Morgunblaðið - 08.09.1978, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1978
15
Crawford frá
Moskvu í dag
Moskvu. 2. sept. — AP — Reuter
BANDARÍSKI kaupsýslumaður-
inn Francis J. Crawford sem
dómstóll í Moskvu dæmdi í dag
sekan um gjaideyrismisferli,
pakkaði saman pinklum sínum og
sótti strax um leyfi til brottfarar
frá Sovétríkjunum að loknum
úrskurði dómstólsins. Hann varð
frjáls ferða sinna að loknum
úrskurðinum, sem hljóðaði upp á
fimm ára skilorðsbundna dvöl í
vinnubúðum.
Þá er þegar vitað um að
Crawford á frétekið flugfar frá
Moskvu til Frankfurt á föstudags-
Frumvarp
um lands-
banka í
Færeyjum
Fró fréttaritara Mbl.
í Færeyjum, Jógvan Arge.
LANDSSTJÓRNIN í Færeyjum
hefur lagt fram á Lögþinginu
frumvarp um stofnun landsbanka
í Færeyjum, sem er ætlað að vera
eins konar stjórntæki í færeysku
efnahagslífi.
í greinargerð með frumvarpinu
um landsbankann segir lands-
stjórnin, að hlutverk bankans
skuli m.a. vera að samræma
erlendar lántökur Færeyinga og
tryggja jöfnuð í uppbyggingu
landsins. Hlutverk hans eigi að
vera líkt og annarra þjóðarbanka,
en hann á ekki að hafa heimild til
að láta prenta seðla.
Frumvarpið kemur til fyrstu
umræðu á Lögþinginu í dag,
föstudag, og er búizt við að það
verði samþykkt áður en kosn-
ingarnar í nóvember fara fram.
kvöldið (í kvöld), en þar verður
fyrsta viðkoma hans á leiðinni til
Chicago. Þegar Crawford var í dag
spurður um hvort hann gæti
hugsað sér að koma nokkru sinni
aftur til Sovétríkjanna eftir þá
meðferð sem hann hefur hlotið
síðustu þrjá mánuðina, sagðist
kaupsýslumaðurinn ekki vilja úti-
loka það þar sem hann hefði áhuga
á að fylgjast með Ólympíuleikun-
um 1980.
Allt þykir benda til þess að hinn
hlutfallslega vægi dómur sem
Crawford hlaut sé tilkominn vegna
tilrauna ráðamanna í Moskvu til
að draga úr spennu sem ríkt hefur
í kring um málið, en ljóst er að það
hefur dregið úr samskiptum So-
vétríkjanna og Bandaríkjanna.
Crawford hefur sjálfur haldið því
fram að hann sé aðeins peð í tafli
stjórnmálanna og að handtaka
hans sé svar Sovétmanna við
handtöku tveggja Sovétmanna,
sem grunaðir voru um njósnir, í
New Jersey í vor. Þar sem
Crawford hefur nú verið veitt
frelsi þykir sennilegt að umræddir
Sovétmenn verði einnig látnir
lausir innan skamms.
Francis Crawford.
Þetta gerðist
1974 — Ford náðar Nixon.
1954 — Suðaustur-Asiubanda-
lagið (SEATO) stofnað.
1951 — 49 ríki undirrita friðar-
samning við Japani í San
Francisco.
1944 — Fyrsta V-2-árásin á
Bretland.
1943 — Bandamenn ganga á
land í Salerno á Ítalíu. —
Eisenhower tilkynnir skilyrðis-
lausa uppgjöf ítala.
192fi — Þýzkaland tekið i
Þjóðabandalagið.
1917 — Kornilov sækir til
Pétursborgar til að gera gagn-
byltingu.
1915 — Nikulás stórhertogi
sviptur stöðu yfirhershöfðingja
og Nikulás keisari tekur við.
1855 — Krímstríðinu lýkur.
s*Sjp
aUMKaÉRMMMV’ t J ' ,tJ ,
Indverskir hermenn í björgunarvestum aðstoða hér borgara í útjaðri Nýju-Delhi en götur þar eru víða
alveg undir vatni.
Um 900 látnir í
flóðum á Indlandi
Nýju-Delhi — 7. sept. — AP.
INDVERSKA ríkisstjórnin sagði
í dag að ekki færri en 898 manns
hefðu drukknað í hinum miklu
flóðum sem hafa verið víðs vegar
á Indlandi síðustu daga vegna
monsúnrigninga. Búizt er við að
þessi tala muni hækka og gengið
út frá því sem nokkurn veginn
vísu að eitt þúsund að minnsta
kosti séu látnir. Þá sagði í
skýrslu ríkisstjórnarinnar að
32,4 milljónir manna hefðu á einn
eða annan hátt orðið fyrir barð-
inu á flóðunum. 8.78 millj.
hektara lands hafa farið undir
vatn og tjón á eignum og
uppskeru er lauslega metið á
1831 — Rússar taka Varsjá og
uppreisn Pólverja lýkur.
Ififi4 — Peter Stuyvesant lætur
Nýju Amsterdam (New York) af
hendi við Breta.
