Morgunblaðið - 08.09.1978, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1978
Uruguay:
Eitradur mjöd-
ur sendur stjórn-
málamönnum
Montevidco, Urutcuay — 7. sept. — AP
ÞREMUR stjórnmálaleiðtogum í
Uruguay voru færðar flöskur með
eitruðu víni og eiginkona eins
þeirra lézt eftir að hafa bragðað á
Franskur
togari tek-
inn við
Færeyjar
Frá fréttaritara Mbl. í Færeyjum,
Jógvan Arge
FRANSKUR togaraskipstjóri
hefur verið dæmdur fyrir rétti
í Þórshöfn í 30.000 f.kr. sekt
fyrir ólöglegar veiðar i fær-
eyskri landhelgi. Afli togarans,
sem mestmegnis var ufsi, var
gerður upptækur og metinn á
45.000 f.kr.
Það var færeyska varðskipið
Tjadrid, sem kom að franska
togaranum Jean Germanine,
þar sem hann var að veiðum
um 28 sjómílur vestur af
Mykinesi. Var togarinn færður
til hafnar í Þórshöfn og kom
þar í ljós, að möskvastærð var
of lítil.
drykknum að því er lögregla sagði
frá í dag. Sagði einnig í frásögn
lögreglu, að með flöskunum hefðu
fylgt handskrifuð kort þar sem
hlýjar óskir voru sendar viðtak-
endum. Flöskurnar voru skildar
eftir við aðalbækistöðvar leiðtoga
Þjóðarflokksins í Montevideo, Per-
eyra, de Herrerra og Heber Usher.
Voru flöskurnar settar þarna 30.
ágúst. A miðanum voru leiðtog-
arnir hvattir til að skála í vininu
þann 31. ágúst og minnast föður-
landsins.
Bann er við starfsemi stjórn-
málaflokka í Uruguay síðan her-
inn tók þar við völdum 1973.
Þjóðarflokkurinn hefur margsinn-
is hvatt til afturhvarfs til lýðræðis
í landinu.
Lisa Halaby og Hussein, konungshjón í Jórdaníu, komu á dögunum til Bretlands, fljúgandi í Boeing
737-vél kóngsins, sem hann stjórnaði sjálfur. bau hugðust dvelja í leyfi í Bretlandi nokkra hríð.
Drottningin lét vel af nýrri tilveru sinni í Jórdaníu og enda þótt hún hafi nú fengið nýtt nafn
Noor-al-Hussein, sem útleggst Ljósið hans Husseins, notar kóngurinn og þeir helztu vinir hennar
Lisu-nafnið öðru hverju. í fregnum frá Amman f Jórdaniu segir, að svo virðist sem drottningin plumi
sig vel i starfi sínu og þegnar hennar segi hana ljúfa og áhugasama um að vinna að líknar- og
velferðarmálum í Jórdaníu sem sannariega er full þörf á að sinnt sé.
Stoll með
brezk og
austurrísk
skilríki
Diisseldorí, 7. september
Reuter — AP
VESTUR-þýzki hryðjuverkamað-
urinn Willy Peter Stoll sem
lögreglumenn skutu til bana á
veitingahúsi í Dússeldorf í gær-
kvöldi bar brezkt vegabréf og
ökuskírteini, og einnig var hann
með austurrískt nafnskírteini á
sér.
Samkvæmt þessum skilríkjum
gekk Stoll ýmist undir nafninu
Philip James Burdock, 30 ára, frá
Beckenham í Englandi eða sem
Herbert Wendl, 30 ára, frá Inns-
bruck í Austurríki. Stoll hefur
verið eftirlýstur í sambandi við
morð á þremur háttsettum mönn-
Veður
víða um heim
Akureyri 12 skýjaö
Amsterdam 18 skýjaó
Apena 29 bjart
Berlín 15 rigning
Barcelona 24 skýjaó
BrUssel 14 skýjaö
Chicago 32 bjart
Frankfurt 19 rigning
Genf 18 rigning
Helsinki 15 rigning
Jerúsalem 30 sól
Jóhannesarb. 17 8Ó!
