða nk. laugardag, koma
meðal annars fram á tónleikun-
um David Simpson, sellóleik-
ari, og Edda Erlendsdóttir,
píanólcikari. Á efniskrá tón-
leikanna er sónata fyrir selló
og píanó eftir Debussy,
ævintýri í þremur þáttum eftir
Leos Janaceck, þrjú stutt verk
eftir Webern, sónata op. 102
eftir Beethoven og eftir hlé
verður sónata í e-moll op. 38
eftir Brahms.
Edda Erlendsdóttir
David Simpson er fæddur í
New Haven í Bandaríkjunum
árið 1952. Hann stundaði nám í
Harward College í tónlist,
stærðfræði og líffræði. Lauk
þaðan prófi 1974. Síðan stundaði
hann almennt tónlistarnám við
Julliard School of Music með
sellóleik sem aðalgrein. Kennar-
ar hans í Bandaríkjunum voru
George Finchel, Micheael
Rudiakov, Benjamin Zander.
Síðastliðin fjögur ár hefur hann
stundað nám við Konservatoríið
í París hjá André Verarra í
sellóleik og Jacques Parrenin í
kammermúsík.
David Simpson hefur tekið
þátt í tónleikum sem einleikari
Svifdreka-
menn stofna
félag
SVIFDREKAMENN halda
kynningar- og stofnfund
félags áhugafólks um svif-
drekaflug á Hótel Esju n.k.
sunnudag, 10. september, og
verður fundurinn á annarri
hæð hótelsins og hefst kl. 16.
Á fundinum veröur sýnd
kvikmynd og litskugga-
myndir frá Islandsmóti í
svifdrekaflugi, sem haldið
var í tengslum við Rauð-
hettumótið í sumar 5.-8.
ágúst.
Nú eru liðin um fjögur
ár frá því að menn fóru fyrst
að iðka svifdrekaflug hér á
landi og hefur fjöldi þeirra,
sem leggja stund á þessa
iðju, aukizt jafnt og þétt að
sögn þeirra sem standa að
fundinum á sunnudag.
og í kammerhljómsveitum í
Bandaríkjunum, Frakklandi,
Italíu, Þýzkalandi, Austurríki,
Sviss og Belgíu.
Edda Erlendsdóttir er fædd í
Reykjavík árið 1950. Hún hóf
nám í píanóleik í einkatímum
hjá Selmu Gunnarsdóttur.
Stundaði síðan nám í Tónlistar-
skólanum í Reykjavík með öðru
námi. Kennarar hennar voru
Hermína Kristjánsson, Jón
Nordal, og Árni Kristjánsson.
Að loknu stúdentsprófi árið 1970
innritaðist hún í píanókennara-
David Simpson
deild Tónlistarskólans og lauk
þaðan prófi 1972 og einleikara-
prófi ári síðar.
Hún hlaut franskan styrk til
að stunda nám við Tónlistarhá-
skólann í París. Hefur hún
dvalist þar við nám síðastliðin
fimm ár og lauk þaðan prófi
siðastliðið vor. Kennarar henn-
ar voru Pierre Sancan, í píanó-
leik og Jaczues Parrenin í
kammermúsík. Á sumrin hefur
hún dvalist bæði við sumaraka-
demíuna í Nice og við Ravel
akademíuna í St. Jean de Luz.
Þau Edda og David hafa leikið
saman í þrjú ár og hlutu 1.
verðlaun á lokaprófi í kammer-
músík síðastliðið vor við
konservatoríið í París.
Nýir yfirmenn hafa nýverið tekið til starfa hjá Hjálpræðishernum í Reykjavík. Það eru þau Gudmund
Lund major og deildarstjóri, og flokksforingjarnir, Audhold Goksöyr, kapteinn og Solveig Edvardsen.
löytnant. Þau sjást hér á myndinni og vilja minna á að í gær og í dag er merkjasöludagur
Iljálpræðishersins til styrktar starfseminni.
Fimm med loðnu
frá Jan Mayen
NOKKUR hluti íslenzka
loðnuflotans var kominn á
miðin við Jan Mayen í
fyrrakvöld, en stærsti hluti
flotans kom í fyrrakvöld.
Um hádegisbil í gær höfðu
aðeins fimm skip tilkynnt
um afla af þessum slóðum,
samtals 2260 lestir. Þær
fréttir hafa borizt frá skip-
unum á Jan Mayen svæðinu,
að þar sé að finna loðnu á
stóru svæði, en loðnan hafi
verið frekar dreifð í fyrri-
nott, en menn vonuðust til
að loðnan myndi þétta sig á
ný í gær. Þá var vitað að
mörg íslenzku skipanna
höfðu fengið sæmilegan afla
í fyrrakvöld, þótt þau hefðu
ekki lagt af stað til landsins
í gær.
Skipin, sem tilkynntu um
loðnu, eru þessi: Örn KE 575
lestir, ísleifur VE 1+50, Jón
Kjartansson SU 200 og Loftur
Baldvinsson EA 780 lestir.
ÚTSALAN
I FULLU FJÖRI
40-80% AFSLATTUR
Á ÖLLUM VÖRUM VERZLUNARINNAR.
KOMDU STRAX OG GERÐU REYFARAKAUP
BANKASTRÆTI 14, SIMI 25580