1565 — Spánverjar koma tii
Florida og stofna fyrstu varan-
legu byggðina í Norð-
ur-Ameríku.
1563 — Maximilian, konungur
af Bæheimi, kosinn konungur
Ungverjalands.
1545 — Innrás jarlsins af
Hertford í Skotland.
Afmæli dagsins> Ix)ðvík II af
Borbón, prins af Conde, fransk-
ur hershöfðingi (1621 — 1686). —
August von Schlegel, þýzkur
höfundur (1767—1845). —
Antonin Dvorak, bæheimskt
tónskáld (1841—1904).
Innlent: Alberti Islandsráð-
herra játar a^^afjársvik og
skjalafals 1908. — Hróarskeldu-
þing samþykkir lagagildi
Alþingisfrumvarpsins til bráða-
birgða 1842. — Vígður Brandur
biskup Sæmundsson 1163. —
Vetursetubann útlendinga 1431.
— Ölfusárbrú vígð 1891. —
Tóbakseinkasölu komiö á 1931.
— Rússneskt tæki í Kleifarvatni
1973. — „Dagblaðið" hefur
göngu sína 1975. — F. Siguröur
Vigfússon fornfræðingur 1828.
— Guðmundur Karl Pétursson
1901.
Orð dagsinsi Hver er sinnar
gæfu smiður og við köllum
gæfuna forlög. — Benjamin
Disraeli, brezkur stjórnmála-
leiötogi (1804-1881).
jafnvirði um 113 milljóna dollara.
Þá hafa um fjögur þúsund gripir
drukknað.
í skýrslu stjórnarinnar sagði að
flóð hefðu orðið í ellefu ríkjum í
landinu og meiri og minni flóð
verið í 46.166 bæjum og þorpum.
Verst er ástandið í Uttar Pradesh
í Norður-Indlandi þar sem nú er
víst að tæplega fjögur hundruð
manns hafa látist og 240 þúsund
heimili skemmd eða jafnvel í
rústum.
Aðeins hefur dregið úr flóðunum
í Nýju-Delhi og nágrenni hennar
en embættismenn segja að
Yamunafljót, sem enn er mjög
vatnsmikið, ógni enn fjölmennum
íbúasvæðum á þessum slóðum.
Mörg úthverfi höfuðborgarinnar,
einkum í norðurhlutanum, eru
undir vatni. Herinn hefur verið
kvaddur út til að vinna björgunar-
störf og fjöldi sjálfboðaliða hefur
einnig lagt fram liðsinni sitt.
Þá eru matvælaflutningar hafn-
ir til þeirra sem hafa orðið fyrir
skaða í flóðunum og veru 'r flutt
mikið af hveiti og hrísgrjcnum
bæði til Nýju-Delhi og fimm ríkja.
Sagt er að hættuástand sé aö
skapast í Midnapore í Vest-
ur-Bengal. Þar herjar sultur á
bágstatt fólkið og malaría og
blóðkreppusótt hefur skotið upp
kollinum. *-
Glæpum f jölg-
ar í Úganda
Nairobi 7. sept. AP.
MORÐINGJAR og vopnaðir ræn-
ingjar herja á Úganda og Idi Amin
forseti hefur boðað harkalegar
ráðstafanir og refsingar að því er
útvarpið í Úganda sagði frá í dag.
Var tekið fram að forsetinn hefði
undirritað þrettán dauðadóma
sem hæstiréttur landsins hefði
kveðið upp, vegna þess að honum
þætti ekki stætt á því að sýna
linkind þar sem vaxandi glæpa-
hneigð gerði vart við sig.
12 manns féllu
á Filipseyjum
Zamboanga, Filipseyjum,
7. september, AP
AÐ MINNSTA kosti 12 manns létu
lífið í bardögum milli uppreisnar-
manna 'og hersins á Suður-Filips-
eyjum á mánudag og þriðjudag og
er jafnvel talið að tala þessi kunni
að vera enn hærri, að sögn
yfirvalda hersins.
Fjórum sinnum kom til vopna-
skaks milli uppreisnarmanna
Moro-þjóðfrelsisfylkingarinnar og
hersins þessa tvo daga, og er ekki
vitað með nákvæmni um mannfall
í einum árekstranna, en það þó
talið vera talsvert. Meðal þeirra
sem urðu fyrir barðinu á uppreisn-
armönnum síðustu tvo dagana
voru hjón og tvö börn þeirra, sem
höggvin voru til bana.
Skáldverk
Kristmanns Guömundssonar
Kríttmann Guömund»»on
Elnn af víölesnustu höfundum
tandsins. Nokkrar af bókum
hans hafa veriö þýddar aö
minnsta koetl á 36 tungumál.
Brúöarkyrtillinn
Morgunn lífsins
Arfur kynslóöanna
Ármann og Vildfs
Ströndin blá
Fjalliö heiga
Góugróöur
Nátttrölliö glottir
Gyöjan og nautiö
Þokan rauöa
Safn smásagna
Almenna Bókafélagið,
Auaturslroti 18, Skammuvegur 36,
*ími 19707 »ími 73055