Kaupmannah. 16 skýjaó
Kairó 35 bjart
Lissabon 27 sól
London 21 rigning
Los Angeles 24 bjart
Madrid 26 bjart
Mallorka 26 téttskýjað
Malaga 25 heiöskírt
Miami 31 bjart
Montreal 21 skýjaó
Moskva 21 skýjaö
Nýja Delhi 32 bjart
New York 30 bjart
Ósló 15 rigning
París 21 skýjað
Reykjavík 13 léttskýjaö
Rio de
Janeiro 30 bjart
Rómaborg 20 skýjaö
San Francisco 19 skýjaö
Stokkhólmur 15 skýjað
Sydney 17 rignina
Tel Aviv 29 sól
Tókíó 31 skýjaö
Toronto 32 skýjaö
Vancouver 16 bjart
Vínarborg 23 bjart
Líkur á að einn morðingja
Bubachs verði framseldur
Maastricht — 7. sept. — AP
HOLLENZKUR dómstóll sam-
þykkti í dag að framselja v-þýzka
hryðjuvcrkamanninn og félaga í
Rauða hernum.Knut Folkerts,
v-þýzkum yfirvöldum, þar sem
hann á yfir höfði sér dóm vegna
sprengingar í dómsmálaráðu-
neytinu í Karlsruhe í ágúst 1977.
Rétturinn neitaði að taka til
greina kröfu verjanda hans um að
ekki væri hægt að framselja hann
v-þýzkum yfirvöldum vegna þess
að glæpurinn, sem hann væri
sakaður um, væri af pólitískum
toga.
Annar dómstóll í Hollandi
samþykkti nýlega að framselja
Folkerts vegna morðsins á V-Þjóð-
verjanum Siegfried Bubach, en
lokaákvörðun um framsal hjtns er
í höndum hollenzka dómsmálaráð-
herrans Job De Ruiter.
Fr ekari hr eins-
anir í Rúmeníu
Búkarest 7. sept. AP.
ÞREMUR dögum eftir að
Ceausescu forseti Rúmeníu veik
Ofdrykk ja f átíd
í Austurlöndum
Varsjá. 7. september — Reuter
Austuriandahúum fjær hættir
miklu síður við ofdrykkju en
öðrum vegna ákveðinna líffræði-
legra eiginleika, að því er komið
hefur fram á alþjóðaþingi um
fíkniefna- og áfengisneyzlu sem
nú er haldið í Varsjá. Þykir þetta
helzta ástæðan fyrir því að mjög
li'tið ber á ofdrykkju meðal
Austurlandabúa.
Það var John Ewing prófessor
við háskólann í Norður-Karólínu-
fylki í Bandaríkjunum sem skýrði
frá þessu, en hann sagði að
rannsóknir á Austurlandabúum
fjær hefðu leitt í ljós, að meðal
þeirra væru hvatar, sem ekki
fyndust hjá öðrum, við úrvinnslu
áfengisins í lifrinni. Þessir hvatar
framleiða mikið magn af svo-
nefndu acetaldehyde við niðurbrot
alkóhóls og veldur þetta efni
óþægilegum hliðarverkunum í
höfði og einnig eykur það mjög
hjartslátt.
úr starfa innanri'kisráðherra
si'num, hefur hann nú ákveðið að
heilhrigðismálaráðherra lands-
ins, Nicolae Nicolaescu, fari sömu
leiðina. Var skýrt frá brottvísan
ráðherrans f einni setningu í
útvarpsfréttum í Búkarest í dag
og engin skýring á henni gefin.
Ekki var tekið fram hver myndi
taka við af honum.
Sérfræðingar eru ekki trúaðir á
að þessi brottvikning standi í
sambandi við fyrri „hreinsunarað-
gerð“ forsetans en Coman innan-
ríkisráðherra var látinn lönd og
leið fáeinum vikum eftir að Ion
Pacepa, háttsettur hershöfðingi og
leyniþjónustumaður, flýði til
Vesturlanda.
Færeyjar:
Kosningaslagurinn að hefjast
Frá fréttaritara Mbl.
í Færeyjum — Jógvan Arge
FÆREYSKIR stjórnmálamenn
eru nú sem óðast að undirbúa
sig fyrir kosningarnar til
Lögþingsins í Færeyjum. sem
fram fara 7. nóvember n.k. Nú
er lögþingið að halda síðustu
fundi sína fyrir kosningarnar
og bera þingstörfin þess auðsæ
merki að margir þingmanna
leggja sig nú í framkróka við
að gera kjósendum sínum tii
hæfis.
Fjöldi fyrirspurna til lands-
stjórnarinnar hefur aldrei verið
jafn mikill og að undanförnu
eða jafn fjölskrúðugur, og svo
virðist sem margar þeirra séu
algerlega út í hött. Dæmi um
það er t.d. fyrirspurn frá
lögþingsmönnum Vogeyjar, þar
sem þess var farið á leit við
landsstjórnina að kannaðir yrðo
möguleikar á brúargerð yfir
Vestmannasund, þ.e. sundið
milli Vogeyjar og Straumeyjar.
Allir flokkar í Færeyjum ero
nú vel á veg komnir eða því sem
næst búnir að ákveða framboðs-
lista sína og glöggt má sjá á
flokksblöðum að kosningar fara
nú í hönd og stefnumál flokksins
verða fyrir alla muni að „ganga
inn í“ kjósendur. Margir Færey-
ingar bíða nú spenntir eftir
kosningunum og þá • aðallega
með tilliti til þess hvernig
stjórnarflokkunum þremur
muni reiða af.
Stjórnarflokkarnir þrír, Jafn-
aðarflokkurinn, Þjóðveldis-
flokkurinn og Fólkaflokkurinn,
hafa verið við völd síðasta
kjörtímabil, sem án efa er það
erfiðasta síðan heimastjórn
komst á árið 1948.
Mörg stórmál h'afa verið
ofarlega á baugi og má þar
nefna landhelgismál og sérstöðu
okkar varðandi EBE, þar sem
Danir eru í bandalaginu, en
Færeyingar ekki. I upphafi
kjörtímabilsins var ástand í
efnahagsmálum bágborið, en
segja má að það sé gott um
þessar mundir, þótt óvissa í
fiskveiðum geri allar langtíma-
áætlanir erfiðar.
Meirihlutaflokkarnir telja
nokkuð víst, að þeir muni halda
meirihluta sínum í kosningun-
um, en bera samt nokkurn ugg
í brjósti vegna hugsanlegrar
fylgisaukningar Sambands-
flokksins. Hann bætti fylgi sitt
mjög í kosningum til danska
þjóðþingsins í febrúar og svona
fyrirfram er reiknað með því, að
hann muni bæta við sig ein-
hverju, þótt ekki verði það mjög
mikið.
Annað atriði, sem veldur
nokkurri óvissu í kosningunum
í nóvember, er, að nýlega gekk
formaður félags færeyskra út-
gerðarmanna í „Framburds-
flokkin" með þeim ásetningi að
verða kjörinn á Lögþingið. Þessi
flokkur hefur frá 1954 átt einn
mann á Lögþinginu og er
öldungis óljóst hvaða áhrif þetta
muni hafa. Svo virðist þó sem
nokkur sundrung sé innan
flokksins milli eldri og yngri
manna og að skoðanir þessara
hópa á mörgum þjóðfélagsmál-
um séu harla ólíkar þegar allt
kemur til alls.
Við síðustu kosningar til
Lögþingsins fékk Jafnaðarflokk-
urinn sjö fulltrúa kjörna, Þjóð-
veldisflokkurinn sex, Fólka-
flokkurinn fimm, Sambands-
flokkurinn fimm, Sjálfstæðis-
flokkurinn tvo og Framburds-
flokkurinn einn.
í landsstjórninni sitja tveir
menn frá Jafnaðarflokknum,
Atli Dam og Jákup Lindenskov,
tveir menn úr Þjóðveldisflokkn-
um, Finnbogi Isaksen og Pétur
Reinart, og tveir úr Fólka-
flokknum, þeir Demmus Hentza
og Dánjal Danielsson.
Kosningalögum í Færeyjum
hefur verið breytt frá síðustu
kosningum þannig, að fiöldi
fulltrúa á Lögþinginu er í
hiutfalli við íbúafjölda hvers
byggðarlags. Þannig mun Þórs-
höfn nú fá kjörna átta fulltrúa
í stað fjögurra áður og sam-
kvæmt þessu er líklegt að fjórir
stærstu flokkarnir fái sína tvo
fulltrúana hver frá Þórshöfn.
En, sem sé, búast má við
fjölmörgum nýjum andlitum á
Lögþinginu eftir kosningar.
Nixon boðið
aðhalda raeðu
í Ástralíu
Sydney, ÁHtralíu, 7. sept. AP.
RICHARD Nixon, fyrrum Banda-
ríkjaforseta, sem hefur í hyggju
að fara til Ástralíu þrátt fyrir að
ríkisstjórn landsins hafi neitað
að taka á móti honum sem
opinberum gesti, hefur verið
boðið að halda ræðu meðan hann
dvelur í Ástralíu.
Það er samband ástralskra
nautgriparæktarmanna sem hefur
sent Nixon boðið, en samtökin
halda ársþing sitt á næstunni.
Sambandið er stórt og öflugt og
helzti markaður ástralskra naut-
gripaframleiðenda er í Bandaríkj-
unum.
I síðustu viku hafnaði stjórn
Ástralíu að taka á móti Nixon sem
opinberum gesti í fyrirhugaðri
ferð hans, en hann hafði óskað
þess og einnig vildi hann fá að
hitta Malcolm Fraser forsætisráð-
herra að máli. Mörg blöð og
fjölmiðlar í Ástralíu hafa gagn-
rýnt væntanlega komu Nixons til
landsins, og hefur ætlun hans
mælst misjafnlega fyrir.
ERLENT